Morgunblaðið - 08.03.1933, Síða 3
MORGUNBLAVIB
S
JftorgtttiMaMft
ÍTtiref.: H.í. Árvakur, Roykjavlk.
Rltitjörar: Jön Kjartannaon.
Valtýr Stef&nMon.
Httatjörn og aftfreiCala:
Auaturatrætl 8. — Staal 1600.
Auarlýaingaatjörl: B. Hafbers.
Anrlýainraakrifatofa:
Auaturatræti J7. — Staal 8700
Kaiaaaatmar:
Jön KJartansson nr. 8742.
ValtJ'r Stefánaaon nr. 4220.
B. Hafberg nr. 8770.
ÁakrlftaKlald'
Innanlanda kr. 2.00 * aaAnuBL.
Utanlanda kr. 2.50 á aaánuCL
t lauaaaölu 10 aura alntaklV.
20 aura meU Leabök.
Eina leiðin.
* Samsteypustjórn sú, sem nú
situr að völclum var mynduð með
það fyrir augum, að hún annaðist
viðunandi lausn kjördæmamáls-
ins.
Er Ásgeir Ásgeirsson myndaði
ráðuneyti sitt í vor sem leið, ’hjet;
liann því, að leggja fyrir næstaj
þing, frumvarp um stjórnarskrár-
breytingu, er fæli í sjer nauðsyn-
lega lagfæring á liinu óviðun-
andi kosningafyrirkomulagi.
Ásgeir Ásgeirsson hefir nví efnt
þetta loforð sitt, að því leyti, að
hann, eða stjórn hans, hefir borið
fram frumvarpið til stjórnarskrár
hreytingar .Hann hefir tekið ..mál-
ið að sjer, eins og tilskilið var í
vor, er samsteypustjórnin var
anynduð.
Allviða frá þingmálafundum
Tbárust þær fregnir fyrir þing, að
menn óskuðu eftir því, að sam-
vinna flokkanna, sú er tókst í vor
ífengi að halda- áfram.
Þetta miá takast með því, að
‘frumvarp stjórnar Ásgeirs Ás-
geirssonar nái samþykki Alþingis,
og verði afgreitt á þessu þingi.
'Til þess var tjórnin mynduð. Þetta
•stjórnarskrárfrumvarp er sam-
steypustjórnarinnar aðalmál.
Verði það mál fellt, í þinginu, er
•grundvöllur samst eypust j órnar-
innar um leið úr sögunni, og sam-
vinnan þar með úti.
Þetta er alveg augljóst. Stjórn
•sem mynduð er til þess að leysa^
eitt ákveðið mál, og hér síðan,
«eins og sjálfsagt er fram frum-
varp í málinu, getur ekki í þing-
ræðislandi setið við völd, nema
þetta aðalmál hennar hafi hægi-
legt þingfylgi, til þess að það fái
íramgang.
Þeir menn, sem aðhyliast sam-
vinnu flokkanna, þá sem nú er,
og styðja vilja samsteypustjórn-
ina, mega ekki gleyma því, að
•eina leiðin til þess að samvinnan
haldi áfram er sú, að stjórnar-
•skrárfrumvarp Ásgeirs Ásgeirs-
■sonar nái afgreiðslu á þessu þingi.
Inflúensan í Englandi
og afleiðingar hennar.
London 7. mars.
United Press. FB.
Heilbrigðismálaráðuneytið til-
liynnir, að fyrstu 8 vikur ársins
liafi heilsutryggingarstofnunin
greitt, samkvæmt kröfum. 1 milj.
sterlingspunda meira í heilsu-
tryggingar en á sama tíma árið
1931. Hina.r auknu útborgahir
••stafa af völdum infhiensunnar.
fjárhagsuanörŒðin
í Banðaríkjunum.
Fje svift úr bönkum.
London 7. febr.
Fjármálaráðstefna sú, sem nú
situr á rökstólum í Washington
eftir boði Roosvelts forseta, hefir
skýrt frá því, að á einni viku (sl.
viltu) hafi verið teknar út úr
bönkum í Bandarikjum 962 milj.
dollara. Nefndin bendir á það,
hversu hættulegt það geti verið
fvrir viðskiftalíf þjóðarinnar að
svo mikið fje sje skyndilega tekið
úr umferð.
Bankarnir opna aftur.
Washington 7. mars.
United Press. FB.
Ráðstafanir hafa verið gerðar
til þess að bankarnir geti hafið
viðskiftastarfsemi sína á ný. —
Woodin fjármálaráðh. hefir kunn-
gert að bönkunum sje heimilt að
hefjá á ný venjuleg viðskifti, að
því er snertir brýnustu þarfir, svo
sem að láta af hendi fje til mat-
mæla. og lyfjakaupa, vinnulauna
og annars, sem óhjákvæmilegt
þykir, að því tilskildu, að ekkert
gull sje af hendi látið og fylstu
varúðar sje gætt til þess að koma
i veg fyrir, að það fje, sem leyft
er að taka út, sje dregið úr um-
ferð til geymslu.
Bráðabirgða gjaldeyrir.
Frá New York kemur sú frjett
að ráðstafanir hafi verið gerðar
til þess að gefa út sjerstök skír-
teini í stað gjaldeyris, til bráða-
birgða.
Vegna ófyi-irsjáanlegra tafa,
hefir eigi enn orðið af iitgáfu
bráðahirgðaávísana, en Woodin
hefir gefið út boðskap til þess að
kunngera, að greiðslujafnaðar-
stofnunum sje heimilt að gefa út
bráðabirgðaávísanir 10. mars. þar
eð stjórnin telur heppilegast að
útgáfa slíkra ávísana fari fram
samtímis um gervalt landið, en
að fengnu sjerstöku leyfi fæst þó
heimild til litgáfu slíkra ávísana
fyr.
Alræðisvald í fjármálum.
Ríkisstjóranum í New York
ríki hefir verið fengið í hendur
mjög aukið vald, sem í fram-
kvæmdinni er talið nokkurn veg-
inn eins og alræðisvald í fjár-
málum ríkisins. FÚ
Ríkislögreglan
til 1. umrseðu í Efri deild.
Frumvarp stjórnarinnar um
lögreglu ríkisins var til 1. um-
ræðu í Ed. í gær.
Magnús Guðmundsson flutti
máli.ð. Sagði hann m. a.v að frv.
þetta væri komið fram vegna at-
burða þeirra sem lijer urðu þ. 9.
nóvember, þar sem nauðsyn rík-
islögreglu ótvírætt kom í ljós,
enda skylda allra ríkja, og al-
viðurkend um allan heim, að
halda uppi lögum og reglu í
landinu.
Er ráðherrann hafði talað, reis
upp Jón Baldvinsson til andmæla.
Talaði hann alllengi, en ekki jafn
kröftuglega. Endurtók fyrri full-
yrðingar, að' lögreglunni væri ein-
göngu beint gegn verkalýðn-
um(!), óspektímar 9. nóv. hefðu
verið Sjálfstæðisflokknum(!) og
lögreglunni(!) að kenna o. fl.
þess háttar sagði hann. Síðan tók
hann til að lesa upp ýmsar samþ.
yerkalýðsfjelaga gegn varalög-
reglunni, sem allar eru að meira
og minna leyti gerðar með ramm-
skökkum forsendum.
Að lokum hótaði Jón því, að
verkalýðsfjelögin mttndu stofna
lið gegn ríkislögreglunni.
Út af umtali J. Bald. um það,
að mikil útgjöld yrðu við ríkis-
lögregluna, benti Magnús Guð-
mundsson á það, að það kæmi
mest undir Jóni og fylgismönnum
hans, hve öflug lögreglan þyrfti
að vera.
Er þeir höfðu talar um frv.
Magnús Guðmundsson og J. Bald.
tók Jónas Jónsson til máls.
í upphafi ræðu sinnar hallaðist
hann helst að því, að frv. næði
fram að ganga í einhverri mynd.
En síðar þótti honum ófært að
nefna þetta ríkislögreglu, því
þetta kæmi ekki nema Reykja-
víkurbæ við. En hann gat hugsað
sjer, að Reykjavík setti á fót 60
manna lögreglu og ríkið greiddi
15% kostnaðar, við lögreglu þessa.
Með öðrum orðum. Áður en
liann sjálfur virtist hafa veitt því
eftiftekt var hann farinn að tala
á móti ríkislögreglu, eins og sann-
ur vinur og velunnari kommún-
ista. Hann sagði að vísu, er hon-
um var bent á, að hann ræki
þarna erindi kommúnista, að ,,þeir
deildu á sig, sem betur færi.“
Greiddu deildarmenn frumvarp-
inu atkv., nema Jón Bald. Hann
einn greiddi atkv. á móti. En
Jónas Jónsson greiddi ekki atkv.
Að lokinni umr. var málinu
vísað til 2. umr. og fjárhags-
nefndar.
Jónas vildi koma málinu í alls-
herjárnefnd. En tillaga Magn.
Guðmundssonar að það færi til
fjárhagsnefndar var samþ. með 8
atkv. — (Sjálfstæðismenn, Jón í
Stóradal og Guðm. í Ási) gegn 5.
Viðsklftasamníngar
Dana og Englendinga
fara út um búfur.
Hert á innflutningshöftum.
Berlín 7. mars.
Að því er alþýðuflokksblaðið
breska „Daily Herald“ hermir,
liafa verslunarsamningaumleitan-
ir þær, sem hófust í vibunni er
leið. milli Dana og Breta farið út
um þúfur. Kennir blaðið Iskyldum
þeim, sem England hefir tekist á
herðar við nýlendur sínar með
Ottawasainningunum um það, að
svo varð að fara. (F. Ú.)
Elliot, landbúnaðarmálaráðh.
Bretlands hefir lagt fram frum-
varp í neðri málstofunni um auk-
in innflutningshöft á ýmsum land
búnaðarafurðum og fer hann fram
á það, að frumvarpið verði af-
greitt fyrir páska. FÚ
Uirkjun
Efra-5og5ins
f
Stefðn frá Hvítadal.
Frumvarp fram-
komið á Alþingi.
1átin n.
J. Þorl. og Jak. Möller flytja
frumvarp, um virkjun Efra-
Sogsins.
Frv. að mestu samhljóða þessu
hefir verið flutt á þrem undan-
förnum þingum, en ekki háð fram
að ganga.
1 1. gr. frv. segir svo:
„Bæjarstjórn Reykjavíkur er
heimilað að virkja fallvatnið Efra
Sog, milli Þingvallavatns og Úlf-
ljótsvatns, til þess að vinna úr
því raforku til almenningsþarfa,
svo og að leggja háspennutaugar
til Reykjavíkur og að gera af-
spennistöð hjá Reykjavík, og að
framkvæma þau mannvirki, sem
þarf til þess að koma orkunni til
notenda í umdæmi rafmagnsveitu
Reykjavíkur.“
í frv. er ákvæði um ríkisábyrgð
á alt að 7 milj. kr. láni handa
Reykjavíkurbæ.
Flm. geta þess í grg., að þeir
sjeu reiðubúnir til samkomulags
um það, að inn í frv. verði tekin
ákvæði, er tryggja það, að unt
verði samtímis virkjuninni að
koma upp báspennulínum til
þeirra staða á Suðurlandi, sem
eftir rannsóknum milliþinganefnd
arinnar hafa aðstöðu til þess að
nota sjer raforkuna án beinna
framlaga úr ríkissjóði.
Kommúnistar
vinna hermdarverk
í Þýskalandi.
Berlín 7. mars.
í gær urðu blóðugir bardagar í
Hamborg milli lögreglunnar og S.
A. árásardeilda Nationalsósíalista
annars vegar og Kommúnista hins
vegar. Rjeðust Kommúnistar að
lögreglunni með skothríð, og hjelt
logreglan fyrst í stað, að hún
mundi geta ráðið niðurlögum upp
þotsins án þess að grípa þyrfti til
neinna sjerstakra ráðstafana. Ljet
hún sjer því fyrst í stað nægja,
að loka götum með gaddavírs-
flækjum, en það kom fyrir ekki,
svo að hún svaraði skothríðinni
með^ vjelbyssum sínum. Yar nú
boðið út öllu lögregluliði úr Ham-
borg og Altona, en sá bær liggur
í Prússlandi og er þó samvaxinn
við Hamborg. Var lögregluliðið
hervætt og því fengnir stálhjálm-
ar til varnar gegn skotum í höf-
uðið. í viðureigninni særðust 198
manns hættulega, svo vitað sje, en
talið er að særðir menn muni vera
miklu fleiri, því að ógerningur hef
ir reynst að kasta tölu á þá með
sanni, vegna þess að Kommiínist-
ar rjeðust með skotum á sjúkra-
vagnana, sem fluttu hina særðu
á spítalana.
Á herrasetri einu skamt frá
borginni Kassel á Vestur-Þýska-
landi, varð eldur uppi í gær, og
brunnu öll bæjarhúsin til kaldra
kola. Fórst þar mikið af korn-
og heyföngum, en skepnum öll-
um tókst að bjarg.a. Á brunastaðn
um voru handteknir nokkrir
kommúnistar, grunaðir um að hafa
kveikt L (F. Ú.)
Sú fregn barst hingað í gæ«,
að Steíán skáld frá Hvítadal hqfði
látist þá um morguninn að hefm-
ili sínu, Bessatungu í Saurbæ í
Dölum.
Stefán átti alla ævi við ólækn-
andi og örðugan sjúkdóm að berj-
ast, og hafði nú legið rúmfastur
mestan hluta vetrar.
Wenizelos fallinn.
Alt í uppnámi í Grikklandi.
Berlín 6. mars.
Þingkosningar fóru fram i
Grikklandi í gær og lauk þeim
með ósigri fyrir stjómina. Stjórn-
arandstæðingar fá 135 sæti í þing-
inu en áhangendur Venizelos að
eins 115. Búist er við, að stjórnin
muni segja af sjer mjög bráðlega.
Aþepuborg 6. mars.
United Press. FB.
Plastiras hesrhöfðingi hefir til-
kynt, að einræðisstjóra ha.fi verið
komið á, í þeim tilgangi, að bæla
niður kommúnismann í landinu
og halda uppi lögum og reglu.
Hernaðarástandi hefir verið yfir-
!ýst.
Aþenuborg 7. mars.
United Press FB.
Otheoneos hershöfðingi hefir
verið útnefndur forseti hernaðar-
legrar bráðabirgðastjórnar. Rík-
isstjórnin afturkallaði í gær aUar
fyrirskipanir og ráðstafanir Plas-
tirasar, einnig boðskap hans uni
herlög og eftirlit með blöðum og
skeytasen dingum.
5kip farast.
Oslo 7. mars. NRP. FB
Frá Vardö er símað, að enski
botnvörpungurinn „Lord Dera-
more‘ hafi strandað aðfaranótt
mánudags á Hornöya við Vardö.
Botnvörpungurinn sökk á þrem
mínútum. Fjórir menn, er voru!
niðri í skipinu, komust ekki upp
og fórust með því, en 10 var
bjargað. Skipstjóri vildi ekki yf-
irgefa skip sitt og kallaði til
þeirra, sem björguðust, er þeir
voru komnir í skipsbátinn: „Good
luck“. Eftirlitsskipið „Michael
Sars“ tók við skipbrotsmönnum,
en eftirlitsskipið hafði einnig tek~
ið við farþegunum af „Prinsesse
Ragnhild.“
Frá Tromsö er símað að sel-
veiðaskipið Gudnir frá Álasundi,
hafi farist í Hvítahafi.
Frönsk viðskiftaráðstefna.
Berlín 7. mars.
Frakkland hefir nú í hyggju að
halda franska viðskiftaráðstefnu,
svipaða þeirri, sem Bretar hjeldu
innan ríkis hjá sjer í fyrra. Er
tilgangurinn sá, að samræma við-
slciftareksturinn um alt ríkið og
nýlendur þess, sjerstaklega í tolla-
og gengismálum. (F. Ú.)