Morgunblaðið - 22.03.1933, Síða 4

Morgunblaðið - 22.03.1933, Síða 4
4 MORGUNBLAÐIÐ Nýkomið: Epli í ks. Del'icious fancy og Extra fancy. Appelsínur Jaffa 144 og 180 stk. Appelsínur Walencia 240 og 300 stk. Laukur. Eggert Kristjánsson & Co. Sími 1400 (3 línur). Glæný ýsa. Piskbúðin í Kola- snndi. Bími 4610. Kjötfars og fiskfars beimatilbú- ið, fæst daglega á Fríkirkjuvegi 3. Sími 3227. - ÍEOFHHI Seljast vegna gæðanna. Raflagnir, nýjar lagnir, viðgerðir og breytingar á éldri lögnnm. Unnið fljótt, vel og ódýrt. Júllns Björnsson, iöggiltnr rafvirkL Austnrstræti 12. Simi 3837. Nýjung: Ullar- Hálskindi. Kjðl- og smoking- FLIBBAR ný Berð. Vinkiili. Bannið f Bandarlkíum verður upphafið eftir hálfan mánuð. Washington 21. mars. United Press. FB Fulltrúadeild þjóðþingsins og öldungadeildin hafa nú náð sam- komulagi um afgreiðslu frumvarps til laga um framleiðslu og sölu á bjór og ljettum vínum. Yerður vínandainnihald bjórsins 3,2% eins og upphaflega var til ætlast samkvæmt frumvarpinu. Oldunga- deildin hefir nú afgreitt frnm- varpið sem lög og ganga þau til Roosevelts forseta til undirskrift- ar og koma til framkvæmda að hálfum mánuði liðnum. Roosevelt hefir skrifað undir sparnaðarlögin. Samkvæmt þeim lækka framlög ríkisins til upp- gjafahermanna um 400 miljónir dollara, en laun starfsmanna rík- isins lækka nm 125 milj. dollara. r|3ll fj kOYIU" Skó- svertan ^ best. Hlf. Efnagerð Reykjavíkur. 1 luar Kreuger. Rannsóknin út af fráfalli hans Út af hinum marg endurteknu sögum um það að Ivar Kreuger sje enn á lífi, og sagan um sjálfs morð haps sje uppspuni einn, hefir lögreglan í Stokkhólmi nýlega gefið út skýrslu um rannsókn- irnar í samhandi við fráfall hans, og eiga þær að taka af allan vafa um það hver afdrif Kreugers hafi orðið. Þar segir að lögreglan hafi fyrst verið heðin um það að halda sjálfs morðinu leyndu vegna ættingja Kreugers. Þeim, sem áttu að taka þátt í fundinum með Kreuger sama daginn og hann drap sig, kom líka saman um það, að best væri að halda sjálfsmorðinu leyndu til að hyrja með, til þess að koma í veg fyrir að inn á kauphöllina í New York dyndi hlutahrjef Kreuger-f jelaganna. — Allar kauphallir í Norðurálfu voru lokaðar á þeim tíma dags er Kreuger stytti sjer aldur, en kaup- höllin í New York var opin miklu lengur. Tuttugu menn, sem höfðu þekt Kreuger, voru fengnir til þess að skoða líkið áður en það var kistu- lagt, og öllum ber þeim saman um það, að ekki sje neinn vafi á því að það hafi verið lík hans. Meðal annars geta margir þeirra þess, að vísifingur á líkinu hafi verið sjer- staklega einkennilegur, en Kreug- er meiddi sig á þeim fingri þegar hann var harn og bar minjar þess síðan alla æfi. Dagbók. I. O. O. F. — 1143226—Spilakv. Veðrið í gær: Skamt fyrir sunn- an ísland er djúp víðáttumikil lægð, sem veldur hvassri A-átt hjer á landi og mikilli úrkomu. Sunnanlands er rigning, enda er hiti þar orðinn 5—7 stig. í öðrum landshlutum er snjókoma eða slydda, og víða orðið frostlaust. A morgun lítur út fyrir, að vind- ur verði SA-lægur og nokkru hægari með þíðviðri um alt land. Yeðurútlit í dag: Allhvass SA. Hlýtt og rigning öðru hvoru. Föstuguðsþjónusta í Dómkirkj- unni í kvöld kl. 6. Dr. theol. Jón Helgason biskup prjedikar. Farþegar með Gullfossi, sem hingað kom í gær frá Höfn voru m. a. þessir: Jón Leifs tónskáld, Marteinn Einarsson kaupm. og frú, Magnús Magnússon kaupm., Axel Ketilsson kaupm., Jón Helga son kaupm., Þórarinn Benedikts stúdent, Pjetnr Bóasson knupm., Steindór Steindórsson, Arni V. Snævarr, Friðrik Hansson, Axel Jónsson, ungfrúrnar ísafold Jóns- dóttir, Sigríðnr Björnsdóttir, Anna Guðjónsdóttir. Tvo báta vantaði úr róðri á Akranesi í fyrradag, og vorú menn orðnir hræddir um þá. Það voru bíátarnir Hafþór og Skírnir. í fyrmótt kom Hafþór til Akra- ness og togari litlu seinna með Skírni. Hafði vjelin í Skírni bilað úti á miðum, en Hafþór þá komið honum til hjálpar og dregið hann all-lengi, en átti þó mjög erfitt með það. En þá bar togarann að og tók hann við Skírni og dró hann til hafnar á Akranesi. Slys. Það óhapp vildi til í Lag- arfossi í fyrradag, að verkamaður datt niður í lestina og alla leið niður í hotn á skipinu, því að lest- in var þá tóm. Hann heitir Friðrik Friðriksson, roskinn maður, og á heima í Kaplaskjóli. Eigi vita menn hvernig óhappið hefir viljað til, sennilega að honum hafi orðið fótaskortur, því að eigi bilaði neitt um horð í skipinu er þess hefði orðið valdandi. Maðnrinn var þeg- ar fluttur heim til sín nndir lækn- ishendi. Var hann óhrotinn, en hefir auðvitað meiðst töluvert. — Leið honum þó vel eftir vonum i gær. fslensk Ludo-spil. — Guðjón Bjarnason múrari hefir gefið út íslensk Ludo-sþil og komu þau í verslanir í fyrradag. Prentunina á taflborðinu hefir prentsmiðj- an Acta anriast. Lndo-spil þykir mörgum mjög skemtilegt. — Hefir talsvert verið flutt til landsins af þeim á undanförnum íárum. Togararnir. Af veiðum hafa komið Þórólfur með 112 tunnur lifrar, Skallagrímur með 81 tn., Snorri goði 90 tn., Gvllir 110 tn., Bragi 70 tn., Otur 80 tn. og Trvggvi gamli með 82 tn. Útvarpið í dag: 10.00 Veður- fregnir. 10,12 Skólaútvarp (Gísli Jónasson kennari). 12.15 Hádeg- isútvarp. 16,00 Veðurfregnir. 18.00 Föstuguðsþjónusta í dómkirkjunni (Jón Helgason biskup) 19.05 Þing frjettir. 19,30 Veðurfregnir. 19.40 Tilkynningar. Tónleikar. 20,00 Klukkusláttur. — Frjettir. — 21.15 Tónleikar: Fiðlusóló. (Þór. Guðmundsson). Gra.mmófón: — Verdi: Lög úr ,Ernani“. Surta é la motte (Frieda Hempel). Lo ve- dremo (Mario Sammarco). Oh! Sommo Carlo (Terset). Baeh: Brandenburger Konzert (Philadel- phia Symph. Ork., Leopold Stok- owski)'. Berklalæknafundur. Dagana 9. —10. júní í sumar verður haldinn 8. sameiginlegur fundur norrænna berklalækna í Stokkhólmi. íslensk- um, dönskum, norskum, sænskum og finskum læknum er hoðið að sitja fundinn. Sigurður Sigurðsson læknir, sem dvalið hefir í Danmörku síðan liann tók próf hjer fyrir nokk- urum árum, hefir nú nýlega lokið dönskn læknaprófi með 1. eink- unn. Hann hefir nýlega fengið styrk frá Þýskalandi til framhalds náms í lyflæknisfræði, og dvelur nú við Charité-spítalann í Berlín. Minnispeningar. Ríkisstjórnin flytur svohlj. þál.tillögu: „Alþingi ályktar að veit.a ríkisstjórninni lieimild til þess að láta slá tvo mjnnispeninga: Verðlaunapening UmbotSsmaíSur: Bjaral GutSjðnsson Rvík. Slmi 2542. HVER VILL EKKI EIGA ÞAÐ BESTA — SEM REYNIST ÓDÝRAST? — HAIRLOCK, hib nýja húsgagnastopp, húið til úr gummibornu krullhári er þaö besta, sem til er á markahnum. Notkun Hairloeks gerir þatS mögu- legt at5 búa til húsgögn, sem aldrei bælast og altaf halda sínu lagi, hversu mikið sem notuð eru. í útlöndum er Hairlock mikið notat5 í tísku- ihúsgögn með lausum sætum og púðum, sem er jfallegt, þægilegt og auövelt at5 hreinsa. Hairlock er fjaðurmagnað, ljett sém fiður, ryklaust og ör- ugt gegn mel. — Kaupið Hairlock í húsgögn yð- ar, madressur og púða, þá hafið þér fengið það besta, sem aldrei krefst viðgerðar. Hairlock fæst hjá mörgum húsgagnasmiðum, og í Haraldarbúij. AIRLOCK ! og Björgunarpening. — Er það Slysavarnafjel. íslands, sem farið hefir fram á að þessir minnispen- ingar yrðu slegnir. 1 uppkasti af reglum um minnispeninga þessa segir: Verðlaunapening má veita þeim sem sýnt hafa sjerstakan dugnað og framúrskarandi hng- rekki við að bjarga mönnum, eða eignum manna frá yfirvofandi hættn eða voða á landi, eða með því oftar en einu sinni að hafa bjargað mönnum úr sjávarháska. Peningur þessi er bæði úr gulli og silfri. Björgimarpening úr silfri má veita þeim eingöngu, sem hafa með lífshættu fyrir sjíálfan sig hjargað mönnum úr sjávarháska. Verðlaunapening veitir konnngur en Björgunarpening forsætisráð- herra- Ný frímerki. í ráði er, að því er Póstmannablaðið segir, að gefa út ný frímerki, er munu verða kölluð Hknarfrímerki, eða eitthvað svip- að. Hvert merki verður selt með ákveðnu yfirverði og á sá hluti söluverðsins að renna í sjerstakan sjóð til alls konar líknarstarfsemi. Slík frímerki hafa ekki verið gefin út hjer á landi, en eru nokkuð algeng víða erlendis. Skugga-Sveinn verður leikinn í kvöld í K. R. húsinu. Er þetta 16. sýning leikritsins að þessu sinni. Hefir altaf verið húsfyllir á hverri sýningu og svo mun enn verða, því að margir koma livað eftir annað til að horfa á leikinn og margir munu þeir, sem ekki hala sjeð liann enn. Leikhúsið. Hinn nýi skopleikur ,Karlinn í kreppunni1, eftir Arn- old og\Bach var leikinn á sunnu- daginn og í gærkvöldi við góða að sókn. Var leiknum tekið með mikl- um hlátri og ánægjn á.horfenda. Næst verður leikið á morgun — fimtudag. Skipafrjettir: Gullfoss kom til Rvíkur um hádegi í gær, frá Höfn; — Goðafoss fór frá Hull í gær | kl. 1 síðd. áleiðis til Rvíkur. —| Brúarfoss var á Svalbarðseyri í gær. — Dettifoss fór frá ísafirði á hádegi í gær, áleiðis til Rvíkur. — Lagarfoss fer frá Rvík í kvöld kl. 12 á miðnætti til Austfjarða og Hafnar. — Selfoss er á leið frá Leith til Reykjavíkur. Selveiðaskip ferst. Frá Álasundi er símað, að selveiðaskipið „Kvit- öy“ hafi brotnað í spón í ísnum. Skipshöfninni var hjargað af sel- veiðaskipinu „Quest“, frá Tromsö. „Kvitöy“ hafði verið búin að fá. 7.300 seli. (FB) Háskólafyrirlestur Árna Páls- sonar prófessors fellur niður í kvöld, vegna veikinda. Baráttan gegn banninu í U. 5. FL Það er nú sótt með jafnmikilli ákefð að losna við bannið og- áður að koma því á, segir dr. P. Wolff, sem nýlega hefir ferðast um Bandaríkin. Fyrir löngn hafa menn sjeð það í hendi sinni, að bannið yrði aldrei framkvæmt en þótti hinsvegar ekki hægt um; vik að losna við það því ekki er- að því hlaupið að breyta stjórn- arskrá Bandaríkjanna. Nú er alt hik af þeim góðu mönnum og hlöðin lýsa hispurslaust allri þeirri spillingu, sem bahnið hefir haft i för með sjer. Nú vilja þeir gera hreint fyrir sínum dyrum. Fjelög- og framkvæmdanefndír eru stofn- aðar til þess að inna að afnám- inu og jafnvel helstu konur taka höndum saman til þessa, halda. ræð’ur á torgum og gatnamótum og dreifa út flugritum. „Fjelag kvenna til þess að bæta úr bann- inu“ kemst til dæmis þannig að orði á brjefspjöldum, sem það- dreifir út: „Jeg álít að hannið hafi aukið lögbrot, hræsni og- spillingu og þannig spilt fyrir- málefni bindindismanna“ (1 helive- that National Prohihition has in- creased law lessness, hrypocri and corruption and has retardet t,he- c.ause of real temperance“). — Hoover forseti hefir lagt mikla áherslu á það, að fyrirlitning- almennings fyrir bannlögunum liafi yfirleitt eyðilagt virðingur manna fyrir lögum. „Ef almenn- ingur hikar ekki við að brjóta ein lög verður öðrum hætt, jafn- vel þeim, er eiga að vernda rjett og eignir“-----Eins og kunnugt er hefir bannið leitt eindæma glæpaöld vfir Bandaríkin og mann. dráp hafa verið þar tíðari en V nokkru öðru landi. Það er kraftur í öllu þessu þar vestra. Hjer sofa menn á hverju- sem gengur. G H

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.