Morgunblaðið - 13.04.1933, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 13.04.1933, Blaðsíða 2
Mannskaðinn 10. apríl er þrettán menn drukknuðu af „Skúla fógeta“ Guðm. Stefánsson. 2. matsveinn. Eðvarð Helgason háseti. „Skúli fógeti“. Sigúrður Engilbert Sigþór Júl. Jóhannsson Magnússon, háseti. háseti. Jón Kristjónsson kyndari. Ásgeir Pjetursson háseti. Sigurður Sigurðsson bræðslumaður. Gunnar Jakobsson kyndari. Eðvarð Jónsson matsveinn. Ingvar Guðmundsson 2. vjelstjóri. Jakob Bjarnason 1. vjelstjóri. Markús Jónasson loftskeytamaður. Það er hvorttvegg-ja, að Ægir er stórgjöfull við íslensku þjóð- ina, enda krefur hann mikið í staðinn. Mannfórn á mannfórn of an er honum færð við strendur lándsins. Þetta virðist lítið breyt- ast við bættan skipakost. Hann tók mannslífin af opnu bátun- um, síðan af þilskipunum og nú af gufuskipunum. Enn í vetur hafa blóðtökurnar farið fram á mánuði hverjum. Og loks hefir nú sá atburður orðið, að alla set- Ur hljóða, og það væri ekki kyn- legt þó að þeir, sem um sárast eiga að binda, spyrðu: Er það sanngjarnt að við greiðum þetta voðalega gjald? Varla mun til vera í víðri ver- öld hraustlegri og einarðari fylk- ing, en sjómannaliðið íslenska. 1 vetrarmyrkrum og grenjandi ó- veðrum hafast þeir við á hafinu og slaka ekki á. klónni fyr en í fulla hnefana. Þessir menn eiga atorkuna, þrekið og þrautseigj- una sameiginlega með öðrum þeim, sem fastast ganga að starfi. En lífshættuna á þessi stjett um- fram aðrar stjettir. Sagt var, að skotgrafahemaðurinn setti æfi- langt mót á þá, sem í honum tóku þátt. Þessi stöðuga óvissa urn það, hvenær jörðin opnaðist undir fót- um þeirra, eða eldi rigndi úr lofti, þessi huldi geigur við bráðan bana í launsátri við hvert fótmál, hvíldi eins og koldimmur skuggi yfir öllum hversdagsins athöfn- um. En hvað er það annað, sem sjómennirnir búa við? Bak við hversdags starfið og kappið vi6 vinnuna er lífshættan, þrálát og aldrei að heiman. Eftir bjartan og blíðan dag getur beðið hættu- leg nótt. Sjómennirnir okkar eru arftakar víkinganna fomu, án mannvíga, bróðurhaturs eða blöð þorsta, en kappið saraa, kjarkur- inn áþekkur. Það er víking á Þorsteinn Þorsteinsson skipstjóri. hendur Ægi, uppgripamikil, æf- intýrafull -— og hættuleg. Það er karlmenskunnar aðferð að sækja björg í bú, þangað sem mest er að hafa, þótt erfiðast sje til sókn- ar. Það er stríð fyrir fjölskyldu og föðurland. Þjóðin á að skilja þetta, og hún skilur það. Það er ekki ein- göngu einstaklingssorg, sem hlýtst af viðburðum eins og þeim, sem hjer varð á mánudagsnótt- ina. Það er þjóðarsorg. Það er sorg, sem er óháð því, hverir það voru, sem eftir urðu á vígvellin- um. Það voru stríðsmenn þjóðar- innar, trúir á verðinum til hinstu stundar, sem ljetu lífið í öllum herklæðum. Ekkert annað en sl k tilfinning getur safnað samsn slíkum mannf jölda, og vakið svo heitan og samhuga söknuð sem þann, er hjer kom fram, er minst var sjómannanna af Jóni forseta fyrir nokkrum árum. Og það sama kemur fram nú. Og það sama kemurfram, þó að pað sjá- ist ekki jafn greinilega á yfir- borði, í hvert skifti, sem góður drengur lætur líf sitt á þessum orustuvelli íslensku þjóSarinnar. Þjóðin veit, að það eru hennar stríðsmenn, hennar varnarmúr- ar, sem hjer er um að ræða. Hún veit hvað hún á þeim upp að inna. Og hún veit hvaða hug hún á að senda þeim, sem eftir standa, sviftir ástvinum og forsjá fyrir alþjóðarnauðsyn. Það fólk, sem örlögin kveðja til þessarar þung- bæru skattgreiðslu, ætti sannar- lega ekki að krefja upp frá því um greiðslu frekari gjalda til þess opinbera. Það hefir goldið Torfalögin og þó full freklega. Og það ætti að viðurkenna. Dymbilvikan — sorgarvikan mikla um öll kristin lönd, hefir haldið innreið'sína í okkar garð með þessum gagntæka sorgarat- burði. En jafnvel þessi voðalegi viðburður hefir einnig orðið skóli. Miklu hefði hann að líkindum orðið voðalegri, ef ekki hefðu góðir menn og ötulir verið búnir að hefjast handa til varna og gagnsóknar, og því getað sótt í greipar heljar meiri hluta þeirra, sem hún hafði sjer vígt. Er því vonandi, að enn verði hert á þess- ari sókn og vöm. Það, sem liðið er, verður ekki aftur kallað. En hitt er enn á voru valdi, að gera það, sem mannlegur máttur ork- ar til þess, að vernda líf þeirra, sem þj óðin sendir út í þessa hörðu baráttu fyrir heill hennar og lífs- viðurværi. Magnús Jónsson.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.