Morgunblaðið - 26.04.1933, Qupperneq 3
MORGUNBLAÐIÐ
3
Huers uegna?
* 1 smábæ einum í Frakklandi
vildi það til í vetur, að barna-
kenmu'i einn Ijet í l.jósi vafa um
sanngildi ýmsra sagna um þjóðar-
.dýrling Frakka Jean d’Arc.
Skólabörnin töluðu um þetta í
lieimahúsum. Foreldrarnir kærðu
fyrir forráðamönnum skólans. •—
‘Þeim mislíkaði kenslan. Skóla-
•stjórnin daufheyrðist í fyrstu við
kærum foreldranna. Sögukennar-
inn átti að fá að halda áfram
‘kenslumii.
Foreldrarnir tóku börnin úr
•skólanum.
Gæti slíkt komið fyrir á íslandi?
Sinn er siður í landi hverju.
Þess var get.ið hjer í gær, að
langþol íslenskrar lundar myndi
þrotið, þegar um er að ræða af-
skiftaleysi yfirvalda og undan-
látsemi við óspektalýð kommún-
Ista lijer í bænum. Þjóðhollir æsku
menn og borgarar bæjarins þola
kommúnistum blátt áfram ekki
iengur - byltingaundirbúning, æs-
ingar; óspektir og göturáp rauð-
liðafylkinga.
En byltingastarfsemi þessara
manna er annað og meira en úti-
•störfin.
Engu minni aMð leggja þeir
við uppfræðslustarfsemina.
TJpphafsmaður hins kommúnist-
iska fræðslustarfs í la.ndinu er
-Jónas Jónsson — þó kommúnista-
flokkur íslands vilji nú e. t. v.
■ekki lengur viðurkenna hann nje
annað rekald úr herbúðum Tím-
;ans.
Kommúnisti var gerður Menta-
•skólarektor.
Kommúnisti var gerður hjer
barnaskól ast jórii.
Froðusnakk úr kommúnistahóp
var troðið inn í kennaraskólann.
Svona mætt.i lengi telja.
Svona er umhorfs í skólamálum
vorum.
Þetta vita allir.
Hin unga og upprennandi kyn-
slóð fslands hefir átt að taka við
hinni austrænu ólvf jan. með skóla-
lærdómum alt frá starfrofskveri
til stúdentsprófs.
Hvers vegna láta þjóðræknir
íslendingar þetta viðgangast?
Hvers vegna sameinast ekki for-
eldrar og forráðmenn, ungir og
gamlir gegn þessari spillingu í
•uppeldismálum landsins?
,,At ósi skal á stemma,“.
Starfsemi kommúnista í skólum
landsins þarf að uppræta.
Höfnin. Tveir franskir togarar
!:omu hingað í gær til þess að fá
sjer kol og vistir. Suðurland fór
Jil Borgarness.
Landsfundur Sjálfstæðismanna.
Rfkislögregla. - Kreppumðl.
Ríkislögreglan.
gær var fundur
ríkislögreglan á
Kl. 10 árd. í
settur og var
dagskrá.
Ríkislögreglunefnd skilaði áliti
í málinu og lagði tillögu fyrir
fundinn. Framsögu f-li. nefndar-
innar hafði Sigurður Sigurðsson,
sýslumaður. Hóf hann mál sitt með
því að lesa upp álit nefndarinnar,
og tiflögu, sem var á þessa leið:
Undanfarið hefir það oft sinnis
komið fyrir að ríkisvaldið hefir
ekki reynst þess megnugt að
halda uppi lögum og reglu í land-
inu, enda hefir ríkisvaldið verið
mjög veikt- Af þessu hefir leitt
að æ gerast. fleiri og fleiri til þess
að rísa gegn ríkisvaldinu og að
flokkar hafa. eflst í landinu, er
beita ofbeldi í starfsemi sinni og
stefna að því ákveðna takmarki
að kollvarpa því þjóðskipulagi, er
vjer búum við, með ofbeldisverk-
um og uppreisn.
1 Reykjavík er svo komið að þar
er fjöldi manna, sem er þess al-
búinn að beita ofbeldi og stefna
til barsmíða og blóðsúthellinga
eins og best kom fram 9. nóvbr.
síðastliðinn.
Víðsvegar út um landið, einkum
í kaupstöðum, og hinum fjölmenn
ari kauptúnum, er svo ástatt, að
telja má víst að fyrir látlausan
undirróður öfgamanna mun brátt
sækja í sama horfið og reynslan
ber fott um í Reykjavík, enda
hefir komið til alvarlegra óeirða
viðsvegar um landið, sem ríkis-
valdið hefir ekki við ráðið.
Þetta ástand hefir hipa alvar-
legustu hæt.tu í sjer fólgna fyrir
alt þjóðlíf vort og lítur nefndin
svo á að ríkið verði að leggja
hina mestu áherslu á að rækja
þá megin skyldu sína að lialda
uppi friði og lögum í landinu og
að ekki sje borfandi í þó það
hafi nokkurn kostnað í för með
sjer.
Að þessu leiðir, að nefndin á-
lítur að efla beri iögregluna í
landinu að miklun mun og leggur
áherslu á að það sje gert með
stofnun ríkislögreglu, er hægt. sje
að beita hvar í landinu sem er.
Nefndinni dvlst ekki að ríkis-
lögregluna þurfi að mynda á sem
kost.naðar minstan hátt og sjer
nefndin m. a. þessar ieiðir til
þess:
t fyrsta lagi verði lögreglu-
stjórum í lögsagnarumdæmum
utan Reykjavíkur, sem mesta þörf
hefir fyrir aukna lögreglu fenginn
hæfur maður til þess að koma á
fót æfðri sveit manna er aðstoði
lögregluna sem fyrir er ef þörf
krefur. Sjeu sveitir þessar ólaun-
aðar, að öðru en því að þær fái
þóknun fyrir æfingu og kvaðn-
ingar. Flokkstjórana mætti jafn
framt láta vinna ýms önnur verk
I þágu lögreglustjóraembættanna.
f öðru lagi sjeu tollverðir vald-
ir þannig að þeir geti gegnt lög-
reglustörfum.
T þriðja lagi sje stofnaður
flokkur ríkisiögreglumanna í Rvík,
er hafi að baki sjer öflugt vara-
lið. Standi flokkur þessi undir
sjerstakri yfirstjórn og sje hreyf-
anlegur þannig. að hann geti veitt
liðstyi-k hvar sem er á landinu.
Loks sjeu skipshafnir varðskip-
anna valdar og æfðar þannig, að
þeim verði beitt sem ríkislögreglu
liði er á þarf að halda og varð-
skipin notuð til flutningá á ríkis-
lögregluliði, ef nauðsyn krefur.
Nefndin vill sjerstaklega láta í
ljósi þakklæti sit fyrir skörulegar
aðgerðir dómsmálaráðlierra til
verndar borgurunum hjer í Rvík,
eftir þá liroðalegu atburði, er hjer
gerðust 9. nóv. s-I.
Að þessu athuguðu leggur
nefndin til að samþykt verði á
landsfundinum svo hljóðandi til-
laga:
„Landsfundur Sjálfstæðismanna
skorar á Alþingi að samþykkja á
þessu þingi löggjöf um ríkislög-
reglu, er unt sje að beita hvar á
landinu sem er.
Fundurinn leggur áherslu á að
að baki lögreglunnar standi öflugt
varalið er sje eflt eftir því, sem
þörf krefur á hverjum tíma.“
Ýmsir hafa litið svo á, að eigi
væri þörf á ríkislögreglu annars
staðai' en í Reykjavík. En Sig.
Sig. benti á það mjög rækilega í
framsöguræðu sinni, að það er'
bráðnauðsynlegt að koma einnig
upp ríkislögreglu í ýmsum kaup-
stöðum og kauptúnum út um land.
Hann benti á nýafstaðna atburði
á Akureyri, og vitanlegt væri, að á
Siglufirði væri mikil nauðsyn á
aukinni lögreglu. Þá væri einnig
svo komið, að sum kauptún á
landinu þyrftu að fá meiri lög-
regluvernd en þau nú hefðu.
Sumir vildu halda því fram,
sagði Sig. Sig- sýslumaður, að
ríkið hefði ekki ráð á að koma
upp ríkislögreglu. En ef svo væri.
þá kvaðst sýslumaður vilja spvrja
þessa sömu menn hvort sú þjóð,
sem ekki teldist hafa ráð á að
halda uppi lögum og rjetti í land-
inu — hefði þá ráð á að halda
uppi sjálfstæðu ríki ?
Miklar umræður urðu um þetta
mál á fundinum, og voru allir á
einu máli um það, að krefjast þess
af Alþingi, að það gerði skyldu
sína í þessu máli.
Tillaga ríkislögreglunefndar, sú
e1- að framan greinir var samþ. í
einu hljóði.
Einnig var samþ. í einu hljóði
svohljóðandi tillaga frá Sig. Jóns-
syni rafvirkja:
„Landsfundur Sjálfstæðismanna
skorar á miðstjórn flokksins að
beita sjer fyrir því, að Sjálfstæðis-
flokkurinn geri fullnægjandi ráð-
stafanir til að vernda borgarana,
ef ríkisvaldið bregst skyldu sinni
í því efni“.
Kreppumálin.
Á fundinum, sem hófst kl. 5
síðd. í gær voru kreppumálin til
umræðu. Kreppumálanefnd skil-
aði álit.i. Framsögu hafði Jón Sig-
urðsson bóndi á Reynistað- Hann
gerði grein fyrir tillögum nefndar-
innar og lýsti mjög skilmerkilega
erfiðleikum þeim, er bændur ættu
við að stríða og hverrar hjálpar
þeir þyrftu með. Hjer fer á eftir
nál. kreppnmálanefndar og tillög-
ui. sem samþvktar voru
hljóði:
Nefndin hefir sökum mjög tak-
marlraðs starfstíma tékið til athug-
nnar þessi höfuðatriði:
1. Nauðsyn þess að gerðar sjeu
sjerstakar ráðstafanir af Alþingi
til að greiða fram úr skuldmálum
bænda og hverjar leiðir væru lík-
legastar til heppilegs árangurs-
2. Hver ráð væru líklegust til að
kom í veg fyrir að það öngþveiti
sem bændur eru nú komnir í end-
urtaki sig síðar meir.
Nefndin er sammála um að hag-
ur bænda allvíða á landinu sje svo
bágborinn að ekki verði hjá því
komist að gera sjerstakar og al-
veg óvenjulegar ráðstafanir meðal
annars til þess að koma í veg
fyrir að þeir flosni upp af jörðum
sínum og verði að hrekjast í kaup
staðina, og ennfremur til að varna
því að á þá bændur sem enn eru
bjargálnamenn eða meira leggist
ekki svo þungar byrðar að þeir
fái ekki undir risið, en hvoru-
tveggja telur nefndin allvíða yfir-
vofandi ef ekkert væri aðgert.
Nefndin hefir fengið til athug-
unar aðalfrv. bændanefndarinnar.
Sökum takmarkaðs tíma hefir
nefndin ekki sjeð sjer fært að
taka til meðferðar eða rökræða
smærri atriði frumvarpanna en
aðeins snúið sjer að aðalstefnu
þeirra. Nefndinni er það Ijóst að
þótt komið gæti til mála að velja
aðrar leiðir en þær er bændanefnd-
in hefir valið til að greiða fram
úr yfirstandandi erfiðleikum
bænda þá treystir hún sjer ekki
að öllu athuguðu að benda á aðra
leið annmarkaminni og jafnlíklega
eða líklegri t.il góðs árangurs.
f nefndinni komu fram raddir
um það að meiri hjálp væri í því
fvrir bændur að lánstími fasteigna,
veðlána yrði lengdur og árlegar
greiðslur af þeim lánum færðar
niður samkvæmt því, en þó þeir
fengju afborgunarfrest um nokk-
ur ár. í tilefni af þessu vill nefnd-
in beina, þeim tilmælum til þing-
manna Sjálfstæðisflokksins, að
þeir taki þetta til athugunar.
Tillögur bændanefndarinnar
miða fyrst, og fremst að því að
gera bændum kleyft að komast,
fram úr yfirstandandi örðugleik-
um. Um árangur þessa stuðnings
fer vitanlega mikið eftir því hvort
búrekstur bænda getur borið sig
fjárhagslega á næstu árum, takist
það ekki er hætta á að sæki í sama
farið. Með þeim horfum sem nú
eru á um kjötsöluna á þessu ári
meðan ekki verður sjeð hversu tak
ist samningar við Breta, þá telur
nefndin nauðsynlegt að Alþingi
lieimili ríkisstjórninni að gera
nauðsynlegar ráðstafanir til að
hindra verðhrun á kjöti innan
lands á yfirstandandi ári. Enn-
fremur telur nefndin nauðsynlegt
’að unnið ATerði að því af alefli af
bændum sjálfum með stuðningi
þess opinbera að gera framleiðsl-
una miklu fjölbreyttari og not-
hæfari fyrir innlendan og útlendan
markað en nú er, og að kept sje
að því að landsmenn búi sem mest
að sínu.
Nefndin lítur svo á að skulda-
verslanir verði að teljast versta
ólán íslenskra bænda og því beri
að leggja. alt kapp á að útrýma
henni svo sem frekast eru föng
til. —
Samkvæmt framansögu ber
einu'j nefndin fram eftirfarandi tillögur:
I 1. Fimdurinn telur að hagur
bænda víðsvegar á landinu sje
svo örðugur að ekki verði hjá þvi
komist að gera sjerstakar ráðstaf-
anir þeirra vegna. Fundurinn felst
því í aðalatriðum á tillögur bænda
nefndarinnar um ráðstafanir tfl að
hlaupa undir bagga með bændum
vegna kreppunnar.
2. Fundurinn telur nauðsynlegt
að Alþingi heimili ríkisstjórninni
að gera ráðstafanir til að hindra
verðhrun á kjöti á yfirstandandi.
ári með því að sýnt þykir að
samningum við Breta verði ekki
lokið áður þingi slítur.
3. Fundurinn leggur áherslu á
að bændur vinni að því af alefli
með stuðningi Alþingis að gera
framlciðsluna fjölbrejittari en nú
er og stefnt sje að því að lands-
menn búi sem mest að sínu.
4. Fundurinn skorar á þingmenn
Sjálfstæðisflokksins að beita sjer
fyrir því að reistar verði skorður
við söfnun nýrra verslunarskulda,
t d. með því að fyrirskipa skamm-
an fyrningarfrest þeirra og komá
vaxtatöku af þeim.
Víðskiftasamningar
Dana og Breta.
voru undirskrifaðir í
London á mánudaff,
1 tilkynningu frá sendiherra
Dana segir, að viðskiftasamningar
Dana og Englendinga liafi verið
úndirskrifaðir í London á mánu-
daginn var, af þeim Ahlefeldt-
Laurvig greifa, sendiherra Dana
í London og John Simon utan-
ríkisráðherra, og Runciman ATersl-
unarmálaráðherra Breta. Dönum
er trygð 63% a,f svínakjötsútflutn-
ingi sínum til Englands. Samning-
arnir verða staðfestir síðar, og
einstök atriði þeirra verða ekki
birt fvr en síðar.
„islenska vikan"
byrjar næsta sunnudag og stendur
yfir alla næstu viku.
Treystir framkvæmdanefnd vik-
unnar öllum verslunum bæjarins
til þess, að sýna aðeins íslenskar
vörur í gluggum sínum þá daga
og að vanda til sýninganna eftir
föngum. Verður að vikunni lok-
inni úthlutað verðlaunaskjölum
fyrir bestu sýningar á íslenskum
vörum og dæmt eftir þeim sýning-
um sem komnar verða fyrsta dag
vikunnár.
Jafnframt treystir nefndin því,
að þær verslanir er ekki hafa ísb
ATörur tili að sýna, Ijái glugga sína
þeim er íslenskar vörur hafa. eða
skreyti gluggana með islenskum
fánalitum.
Því er ennfremur treyst, að alt
verslunarfólk geri sitt, ítrasta til
að selja fremur íslenskar vörur
en erlendar þessa viku. og veki
athygli neytenda á þeim ísl. vömm
er komið geta í stað hinna er-
lendu.
Ennfremur er þess.óskað a.ð ísl.
fáni verði dreginn að hún á hverri
einustu fánastöng í bænum, st.rax
að morgni næsta sunnudag, og
hann látinn blakta þar að minsta
kosti allan þann dag.