Morgunblaðið - 11.05.1933, Page 2
2
MORGUNBLAÐIÐ
lillDÍÍ
eing'öngu þ.ióðfrægu reið-
hjóKn
Hamlet og Dór
Model 1933.
Hagkvæmir g'reiðsluskilmál-
ar, —
Signrþór,
Austurstræti 3.
Seld í Hafnarfirði í verslun
Leikhúsið
Prettándakvöld.
Þorv. Bjarnasonar.
William Shakespeare.
Hukakjor&krá
til alþingiskosninga í Reykjavík,
er gildir fyrir tímabilið 1. júlí
1933 til 30. júní 1934, liggur
frammi almenningi til sýnis á
skrifstofu borgarstjóra, frá 15. til
24. þ. m.. að báðum dögum með-
töldum, kl. 10—12 árd. og 1—5
síðd. (á laugardögum kl. 10—12).
Kærur yfir kjörskránni skulu
komnar til borgarstjóra eigi síðar
en 29. maí næstkomandi.
Borgarstjórinn í Reykjavík.
11. maí 1933.
Jön Þorláksson,
Nýkomið:
Ullargarn
mar^ir litir.
VOruhúsfð.
(Mokka og Java blandað).
Síðasta sýning Leikfjel. Reykja-
vikur á þessu leikári er nú að
verða tilbúin. 1 kvöld verður frum
sýning á hinum heimsfræga gam-
anleik Sliakespeares, „Þrettánda-
kvöld“, (The twelft Xiglit). Bins
og mörgum mun kunnugt, hefir
þetta — eins og flest önnur rit
þessa höfundar —• farið sigurför
um heiminn. og varla líður svo
nokkur vetur að bað sje ekki sýnt
í mörgum leikhúsmn víðsvegar í
veröldinni.
Þó að þetta sje gleðileikur, eru
samt í hann ofnir þræðir sterkra
tilfinninga og alvarlegra atvika-
Það er með Shakespeare eins. og
með sjálft mannlífið, að aldrei er
gleðin og gáskinn í ritum hans
einráð, og ekki stingi alvaran upp
höfðinu hjer og þar. og bak bestu
fvndni fíflsins er oft djúp lífs-
speki. Spökustu og háalvarl egustu
sorgarleikir hans ei-u sjaldnast svo
daprir að hárfín og fágnð kímni
sje ekki hvarvetna innan um.
Hann lýsir mönnunum í gleði
þeirra og sorg, í upphefð þeirra
og niðurlægingu, af svo ósviknum
trúleik að eftir allar þessar aldir
hefir ennþá engu leikritaskáldi
tekist að komast til jafns við hann
í skapgerðarsköpun og mannlýs-
ingum, hvað þá heldur að taka
honum fram í því efni. Það eru
því ekki nein vetlingatök á mótun
persónanna í leikritum þessa höf-
undar, og óneitanlega þarf mikið
til, svo að þær verði sýndar eins
og höfundurinn ætlast til.
Þrettándakvöld er skrifað bæði
í ljóðum og óbundnu máli. Mörg
af ljóðunum eru undir fögrum lög-
um, eftir Humperdinck.
Kennarj við Tónlistaskólann,
Hans Stephanek, stjórnar hljóm-
íjveitinni við þessa sýningu, og er
hún allfjölmenn.
Kgl. leikhúsið í Khöfn hefir nú
í annað sinn á þessu leikári gert
L. R. þann greiða, að lána því
leikbúninga, þá sömu og það
sjálft hefir notað við sýningu á
hossum leik. Eru þeir hinir glæsi-
legustu, og auðvit.að í hárrjettum
Rhakespearesstíl.
H. B.
Tvöfalt
sluifbarð
til sölu. Einnig: peningaskáp-
ur. Til sýnis í dag frá kl.
2—6 á Laufásveg 25.
Mosfellsprestakall. Af sjerstök-
um ástæðum hefir messuskýrsl-
unni verið breytt þannig, að
sunnudaginn næstkomandi, 14.
maí, verður messað að Lágafelli,
j (ferming), en á uppstigningardag
25. maí, verður messað í Viðey.
Sóknarpresturinn
Baráttan
um sendisvemana.
Alþýðublaðið í dag getur þess
að í gærkvöldi hafi verið stofnað
Sendisveinafjelag Reykjavíkur og
sje það gert vegna þess hversu
slælega hafi verið haldið á málum
sendisveina hjer í bæ. Birtir blaðið
ásakanir á mig um það að jeg
liafi ekki bætt kjör sendisveina,
heldur aðeins haft með þeim skemt
anir og annað slíkt. Ennfremnr að
jeg hafi haft í hyggju að reka
menn úr deildinni, aldrei haft
neinar fjárreiður í lagi fyrir deild-
ina og að jeg hafi stofnað póli-
tískan flokk sem sje fjandsamleg-
ur öllum samtökum alþýðustjett-
anna.
Þannig eru nú þessar ásakanir,
sem bornar eru á mig í Alþýðu-
blaðinu, aðeins vegna þess að jeg
hefi reynt að opna augu æsku-
Iýðsins í bænum fyrír þeirri spill-
ingu og óstjórn sem í landinu er.
Ásakanir um að ekkert hafi verið
gert fyrir sendisveina, eru með
öllu órjettmætar, enda ætti Al-
þýðublaðið einna best að vita það,
þar sem ])að hefir birt flestar
greinar og tilkynningar um mál
sendisveina undanfarið.
Sumarfrí hafa margir sendisvein
ar fengið að tilhlutnn Sendisveina-
deildarinnar, og skóli var og eitt
sinn hafður fyrþ' þá- — Atvinna
hefir verið útveguð fyrir yfir 100
drengi og má Hjeðinn hrósa sjer
mikið, ef honum tekst það sama
á jafnskömmum tíma. Pjármál
deildarinnar eru ekki mikil —
hafa sendisveinar litla. peninga til
að greiða há gjöld og hefir inn-
lieimtan á árgjaldinn, sero er að-
eins 2 kr. gengið illa — svo að
aðdróttun Alþýðublaðsins um ó-
reiðu í fjá.rmálum, er á engum
öðrum rökum reist, en að tekjur1
hafa ekki verið neinar svo teljandi (
sje, en kostnaður mikill. Mun það
ekki koma í hlut erlends Olíufje-
lags eða eldspýtnaverslunar að
greiða þann mismun.
. Alþýðublaðið fer með lygar
(eins og stundum brennur við hjá
því) ]>egar það segir, að jeg hafi
rekið út drengi sem eru í deild-
inni.
Annars skal jeg ekki orðlengja
irni þetta að sinni. Er það ekki í
fyrsta skifti, að reynt hefir verið
að kljúfa fjelagsskap sendisveina
hjer í bænum, enda þótt áður
hafi kommúnistar átt upptökin,
en núna Hjeðinn og hans fjelagar.
Er skamt af því að segja, að
Hjeðni hefir tekist að fá nokkra
drengi til að gerast liðhlaupar,
-og árna jeg honum allra heilla
með slíka pilta, sem svíkjast nnd-
an merkjnm. En jeg held samt
sem áður að það muni ekki líða
á löngn áður en þeir komast að
raun um hversu mikið gagn þeir
liafa af hans starfsemi -— ekki
fá þeir allir atvinnu á skrifstofu
B. P. — og að Hjeðinn eða aðrir
sósíalistar nenni að gera nokkuð
nú frekar en vant er fyrir yngstu
verkamennina, því á jeg bágt
með að trúa.
Reykjavík, 9. maí 1933.
G-ísli Sigurbjörnsson.
Landsbókasafnið. Munið eftir
að skila bókum þeim, sem þjer
hafið að láni frá Landsbókasafn-
inu. —
Höinm fyririiggjandi
valdar Islenskar
útsaeilskarlDflBr.
Sími: 1—2—3—4.
LUX
STÆRRI PAKKAR og
FÍNGERÐARI SPÆNIR
Hinir nýju Lux spænir, sem eru
smærri og fíngerðari, en þeir
áður voru, leysast svo fljótlega
upp að löðrið sprettur upp á ein-
ni sekúndu. Skýnandi og þykkt
skúm, fljótari þvottur og stærri
pakki, en verðið helzt óbreytt.
LEVER BROTHERS LIMITED
PORT SUNLIGHT, ENGLAND
M-LX 397-047A IC
Haláa peisur ykkar og sport ullar-
föí mýkindum og lit ef þau eru
þvegin ? Áuðvitað gjöra þau það
ef Lux er notað. Luxlöðrið skilar
öllum ullarfötum eins ferskum
og skærum eins og þau væru ný.
Enginn þráður híeypur þegar Lux
er notað og flíkin er altaf jafn
þægileg og heldur lögunsinni.
Eina örugga aðferðin við þvott á
ullarfötum—er að nota freyðandi
Lux.
‘0SKAÐLEGT’
ULLARFLÍKUM
t
5 duglegir sjömenn
óskast á stóran mótorbát er stundar línuveiði í Faxaflóa. Upp-
lýsingar hjá Óskari Halldórssyni.
Hf sjerstökum ðstæðum
er hálf húseign til sölu eða í1
skiftum nú þegar með góðum!
Skilmálum- Húsið er steinhús með j
öllum þægindum. Tlpplýsingar frá
7—9 hjá Þorbirni Bjarnasyni,
Framnesveg 26 A.
Hyggin húsmóðir
veit að gleði mannsins er mikil
þegar hann fær góðan mat. Þess
vegna notar hún iiina marg eftir-
spurðu ekta Soyu frá
H.f. Efnagrerð Reykjavíkur.
Kemisk verksmiðja.
Egg
á 10 og 12 aura stykliið. Kart-
öflupokinn kostar 7 krónur í
lausri vigt á 10 aura þs kg. Allar
aðrar vörur við lægsta verði.
Hjðrtur Hjurtursun,
Bræðraborgarstíg 1. Sími 4256.
SMlka,
sem er dugleg og vön matreiðsiu,
getur fengið atvinnu strax í mat-
söluhúsi. Umsóknir ásamt meðmæl-
um, ef tii eru, sendist A. S. í. fyr-
ir iielgina, inerkt „Matsöluhús“.