Morgunblaðið - 28.05.1933, Blaðsíða 5

Morgunblaðið - 28.05.1933, Blaðsíða 5
Sxumudaginn 28. maí 1933. lizisíer 09 Birir Diðilr. Grein þessi er rituð áður en samkomulag náðist um fjórueldabandalagið. Þjóðverjar voru komnir langt á leið með það að leiða sáttastefnu \ Stresemanns heitins til sigurs, þegar Nazistar tóku við völdum í Þýskalandi. Smátt og smátt tókst fyrst Stresemann og svo eftir- mönnum hans að skapa að nýju traust á friðarvilja Þjóðverja. Og jafnhliða þessu tókst þeim að af- nema ýms hin ranglátustu ákvæði friðarsamninganna. Hið erlenda setulið í Rínarhjeruðum var kvatt heim fyr en ákveðið var í Ver- salasamningnum. Hernaðarskaða- bæturnar hafa verið strikaðar út. Og í lok ársins 1932 viðurkendu stórveldin jafnrjettiskröfur Þjóð- verja sem meginreglu í afvopnun- armálunum. Þó var eftir að ákveða hvemig rjettlætið skyldi fram- kvæmt. Annars voru landamæra- ákvæðin einu ákvæði Versalasamn- ingsins, sem ekki hafði verið hróflað við. Bn kröfur Þjóðverja um breytingar á landamærunum mættu vaxandi skilningi og sam- úð erlendis. ekki síst í Bnglandi, TT.S.A. og ftalíii. Prakkar stóðu svo að segja einir. Þannig var á- statt þegar Nazistar t.óku við völdum. - En hvernig er svo ástatt nú? Nú standa ekki lengur Frakkar heldur Þjóðverjar svo að segja einir. .Heimurinn er á mót.i okkur' sagði Hitler í ræðu sinni 1. maí. Og frjettaritari hægrablaðsins .Deutsche Allgem. Zeitung' símar frá Genf að andúðin á móti Þýska. landi sje nú meiri en nokkru sinni áður síðan Þjóðverjar hófu kaf- bátahernaðinn fyrir alvöru á stríðsárunum. Hvað veldur þess- um umskiftum? Nazistum finst beimurinn vera óþakklátur. Naz- irstar hafa bælt kommúnismann niður í Þýskalandi og lamað só- síalista. En þrátt fyrir það mætir Nazistastjórnin andtið meðal borg- aralegra flokka erlendis, einnig meðal hægrimanna og það í lönd- um, þar sem Þjóðverjar annars mæta samúð, í Englandi, U.S.A., Norðurlöndum og víðar. Borgaralegir flokkar erlendis harma auðvitað ekki þótt Naz- istum hafi tekist að uppræta Marx ismann í Þýskalandi. En víða er- lendis, ekki síst. á Norðurlöndum, í Englandi og í TJ.S.A. eiga menn vfirleitt erfitt með að fella sig við Nazistastjórnina þýsku. Veld- ur því aðallega tvent: f fvrsta iagi framferði' Nazista gagnvart and- stæðingum sínum í Þýskalandi. í <"ðru lagi ótttast menn að sá andi, sem nú ríkir í Þýskalandi kunni að hafa alvarlegar afleiðingar út á við. Nazistar hafa lögleitt einræði x Þýskalandi og afnnmið prent- frelsi o. fl. borgaraleg’ rjettindi. sem eru grundvöllur þjóðræðisins. Það er ekki nema eðlilcgt, að þetta vekji óánægju í löndum, þar rem fylgismenn þjóðræðisins eru x meiri hluta. Síðan stjórnarbylt-( ingin mikla varð í Prakltlandi liefir þjóðræðið smátt og smátt J rutt sjer til rúms í Vestur- ogj Norður-Evrópu, í Þýskalandi eft- ir byltinguna 1918. „En nú verða hugsjónir frönsku byltingarinnar fótum troðnar“, segir Nazistafor- inginn dr. Rosenberg. í skjóli einræðisins hafa Naz- istar beitt andstæðinga sína fá- ctæma hörku. Við því var að búast, að Nazistar mundu ekki hlífa kommúnistum, sem frá upphafi hafa beitt ofbeldi í baráttunni á móti Nazistum og sem hafa of- beldisverk á stefnuskrá sinni. — En harðstjórn Nazista hefir líka bitnað á sósíalistum, borgaraleg- um vinstriflokkum, kaþólskum miðflokksmönnum, friðarvinum og Gyðingum. -Jafnvel ,þýsk nation- alir‘ kvarta undan framferði Naz- ista. Einn af foringjum ,þýsk- nationala' flokksins, dr. Oberfo- hren, liefir meira að segja franiið sjálfsmorð vegna núverandi á- r-t ands í Þýskalandi. Yfirleitt tala hin mÖrgu sjálfsmorð í Þýska- landi sínu eígin máli um kjör Nazi-andstæðinga í .þriðja ríkinu1. Ekki síst hafa ofsóknirnar gagn- vart Gyðingum, ýmsum rithöfund- um og vísindamönnum í Þýska- landi vakið andúð gegn Nazistum erlendis. Það mælist eðlilega illa fyrir, þegar Nazistar lýsa í bann og brenna bækur eftir víðfræga rithöfunda (Remarque o. fl.) og reka heimsfræga vísindamenn frá háskólunum. Þetta minnir menn á ástandið á miðöldunum. Geta menn tieyst því, að Naz- istar beiti ekki einnig ofbeldi gagnvart öðrum þjóðum? Þessa spurningu má oft sjá í erlendum blöðum, þ.á.m. Times. Þess ber að gæta, að Nazistar eru ekki færir um að fara í stríð, fyr en þeir hafa aukið vígbúnað Þýska- lanvls að miklum mun. Þar við bætist, að Hitler hefir margsinnis lýst yfir því, að Nazistar vilji lifa í friði við aðrar þjóðir. En jafn hliða þessum fullyrðingum leggja Nazistar kapp á að vekja að nýju hinn gamla prússneska hernaðar- anda, sem setur máttinn í stað rjettarins. „Að eins mátturinn skapar rjett í heiminum“, sagði Hitler nýlega í ræðu til foringja Nazista hersins. Nazistar vegsama hernaðarandann og reyna að upp ræta friðarstefnuna. Hún er t. d. lýst í bann í skólunum, og bæk- ur, sem fordæma stríð, eru bann- aðar. ,,Times“ segir, að Nazistar viðurkenni sjálfir að baráttan á móti Gvðingum sje meðfram sprottin af því að mentamenn meðal Gyðinaa eru yfirleitt frið- arvinir. „Priðarstefnan er óþrosk- uð lifsskoðun“, sagði v. Papen í lrinni frægu ræðu í Miinster h. 13. þ. m. Hann bætti því við, að friðarsinnaðir rithöfundar rejmi að telja fólki frú um það, að óeðlilegt sje að deyia á vígvell in- um. En sannleikurinn sje sá, að vígvöllurinn sje eins eðlilegur fyi’- ir karlmenn og barnsfæðingar sjeu fyrir kvenmenn. Hvernig á að samrýma alt þetta við yfirlýs- ingar Hitlers um friðarvilja Naz- ista ? t mars fór May Tlonald til Róma borgar og kom aftur með tillögur Mussolini um fjórveldabandalag, er vinna á að því, að friðarsamn- ingarnir verði endurskoðaðir og að Þjóðverjar fái hernaðarlegt jafn rjetti. Upphaflega leit út fyrir, að þessum tillögum yrði vel tekið í Englandi. En skömmu eftir Rómaborgarför Mac Donalds byrj- uðu Gyðingaofsóknirnar í Þýska- i landi fyrir alvöi*u. Þær eiga mik- inn þátt í því, að Englendingar hafa nú yfirleitt snúist á móti tillögum Mussolini. „Englendingar voru vinveittir Þjóðverjum, enNaz- istar hafa á einni nóttu gert Eng- lendinga viu veittíl Prökkum“, sagði Wedgewood offursti í enska þinginu. Og Chamberlain fyrv. utanríkisráðh. sagði í þingræðu að „síðustu viðburðirnir í Þýska- landi geri það að verkum, að end- urskoðun friðarsamninganna geti ekki komið til mála.“ Chamber- lain er að vísu vinveittur Prökk- um, en Times .segir, að hann hafi án efa látið í ljós þá skoðun, sem ríkjandi sje í neðri málstofunni ensku. Times segir enn fremur, að Þjóðverjar hafi á fáeinum vikum eyðilagt þá samúð, sem þeir hafi áunnið sjer á síðustu 12 árúm. Valdi því viðburðirnir þeir, sem gerst hafi í Þýskalandi upp á síðkastið. Englendingar hafi and- stygð á öllum ofsóknum. En Naz- istar kxigi pólitíska andstæðinga og Gyðinga með ofboðslegri hörku. Pramferði Nazista sje besta sönn- unin fyrir, því, að ekki sje hægt að veita núverandi valdhöfum í Þýskalandi yfirráð yfir landsvæð- um, hvorki í Evrópu nje annars staðar, þar sem íbúarnir sjeu ekki þýskir að þjóðerni. Blaðið á vafalaust við „pólitíska ranghal- ann“, þar sem allmargir Pólverj- ar búa, og svo við nýlendurnar. Nokkru seinna skrifaði Times: „Síðan Hitlerstjórnin byrjaði að setja máttinn í stað rjettarins og vegsama hernaðarandann, hefir al- menningsálitið í Englandi snúist meira og meira á móti því, að víg- búnaður Þjóðverja verði aukinn. | Allir flokkar, bæði hægri og 1 vinstri, eru sammála um, að Naz- istum megi ekki leyfast að búa r-ig undir að rjúfa friðinn.11 Þannig' skrifar Times, sem fyr- ir fáeinum vikum studdi kröfur Þjóðverja um hernaðarlegt jafn- rjetti og breytingar á landamæra- ákvæðum Yersalasamningsins. Ofsóknirnar og hinn nýi lxern- aðarandi í Þýskalandi hefir þann- ig valdið því að margir Englend- ingar. sem hingað til liafa stutt hinar rjettmætu kröfur Þjóðverja, snúast nú á móti þeim, Sama má segja um marga í U.S.A. Khöfn í maí 1933. P. K íli úr e dhús æðu Jóns Þorláks- sonar í efri detld, Hvalreki. Piskimaður í Noregi fann fyrir skömmu ungan hval rekinn á land skamt frú Túns- bergi. Hvalurinn var lifandi og treysti maðurinn sjer ekki einn að ráða niðurlögum hans. — Pór hann því að leita aðstoðar. En er hann kom aftur með nokkra menn þangað sem hvalurinn lá, var hval- urinn dauður. Hafði bann bylt sjer þannig við í fjörunni að nú lá hann á bakinu og hafði blást- ursholan farið á kaf í sand, svo að hann hafði kafnað. Seinni aðalkaflinn 1 eldhús- ræðu Jóns Þorlákssonar í efri deild fyrra mánudag var um verðbr j ef aver slun iandsins. — Verður hjer skýrt frá því helsta sem hann sagði um það mál, en fljótt yfir sögu farið. Jón Þorláksson gat þess, að Veðdeild Landsbankans hefði veitt fasteignaveðlán gegn 1. veðrjetti fyrir 25—27 milj. ltróna. Starfsemin hjeídi enn á- fram, og auk þess hefði bætst við tvær nýjar veðlánastofnan- ir, þar sem væru Ræktunarsjóð- ur og veðdeild BúnaðarbanJc- ans. Starfsemi veðdeildar Lands- bankans hefði frá 1926 til 1930 verið hagað þannig, að veðdeild in veitti lán gegn 1. veðrjetti, en Landsbankinn keypti brjef- in. Gengið á brjefunum hefðí fyrst verið 90 kr. fyrir 100 kr. nafnverð og síðar kr. 87.50 Þetta hefði verið viðunandi. En seint á árinu 1930 hefði verið svo krept að öðrum deild- um Landsbankans, að þæú hefðu eigi sjeð sjer fært að kaupa veðdeildarbrjefin. I fyrstu hefði verið búist við, að stöðvun þessi yrði aðeins um stundarsakir. En það hefði brugðist, og' síðan hefðu engin kaup farið þar fram. Samt sem áður hjeldi lána- starfsemi veðdeildarinnar á- fram. Mönnum væri afhent brjefin; þeir síðan orðið að selja þau sjálfir fyrir það verð, sem f;L.nlegt væri. Verð brjefanna hefði komist niður fyrir 70 kr. þegar það vai; lægst, hækkaði síðan upp í 75 kr. pr. 100 kr. nafnverð brjefs. Þetta væri mjög óheppilegt fyrir atvinnu- lífið, einkum fyrir það fólk, sem hefði atvinnu við byggingar. En á þetta kvaðst J. Þorl. minnast sakir þess, að til væri ákvæði í lögum um þetta efni. Þetta ákvæði væri í 63. gr. Landsbankalaganna frá 1928, svohljóðandi: „Þangað til lög verða sett um opinbera verðbrjefaverslun og kaupþingsskráningu verðbrjefa skal bankanum skylt að kaupa l af almenningi og selja almenn- ingi trygg innlend verðbrjef, þau er ræðir um í 29. gr., gang verði, sem ákveðið sje af banka ráði, að fengnum tillögum framkvæmdarstjórnar, eigi sjaldnar en einu sinni á viku, og birt almenningi með aug- lýsingu á áberandi stað í aðal- afgreiðslustofu bankans og úti- búa hans. — Bankinn er þó und anþeginn skyld-um þeim, er ræðir um í þessari grein, ann aðhvort um kaup eða sölu, ef eign bankans í slíkum verð- brjefum fer fram úr því eða niður fyrir það, sem fram- kvæmdastjórn bankans telur hæfilegt“. Þessi ákvæði þýddu það, 'sagði J. Þorl., að Landsbank' anum væri skylt að birta í af- greiðslustofu bankans söluverð verðbrjefa. Voru það því til- mæli J. Þorl. til ríkisstjórnar- innar að hún sæi um að Lands- bankinn vanrækti ekki lengur þessa skyldu, sem ekki kostaði bankann nein fjárútlát. Það tíðkaðist mjög, að ýmsir opinberir sjóðir legðu fje í verð- brjefakaup. Þetta væri holt og gott. En það vantaði algerlega skráning brjefanna, svo sjóðirn- ir vissu hvaða verði þeir ættu að kaupa. Nokkur brögð myndu vera að því, að forráðamenn opin- berra sjóða gerðu það fyrir kunningja sína að kaupa brjef hærra verði en gangverð þeirra væri. iSvo gæti verið ástatt hjá einstaka sjóði, að rjettmætt væri að kaupa brjef hærra verði en gangverði; en almennt væri það ekki. Forráðamenn opin- berra sjóða gættu því eigi skyldu sinnar ef þeir keyptu verðbrjef hærra verði en gang- verði. Að lokum minntist J. Þorl. á Brunabótaf jelag íslands. Sjóð- ur þess væri einn stærsti op- inberi sjóðurinn sem til væri í landinu, og því bæri að hafa gát á, að gæsla þess fjár væri óaðfinnanleg. í lögum Brunabótafjel. og- reglugerð stofnunarinnar væri ákvæði um fjárvarðveislu sjóðs- ins. Hún skyldi vera með tvenn- im hætfl: 1) handbært fje í :ryggri peningastofnun og 2) trygg verðbrjef, sem fjármála- ráðherra samþykti. Einu tryggu verðbrjefin væri vitanlega handhafaverðbrjef, sem væru skráningarhæf og ætti sjóður Brunabótafjel. því eingöngu að leggja fje í slík brjef. En orðrómur gengi um það í bænum, að ávöxtun sjóðs- ins myndi ekki að öllu leyti vera svo sem reglurnar mæltu fyrir. Raöiómiðunarstöð í Uestmannaeyjum. Nauðsynleg fyrir siglingar til íslands. Um sama leyti og ákveðið var að reisa átti Radiovitann á Dyr- hólaey, var hreyft við því nokkuð í blöðum, af nokkrum loftskeyta- mönnum, að heppilegra mundi verða að reisa heldur Radiomið- unarstöð í Vestmannaeyjum, því luin mundi ltoma að meira gagni en þessi fyrirliugaði viti. — Því miður voru þessi skrif til einskis höfð, og ladiovitinn var reistur. En nú. er reynslan búin að sýna það, að þó viti þessi hafi gert mikið gagn, þá hefði miðunarstöð í Vestmannaeyjum gert mikið meira gagn, og nú erum við bíiin að læra af reynslunni, að bráð nauðsyn er á að hún komi, og það sem allra fyrst. Skal jeg nú nefna nokkur dæmi, máli mínu til stuðnings. Almenningi til skýring- ar vil jeg fyrst taka það fram, að munurinn á Radiovita og Radio

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.