Morgunblaðið - 13.08.1933, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 13.08.1933, Blaðsíða 6
6 MORGUNBLAÐIÐ Bankabyggsmjöl Bankaby££ Bækigrjón By££grjón Mannagrjón Semuleífrjón fæst í Corsilet. Barna undirföt. Barna náttföt o. fl. Versl. Manchester. Laugaveg^Oj^^Sími^SO^. þær eru gegnvættar í sjerstökum legi, sem ver þær sjerstaklega fúa og áti smálífgróðurs í sjónum, og hefir þetta reynst betra en börk- un, t. d. í I^íoregi. Síðar verða framleiddir öngultaumar, færi og fleira. Norskur fagmaður, Fr. B. Peter- son, hefir verið fenginn til þess að standa fyrir öllu hinu verklega hjá hinu nýja fyrirtæki, Hann hefir um miirg ár unnið lijá „Spilkeviks Snöre-Not og Garnfa- brik“ í Álasundi. Svo fór hann t i. Ameríku fyrir þá verksmiðju og eftir að bann bafði unnið í út- búi hennar þar um hríð, stofnaði hann með ýmsum öðrum veiðar- færagerð í Seattie og vann þar í 0 ár. St.arfar sú veiðarfæragerð enn, en Petersen hvarf heim til Noregs vegna ]>ess að kona hans vildi ekki flytjast vestur um haf. En þegar lieim til Noregs kom fekk hann ekki atvinnu, og þess vegna var Veiðarfæragerð íslands svo heppin að ná í hann. Er það m.jög þýðingarmikið fyrir nýtt fyr- irtæki að hafa frá öndverðu í þjónustu sinni faglærða menn, sem þekkja alt til iðnaðar síns. Vjeiar til verksmiðjunnar hafa verið keyptar frá Noregi og eru þær knúðar með rafmagni. Geta þær spólað alt að 36 þræði í senn, og síðan má tvinna og þrinna þá þræði eftir vild. Gengur þetta af- ar fljótt, og er mikill munur á þesum vinnubrögðum eða meðan dt var unnið i höndunum. Er sá munur viðlíka mikill og er á hand' naddu og nýmóðins spunavjel eða tvinningarvje] í klæðaverksmiðju. Þurkarnir í Noregi. 1 í Noregi hafa verið afskaplega miklir þurkar og hitar í sumar og segir „Gula Tidend“ svo frá afleiðingum þeirra: Á hverjum degi koma fregnir um það hvernig þurkurinn svíður akra og engi. Tjónið, sem liann veldur, er ómetanlegt og á mörg- um stöðum er jafðvegur svo svið- inn, að hann nær sjer ekki í mörg ár. Þetta er með öðrum orðum þjóðarböl, að minsta kosti fyrir bændur á Vesturlandi. Víða er orðið svo ilt, að bændur hafa neyðst til þess að slátra nautpen- ingi sínum. Þeir sjá ekki nein ráð til }>ess að afla honum fóðurs. En með svo stórkostlegum niður- skurði, sem verður, og þegar er byrjaður, er hætt við }>ví að kjÖt- verð falli niður úr öllu valdi. Það er eigi aðeins á Vesturlandi að þurkarnir hafa gert stórtjón. í Þrændalögum hafa þeir einnig eytt öllum gróðri á mörgum stöð- um. fín hvergi hafa þeir þó gert meira tjón heldur en á eyjunum í Norður-Noregi. Þar er svörður mjíig grunnur og víða er svo svið- ið að ekki sjest stingandi strá. Þar liefir ekki komið dropi úr lofti svo að kalla síðan í apríl. Þetta óáran til landsins þar norð urfrá bætist ofan á óáran til sjáv- arins. lltgerðih gekk sæmilega í vetur hjá flestum þeim, sem reru hjá Lófót, en á Finnmörk var út- koman afar slæm og síklveiðin brást alveg. f flestum bygðum er fólkið orð- ið svo skuldum hlaðið, að kaup- menn þora ekki að lána því neitt, svo að þar liggur við hungurs- neyð. Er ekki að furða þótt menn beri kvíðboga fyrir haustinu og vetrinum, því að þá verður hung- ursneyð ef ekki verður hjálpað. Bókafre^n. Fyrir skömmu bárust mjer bæk- ur um sálræn efni, eftir tvo danska höfunda, sem báðir eru þektir lijer á landi. Tvær þeirra eru eftir hinn fræga, danska leik- fimiskennara I. P. Muller og heita „Blandt Engle og Djævle“ (í tveim bindum), en sú þriðja nefnist „Vejen mellem Himmel og .Tord“ og er saman tekin og að nokkru leyti skrifuð af danska miðlinum Einar Nielsen. Bókum Mullers skipa jeg hik- laust í flokk þeirra spíritistiskra bóka, sem hljóta að stjaka hugs- andi mönnum frá spíritismanum, ef þeir þekkja ekki aðrar og betri hliðar hans. Þarna úir og grúir af fáránlegum ósönnuðum staðhæf- iugum, sem lesandanu hlýtur ólijá- kvæmlega. að gruna að sprottnar sjeu af sjúkum ímyndunum. Af slíkum bókum er all-mikið til og ],að er leiðinlegt til })ess að vita, að T. P. Muller, sem búinn.var að geta sjer góðan orðstír á sínu verksviði, skuli hafa lagt út á þær brautir, sem honum virðist vera ofvaxið að þræða. Jeg hefi oft verið hissa á því moldviðri hleypi- dóma og vitlevsu, sem hefir verið þyrlað upp utan um spíritismann í Danmörku, en }>að fer að verða skiljanlegt ef þeim eru fengnar margar svonn bækur í hendur. Þá kem jeg að bók Nielsens „Vejen mellem Himmel og -Tord“, sem jeg skrifa þessar línur aðal- lega til að benda á. Jeg las hana mjer til mikillar ánægju. Bókin scgir frá uppruna og þróun sál- rænna hæfileika þessa merkilega manns. Hún er skrifuð ljóst og vel, og eru ýmsar frásagnir hennar hrífandi, en þó fleiri sannfærandi og merkilegar. Um engan miðil á Norðurlöndum hefir verið meira deilt eða ákafar, með og á móti, en Einar Nielsen. Við sem áttum kost á að kynnast hæfileikum hans í Reykjavík, vitum að hann gat elcki hafa svikið fyrirbrigðin, en jeg vil sjerstaldega benda þeim, sem farið hafa um hann ómakleg- um orðum, á það, að þá skuld er ])eim skylt að gjalda — ekki hon- um, heldur sannleikanum og rjett- lætinu — að þeir lesi þessa bók, sem bæði geymir frásagnir sjálfs hans og ummæli margra mætra manna um hæfileika hans. Hjer á landi er fjöldi manna og kvenna, som hefir áhuga fyrir sálrænum efnum og les dönsku, en ekki önnur tungumál; jeg fullyrði við ykkur, sem þannig er ástatt fyrir, að á síðustu árum hefir engin önn- ur betri bók dönsk um þessi efni komið út og jeg ræð eindregið til að hún sje lesin. Prýðilegan formála hefir Einar H. Kvaran skrifað, en sjálf fæst bókin í bókaverslun Snæbjarnar Jónssonar. Jón Auðuns. Ókurteisi, Franskt blað hefjr nýlega birt skírnarvottorð hinnar „síungu“ leikkonu Mistinguettes. Samkvæmt því er hún fædd árið 1869. AugJýsing' svohljóðandi var á farþegaskipi einu: Stólarnir í sí.lnum eru fyrst, og fremst handa kvenfólkinu. Karlmenn mega fyrst set.jast í þá, þegar kvenfólkið er sest þar. Verðlskkun Dömutöskur, ekta leður, nýj- asta tíska 10.00 Vekjaraklukkur ágætar 5.00 Borðhnífar ryðfríir 0.80 Matardiskar ekta steintau 0.55 Sjálfblekungar með glerpenna 1.50 Sjálfblekungar með postu- línspenna 3.00 Sjálfblekungar með gullpenna 7.50 Skrúfblýantar með brjefavigt 2.75 Alt nýkomið. Bankastræti 11. Kaupmenn! er lang útbreiddasta blaðið til sveita og við sjó, utan Reykjavikur og um hverfis hennar, og er því besta auglýsingablaðið á þessum slóðum. 13 Getur bú fyrirgetið ? lausu lífi og virðist ekki hafa gert neitt það, sem vakið geti óvináttu. Þar að auki var hann vandlátur um val á vinum sínum. Það er því hvorlci liægt að ganga út frá pen- ingaþröng, kvennastappi, nje einni eða annari óvináttu“. „Já“, samsinti foringinn. „Þá er ekki mikið til að fara eftir“. ,.Það er hreint ekkert“, svaraði hinn. Majór Lorton hleypti brúnum. „Við getum ekki látið við svo búið standa, Rodes“, sagði hann. „Látum oss nota þau fáu atriði sem við höfum i höndum“. „Jeg hefi sjálfur rannsakað alla jarðeignina og byrjaði á vopna- búrinu og bakhlið hallarinnar, þar sem hann sást síðast. Hann lilýtur að hafa yfirgefið húsið gegn um vissar dyr, annars hefði hann mætt eínhverju af þjónustufólkinu eða orðið að fara fram lijá aðal-eldhús- inu. Það eru fáein dauf fótspor — auðs.jáanlega eftir ljetta skó — út að hliðinu, líklega eitthvað um hundrað metra frá húsinu. Fyrir utan hlið þetta tekur við vondur vegur, sem liggur yfir engið, en er aldrei notaður, nema t.il að keyra þar heim trjáviði. Jeg sá ocdögg hjólför eftir bíl, en var sagt að kaupmaðurinn og erind- reki barónsins færu þar stundum með bíla sína. Jeg hefi vitaskuld! rannsakað, hvort ekki hafi get.að verið um ókunnugan bíl að ræða, en án árangurs. Bama má segja um lýsinguna af hinum unga manni, hún hefir ekki borið nokk- urn á,rangur“. „Svo var það símahringingin, livað segið þjer um liana?“ „Jeg er búinn að tala við fólkið á símastöðinni í Norfolk. Stúlkan, sem hafði þetta samtal, segir að það hafi verið frá einhverri aðal- stöð, en hún átti mjög annríkt, svo að hún hugsaði ekki meira um það. Símaþjónarnir hafa gert alt til þess að fá upplýsingar í því máli. Að línan slitnaði, var án efa tilviljun ein. Það var verið að fella trje í skóginum, og eitt ]>eirra hafði verið látið standa hálf-sagað, ])ví logn var og álitið ao ekki sakaði, en um kvöldið hvesti snögglega, og það kastaðist um koll. Aðallínan til Honerton og annars húss, sem er lengra fcurtu, er slitin. Það var miskunn- arlaus tilvil.jun, en tilviljun er það“. „Alt, og sumt sem við höfum grætt á upphringingunni er þá, að hinn ungi maður er á lífi“, sagði majórinn. „Já, ekkert annað“. „Og þar sitjum við fastir“. „Já, þar sitjum við fastir“, end- urtók Rodes, myrkur á svip. „Þjer viðurkennið sjálfsagt, að ástandið er mjög 6viðkunnanlegt“. „Já, óneitanlega“. „Hafið þjer myndað yður nokkra sjerstaka skoðun á málinu V 1 „Jeg er orðinn alveg útslitinn“, fullvissaði Rodes. „Á endanum verður ekkert nema skurnið eitt eftir, og það er til einkis“. „Það er bara þetta“, tók majór- inn til máls í vingjarnlegum róm. „Það er bara þetta, sjáið þjer“, sagði Rodes. „Enginn getur út- skýrt þetta hvarf hins unga manns á venjulegan hátt. Hann átti enga óvini, og var einn af ríkjistu ungmennum þessa lands. Eini möguleikinn er að það sje lausnargjald eða verðlaun, sem um er að ræða. Bara að fjölskylda hans vildi opna munninn til að segja eitthvað, en á hvern hátt hann var neydclur til að yfirgefa höllina þetta kvöld, og verða ein- hverjum að bráð, það er með öllu óskiljanlegt“. „Jeg tek eftir því sem þjer seg- ið, gjörið svo vel að halda áfram“. „Ef jeg geri það“ sagði Rodes og stundi, „komumst við út í tóm- an þvætting. Yísindin gera gys að okkur daglega. Jeg hefi spurt sjálfan mig að því, hvort það sje ekki ein eða önnur uppfinning, sem einhver glæpamannaheili hef- ir komist yfir, áður en hún varð alkunn. Ef vísindin geta ekki hjálpað olckur hjer, hvað er þá til ráða? Hvers vegna ætli menn gætu ekki gert sig ósýnilega? Maske- leyne og Cook hafa gert það, eða framkallað samskonar áhrif“. „Það er mjög athyglisvert frá hagfræðislegu sjónarmiði“, sagði majórinn þurlega, ,ten það er ekki þess háttar sem almenningur vænt- ir af okkur“. „Við böfum ekki þær hjálpar- lindir, sem almenningur óskar“ var hið stutta svar. „Og það er best að þjer fáið að vita það. Ef ungi maðurinn hefði fylgt skytt- unni eftir út að bakdyrunum, þá gæti maður myndað sjer mjög at- hyglisverða skoðun. En það gerði liann ekki, svo segir skyttan mjög ákveðin. Fáið þjer hann bara út að bakdyrunum, þá fyrst verða möguleikarnir athyglisverðir. L.jós geisli á veginum — neyðaróp — skugga bregður fyrir — þannig hafði alt freistað hans til að fara út“. „Og þegar þjer svo hafið hann við hliðið, hvað þá?“ spurði ma- jórinn. „Hann hlýtur að hafa farið sjálfviljugur, hvergi sáust merki eftir áflog. Þar að auki voru marg ir bílar alt um kring. Ungur mað- ur í samkvæmisbúningi, hefði verið auð])ekkjanlegur, í livaða vagni sem var“. „Jeg trúi því ennþá fastlega, að hinn ungi maður hafi verið fluttur burt á alveg sjerstakan hátt, und- ir sjerstökum áhrifum“. „Þjer snúið yður aftur að ]>ví yfirnáttúrlega“. „Já, yfirnáttúrlegt fyrir almenn- ing. Vísindin fyrir okkur“. Majórinn varp öndinni. „Jeg á að gera skýrslu um þetta í stjórn- arráðið“, sagði hann. „Þjer haldið þó ekki að svona lagað efni sje til nokkurs fyrir mig?“ „Jeg segi ekki heldur að svona sje það. Jeg trúi ekki meira á hið yfirnáttúrlega, en ])jer sjálfir, en jeg held því fram, að hvarf Ernst Fernham verði ekki útskýrt án þess að taka eitthvert nýtt meðal til athugunar“. „Enn sú játning, í Guðs bænum haldið henni eingöngu fyrir sjálf- an yður“. „Mjer dettur ekki í hug, að tala um hana“, var hið dauflega svar. „Taugar mínar eru búnar að fá meira enn nóg“. „Eruð þjer nógu nærri jörðinni til þess að viðurkenna, að þjer álítið það vera lausnargjald sem með þarf?“ „Það er eini hugsanlegi tilgang- urinn“, svaraði hinn. „Ef innan- ríkisráðherrann vill gefa Honerton gott ráð, þá látið hann hækka fjár- upphæð þá, er heitið hefir verið þeim, er sagt gæti til hans, og engar spurningar“. „Það er auðmýkjandi fyrir olck- ur“, tautaði majórinn. „Verra er það fyrir mig enn nokkurn annan“, fullvissaði Rodes hann. „Þetta er mín deild, og jeg get ekki lengur talað um það áf viti, eftir því sem þjer segið sjálf- ir. Það er sú vonlausasta játning, sem maður í minni stöðu getur

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.