Morgunblaðið - 17.09.1933, Blaðsíða 4
4
MOSGUNBLAÐIÐ
[ Smá-auglýsingar j
Kaupum dropaglös hálfpela- flöskur, pelaflöskur, liálfflöskur og heilflöskur. Efnagerð Friðriks Magnússonar, Grundarstíg 10.
Síminn í Fiskbúðinni á Laufás- veg 37 er 4956. Skólafólk og aðrir, sem í bæinn koma utan af landi, ættu að fá sjer mat í Café Svanur. Hann er bæði góður þar og ódýr.
Legubekkir vandaðir. Verð kr. 45.00, 55.00, 60.00 og 70.00. Körfu- gerðin, Bankastræti 10.
„.Freia'b Laugaveg 22 B- Sími 4059. „Freiu' heimabökuðu kök- ur eru viðurkendar þær bestu og 'spara húsmæðrum ómak.
„Freia“ fiskmeti og lcjötmeti mælir með sjer sjálft. Hafið þjer reynt það? Sími 4059.
„Freia“ „Delieious" síld er ó- roissandi á kvöldborðið. Sími 4059.
Eitt herbergi og eldhús til leigu á besta stað í miðbænum. Sjer- staklega hentugt fyrir 1 eða 2 dömur, eða barnlaus hjón. Upp- lýsíngar í síma 4712 rnilli kl. 10—12 árd.
Kelvin. Símar 4340 og 4940.
Lærið, æfið Kontraktbridge. Kenni byrjendum og veiti til.sögn þeim sem lengra eru komnir, til að ná betra samspili. E. Sigurðs- son- Sími: 2641, sunnud. kl. 3—5 síðd.
Postulíns matarstell, kaffistell og bollapör, nýkomið. Laufásveg 44, Hjálmar Guðmundsson-
Nýkomið. Morgunkjólaefni í fal- legu úrvali, tvistau ódýr, ljereft frá 0.75, silkiljereft mislit, barna- sokkar allar stærðir, kvensokkar mafgar fallegar tegundir. Nær- fatnaður kvenna og barna í úr- vali, kvensvuntuefni frá 1.95 og margt fleira af fallegum og ódýr- u m vörum. Ljereftabúðin.
40 aura kosta sterk bollapör í Berlín, Austurstræti 7. Sími 2320.
Ensku og dönsku kenni jeg — að lesa og tala. Einnig verslunar- brjefaskriftir. Kr. 2.00 um tím- ann. Odýrara ef fleiri eru saman. Gunnar Benjamínsson, Garðastræti 8 niðri. Sími 3166.
Heimabakarí Ástu Zebitz, Öldu- gðtu 40, þriðju hæð. Sími 2475.
Bignrjón Jónsson úrsmiður, Laugavegi 43. Fljótar og vandað- ar úrviðgerðir. Sanngjarnt verð. Sími 2836.
Ensku námskeið
Major Beckett’s hefst: Talæfing-
ar á mánud. 18. kl. 8-30. Börn
(byrjendur) á þriðjud. 19. kl. 4.45.
eVgna margendurtekinna um-
sókna mun frú Becett hefja byrj-
endakenslu, fyrir fullorðna, mánu-
dáginn 25. sept. Æskilegt væri,
að þéir, sem enn hafa ekki látið
innrita sig, geri það nú þegar.
Sugar frekari augl. munu birtast
viðvíbjandi kenslunni.
ao. Að vísu hefir Bókmentafjelagið
gefið út í Safni til sögu íslands
nokkrar merkilegar skvrslur um
einstök eldgos, en ekkert yfirlits-
rit lun jarðelda hjer hefir verið
gefið út síðan á íslensku. Rit
Markúsar er því eina alþýðuritið,
sem hjer er til um þetta efni.
Jarðeldarit Markúsar vann hylli
almennings og var mikið lesið, þar
sem jeg þekti til, og í ungdæmi
mínu hefi jeg meiri mætur á því
en flestum öðrum bókum. Það
var því ófáanlegt um all-langt
skeið, uns það var gefið út að
nýju árið 1930.
Hin nýja útgáfa er mikið aukin.
Hefir þegar verið skotið inn lýs-
ingum annara manna en Mark-
úsar á sumum eldgosunum, og er
það til bóta, enda þótt þær hafi
verið prentaðar áður, því að þær
eru ritaðar af sjónarvottum og
sumar af hinni mestu prýði.
Uppistaða ritsins eru frásagnir
og skýrslur um Kötíugos, enda
hefir höfundurinn verið þar kunn
ugastur staðháttum og heimildum.
I Ná þær yfir nokkru meira en
helming bókarinnar, og er þar
lengst og ítarlegust skýrslan um
síðasta Kötlugosið, árið 1918.
Þá er næst lýsing á Skaftár-
eldum, ægilegasta eldgosi. er menn
hafa fullar sagnir um á allri
jörðinni, og er það skýrsla Jóns
prófasts Steingrímssonar, orð-
rjett, enda er hún merkilegasta
heimildin sem um það er til.
Þá er sagt frá gosum Heldu-
Eru frásagnir fremur stuttaraleg-
ar, svo að stórum mætti betur
vera, til þess að Heklu væri gerð
þau slsil, sem henni ber að rjettu.
Sagt er og frá gosi Eyjafjalla-
jökuls árið 1822 og Dyngjufjalla-
gosinu mikla 1875, en þar er farið
heldur fljótt yfir sögu, og eru
annars staðar til miklu fullkomn
ari skýrslur um það. Að lokum
er getið ýmissa eldgosa, svo sem
Mývatnselda, en um þau flesc hef-
ir höfundurinn liaft ófullkomnar
heimildir, enda eru þar ýmsar
villur, einkum um staðhætti.
Eins og sjá má af því, sem hjer
er sagt, er jarðeldarit Markúsar
ekki fullkomin greinargerð fyrir
þeim eldgosum, sem hjer hafa
orðið, frá því að sögur hófust, og
skortir raunar allmikið á, að svo
sje, en það er þó sú bók íslensk,
sem er næst því að vera það. Og
jeg vil hiklaust hvetja menn til
að lesa hana. Engir atburðir hafa
orðið hjer á landi, sem eru stór-
brotnari og ægilegri en eldgosin.
Lýsingarnar á þeim, jafnvel þær
einföldustu, eru höfgar af „drama-
tískri“ orku. Undir reiðiskýjum
jarðareldsins hefir þjóðin lifað
mesta fegurð — og þolað þyngsta
raun. Hver les svo skýringar af
Skaftáreldum, að hann verði ekki
sjálfur þátttakandi í hinni miklu
hungurvöku og finni bönd blóðs
og sögu milli sín og þess fólks,
sem þá var og leið? Sjá menn
ekki Heldu krýnda 18 eldum? —
Fylgjast þeir ekki með Sturlu,
þegar hann stekkur með dreng-
inn sinn út á jakann í Kötlu-
hlaupinu ?
Lesið þessa bók. Það er eitt-
hvað annað en blaðaskvaldur eða
reyfarar, myndir eða sögur, um
auvirðilegan eltingarleik við bófa
eða lítilsigld ástabrögð.
Pálmi Hannesson.
Okkar árlega haustútsala hefst á morgun mánudaginn.
18. þ. m. Seljum með gjafverði eftirfarandi:
Knen§kór margar tegundir frá kr. 7.00 parið
Strigaskór á börn -- — 2.00
Gwminístigvjelábörnhnjehá— — 3.00
Karlmannaskór — — 9.00
Ýmiskonar sýnishnrn og litil námer af
allskonar skófatnaði selst fyrir mfög.
litiö verð.
Notið þetta einstaka tækifæri!
Þórðnr Pgetursson & Go»
Ðankstræti 4.
Nýall
I Til dr. Helga Pjeturss.
Uersiuoarskfilini
Víðsýnn og veitull
varstu alinn
heimi á heillastund;
birtir oss lágum
Jífsins speki
ný yfir sjónarsvið.
Aldrei var fegri
óður kveðinn.
Hvergi málið mærra.
Aldrei var fremur
íslensk göfgi
virt að verðmæti.
Takmark og framtíð
tvinnað saman,
ofiði alheims notnm.
SpámæK, spakmæli,
spekings heilræði
gefin til guðsþakka-
Varðí er reistur
víðsýni yfir —
skært þitt „BreiðabliJt11.
Fram í úrdaga
allieims máldaga
setti íslenskur andi.
: verður settur í Kaupþingssalnum 1. október næstkomandL
jHann starfar í vetur í þessum deildum:
Dagskóli: _ 3 bekkir, 6 dteildir, sömu námsgreinar og;
Jfyr. Kvöldskóli: sömu námsgreinar og áður. (Undirbún-
ingsdeild). Framhaldsdeiid: Fyrir þá, sem lokið hafa.
prófi úr 3. bekk. Kenslan er kvöldkensla í tungumálum
og verslunarrekstri. Áhersla lögð á „pratiskar“ æfingar, át
taiæfingar í málunum og á verslunarmál, Tungumálanám-
skeið: Fyrir utanskólafólk, einkum verslunarfólk, sem
óskar eftir „praktiskri“ málaþekkingu. Sjernámskeið ír
ensku, þýsku og spænsku, og ef til vill í frönsku og ítölsku.-
Vörufræðanámskeið: Fyrir starfandi verslunarfólk. —-
Kvöldkensla ca. 2 stundir á viku, kend vörufræði og tekno-
logi, vöru- og framleiðslusaga. — Skólinn ákveður lág-
markstölu nemenda sem til þess þarf að námskeið starfL
Allar upplýsingar um starfsemi skólans geta mennt
fengið hjá skólastjóra, Fjölnisveg 15, sími 2220, viðtals-
tími daglega kl. 1—2. Umsóknir um þátttöku í námskeið.-
unum sjeu komnar til skólastjóra fyrir 25. þ. m.
Reykjavík, 16. september 1933. j
Vilhj. Þ. Gíslason, skólastiðri.
Jens Hermannsson.
Vielstjóraskólinii.
Bardagi við apa.
Fyrir skömmu fór Krag, for-
stjóri dýragarðsins í Nyköbing á
Falstri inn x apabúr, og varð
þá stór api ofsareiður og rjeðist
á hann. Hófust nú svæsin áflog.
Apinn tætti fötin af Krag, beit
af honum fingnr og fleiri hitsár
felck hann. Þegar Krag var að
gefast upp komu eftirlitsmenn inn
i-búrið honum til hjálpar, en hinir
aparnir sjeðust á þá. Var það
mildi að mennirnir skyldi allir
Vjelgæsludeild skólans tekur til starfa 1. október. —-
Þeir, sem ætla að sækja deildina, sendi skólastjóra fyrir
þann tíma umsókn ásamt skínarvottorði, heilbrigðisvott-
orði og vottorði um 3 ára smiðjunám eða um eimvjela-
gæslu í 3 ár, ásamt meðmælum yfirboðara sinna.
n. E. Jessen.
BvDilniiarsamvlniiunelðg
■tyklnfkir.
komast út úr búrinu. Allir voru
þeir meira og minna meiddir og
sjerstaklega var Krag illa út leik-
inn.
Morg-unblaðið er 12 síður í dag
og Lesbók.
Fundur verður haldinn í Kaupþingssalnum miðviku-
| daginn 20. þ. m. kl. 8y2 síðdegis.
Lagðar verða fram teikningar, skýrt frá kostnaðar-
áætlunum, tekin endanleg ákvörðun um lántöku o. fl.
Áríðandi að fjelagsmenn mæti.
STJÓRNIN.