Morgunblaðið - 23.09.1933, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 23.09.1933, Blaðsíða 2
2 mhrgunblaðið Nýkomið: Fermlugarfðl. Hvíif Silkl,®S«“ margar tegundir — og annað er til fermingar þarf — í mestu úrvali. BSffJ KiDDA Nýkomið Rabarbari, Tómatar Gulrófur og ágætar íslenskar kartöflur í Símar 1834 2834. Alt sent heim! Laugaveg 78. Svefnherberaishdsgögn sif fleiri gerðum og litum ávalt fyrirliggjandi. Greiðsluskilmálar hagkvæmir, eftir samkomulagi. Húsgagnaverslun Kristjáns Siggeirssonar, Laugaveg 13. Stofnen§kan. Nýlenduvóruverzlun - Nónnuqala 16 -Síml 4o63 Hýtt filkamot í smásölu og heilum kroppum. Nýtt S a 11 k j ö t. Verslunin Kjöt & Fiskur. Sími 3828 og 4764. Borgarljarðar mikiiiit Hangikjöt Kindabjúgu Grænmeti o. m. fl. Meðal liinna fyrstu, sem lýstu yfir trú sinni á framtíð stofn- enskunnar, var rithöfundurinn frægi H- G. Wells, og hvarvetnai mun verða lesið með athygli það sem þessi mikli sjáandi segir um hana í nýjustu bók sinni, sögu framtíðarinnar, ,,The Shape of Things to Come“. Jafnvel hjer ípun verða tekið eftir því. Síðan dr. Guðmundur Finnbogason fyrst- ur manna vakti athygli íslendinga á stofnenskunni, hafa verið gerðar kostgæfilegar tilraunir til þess að bægja þeim frá að læra hana, en eigi er að sjá að sú viðleitni hafi náð tilgangi sínum. Það er, eins og allir vita, eitt af gáfnamerkj- nm okkar Islendinga að forðast flestan lærdóm að sumri til, en eigi að síður fór það svo, er kenslukona hjer í hæ auglýsti um liásumarið tilsögn í stofnensku, þá fjekk hún að sögn álitlegan bóp nemenda. Nýlega tók jeg eftir því, að sama ltona auglýsti aftur í Morg- unblaðinu. Vitaskuld fær hún nóga nemendur. Þeir eru margir, sem kunna annað hvort ekkert í ensku, eða ekki nóg til þess að geta gert sig sæmilega skiljanlega. En það tjáir nú ekki lengur að sfcgja neinum að eigi megi hugsa, tala og rita um nálega hvað sem er á þessu 850 orða máli. Jeg ætla að láta hvem og einn sjálf- ráðan um það, hvort hann vill leggja það á sig að læra það. En það sem jeg vildi gert hafa með línum þessum er að brýna menn um að gera helst ekki stofnensk- una að endanlegu takmarki, held- ur nota hana sem farartæki á leið. Takmarkið á að vera að opna sjer aðgang að hinum auðugu ensku bókmentum. Jeg held að stofnenskan hljóti að ljetta róð- urinn ákaflega mikið, því námið mun verða æði miklu Ijettara begar nemandinn getur orðið hugsað á ensku enda þótt hann ráði yfir litlum orðafjölda- Vitanlega verða menn að lesa bæltur á stofnensku ef þeir ætlal að halda við kunnáttu sinni í henni. Og til þess að þeir skuli ekki halda að þeir þurfi að koma og kaupa hjá okkur bóksölunum til þess að geta þetta, skal jeg benda á það (sem landsbókavörð- ur hefir reyndar áður gert) að á Landsbókasafninu er nú til tals- vert af bókum á stofnensku, og þar á almenningur greiðan og kostnaðarlausan aðgang að þeim. Sn. J. Fundur frá víkingaöld. í Fager- nes í Noregi fanst fyrir skömmu gamall grafreitur með skrautgrip- um. Er talið að þetta sje kven- mannsgröf frá því á víkingaöld. opnnð í dag. Fullkomnasta matvörukúð bæjarins. Verslun sem allir jnirfa að kynnast, og það strax í dag. Kaupið alla ávexti í r ]§£1 f) DAS U Ð Þórsgötu 14. Sími 4060. Lárus Einarson læknir, kom heim í sumar eftir 5 ára dvöl erlendis. Hefir hann eins og kunnugt er stundað líffæra- og lífeðlisfræði þessi ár. Vann hann fyrst í vetur í Kaupmannahöfn hjá prófessor Hansen. 1929 fór hann til Miánchen og vann þar einn vetur við Anatomische An- stalt hjá prófessor Rollier. Síðan yann hann nokkra mánuði hjá prosektor Vilntrup á Bispebjerg pathologiske Institut. 1930 fekk liann Rockefeller fellowship til 2ja ára. Hjelt hann þá til Boston. — Vann hann þar eitt ár í Depart- ment of Physiology sem heyrir til Harward háskólanum. — 1 Boston lagði liann einkum stund á nevro- physiologi- Haustið 1931 fór hann til Baltimore. Fekst hann þar sjer í lagi við ,experimental nevrologi1. Haustið 1932 kom hann til Hafnar og starfaði síðastliðinn vetur á Bispebjerg Pathologiske Institut, en kynti sjer auk þess ræktun vefja hjá dr. Albert Fischer. 011 þessi ár hefir Lárus Einar- son unnið kappsamlega. Hafa þeg- ar birst nokkrar ritgerðir eftir bann aðallega um histologisk efni og nú mun hann hafa margt á prjónunum. Er það til marks um álit það, er hann naut, að Rocke- feller Foundation hefir gefið full- komin liistologisk rannsóknartæki til þess að gera lionum fært að halda áfram rannsóknum sínum hjer heima. A liausti komanda mun Lárus taka við ltenslu í lífeðlisfræði og vefjafræði við háskólann og má öllum vera það mikið ánægjuefni að læknadeildinni skuli hætast svo góður kraftur. En nú er vonandi að Alþingi sjái sóma sinn í því að gera hon- um lífvænlegt b.jer heima. Þarf hann þá fyrst og fremst það hús- næði að hann geti haldið áfram rannsóknum sínum og um leið við- unandi vinnuskilyrði við kensluna. Væri það hörmulegt afspurnar ef hann fengi ekki hrlsaskjól fyrir rannsóknartækin, sem Rockefeller Foundation gaf. í öðru lagi þarf’ Alþingi að hækka við hann þau sultarlaun, sem það af sinni al- þektu rausn — þegar háskólinn á í lilut — - úthlutaði síðastliðinn vetur. V. A. (Læknablaðið). öranö Hotel, Kvikmyndin eftir skáldsögu Vicki Baum. Sýnd er nú í Gamla Bíó kvik- myndin ,Grand HóteT, er Metro- Goldwyn-Mayer fjelagið liefir gert eftir skáldsögu hinnar frægu þýsku slcáldkonu Vicki Baum. — Skáldsaga þessi hefir, sem kunn- ugt er, hlotið vinsældir um allan Iieim, enda er hún sjerkennileg og skemtileg með afbrigðum,- lýs- ing á ýmis konar „strandgóssi“ lífsins, er hittist í hinni miklu gistihöll- Sjaldan mun í sömu kvikmynd- liafa leikið jafnmargir heimsfræg- ir leikarar og í þessari, og ber Breta Garbo af í hlutverki hinn- ar rússnesku dansmeyjar, Grusin- skaja, er lifir þarna hverfult vor- dægur, rjett í þeim svifum, sem Inin finnur að halla tekur áð hausti. Er leikur Gretu Garho þarna svo þróttmikill, fjölþættur, svo efnisríkur, að hver bíógestur fylgir hugfanginn hverri hreyfing og /svipbrigði þessarar óviðjafn- anlegu leikkonu. Mætti og margt segja um leik hinna aðal-persónanna í þessari merkilegu mynd, svo sem Barry- more-bræður, en Lionel leikur hinn ógleymanlega Kringelein og John baróninn, elshugann, gisti- húsþjófinn, að ógleymdri Joan Orawford, er leikur skrifstofu- stúlkuna. » Kvikmyndin er heilsteypt lista- verk. Lindbergh kominn til Leningrad. Helsingfors 22. sept. United Press. FB. Lindbergh og kona hans lögðu af stað hjeðan kl. 11.08 árdegis áleiðis til Leningrad. Síðari fregn: Lindbergh-hjónin lentu í Leningrad ld. 1.50 e. h. — (Leningradtími.) Mikill fíróði á járnbrautum. Stokkhólmi í sept. United Press. FB. Hagnaður af rekstri rikisjárn- brautanna sænsku varð í júnímán- uði sl. 1,800,000 kr., en var 500.000 kr. í sama mánuði 1932. Af ávöxtunTþrífast börnin best. Hrausto oiaður vanur mjöltum, óskast í vist á heimili nálægt Reykjavík. Upplýsing'ar gefur Pálmi Einarsson, j ar ðræktarráðunautur, Búnaðarfjelags íslands, Lækjargötu 14. LegnbekUr, ódýrari en áður nú fyrir haustið. Húsgaffnaverslun Kristjáns Siggeirssonar, Laugaveg 13. Linir hattar ítalskir frá QUAUTA EXTra • ITAUA' og franskir f MPSSlANT [VALLONoARGOD ÍHeimsfrægir fyrir gæði| X

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.