Morgunblaðið - 26.09.1933, Qupperneq 2

Morgunblaðið - 26.09.1933, Qupperneq 2
2 MORGUNBLAÐIÐ Kjötútsala Hauptjelags Borgfirðinga verður að þessu sinni á Vesturgötu 3 kjallaranum (áður versl. Liverpool). Verður þar daglega selt kjöt í heilum kroppum, mör og svið og ef til vill kartöflur, — alt gegn staðgreiðslu. Tökum ílát til ísöltunar ef óskað er. Verð á kjöti hefir áður verið auglýst. Sendið pantanir yðar sem fyrst og við munum kapp- kosta að uppfylla óskir yðar eftir því sem föng eru til. SÍMI 4433. MiðbæiarskfiiinD. Börn, sem eiga að ganga í Miðbæjarskólann í vetur, komi í sbólann til viðtals eins og bjer segir: Pimtudag 28. sept. komi börn, sem voru í Miðbæjarskólanum síöastl. ár. Þau sem voru í 7. eða 6 bekk, kom kl. 8 árd. Þau, sem voru í 5. bekk, kl. 10, í 4. bekk M. 1, í 3. bekk kl. 3, í 2. eða 1. bekk kl. 5, — Föstudag 29. sept., kl. 9 árd., komi ný börn, sem prófuð voru inn í skólann í vor. Sama dag komi til innritunar ný börn, sem ekki voru prófuð lijer í vor, stúlkur kl. 1, drengir kl. 4. Þessi börn liafi með sjer prófseinkunnir frá í vor, ef þau hafa tekið próf einhversstaðar. Laugardag 30. sept-, kl. 9 árd., komi öll börn, sem ætlast er til lað sæki skóla í Skildinganesi í vetur. Sama dag, kl. 5: Kennarafundur. Sjeu börn forfölluð frá að koma eins og nð ofan greinir, sje það tilkynt á sama tíma. Skólastlúriiin. Litlar þriggjapelaflSsknr frá Áfengisverslun ríkisins, með álímdum miðum frá henni, keyptar hæsta verði. Reykjavikar Bar. Drengir eða stúlkur óskast til að bera Morgunblaðið til kaupenda á Laugar- Jxolt cg; | í grend, og einnig á Selstjarnarnes frá 1. okt. Það er ekki nægilegt að kaupa Húsgögn þau þurfa bæði að vera góð og ódýr, og greiðslu- skilmálar þannig, að fólk geti eignast hlutina á hægan hátt. Alt þetta fáið þið uppfylt ef þið verslið við Húsgagnarersl. vlð Dómkirkjnna. SVENSKA SKINNKLÁDER. Pörsaljare antages föv försáljning tiU privatpersoner av Damskinnjaekor, skinntröjor, samt Motor- kláder m. m. Malungs Skinnskrádderi, Malung. (Sverige). Tilkynning frá aðalumboði THULE til hinna trygðu. Arsskýrsla Thule fyrir siðast- liðið ár er komin. Verður hún afhent á skrifstofu aðalumboðsins, eigi aðeins þeim trygðu, heldur og hverjum öðrum, er þess óskar.. Skýrslan er að vanda mjög ná- kvæm, 33 síður að stærð, og inni- heldur mjög mörg stórmerk at- riði og skal hjer drepið á örfá þeirra. Nýtryggingar fjelagsins á árinu hafa, þrátt fyrir kreppuna, orðið meiri en árið þar á undan, eða kr. 54.213-323. IJm þennan vöxt segir í skýrslunni: „Það er eng- um efa undirorpið, að aðalástæð- an til þessarar merku sóknar á svo erfiðum krepputímum, er á- vöxtur trausts þess, sem Thule alveg sjerstaklega er aðnjótandi sem sparifjárstofnun almennings á þessum alvörútímum' ‘.. Þá er bent á það (í sambandi við bónus fjelagsins), að trygging- arnaf gefi 'af sjer hreina vexti, einnig þegar þær útborgist fyrst við enda tryggingartímabilsins, er hinn trygði heldur lífi og heilsu allan tryggingartímantf. Þá er þess getið, að rúmlega fimti liver maður sem hafi trygt sig á árinu í Thule, hafi áður átt tryggingu í fjelaginu, og sje það svo mikill hluti, að það beri sjerstaklega skýran vitnisburð trausts þess, sem fjelagið nýtur. Skýrt er frá því, sem jafnan er getið í auglýsingum fjelags- ins, að Thnle sje stærsta lífs- ábyrgðarf jelag ’ Norðurlanda, en þar með er það stærsta lífsábyrgð- arfjelagið sem á íslandi starfar, því að öll fjélögin hjer á landi eru Norðurlandafjelög. TJm það atriði er, í sambandi við tryggingarstarfsemina á ár- inu, sagt frá því, að tryggingar- uppliæð fjelagsins nemi í árslok kr. 759.505.857, eða rúmum 200 miljónum meira en hjá því Norð- urlandafjelagi hjer, sem næst Thule gengur að stærð. — Þá segir í skýrslunni (bls. 10), um þetta atriði: „þ. e yfir 3/4 miljarður króna. Með þessari tryggingarupp- liæð, sem jafnvel mæld á Evrópu- mælikvarða er mjög mikil, skipar Thule, þannig að eigi verður um deilt, sætið sem stærsta lífsábyrgð- arfjelag Norðurlanda („Nordens stör sta Livför sákringsbolag “). Þá er skýrt frá því, að af á- góða fjelagsins hafi, eins og á- kveðið er, verið greitt hluthöfun- iim, sem hámarksupphæð, kr. 30.000, en öllum ágóðanum að þeirri upphæð frádreginni varið í bónus til hinna trygðn, og nam sú upphæð kr. 4.901.905,94, en það er sem næst 99.4 af hundraði af ágóðanum, sem hinir trygðu þann- ig fá. í bókinni eru töflnr og línurit er sýna þessa samanburði og marga fleiri. Að endingu er þess getið, að Tliule eigi meiri liluta hlutafjár í brunatrvggingarfjelaginu „Norr- land“, alt hlutafjeð í brunatrygg- , ingarf jelag'inu ,,Victoria‘‘, og rneiri hluta hlutafjár í bruna og þessari miklu þátttöku í bruna- tryggingarstarfseminni, hefir Thule m. a. enn bætt áðstöðu sína til viðskifta, og er þessa getið hjer, enda þótt brunatryggingarstarf- semin sje vitanlega án áhrifa á upphæðir þær sem Thule liefir í líftryggingu, enda eru þær svo sem sljálfsagt er, eigi taldar með í þessum % miljarð líftryggingar- upphæðar Thule. Okkur er óblandin ánægja að skýra hinum trygðu frá hinum sífelt áframháldandi góða árangri ai' starfsemi fjelagsins. Thule hefir enn bætt við sig einu ári sigursælu fyrir sjálft sig og far- sælu fyrir tryggjendurna, því að Öndvegissæti það, er Thule skipar, ei fyrst og fremst því að þakka, að ágóði Thule er ágóði hinna trygðn. Reykjavíli, 22. sept. 1933. Carl D. Tttlíníus & Co. Barnaheimilið Sólheimar Flestir munu kannast við barna- heimili það, sem ungfrú Sesselja, Sigmundsdóttir (Sveinssonar, dyra varðar Miðbæjarskólans) hefir haft undanfarin ár austur í Grímsnesi. Ungfrú Sesselja kom hingað til landsins árið 1930. Hafði hún þá verið 6 ár erlendis, ýmist í Dan- mörku, Þýskalandi, eða Sviss, og lagt stund á og kynt sjer barna- hjúkrun á barnaheimilum. Hafði ungfrú Sesselja mikinn hug á að koma upp barnaheimili lijer og miðla þjóð sinni af þekkingu sinni og kunnáttu í þessum greinum. Er Prestafjelag íslands <raf jörð- ina Hverakot til barnáheimilis, var þegar farið að byggja. Lagði rík- ið og bærinn til styrk nokkurn. í nóvembermánuði 1931 var húsið tilbúið, svo að hægt var að taka á móti börnum þangað, og hefir ungfrú Sesselja síðan verið for- stöðukona fyrir barnaheimilmu. Um daginn fóru nokkrir hlaða- menn og skoðuðu barnalieimilið. Er húsið nú að mestu fullgert, aðeins eftir að fága og mála hjer og þar, og skortir aðeins fje til framkvæmda. Öllu er þar vel fyrir komíð. — Húsið liitað með hveravatni og nóg af heitu og köldu vatni. í sumar hafa verið 38 hörn á Sólheimum, fjögur á 1. ári,-fjögur á öðru ári, en flest á aldrinum 3ja til 6 ára, og 5 fávitar, stúlkur á aldrinum 8—20 ára. Nú eru nokkur farin heim, því að jafnan eru færri á vetrum. Var ánægjulegt að sjá, hve feit og sælleg börnin voru. Voru þair glaðleg og frjálsleg, og .var auð- sjeð á öllu, að þau hafa hina bestu aðhlynningu, og að vel er um þau hugsað að öllu leyti. Hefir þeim ekki orðið misdægurt, síðan þau komu austur. Þau sem komið hafa lasin, hefir batnað. Enda er stað- urinn vel til fallinn og hveraloftið heilnæmt. Ágætt er og fyrir hörn- in að liafa ákveðnar reglur livað mataræði og annað snertir. Einu sinni á mánuði kemur læknir (OI- afur Einarsson hjeraðslæknir, Laugarási) og skoðar hörnin. Hefir forstöðukonan komið upp töluverðri garð- og túnrækt. Hef- slysatryggingarfjelaginú „Skandi- ic hún haft nóg af grænmeti fyrir navien“, alt stór fjelög. — Með heimilið frá því í júni og ágætis- Súðin. Sú breyting hefir verið gerð á áætluninni, að skipið fer hjðan tveimur dögum fyr en áætlað var, eða laugar- daginn 30. þ. m. Yörum verður veitt mót- taka fram á föstudag1. jarðepli frá því í júlímánuði. Hef- ir hún nú mikinn hug á að koma upp gróðurhúsi, svo að hixn geti haft grænmeti allan ársins hring. Er þar helst f járskortur til fyrirstöðu, en (skilyrði eru góð. Leggur liún sjerstaka ákerslu á að börnin fái nóg af grænmeti og mjólk. Þau yngstu fá og lýsi. Kl. 8 fara börnin á fætur. Borða þau þá hafragraut mjólk og hrauð. Kh 12 borða þau miðdegisverð. Kl. 3 kakao og hrauð. Kl. 7 kvöld- verð, Hátta þau kl. 8. Eru þau úti a.lla daga, hvernig sem viðrar. Sje gott veður eru þau yngstu látin sofa úti. Sje slæmt veður geta börnin leikið sjer í leikherbergjum í kjallara luissins. Stúlka, útlærð í bama- hjúkrun,. hefir altaf umsjón með eldri hörnunum, 3ja til 6 ára. Kennir hiin þeim og ýmsa leiki söng og handavinnu. Á veturna er ;og fenginn sjerstakur kennari til þess að kenna þeim. Ein stiilka gætir bama þeirra, sem eru á 1- ári, önnur þeirra sem eru á öðru ári. Ein eða tvær stúlkur gæta fá- vitanna. Eru þeir hafðir alveg sjer. í vor var byrjað á að byggja nýtt hús, sem ætlað er fyrir fá- yitana og veikluð börn, sem ekki geta fylgst með öðrum hörnum. Er búist við að neðsta hæðin verði tilbúin rtú í haust. , Á hæðinni er eitt herbergi fyrir hjúkrunarkonu, borð- og dagstofa, 2 herbergi, eitt sjúkraherbergi og baðherbergi. Ennfremur er lítið húr og geymsla. Matur vex-ður all- ui fluttur frá hinu barnaheimilinu. Byggingu alla á hixsinu hefir annast bróðir forstöðukonunnar, Lúðvík Sigmundsson vjelstjóri, en Einar Ex-Iendsson byggingarmeist- ari teiknaði. Það er mikið og þarft verk, sem ungfrú Sesselja Sigmundsdóttir hefir telvíst á hendur. Þó aðeins á byrjunarstigi sje, er drjiigt spor stigið í áttina. Hefir starfsemi hennar þegar látið mikið gott af sjer leiða. Á hún miklar þakkir skilið fyrir þá rækt og alxið, sem hún hefir sýnt þessn góða og göf- uga starfi, sem hún hefir gert að æfistarfi sínu. Sem von er til hefir hún átt við ýmsa erfiðleika að stríða. En henni hefir þá viljað til, að foreldrar hénnar og systkini hafa reynst hennir hinir hestu hjálparmenn, Eins liafa ýmsir aðrir stutt hana með ráð og dáð og reynst henni og harnaheimilinu vel. Mætti þar nefna sr. Guðmund Einarsson á Mosfelli og Sigurbjörn Þorkelsson í Vísi.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.