Morgunblaðið - 13.10.1933, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 13.10.1933, Blaðsíða 4
4 XOtfGUNBL ABIÐ m | Smá-auglýsingar| fítúlká, sem lokið hefir gagn- fríðaprófi. óskar eftir starfi á skrffjitQfu eða við afgreiðslu. A. S í. Visar á. flem nýtt orgel til sölu. Uppl- á Lokastíg 26. feið sem eftir er af stumpasirsi selst með tækifærisverði. Banka- stráfti 7, uppi. R. P. Leví. F.ynrliggjandi, er selst með tmkit^erisverði: Ein fermingarföt. eWn í^itydress, einn vetrarfrakki og- ryjkkrar röndóttar buxur. — Bankastræti 7, uppi, R. P- Leví. Glæný ýsa, smálúða og stútung- TU' fwst' í síma 4933 og 4943. Fisk- búð Haildórs Sigurðssonar. Gulrófur, ágætar höfum við til sölu næstu daga. Flóra, Vestur- götu 17. Sími 2039. Geri við allskonar slitinn skó- fatnað á Grundarstíg 5. Hvergi eins ódýrt, eftir gæðum. Alt hand- unnið. Helgi Jónsson. Divanar, dýnur vandað afni, vönduð vinna. Vatns- stíer 3. — Húsgagnaverslun Reykjavíkur._________________ Orgelkensla. Kristinn Ingvars- son, Preyjugötu 6. Reiðhjólalugtir. Dinamo Melas 6 volta Hermann Riemann 4 volta. Battery, perur og vasaljós af öll- um stærðum ódýrast í „Orninn“, Laugaveg 8 og 20, og Vestur- götu 5. Geymsla. Reiðhjól tekin til geymsiu. Orninn, Laugaveg 8 og 20, og V'esturgötu 5. Símar 4161 og 4661. tTeimabakarí Ástu Zebitz, Öldu- ífbtu 40, þriðju hæð. Sími 2475. „Freia", Laugaveg 22 B. Sími 4059 .iFreiu' heimabökuðu kök- ut eru viðurkendar þær hestu og spara þúsmæðrum ómak. „Freia1' fiskmeti og kjötmeti mæhr með sjer sjálft. Hafið þjer reync það? Sími 4059. Pergament lampaskermar. Fjöl- breytf og fallegt úrval. Einnig til- bnnir oí’tir pöntun. Rigmor Han- sen, Aðalstræti 12. Hið'Xrsuðudósir með smeltu loki fást eius.ug að undanförnu hjá Guðuymdi J. Breiðfjörð, Blikk- smiðja pg tinhúðun, Laufásveg 4, sími y-92. Lifur og hjörtu dilkahau^ar. Sími 1834 0^ 2834. ^BðreáOM B0RGZÉk Laugaveg 78. Til sölu: Tómír kassar Vöruhúsið. Anna í Grænuhlíð Eftir L. M. Montgomery. Axel Guðmundsson þýddi. Útgefandi Ólafur Erlings- son, Reykjavík 1933. Saga þessi fjallar um unga tel])u, sem fullorðin stystkini, vel við efni, taka til sín af barnahæli og ala upp, sem sitt eigið barn. Er lýst þeim erfiðleikum, sem gamla konan á við að stríða til þess að ala telpuna upp í þeim anda, sem henni þyltir við eiga. og stafa þeir erfiðleikar ekki af því, að telpan sje óstýrilát, heldur af því að hún er gáfað barn, ákaf- lega tilfinninganæm og hefir svo mikið ímyndunarafl, að ímyndun og veruleiki verður henni stundum eitt og hið sama. Henni hættir við að gera axarsköft af því að hún er svo fljót að liugsa og álvkta, en gefur sjer ekki nægan tíma til at- hugunar. Hún gengur í skóla með öðrum börnum í sveitinni og ber af þeim öllum að dugnaði og á- stundun. Upp kemst hún í menta- skóla, og lýkur þar prófi nieð svo niiklu lofi, að hún fær styrk í fjögur ár til þess að stunda há- skólanám. En um það leyti deyr fóstri hennar og er fóstra hennar bá einstæðingur. Hættir liún því við háskólanámið og gerist kenslu- kona í sama skólanum, sem hún hafði byrjað nám sitt. Á þessum námsferli og á þroskabraut hennar fylgir sagan Önnu í Grænuhlíð og lýsir sálarlífi hennar af mestu snild. Sagan er skemtileg og eink- ar hollur og góður lestur, ekki síst fvrir unglinga. Þýðingin er sæmilega góð. Guðni Jónsson. Svívirðilegt fugladráp. „Dýráverndarinn“ segir svo frá : „Aðfaranótt 14. maímánaðar fóru strákar tveir úr Þingvalla- sveit út í Sandey, slógu þar niður tjaldi og tóku að skjóta veiði- bjölluna í varpinu. Ljetu þeir og greipar sópa um varpið. Sáust og heyrðust skotin frá bæjum í sveit-1 inni, enda komu menn að þpini. — Barnakennari var með þeim í þess- ari mannúðarferð. Slíkir andlegir leiðtogar eru ólíklegir til þess að hafa j.göfgandi áhrif“ á barns- hjörtun! Ekki hefir verið getið um Sand- eyjarför þessa í blöðunum, en hún er á almannavitorði í Þingvalla- sveit og víðar. Hirðir blaðið ekki að birta nöfn strákanna og kenn- arans að þessu sinni. Ekki hefir blaðið heyrt hvort rannsókn og dómur hafi gengið enn þá í þessu máli. En ekki ætti svona óhræsis- legum athöfnum að vera órefsað“. 'Dagbók. Veðrið (fimtudagskvöld kl. 5) : Lægð suðvestur af Reykjanesi á hægri hreyfingu austur eftir. Fer lægðin sennilega yfir sunnanvert Island og verður vindstaða því breytileg sunnan lands, en yfirleitt norðaustan á Norðurlandi- Veðurútlit í Rvík í dag: Breyti- leg átt og síðan NA. Smáskúrir. Útvarpið í dag: 10.00 Veður- fregnir. 12.15 Hádegisútvarp. 15.00 Veðurfergnir. 19.00 Grammófón- tónleikar. 19.10 Veðurfregnir. 19.20 Tilkynningar. 19.35 Tónleikar. 20.00 Klukkusláttur. Grammófón- tónleikar: Puceini: Lög úr óp. Ma- dame Butterfly. 20.30 Erindi: Frá Væringjum, II. (Dr. Sigfús Blön- dal). 21.00 Frjettir. 21.30 Bannið og atkvæðagreiðslan. Umræður. Næturvörður verður í nótt í Reykjavíkur Apóteki og Lyfjabúð- inni Iðunn. Þýskur stúdent, Moeller að nafni, stundar nám hjer við Há- skólann í vetur í norrænudeild. Auk þess ætlar hann að kenna hjer þýsku, þeim, er það vilja, og leggja aðallega kapp á að kenna hljóðfræði tungunnar og rjettan framburð. Er hjer tækifæri fyrir þá, sem nokkuð hafa lært í þýsku á bók, að læra nú að tala hana, Otur kom af veiðum í gærmorg- un með 1300 körrur; helt áfram áleiðis til Englands. Skipafrjettir. Gullfoss var á Hesteyri í gær. Goðafoss er á leið til Vestmannáevja frá Hull. Brúar- foss fór í gærkvöld kl. 10 um Reyðarfjörð til London og Leith- Dettifoss fór frá Húsavík um há- degi í gær. — Lagarfoss var á Hvammstanga í gær. Selfoss er í Kaupmannahöfn. Gulla Thorlacius hárgreiðslu- kona hefir nýlega sett upp hár- greiðslustofu í Hafnarstræti 16. — Hún hefir verið við hárgreiðslu- störf í 10 ár í Kaupmannahöfn, en er nú sest að hjer. Farþegar með Brúarfossi í gær- kvöldi: Guðrún Jónsdóttir, Mrs. Guðrún Camp og dóttir, Ásta Jó- bannesson, allar til London. Jón Kjartansson ritstjóri Morg- nnblaðsins brá sjer til Austfjarða með Brúarfossi. Togarinn Geysir ætlar ekki að veiða fisk í ís til útflutnings, held- ur selur hann aflann hjer. Veiðir hann í flóanum og kemur inn á hverjum morgni. Sænska frysti- húsið kaupir meginhlut aflans, en sumt verður selt í bæinn. Gevsir fór fyrstu veiðiförina í fyrrinótt og kom inn í gærmorgun með 80 körfur. Oskar Halldórsson útgerðarmað- ur fór til útlanda með Lyru í gærkvöldi. Atkvæðagreiðslan um bannið. Allir þeir, sem fara úr bænum, og búast við að verða fjarverandi 1- I vetrardag, eru mintir á að greiða. atkvæði hjá lögmanni, áður en þeir fara. Skrifstofan er í Arnar- bváli, opin 10—12 og 1—4. Höfnin. Belgisltur togari kom hingað í gær með kol og vistir handa belgiska togaranum, sem legið hefir hjer í lamasessi síðan í sumar, en er nú bráðum búinn til Iieimferðar. Enskur togari kom í gær að fá sjer fiskiskipstjóra. Tvö fisktökuskip komu í gær, „Varikl“ og „Urd“. Guðspekífjelagið. Fundur í ,.Septímu“ í kvöld kl. 8y2. Frú Kristín Matthíasson segir frá dag- legu lífi í Adyar. Dánarfregn. Jón Jónsson bóndi frá Möðrufelli í Ej-jafirði ljest í gær í spítalanum á Akureyri eftir uppskurð. Luxemburgstöðin, sem mestan usla liefir gert útvarpinu hjer, einkum á Austurlandi, liefir nú breytt útsendingartíma sínum og sendir til kb 10 að kvöldi í stað kl. 9 að undanfömu. Breyting þ.essi er í því ^ólgin, að þeir hafa liaft búmannsklukku þar syðra í sumar, en taka nú upp rjettan tíma. Þessi breyting hefir ill áhrif hjer, því að nú má búast við, að truflanir frá Luxemburgstöðinni verði til kl. 10 að kvöldi. Senni- lega reynir Ríkisútvarpið að bæta úr þessu á þann hátt, að senda framvegis út meira af frjettum ó daginn. Töframunnui'inn, heitir mynd, sem sýnd er í Gamla Bíó þessi kvöld. Er myndin afbragðsgóð. — Aðalhlutverkið leikur Elisabeth Bergner, hin fræga þýska leik- kona ,og er leikur hennar framúr- skarandi. Það er í kvöld að Bjarni Björns- son endurtekur skemtun sína og verður þetta í síðasta sinn að hann fer með þetta efni. Víða úti um land hefir Bjarni skemt í sumar með því og þótti fólki svo mikið gaman að, að t. d- í Siglufirði hafði hann sex skemtikvöld. Galdrakarlinn góði heitir barna- bók með ótal myndum, sem bama- blaðið Æskan hefir gefið út. Frá- gangur allur á bókinni er hinn besti og hún er skraiitleg að ytra útliti. Símabilanir urðu nokkrar í rok- inu upp úr helginni. Á þriðjudag- inn var t. d. sambandslaust við Austfirði, báðar línurnar bilaðar, bæði sú nju-ðri og sú syðri. í gær var síminn kominn í lag. Strandferðaskipin. Esja fór frá Akureyri kl- 1 í gær. Súðin var á Þingeyri í gærmorgun, væntanleg hingað á mánudag eða þriðjudag. Smáhnupl. Dálítið ber á því nú eins og venja er á liaustin, að hnuplað sje úr anddyrum húsa ýmsu, sem þar hefir verið skilið eftir, en þó er það með minna móti. Sums staðar hafa hnuplar- arnir náð í handtöskur kvenna og dót sem geymt er í kápuvösum. Fólk ætti ekki að skilja eftir í opnum anddyrum þá muni, sem þeim er ekki sama um. Reiðhjólastuldir ágerast hjer í bænum með hverju á'rinu sem líð- ur. Segir lögreglan að nú muni vart sá dagur koma fyrir, að ekki sje stolið einu eða fleiri hjólum. Um helmingurinn kemur til skila með aðstoð lögreglunnar, en svo getur verið að eigendur hafi sjálf- ir upp á súmum hjólunum, en til- kynni það ekki þótt þeir liafi til- kvnt hvarfið. Heimdallur heldur fundi í kvöld kl. 8% á venjulegum stað. Verður þar rætt um afstöðu ungu kyn- slóðarinnar í Sjálfstæðisflokknum til eldri kynslóðar flokksins, og verður framsögumaður þessa máls Finnbogi Kjartansson stud- art. Á rjettri skipan þess máls, er hjer um ræðir, hvílir framtíð hvers stjórnmálaflokks. Mun því marga fýsa að heyra, hvernig ungir Sjálf stæðismenn skoða afstöðu sína til eldri manna flokksins, og ekki mun það draga úr að hjer kemur í Heimdalli fram nýr maður. sem ekki hefir talað þar fyr, en sósíal- istahroddarnir hafá reynt að narta og naga í sökum skoðana hans. Fjölmennið í kvöld. Timburskip kom til h.f. Völund- ar í fyrradag. ' Útvarpsumræður um bannmálið byrja í kvöld kl. 9y2 og standa til kl. 11 y2. Tala þá þrír af livorra. hálfu andbanninga og bannmanna- Af andbanninga hálfu tala: Guð- mundur Hannesson prófessor. Kristján Albertson rithöf. og Guðbrandur Jónsson rithöf. En af bannmanna hálfu: Sigfús Sigur- hjartarson stórtemplar, frú Guð- rún Lárusdóttir og Pjetur G. Gnð- mnndsson skrifari. Umræður halda áfram á sama tíma á laugardag- inn. Þá verða ræður styttri, enda ! tala þá sex af hvorra hálfu. B.s. Island fer laugardavirm 14. þ. m- kl. 8 síðd. tíl Kaupmanna- hafnar (um Vestmannaeyjar og- Thorshavn). ( Farþegar sæki farseðla í dag. Tilkynningar um vörur komi sem fyrst. Skipaafgreiðsla Jes Zimsen. Tryggvagötu. Sími 3025«. Sika þieltiefni er komið aftur. 1. Parlðksson S Horðmamt Bankastr. 11. Sími 1280, 4 línur^. flgætt kæSukjðt í heilum kroppum. Herðnbreið. Fríkirkjuveg- 7. Sími 4565, Ylkt. Baunir, Hvitíir Baunlr^ Linsur fást í Þykkn gardínuefnin eru komin. Sömuleiðis mikið úrval af Kvenpeysum. Versl. Manchester. Laugaveg 40. Sími 3894 iti Þrátt fyrir Bann á Spánarvínum, fjölgar þeim altaf, sem koma íi veitingasal Oddfellowhússins.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.