Morgunblaðið - 23.01.1934, Side 3
MOROTTNBLAÐIÐ
3 '
N
mönnnm, sem kjósa á í vor. En
’jþetta er. rangt. Fjórði maður á
lista Sjálfstæðisfl. liefir 1760%
atkv., en þriðji maður Alþýðufl..
aðeins 1558% atkv., og er því
langt frá, að hann næði kosningu.
Úrslit bæjarstjórnarkosningariim-
,ar mundi því gefa Sjálfstæðis-
flokknum greinilega 4 þingmenn
af 6 og Alþýðuflokknum tvo.
Hrakfarir Framsóknar.
Einna eftirtektarverðast við úr-
: slit bæ jarst jórnarkosningarinnar
■ er sú hrakför, sem Framsóknar-
flokkurinn hefir farið hjer í bæn-
'iim.
Snemma á vetri stofna þeir hjer
>ij dagblaðsútgáfu, með fylgiviti
og öðru tilheyrandi, í þeim til-
gangi, eins og þeir orðuðu það
sjálfir „að vinna grenið“. En ár-
. angurinn af allri rógsherferðinni
liefir nú orðið sá, að þeir hafa
■ mist rúmlega 41% af því fylgi,
■ sem þeir hefðu átt að fá, til þess
að liakla sínu hlutfallslega frá
1930.
Sjálfstæðismenn geta ekki ann-
. að en fagnað árangri iðju þeirra
og látið í ljós þá ósk, að þeim
• endist fje og hæfdleikar til þess
að lialda þessu þjóðþrifafyrirtæki
sínu áfram, í fullum gangi.
Bæjarsljóri Hhureyrar.
Átta menn sækja um stöðuna
Akureyri, PB. 21. jan.
Umsækjendur um bæjarstjóra-
stöðuna hjer eru átta talsins:
Steinn Steinsen verkfr., Rvík.
Höskuldur Baldvinsson raffr.,
iRvík.
Tngólfur Jónsson bæjarstj., fsaf.
Arni Daníelsson verkfr., Rvík.
Páll Magnússon lögfr., Eskifirði.
Alfons Jónsson lögfr., Siglufirðí.
Stefán Stefánsson lögfr., Fagra-
;skógi.
Jón Sveinsson bæjarstjófi, Ak-
aireyri.
Kosning fer fram á bæjarstjorn-
mrfundi á þriðjudaginn kemur.
Báðstefnan í Genf.
hefst ekki fyr en í
febrúar eða mars.
Genf, 22. jan.
United Press. P.B.
Henderson forseti afvopnunar-
ráðstefnunnar hefir ákveðið að
taka fullnaðarákvörðun um það
ásamt öðrum stjórnendum ráð-
stefnunnar þ. 13. febr., hvenær
fundahöld á ráðstefnunni skuli
'hefjast: Lýsti Henderson yfir því
að tíminn yrði valinn með tilliti
•til ástandsins eins og það væri, er
ákvörðunin væri tekin. Er ekki
ibúist við, að umræðufundir ráð-
•.stefnunnar byrji fyr en í lok febr,-
mánaðar eða í byrjun mars.
Hindenburg lasinn.
Normandie, 22. jan. FU.
Hindenburg forseti hefir fengið
:slæmt kvef, og tekur sjer alger-
lega hvíld í nokkra daga, en hann
•er þó alls ekki talinn hættulega
veikur.
Orða
til minningar um hópflug
ítalanna 1933.
í „Gazzetta Ufficiale‘‘ í Róm
birtist 2. jan. þ. á. reglugerð
stjórnarinnar um liina nýju orðu,
sem mótuð hefir verið til minning-
ar um hópflugið mikla á tíu ára
afmæli fascismans.
Orðunni er þar lýst á þessa Ieið:
Hún er 32 mm. í þvermál, öðrum
megin er mynd af konunginum og
táknmerki fascista og undir stend-
ur „Vittorio Emanuele III Re d’-
Italia“, en hinum megin er letrað
„Crociera Aerea del Decennale —
Eoma-Chicag'o-New York-Roma —
Luglio-Agosto 1933 — XI“ og
þeim megin verður ennfremur
grafið fult nafn þess, er orðuna
fær, og þess getið, fyrir hvað hann
hlýtur hana.
Orðan er, veitt af stjórnarfor-
setanum Mussolini þeim einum,
sem þátt tóku í flugleiðangrinum
eða höfðn með störfum sínum í
þágu lians gert sig verðuga slíkrar
viðurkenningar af hálfu ítölsku
stjórnarinnar. Orðunni fylgir
borði, sem má bera í hennar stað,
við hátíðleg tækifæri.
(„La Stampa“ 3. jan.)
-----------------
Tekiuhalli ð flðrlSgum
frakka
6000 miljónir franka.
Berlin, 22. jan. FÚ.
Flandin, fyrverandi fjármálaráð
lierra Frakklands, hjelt ræðu í
gær í fjelagi atvinnuleysingja í
Marseilles, um fjármál Frakk-
lands, Hann taldi líklegt að tekju-
Tialli á fjárlögunum 1934 myndi
verða um sex milljarðar franka,
þrátt fyrir allar ráðstafanir stjórn
arinnar. Hann sagði frá því, að
innstæða Frakka erlendis hefði
aldrei komist eins hátt og síðast-
liðið snmar, hefði þá verið 12 mill-
jarðar franka, en væri nú fallin
niður í 8 mill jarða. Að lokum bar
hann fram þá ósk, að á árinu 1934
yrði hreinsað til í fjármálum
Frakklands.
Viðsjár i Asiu.
Berlin, 22. jan. FÚ.
Ritari kommúnistaflokksins í
Austur-Síberíu, Lavrentin, hjelt
ræðu í gær í Khabarovsk, og
sagði frá undirbúningi Japana
undir stríð í Austur-Asíu, — í
Mansjúríu hefjðu þeir bygt 50 flug
velli, auk þess sem þeir hefðu
lagt 2000 km. af vegum til lier-
gagnaflutninga, og 1000 km. af
járnbrautarteinum. Hann kvað
Ilússa mi vera að undirbúa aukn-
ingu á flutningamöguleikum sín-
um í Austur-Síberíu, því að úr-
slit væntanlegs stríðs væru að
mestu komin undir því, að flutn-
ingar tækist vel. Mesta, erfiðleik-
ann kvað hann þó vera þann, að
Trans-Síberíu járnbrautin lægi að
eins á einföldum teinum, og væri
því í ráði, að koma upp herbúðum
þar eystra, og verksmiðjum t,il
framleiðslu liergagna þar á staðn-
um.
Bresk stjórnarhöll
í Indlandi hrvnur.
Berlin, -22. jan. FÚ.
Frá jarðskjálftunúm í Indlandi
berast nú þær frjettir, að breska
sendiherrahöllin í Katmandu, sem
er liöfuðborg Nepal-lijeraðsins,
liafi hrunið, en engar áreiðanlegar
fregnir hafa fengist um örlög
sendisveitarinnar, nje heldur ann-
ara Evrópumanna er þar bjuggu.
—-—«m»—-—
Kommúnistaóeirðir
í Danmörku.
Berlin, 22. jan. FÚ.
Oeirðir urðu í Köge í Danmörku
í gær, á fundi er danskir Nasist-
ar hjeldu þar, undir forystu Lemb
cke höfuðsmanns. Yar fundinum
lokað, en kommúnistar og ungir
jafnaðarmenn brutu' upp dyr og
g'lugga hússins, og irjeðust inn í
fundarsalinn. Varð þar alt í upp-
námi og meiddust nokkrir menn.
Að því er blaðið Dagens Nyheder
segir, tókst þó lögreglunni að
koma á friði eftir skamma stund.
/
Refsivert
í Rússlandi að prjedika guðs orð
á jólunum.
Um jólin voru 240 menn teknir
fastir í Rússlandi fyrir það að
hafa prjedikað guðs orð. Einn af
þeim var prestur, sem hafði laum-
ast inn í kirkjuna hjá rauða hlið-
inu, farið þar upp í turninn og
hring't kirkjuklukkuhum, sem ekki
hafa verið hreyfðar í 14 ár. Fyrir
þetta ódæði var hann dæmdur í
tveggja ára fangelsi.
--————
Bankaræningjar í Sviss.
Berlin, 22. jan. FÚ.
Bankaræningjar tveir í Basel,
er rændu banka þar fyrir nokkr-
um dögum, og skutu niður nokkra
bankaembættismenn, frömdu sjálfs
morð í lystigarði í Basel snemmaí
morgun. Lögreglan var á hælun-
um á þeim, og hafði umkringt
garðinn, og tóku þeif þá það ráð
að skjóta sig. — Þeir höfðu sjö
mannslíf á samviskunni.
Styrjöldin í Kína.
London, 21. jan. FÚ.
Kínverski stjórnarherinn náði
Chang Chow frá uppreisnarmönn-
um í dag. Á laugardaginn hafði
hann náð Foo Cliow á sitt vald.
Stjórnarherinn lenti í hafnarborg-
inni ikmoy, í Fú Kien, og kom
uppreisnarmönnum í Chang Chow
að óvörum.
Járnbrautarslys í Austurríki
Berlin, 22. jan. FU.
Á hraðlestinni milli Vín og Ag-
ram spraklc vítisvjel í morgun kl.
6, og brumiu 2 vagnar lestariun-
ar, en 4 menn fórust. Rannsókm
hefir verið hafin út af tilræðinu.
Hjer með tilkynnist að maðurinn minn, faðir og tengdafaðir
okkar, Þorleifur Árnason múrari, andaðist að heimili sínu Hring-
braut 186, 22. þ. m.
Helga Helgadóttir.
Árni Þorleifsson. Marta Þorleifsdóttir.
Þorsteina Árnadóttir. Guðríður Sigurðardóttir.
Guðmundur Guðmundsson.
Hjartkær faðir og tengdafaðir Ágúst Jónsson frá Höskuld-
arkoti andaðist 22. þ. m. að heimili sínu, Bragagötu 21.
Jarðarför tilkynnist síðar.
Anna Ágústsdóttir. Nói Kristjánsson.
Konan mín, Metta Steinunn Hansdóttir, fædd Hoffmann,
andaðist 21. þ. m. — Jarðarförin ákveðin síðar.
Akranesi 22. janúar 1934.
Sveinn Guðmundsson .
Systir mín, Hildur Háraldsdóttir frá Austur-Görðum amd-
aðist í Landsspítalanum í gær.
Kristjana Haraldsdóttir.
Hjer með tilkynnist að jarðarför Guðrúnar Eggertsdóttur frá
Laxárnesi í Kjós er ákveðin fimtudaginn 25. þ. m. að Lágafelli í
Mosfellssveit. Kveðjuathöfn hefst í Dómkirkjunni kl. 11 árdegis.
Ósk hinnar látnu var, ef einhver hefði í hyggju að gefa kraus. að
andvirðið gengi til Hallgrímskirkju í Saurbæ,
Aðstandendur.
Konan mín, móðir og tengdamóðir ólöf Sveinsdóttir frá
Herdísarvík, verður jarðsungin miðvikudaginn 24. þ. m. kl. 1
e. h. og hefst með húskveðju að heimili hennar, Grettisgötu 60.
Kransar og blóm afbeðin,
Þórarinn Árnason.
Fanný Þórarinsdóttir. ísleikur Þorsteinsson.
Jarðarför systur minnar, Guðfinnu Halldórsdóttur fer fram
frá Kálfatjarnarkirkju, fimtudaginn 25. þ. m. og hefst með Ms-
kveðju að Bræðraparti í Vogum Jd. 11% stundvíslega. Kveðju-
athöfn verður á heimili mínu miðvikudaginn 24. þ. m. kl. 2 síðd.
Vigdís Halldórsdóttir, Bjargarstíg 7.
Innilegar þakkir til aUra, sem auðsýndu hluttekningu og
samúð við fráfall og jarðarför Guðrúnar Björnsdóttur.
Móðir og systkini.
Innilegt þakklæti vottum við öllum, sem sýndu samúð við
fráfall og jarðarför Magnúsar sál. Þorkelssonar.
Aðstandendur.
Innilegt þakklæti öllum þeim mörgu er við andlát og jarðar-
för Böðvars Sigurðssonar í Vogatungu auðsýndu okkur hluttekn-
ingu og vinarhug.
Aðstandendur.
Timburwerslun
P. W. Jacobsen & Sön.
Stofnuð 1824.
Simnefnii G -anfuru — Car'-Lundsgade, KSbenhavn C.
Selur timhur í stærri og smærri sendingum frá Kaupmhöfn.
Eik til skipasmíða. — Einnig heila skipsfarma frá SviþjóS.
Hefi verslað við Island í 80 ár.
• •
• •
• •
• •
• •
• •
• •
• •
• •
••
• •
• •
• •
• •
• •
• •
• •
• •
• •
• •
• •
• •
• •
• •
• •