Morgunblaðið - 16.02.1934, Page 3
Föstudaginn 16. febrúar 1934.
L
MORGUNBLAÐIÐ
3
Soisvirkionin snhkt
f bæíarstiúrn
við 1. umræðu með sam-
hljóða atkvæðum.
Svohljóðandi tillögur frá bæj-
arráði lágu fyrir bæjarstjórnar-
fundi í gærkvöldi:
1. Bæjarstjómin samþykkir að
ráðast í virkjun Sogsins á
grundvelli tillagna verkfræð-
inganna A. B. Berdal og
Jacob Nissen, að því til-
skyldlu, að lánsfje fáist til
veirksins með aðgengilegum
kjörum.
2. Bæjarstjómin felur borgar-
stjóra að leita eftir láni til
Sogsvirkjunarinnar að upp-
hæð alt að 7 milj. kr. eða til-
svarandi upphæð í erlendum
gjaldeyiri, samkvæmt ákvæð-
um laganna um virkjun Sogs-
ins.
Nokkrar umræður urðu um
málið.
Borgarstjóri tók fyrstur til
máls. Hann sagði m. a.
Með tillögum hinna norsku
verkfræðinga er' fengið álit um
það, sem rjett er að fylgja,
hvernig eigi að virkja Sogið.
Hversvegna Ljósafoss var
tekinn fram yfir aðra.
Hinir norsku sjerfræðingar
telja fram þrjár höfuðástæður
fyrir því, að þeir veldu Ljósa-
foss til virkjunarinnar.
I fyrsta lagi vegna þess, að
þar verður býrjun virkjunarinn-
ar ódýrust.
í öðru lagi vegna þess, að
framkvæmd þessarar virkjunar
er áhættuminst, þ. e. a. s., að
við virkjun þá eru fæst fram-
kvæmdaatriði, sem erfiðleikum
valda, sem vandasamt er að
leysa.
í þriðja lagi, með því að
byrja á Ljósafossi er fram-
haldsvirkjun, viðbótarvirkjun
Sogsins, auðveldust.
Tillaga bæjarráðsins, sem
hjer liggur fyrir, er eðlilegt
framhald málsins. Menn verða
að ganga að því sem vísu, að
ríkisábyrgð fáist fyrir láninu,
þar eð landsstjórnin hefir heim-
ild til að veita þá ábyrgð.
Framkvæmdir í sumar.
Þá skýrði borgarstjóri frá
því, ef greiðlega gengi með
fjárútvegun, þá ætlaðist hann
til, að byrjað yrði á framkvæmd
um að sumri.
Hann taldi ógerlegt, að
hraða heildarútboði svo, að
hægt yrði að bjóða verkið út í
heild sinni fyrir sumarið. En
hann ætlaðist til þess, að hægt
væri að taka nokkur fram-
kvæmda atriði út úr heildinni,
og bjóða þau út fyrir sumarið,
evo sem vegagerð að fyrirhug-
uðu orkuveri; brú á Sogið, hús
við orkuverið og háspennulín-
una til Reykjavíkur.
Sjerstaka lýsingu ætluðu hin-
ir norsku verkfræðingar Berdal
og Nissen að gera, á verkinu og
hversu arðvænlegt það yrði, er
bæjarstjórn hefði fallist á tillög-
»r þeirra. Á að nota þá lýsingu
▼ið fjárútvegunina.
Enda þótt formlegt samþykki
bæjarstjórnar væri ekki fengið,
hafði borgarstjóri þegar símað
þeim og beðið þá um að ganga
frá þeirri skýrslugerð sem fyrst.
Að loknu'm umræðum voru
ofangreindar tillögur bæjarráðs
ins samþyktar með samhljóða
atkvæðum. Fulltrúar Framsókn
ar og kommúnista, Hermann
Jónasson og Björn Bjarnason
greiddu ekki atkvæði.
—-—<»>--------—- / ■
Útgerð
og atvinnubætur.
Karp í fcæjarstjórn.
Samþykt var í bæjarstjórn í
gærkvöldi tillaga Sjálfstæðis-
manr.a, um að bæjarsjóðui
styrkti menn til skipakaupa, 10
þús. kr. hverja skipshöfn, ei
kaupa vildi ný 50 tonna skip og
gera út.
Frá tillögu þeirri var skýrt
hjer um daginn.
Var hún nú samþykt til fulln-
ustu.
Sósíálistar snerust öndvegir
gegn tillögu þessari.
Þeir báru fram sína fyrri til-
lögu um bæjarútgerð togara,
og var hún feld.
Karp varð í bæjarstjórn í gær
út af tillögum þessum, einkum
milli sósíalista og kommúnist-
ans. Sagði kommúnistinn, að til-
laga sósíalista um bæjarútgerð
væri ekki til annars fram borin,
en gera verkalýðnum bölvun.
Þeir meintu ekkert með henni.
Sósíalistar vildu ekki, að styrk
ur þessi væri tekinn af atvinnu-
bótafjenu. En Jakob Möllei
benti á, að öðruvísi hefði verið
skrifað í Alþýðubl. fyrir kosn-
ingarnar, því þar hefði málið
verið tekið þannig, að betra væri
að verja fjenu til styrktar auk-
inni útgerð, en til atvinnubóta.
Nú væri farið inn á þessa braut.
Þá snjerust sósíalistar á móti
því.
Bruggunarmál
á Akranesi.
Akranesi 14. febr. FÚ.
í nótt komst lögreglan að því,
að bifreið mundi fara, upp í sveit
með mann í áfengisleit. Lögreglu-
stjóri ásamt tveim lögregluþjón-
um setti þá vörð á veginn, og tók
bifreiðina í bakaleið og' fann
flösku af áfengi. Mennirnir sögðu
áfengið vera frá Hvítanesi og
hafa staðfest það fyrir rjetti.
I morgun fekk lögreglustjóri
umboð sýslumanns Borgarfjarðar-
sýslu til húsrannsóknar í Hvíta-
nesi. Yar híin framkvæmd í dag,
og fanst þá ein flaska, en óvíst
er um styrkleika vökvans.
Málið bíður frekari rannsóknar.
□oumergue-5riórnin
fcer góðar uiðtökur í
bdðum þingðeilðum.
London 15. febr. F. Ú.
United Press. F.B.
Franslca fulltrúadeildin kom
saman í dag, í fyrsta sinn eftir
síðustu stjórnarskifti, og iagði
Doumerge stefnuskrá stjórnar-
innar fyrir þingið. 1 innanríkis-
málum fór hann fram á „vopna-
hlje“ milli flokkanna, til þess að
stjórnin gæti komið á rjettar-
farslegum Umbótum, jafnað fjár
lögin, og komið g.jaldeyrismál-
unum í fast horf.
Þá sagði Doumergue, að í ut-
anríkismálum gæti Frakkland
ekki vænst að áhrifa þess gætti,
nema með því að eins að Frakk-
ar væru samhuga og samtaka
heima fyrir. Þeir gætu ekki ætl-
ast til þess, að tillögur þeirra
væru teknar til greina, í afvopn
unarmálinu eða í öðrum málum
er þjóðabandalagið hefði með,
höndum, nema því að eins, að|
það væri augljóst, að þjóðin!
stæði öll á bak við þær.
Þegar Doumergue kom inn í
fundarsalinn, var honum fagn-
að með húrrahrópum frá bekkj-
um hægri flokkanna, en komm-
únistar vildu æpa hann niður.
Stjórnin mun gera tilraun til
þess að fá fjárlögin samþykl
íyrir mánaðarlok.
RLP. 15. febr. F. Ú.
Fulltrúadeild franska þings-
ins tók mjög vinsamlega á móti
Doumergue forsætisfáðherra
Frakka, er hann gekk inn í þing
salinn á ný, síðdegis í dag, en
þár hefir hann ekki átt sæti úm
langt skeið.' Stóðu þingmenn
eslir upp úr sætum sínum er
hann gekk inn, nema kommún-
istar. Tilkynningu hans um það,
hverjir sæti ættu í stjórninni vax
einnig mjög vel tekið. Viðlíka
viðtökur fekk Cheron dómsmála
ráðhenra, er hann gekk fyrir
öldungadeildina, og tilkynli
henni stjórnarmyndunina.
Alt var með kyrrum kjörum
fyrir utan þinghúsið, og einum
6 lögreglumönnum hafði verið
bætt við hinn venjulega þing-
húsvörð.
til tals meðal fulltrúa Alþýðu-
flokksins, að borgarstjóraem-
bættinu yrði skift, vegna þess
að það væri orðið of umfangs-
mikið fyrir einn mann.
Eg tel hina leiðina heppilegri
að hafa sjerstakt borgarritara-
starf.
Tillaga borgarstjóra í þessu
máli var samþ. með 8 atkv. gegn
einu.
Borgarrtlarinn
! starfið þarf að hvíla á föstum
i starfsmanni.
Tsheljuskin
rússneski ísbrjóturinn, sem
fórst í íshafinu.
Berlin, 15. febr. FÚ.
Einn maður drukknaði af áhöfn
rússneska ísbrjótsins, sem fórst í
Norður-íshafinu, en hinir komust
heilu og. höldnu upp á ísinn, en
skipið liðaðist sundur í milli ís-
jakanna. Það tókst þó að bjarga
miklu af matvælum, og flugvjel
skipsins, npp á ísinn. Fyrirliði
skipsins hefir staðið í sambandi
\úð loftskeytastöðvar í Norður-
Noregi, og hafa verið gerðar ráð-
stafanir til þess að senda flug-
vjelar og hundasleða til Iijáipar.
ísbrjótur þessi lagði af st.að frá
Arehangel 16. júlí í fyrra. og' var
' ætlunin að sigla eftir Bebring-
sundinu norðan við Síberíu til
Vladivostok. en skipið hefir orðið
fyrir mjög ííiiklum töfum af völd-
um íssins.
Samþykt í bæjarstjórn
að gera þá breytingu á
stjórn bæjarmálefnanna.
Á bæjar^órnarfundi í gær-
kvöldi var frumvarp borgar-
stjóra um stofnun borgarritara
cmbættis til umræðu.
Hefir verið gerð grein fyrir
því frumvarpi hjer áður.
Borgarstjóri tók fyrstur til
máls. Hann komst m. a. þannig
að orði:
Eg vil minna á það, að bæj-
arstjórn varð ásátt um fyrir ári
síðan, að gera þyrfti ráðstafan-
ir til þess að koma meiri skipun
á innheimtu bæjargjalda, en
verið hefir. Var þá ráðinn maður
með 500 kr. mánaðarlaunum, til
að hafa stjórn innheimtunnar á
hendi. Sú ráðstöfun var gerð til
eins árs.
Síðan hefi jeg haft tækifæri
til að kynnast þessu starfi, og
sannfærst um, að innheimtu-
Eftir núgildandi lögum ætti
þetta starf að hvíla á borgar-
stjóra eða bæjargjaldkera.
Hvorugur hefir tíma til að sinna
þessu sem skyldi, fyrir öðrum
störfum.
Þetta umsjónarstarf er erfið-
iara og meira vegna þess, að bæj-
arbúar eru vanir því, að þurfa
ekki að koma með gjöld sín í
skrifstofur bæjarins. Gjöldin
eru sótt til þeirra. Slíkt fyrir-
komulag tíðkast ekki erlendis.
En erfitt er að fá þessari venju
breytt.
Erlendis tíðkast það, að í bæj-
um sjeu ritarar borgarstjóra,
sem í forföllum hans geta tekið
við störfum hans, eru kunnugir
afgreiðslu málefna bæjarins yf-
irleitt. Þegar borgarstjóraskifti
verða, geta þessir menn annast,
að^ eðlilegt samhengi og sam-
ræmi verði í afgreiðslu málanna.
Þetta er nauðsynlegt.
Fyrir nokkrum árum kom það
Fjármál Tjekka.
Óánægja út af gengislækkun.
Londoh, 15. febr. FÚ.
Formáður aðalbankaráðs Tjekkó
slóvakíu og' nokkrir æðstu starfs-
menn ríkisbankans sögðu af sjer í
gær. vegna gjaldeyrislækkunar
sem stjórnin hefir gert. Énnfrem-
m hafa allir stjórnarmeðlimir
National-demokrata sagt af sjer,
en forsætisráðherra liefir þegar
skipað menn í stjórnina í þeirra
stað. Benesh er enp utanríkis-
málaráðherra.
---—--— .
Róstur í Madrid.
London, 15. febr. FIT.
Röstur hafa orðið í Madrid í
dag, og nrðu talsverðar götuóeirð-
ir, og tókst lögreglunni ekki að
koma á friði fyr en hún hafði
gripið til vopna.
fJTSALAJ^
MESTA
6. dagur.
UNIÐ
Úrval af niðursettum nótum.
Notið tækifærið: — Fiðlur,
Bogar, Guitarar, Mandólín,
Banjó, Fiðlukassar, Har-
monikur.
- Skoðið gluggasýninguna. -
|Málakensliuiámskeiðin niðursettu (frá 20 kr.).
ÍGrammófónplötumar niðursettu (danslög og klassísk). —
HLJÓÐFÆRAHÚSIÐ,
Bankastræti 7, við hliðina á
Lárusi G. Lúðvígssyni. —
Sími 3656.
ATLABÚB,
Laugavesr 38. — Sími 3015.