Morgunblaðið - 16.02.1934, Page 8

Morgunblaðið - 16.02.1934, Page 8
8 MOKGUNBLAÐIt) | Smá-auglýsingar| Hverjum, sem sendir mjer notuð íslensk frímerki, sendi jeg aftur jafnmörg þýk frímerki. Dr. Adolf Merkel, Eisenach, Stresemannstr. 11, Deutschland. Blómaverslunin Anna Hallgríms- son, Túngötu 16. Sími 3019. Ný- komnir Pálmar, Aspedistrur og’ fínn Aspargus. Thuja í lausri vigt. Gerfiblóm í miklu úrvali. Blóm- sveigar fyrirliggjandi með gerfi- blómum. einnig bundnir eftir pöntun, með lifandi blómum. Lík- kistur skreyttar, vinna og stifti, 6—S krónur. Tulipanar og Hyá- eintur fást daglega í miklu úrvali, Sent heim ef óskað er. Sænsk frímerki látin í skiftum fyrir íslensk. Gustaf Sandberg. Nybrogatan 63, Stockholm. Eljótt og vel gert við sautna- vjelar og prjónavjelar. Prakka- stíg 9. Hyggnar húsmæður gæta þess að hafa kjarnabrauðið á borðum sínum. Það fæst aðeins í Kaupfje- lags Brauðgerðinni, Bankastræti 2. Sími 4562. Viðgerð á barnavögnum fæst af- greidd á Laufásveg 4, Sími 3492. KHnnið A.S.I. Borgin Ypres í Belgíu varð mjög hart úti í ó- friðnum mikla, en nú er lokið við að byggja liana upp að nýju. Hjer á myndinni sj%st gríðarstór klukka, sem -verið er að draga upp í nýbygðan kirkjuturn. Þýskur hláupari, Syring að nafni, sigraði nýlega í 1500 metra innanhússhlaupi á 4 mín. 10.8 sek. Peltzer varð annar í röðinni á 4 mín. 11,3 sek. í Palais des Sports í París varð sterkasti maður heimsins, Frakk- inn Rigoulot, nýlega að lúta í lægra hald í tuski (catch as cateh can) fyrir Búlgaranum Dan Kol- off, sem kallaður er King Kong, í höfuðið á hinum ægilega apa, sem Edgar Wallace segir frá í einni skáldsögu sinni. Kraftar Ri- g'oulot dugðu ekki gegn snarræði og æfingu Búlgarans. Roosevelt tók við forsetastöðunni í mars- mánuði í fyrra. Um áramótin hafði liann fengið 1,620.000 brjef og 200.000 símskeyti viðvíkjandi stjórn ríkjanna. Max Schmeling ætlar aftur að berjást við Max Baer, hnefaleik- arann, sem sigraði liann í haust. Hólmgangan á að fara fram í apríl og eiga þeir að berjast 12 lotur. Sonur Caruso, sem heitir Enrico, eins og faðir hans, er tenórsöngvari. Hann dvelur nú í Hollywood og syngur óperuhlutverk í tónmyndum. VMnÉHfl n Hoioiblads-snll crti víð hæfi allra spílamanna. * ♦ Ódýrl vetrarferðalagé Til Holmenkollen skíðamótsins við Ósló, sem háð verð- ur 1.—5. mars. >, 2 daga viðstaða í Bergen. 6 daga viðstaða í Ósló. 8 daga viðstaða á Geilo og Finse. * 26 daga ferð, fargjald og fæði á skipi og gistihúsi norskar krónur 425.00. Ferðin því að eins farin fáist minst 10 þátttakendmv Gefið ykkur fram tímanjega. Frekari upplýsingar hjá , Nic. Bjarnason & Smith K3. Grand-Hótel. 33. um var skipað. Hann var við því búinn að snúa á hvaða kænskubragð, sem beitt kynni að verða í herberginu, og finna perlurnar, hvar sem þær hefði verið settar; hann var reiðubúinn til að sprengja upp ferðakofort, brjóta upp skápa og komast að leyndarmáli galdralæsinga, En þegar hann fylgdi Ijósgeislanum frá vasalampanum með augunum og sá sjálfan sig koma á móti sjálfum sér, í speglinum, varð hann blátt áfram hlægilega hissa. Á litla borðinu undir speglinum lá sem sé Iitla hand^askan rólega og óvarin, og litli ljósgeislinn speglaði sig sakleysislega í leðrinu. „Rólegur nú“, skipaði Gaigern sjálfum sér fyrir, því hann fann hvernig veiðibræðin sauð í höfði hans. Fyrst stakk hann meiddu hendinni 1 vasann, eins og hverjum öðrum dauðum hlut, og þar varð hún að hýrast, því ekki mátti hún gera ilt af sér með því að skilja eftir nein verksummerki. Yasaljósinu stakk hann í munn sér. Síðan tók hann varlega handtöskuna með hinni hendinni, sem hanskinn var á. Hann lyfti henni, hún var tóm. Hann lagði frá sér vasaljósið, slökkti það og stóð svo ofurlitla stund, hugsandi Hérna var auma jarðarfararlyktin. Þefur af jarðar- för, dauða og hátíðlegri líkræðu! Gaigern fór að hlæja í myrkrinu, þegar honum datt í hug hin raunverulega orsök. ,,Lárber!“ hugsaði hann með rodd Suzette. Frúin fær einhver ósköp af lárberj- um, Monsieur. Franski sendiherrann hefir sent oRkur fulla körfu af lárberjum, Monsieur. Hann lagðist á kné fyrir framan stóra spegilinn og nú brakaði í gólffjölunum, illyrmislega, eins og þær væru lifandi, og greip í myrkrinu eftir handtösk- unni með vinstri hendi. Nei, hugsaði hann, og sleppti því aftur. Þessháttar hlutum fylgdi óheill. Vasabækur, handtöskur, buddur og þessháttar voru óheillahlutir. Meðal annars voru þeir afleitir með það að vilja ekki brenna, ennfremur flutu þeir, ef þeim var kastað í vatn, létu finna sig í skólpræsun- um, þegar þau voru hreinsuð, og enduðu svo sem óþægileg sönnunargögn á óviðfeldum dómgiúnd- um. Auk þess var handtaska, sem vó sín fjögur pund ekkert þægileg að bera i, munninum ýfir tyeggja og hálfrar stiku leið eftir hálum múrvegg. Gaigem dró að sér hendina og hugsaði sig um. Hann kveikti vasaljósið og starði hugsandi á lásana á handtöskunni. Hamingjan mátti vita, hverskon- ar galdralæsingu Grusinskaja notaði til að geyma fjársjóð sinn? Gaigern tók, svo sem til að reyna fyrir sér, verkfæri úr vasa sínum og ýtti við málm- hringnum á lásnum. Hann hrökk upp. Handtaskan var alls ekki læst. Gaigern var hræddur við litla smellinn, svo ó- væntur var hann og setti snöggvast upp sérlega heimskulegan svip. „Gott er nú það“, sagði hann nokkrum sinnum við sjálfan sig, „gott er nú það“. Hann lyfti lokinu og opnaði gimsteinahylkið. Jú, rétt — hér voru perlur Grusinskaju. Annars voru þær nú ekki svo sérlega margar, því ef rétt var ó litið, var þetta ekki nema handfylli af glingri, sem varð lítið í samanburði við allar tröllasögurnar, sem gengu um þessa gjöf frá stór- fursta einum, sem síðar hafði verið myrtur, til hinnar dýrkuðu dansmeyjar. Þetta var fornleg perlufesti úr meðal-stórum, en nákvæmlega jafn- stórum perlum, þrír hringar og tveir eyrnahringar úr ótrúlega stórum og vel löguðum perlum. Allt þetta skraut lá letilega á silkibeði sínum og sendi. frá sér smáneista í birtunni frá vasaljósinu. Gaig- ern tók skartgripina ósegjanlega varlega upp með vinstri höndinni, sem var í hanskanum, og stakk þeim í vasa sinn. Svo mjög fannst honum það hlægi- legt að finna þessar perlur svo óvarðar og á glám- bekk, að hann fann næstum til vonbrigða eða mátt- leysis, það var af þreytunni eftir hina geisimiklu áreynzlu, sem nú sýndi sig að hafa verið til óþarfa. Snöggvast datt honum í hug, hvort hann ætti ekki bara að reyna að komast yfir ganginn og yfir í her- bergi sitt. Ef til vill höfðu kvensurnar líka skilið eftir opna hurðina, hugsaði hann með sama heimskulega, barnslega og tortryggna brosinu, sem hafði leikið um varir hans allt frá því er hann kom auga á perlurnar. En hurðin var lokuð. Utan af ganginum heyrði hann með jöfnum millibilum lyftuna fara upp og svo heyrðist smellur þegar grindahurðin skelltist aftur. Herbergi nr. 68 lá á ská hinumegin. Gaiýem settist snöggvast í hægindastól í dimmunni. Hann langaði afskaplega í eitthvað að reykja, en þorði ekki, af hræðslu við að skilja eftir verksummerki. Hann var álíka varkár og villimaður, sem varðveit- ir tabú. Hann hugsaði um fjölda marga hluti sam- tímis, en þó allra mest um vopnaskáp föður síns. 1 þeim skáp stóðu alltaf blikkdósir með tóbaki fra Herzegowina og í hverja dós lagði gamli baróninn sneið af gulrót, þriðja hvern dag. Gaigern tók að dreyma sætbeizka ilminn, sem þar var heima, bljópi niður slitnu þrepin í Ried, og gleýmdí sér í hugan- bun í felustaðnum, þar sem hann var að steiast til að reykja, þegar hann var seytján ára strákur. Em brátt rykkti hann harkalega í sjálfan sig og nnuaxii hvað hann var að gera. „Upp með þig“, sagði hamr við sjálfan sig, „hér dugar enginn svefn. Af stað með þig!“ Hann gaf oft sjálfum sér ýmis auknefni., talaði vingjarnlega við sjálfan sig og var blíöuiv hrósaði eða skammaði limi síha. „Svínið þitt“, sagði hann og skammaði fingur sinn, sem hann hafði skorið sig í, og límdist við og blæddi úr, „getuxAu hætt þessu, svínið þitt“. Og hann klappaði fótum, sínum, rétt eins og þeir væru hestar. „Þið eruð góð-- ir, — góðar skepnur. Happ“. Hann fór út úr lái'- berjailmnum í nr. 68, x’ak nefið snuðrandi út á sval- irnar aftur, og andaði að sér þessu Bei'línarlofti,. sem ekki er hægt að lýsa, en er blandað af bensín- gufu og raka frá Tiergarten, en þá þegar, er hann stóð milli flögrandi dyi'atjaldanna, fann hann á sér,. að eitthvað var ekki í lagi. Það leið augnablik áð- ur en honum var það Ijóst, að einhver bjarmi skein, á andlit hans, sem hann kannaðist ekki við, að ætti þarna að vera. Hann sá gljáa á silkið í erminni á náttfötunum sínum, og hann stakk sér ósjálfrátt nin í dimmuna í herbei’ginu, eins og dýr, sem hefir staðið í skógai'jaðrinum og snuðrað og hverfur svo aftur inn í skógarþykknið. Og þarna stóð hann með hverja taug spennta og gei'ði ekki annað en di'aga andann. Hann heyrði mjög greinilega úrin tísta og nokkru seinna turnúr úti í bænum, sem sló ellefu. Veggurinn hinum megin götunnar varð dimmur og- bjartur á víxl; hann skifti litum og gerði hinar og þessar hundakúnstir í sífellu. „Hvaða bölvuð skömm er að sjá þetta“, urraði Gaigern og gekk út á svalirnir, og nú var hann skip- andi og óþolinmóður, eins og hann ætti heima í nr. '68. Ljóskastararnir höfðu slokknað. Enn einu sinni. var eitthvað í ólagi við nýju ljósaleiðslurnar, og inni í litla viðhafnasalnum sat Mannvinasamband- ið í dimmunni, en rafmagnsviðgerðarmenn voru önnum kafnir í kjallaranum að reyna að finna bil- unina — en fundu hana bara ekki. Niðri á götunni stóðu nokkrar manneskjur og horfðu ánægðar á framhlið hótelsins, þar sem fjórir ljóskastarar kviknuðu og slokknuðu á víxl. Einnig var lögi'eglu- - /

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.