Morgunblaðið - 16.02.1934, Page 4

Morgunblaðið - 16.02.1934, Page 4
t I 4 MOKGUNBLAÐIÐ VirkjDi Saga málsin§ cakðn frá hyrjun. Útdráffur úr ræðu Jósas Þor- lákisonar borgarstjóra, á síðasfa Varðarfundi. Sogsvlrkjunin er fyrsta stórmál- ið, sem hin nýkjörna bæjarstjórn fær til meðferðar. Er nú vonandi komið að síðasta áfanganum uns framkvæmdir hefjast, ef lán fæst til virkjunarinnar með aðgengileg- um kjörum. í þetta sinn ætla jeg að rifja upp sögu þessa merkilega máls í aðaldráttum. Það er þá upphaf málsins, að Yestur-íslendingur einn, að nafni Oddur Sigurðsson kom hingað heim til Reykjavíkur nokkuni fyrir síðustu aldamót. Hafði hann dvaiið vestra um skeið, og unnið þar við virkjun fallvatna og raf- orkuver. Hann hóf máls á því, að Reyk- víkingar ætti að virkja Sogið handa sjer. Tími var þá ekki kom- ínn til framkvæmda, en málið greip hugi marg'ra manna, og var rætt sem glæsileg framtíðarvon. Leið nú fram yfir aldamót. Þá tóku útlendingar að líta hýru auga til íslenskra fallvatna, með það markmið, að hefja hjer stóriðju svipaða og við fallvötn í nágranna löndunum. . Fjelag var myndað, er hjet Fossafjelagið ísland. Með leigu- samningum náði það rjetti yfir talsverðu taf fossunum í Soginu með ]>að fyrir augum, að taka fossana til virkjunar fyrir á- kveðna stóriðju. Le.it það arð- vænlega út á þeim tíma. Frumvarp um sjerleyfi til Fossafjelagsins ís- land. Fossanefndin. Frumvarp var lagt fyrir Alþing'i 1917, um að landstjórnin fengi ; 'umild að veita Fossaf jelaginu ; aiid sjerleyfi til að virkja Sog- ið. Skyldi sjerleyfi ])etta gilda í 90 ár. En við framkvæmdir voru tengdar samgöngubætur austur yfir Fjall. Er frumvarp þetta kom fram, bar Bjarni Jónsson frá Fogi fram annað frumvarp um það, að land- stjórnin sjálf skvldi hagnýta sjer vatnsafl Sogsins. TJrðu menn ekki á eitt sáttir um þetta á þinginu. Niðurstaðan varð sú, að málinu var skotið á frest, j en skipuð milliþinganefnd, til að rannsaka fossamál landsins yfir- teitt. Fossanefndiií, en svo var hún ; alment kölluð, tók til starfa í okt.1 1917 og starfaði fram á árið 1919. Að því er snerti leyfisbeiðni Fossaf jelagsins Tsland, komst nefndin að þeirri niðurstöðu. að eigi væri tímabært að taka afstöðu til hennar, því að ógerðar væri rannsóknir ujn tilhögun virkjun- ar þar, og um ]iað, hve mikið af orku þess muni þurfa til al- mennings þarfa. En nefndin samdi frumvarp til laga um lieimild til landsstjórnar- innar að láta framkvæma allar nauðsynlegar rannsóknir til undir- búnings Sogsvirkjun, ásamt öðr- um og meiri frumvörpum, til vatnalaga, sjerleyfislaga o. fl. o. fl. Jeg átti sæti í þessari nefnd. Hafði það þá þýðingu fyrir mig, að jeg með athugunum þeim, sem nefndin gerði, komst að þeirri nið urstöðu, að tiltölulega fljótt myndu koma þeir tímar, að kleift yrjpi, að veita rafmagni yfir þjett- býlustu hluta landsins. Varð mjer það ljóst, hvaða gagn gæti af því orðíð. Yið athuganir þ'ær, sem nefndin gerði í Noregi, kyntist jeg þeim undirstöðuatriðum sem þurfa að vera fyrir hendi, til þess að slíkar rafveitur til almennings- þarfa næðu æskilegum árangri. Rannsóknir á Soginu. Frumvarpið um rannsóknir á virkunarskilyrðum Sogsins lá. nú í salti í tvö ár, og var ekki lagt fyrir þingið. í janúar 1921 va.r jeg kosinn á þing fyrir Reykjavík. A þinginu 1921 var flokkaskipun þingsins mjög í upplausn. Var í upphafi óvíst hvort jeg myndi styðja þáverandi stjórn. En jeg tók það fram, að jeg gerði það að skilyrði fyrir stjórnarstuðningi að frumvarpið um rannsóknir á Soginu yrði lagt. fyrir þingið, sem | stjórnarfrumvarp. Það fekst. Og i náði frumvarpið samþykki þings- ins. Frumvarp lietta veit.ti stjórn- inni heimild til að láta fram fara rannsóknir til undirbúnings Sogs- virkjunár. Var það veg'amálastjóri Geir G. Zoega, er fyrst, hafði þær rannsóknir á hendi. Var á tíma- ■bili um ])a.ð talað, að ráðast í Sogsvirkjun í stað Elliðaárvirkj- unar. En er Elliðaárnar voru virkjaðar lá Sogsmálið i láginni um tíma. En þegar fyrsta virkjun Elliða- ánna varð of lítil, fyrir rafmagns- notkun Reykvíkinga, lifnaði yfir Hogsmálinu að nýju. Var þá, rætt um það, hvort heldur ætti að ráð- ast þeg'ar í Sogsvirkjun, ellegar auka við Elliðaárrafveituna. Frumvarp Sjálfstæðis- manna um raforkuveit- ur til almenningsþarfa. Angistaróp Framsókn- armanna. Næsta stig málsins er það, að Sjálfstæðismenn á Alþ. 1928 koma sjer saman um, að b.era fram frum- varp til laga um raforkuveitur til almenning'sþarfa. í frumvarpi því var slegið föstum nokkurum grundvallarreglum um það. hvern ig ríkissjóður skyldi styrkja menn tikað leggja raftaugar um bygðir landsins, þar sem upp kæmust raforkuver. Atti ríkissjóður að taka á sig talsvert af þeim kostn- aði, sem misjafnlega kæmi niðurj á notendur, eftir því, hver afstaða þeirra, eða fjarlægð væri til orku- versins. Út af frumvarpi þessu lustu Framsóknarmenn upp angistarópi. Sögðu þeir, að kostnaður sá, er af þessu hlytist, myndi setja landið á höfuðið. Nefndu þeir sjötíu milj- ónir í því sambandi. Frumvarpið náði ekki fram að g-anga í þinginu. En andstæðingar þess g'átu ekki komist hjá því að sinna málinu. Var kosin nefnd til að athuga rafmagnsmál landsins. Þáverandi þingmeirihluti sá þó fyrir því, að nefndin fengi ekki gert sjerlega mikið, með því að kjósa sem formann hennar Einar Árnason, en hann hafði verið einna ákafastur andstæðingur frum- varpsins um raforkuveitur til al- menningsþarfa. Frumvarp um virkjun Efra Sogsins. Á fundi raforkun efndar þ. 14. jan. 1931, bar jeg fram tillögu um „að kjósa tveggja manna undirnefnd til þess að íhuga og gera tillögur um, á hvern hátt sje unt að tryggja raforku við hóflegu verði fyrir nærliggjandi landshluta í sambandi við fyrir- hugaða Sogsvirkjan Reykjavíkur bæjar“. í nefndina vorum við kosnir, Sig. Jónasson og jeg'. Sú undirnefnd skilaði síðar frumvarpi til laga um virkjun Efra-Sogsins, sem nú er orðið að lögum með örlitlum breytingum. Rjett mun að geta þess, að hafi frumvarpi því verið ábótavant, átti Sig. Jónasson litla sök á því. Grundvallarhugsun frumvarps- ins var þessi: Að Reykjavíkurbær taki lán það, sem þarf, til að koma fyrstu virkjun Sogsins í framkvæmd, og beri þannig hina fjárhagslegu áliættu af því fyrirtæki. Þetta fyrsta orkuver við Sogið selji raf- mag'n í heildsölu til Rafmagns- veitu Reykjavíkur, er fái rafmagn þetta t,i]. viðbótar við rafmagnið frá Elliðaárstöðinni. En auk þess selji Sogsstöðin rafmagn til ann- ara kaupstaða og h.jeraða hjer í nágrenninu, eftir því sem við verð ur komið. Síðan er gert ráð fyrir, að eftir því sem rafmagnsþörfin eykst og fleiri fái samband við Sogstöð- ina, verði haldið á.fram að stækka orkuyerið við Sogið. Þegar virkjunin fer fram úr helming þessa fallvatns, sem þar er hægt að virkja, þá komi rík- issjóður til skjalanna og gerist meðeigandi orkuverksins. En Reykjavík hafi altaf tilkall til a. m. k. helming'sins af raforkunni. Bará.tta var um frumvarp þetta á þingunum 1931—33. Fylgismenn frumvarpsins voru fvrst og fremst« Sjláfstæðismenn. En auk þess fekst nokkur stuðningur frá AI- þýðuflokknum. Á einu þinginu var t. d. samkomulag um það, að Alþýðuflokksmenn flyttu málið í neðri deild. En málið strandaði á andstöðu Framsóknarfloklcsins, er hafði enga trú á því, að þetta væri fram kvæmanlegt. Hafði Jónas Jónsson jafnan fprystu í andstöðu þessari, enda, þraukaði hann í andstöð- inni við annan mann í þinginu í fyrí-a, er flokksbræður hans gáf- ust upp við andófið. „Fjáraflaplan" Sigurð- ar Jónassonar. Það mætti segja ýmislegt spaugi legt frá því, hvernig það bar að, að andstaða Framsóknar linast í þessu máli á vetrarþinglnu 1933. Þá var Sig’. Jónasson hlaupinn frá hinum sameiginlegu uppá- stungum og kominn inn á aðra braut. Hann vildi fá lieimild til þess að láta hlutafjelag, sem hann stóð fyrir, mega setja upp brá.ða- birgða orkuverk við Sogið, sem yrði að leggja alveg niður, þegar varanleg virkjun kæmist þar á fót. En f jelagið gæti selt, Reykvílt- ingum rafmagn við því verðí, að Iiægt væri á, leyfistímabilinu að borga upp alla bráðabirgða virkj- unina, og hafa góðan arð af því, fje, er í virkjunina var lagt. Við Steingrimur Jónsson raf- magnsstjóri tókum það til athug- unar í fyrravetur, og skrifuðum um það greinargerð, hvort Reykja víkurbæ væri hentugra, að auka við Elliðaárstöðina, eða taka þessu tilboði Sigurðar nm bráðabirgða- virkjun á Sogi. ’Kom það í Ijós, að marg'falt hentugra væri það fyrir Reykjavík að auka Elliða- árrafmagnið, en að taka bráða- birgðavirkjun Sigurðar. f greinargerðinni um þetta mál, var . sýnt fram ■ á, að enda þótt Reykjavíkurbæ yrði neitað um rík isábyrgð á láni til Sogsvirkjunar, þá myndi bærinn ekki lengi þurfa að draga að leggja út í virkjun þessa, því bænum yrði það bráð- lega kleift, án ríkisábyrgðar. — Þegar bærinn hefði greitt upp að fullu lán þau, sem hvíla, á Ruf- magnsveitunni. myndi bærinn rík- isábyrgðarlaust g’eta lagt út í Sogsvirkjun. En þetta ætti að vera komið í kring árið 1940. Þetta beit svo á þingmenn Ár- nesinga, að þeir þorðu ekki að lialda andstöðunni lengur áfrajn. því frumvarpið, sem þeir voru að berjast á móti gaf Árnesingum kost á að taka þátt í 'Sogsvirkj- uninni. Strandaferð Jörundar Brynjólfssonar. Það var ekld lengra síðan, en um kosningarnar 1931, að Jörund- ur Brynjólfsson hafði verið hinn ákafasti gegn Sogsvirkjuninni. Þá um vorið trevsti Tryggvi Þórhalls son sjer ekki. sakir lasleika, að fara í kosningaleiðang'ur um kjör- dæmi sitt, Strandir. Fekk hann t:il þess Jörund Brynjólfsson í sinn stað. Á öllum fundum, sem Jörundur hjelt. var honum ekki tíðræddara, inn annað en Sogsvirkj unina. Sagði hann þá, að það væri fjárhagslegt afglapaverk að fleka ríkið út í ábyrgð á láni. til Sogs- virkjunar. H'ann lagði ríkt, .á við Strandamenn að kjósa Tryggva Þórhallsson, því hann væri í ein- dreginni andstöðu við þetta af- glapaverk. En tveimur árum seinna var Jörundur Brynjólfsson orðinn málinu fylgjandi. Síðasti þáttur undir- búningsins. Árið 1930 var það mál komið vel áleiðis, að bærinn legði út í að virkja Sogið. En þá strandaði málið á því, að ekki fengúst að- gengilegir samningar um fram- kvæmd verksins. Stafaði þetta fyrst og freiöst af því, að tengja þurfti sarnan framkvæmd verksins og fjárútvegun til virkjunarinnar. Þá var ekki um ríkisábyrgð að ræða. Bæjarstjórnin fjell því frá því, að ráðast í verkið að því sinni. Þannig stóð málið í árslok 1932. Fyrst var þá að standa af sjer „fjáraflaplan" Sig. Jónassonar. — Sjálfstæðismenn í bæjarstjórn voru því andvígir. Með því var stefna Alþýðuflokksins þverbrotin svo líklegt, var, að Alþýðuflokks- menn fylgdu Sigurði ekki ein- huga. ,,Plan“ hans var kveðið nið- ur. En þetta frumlilaup Sig. Jónas- sonar g'erði gagn, að því leyti, að það sýndi betur en áður, að ekki Jiefðu ' allir virkjunarmögu- leikar Sogsins komið til athugun- ar sem skyldi. Það sýndi sig því, að fyrst lá fyrir, að Ijúka rannsóknum að öllu leyti, fá til þess verkfræðinga, er hefðu í höndum allar upplýsingar, sem fáanlegar væru, og tækju til- lit til allra^ virkjunarmöguleika. Þá voru fengnir hinir tveir norsku sjerfræðingar í rafveitu- málum, Berdal og Nissen, til þess að annast um fullnaðarrannsókn málsins. Er annar þeirra “Berdel sjerfræðingur í bygging orkuvera, en hinn, Nissen, er sjerfræðingur í fjárhag'smálum, er að rafveitum lýt.ur. Skömmu eftir áramót sendu þeir liingað greinargerð sína og álit, er nú liggur fyrir bæjarstjórninni. Greinargerðir þeirra verkfræð- ipganna og niðurstöður eru mjög skýrar. Hafa þeir tekið málið eins og sjerfræðingar í þessari grein verkfræðinnar gera. Þeir. gera sjer grein fyrir fj’rsti i byrjun virkj- unarinnar, og hvernig' síðan virkj- un skuli haldið áfram stig af stigi, uns fallvatnið er fullvirkjað. En þetta var ekki hægt að gera fyr en að undangengnum þeim rannsóknum, er gerðar voru hjer s.l. sumar. Niðurstaðan: Virkjun Ljósafoss. Niðurstaða hinna norsku sjer- fræðinga, er, sem kunnugt er sú, að byrja skuli á. því að virkja, Ljósafoss. Fallvötnin í Soginu eru, sem kunnugt er, aðskilin af Úlfljóts- vatni. Efra-Sog er nefnt fallvatn- ið milli Þingvallavatns og Úlf- ljótsvatns. En neðar eru þrír foss-/ ar, Ljósafoss, Yrufoss og Kistu- foss. Ekki var fullvíst, hvort hentug- ast væri, að virkja þessa fossa einn og' einn fyrir sig, eða, einn þeirra út, af fyrir sig og tvo saman. Hinir norsku sjerfræðingar hafa gert sundurliðaða áætlun um virkju á öllu Soginu, og borið saman mismunandi aðferðir. Þeir leggja til að við fullvirkj- að Sogið verði þrjú orlcuver, eitt við Efra-Sog, og annað við Ljósa,- foss og hið þriðja vúð Ýrufoss og Kistufoss. t Þeim. þykir tiltækilegast, að hyrja, á virkjun Ljósafoss. Það er ekki ný niðurstaða. Rafmagnsveita Reykjavíkur komst að þeirri niðurstöðu 1928, að ódýrast myndi að byrja á Ljósa, fossi. En af tveim ástæðum var þó ekki lagt. til, að byrjað yrði á þeim fossi. Var álitið, að orka

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.