Morgunblaðið - 21.02.1934, Side 7

Morgunblaðið - 21.02.1934, Side 7
MORGUNBLAÐIÐ 7 1 miðdapmatiim: Ófrosið dilkakjöt, saltkjöt hangikjöt. Eeykt bjúgu, miðdags pylsur, kjötfars, nýlagað daglega Það besta, að allra dómi, sem s*eynt hafa. Ve slun Sveins Jóhannssonar. BergstaCaatræti 15. Simi 2091. Orkan teymir, en jeg sel, öflugt þeim að vaíi, sem að geyma og vernda vel. Vjelareimasmali. Ðankabyggsmjðl. Bankabygg, Bygggrjón, Bækigrjón, Mannagrjón. Semulegrjón, fást í Gætið ávalt eina, það er að nota HEEINS, því þá hafið þið það besta. Rjúpur. Norðlenskt dilkakjöt, hangikjöt íslenskt smjör, egg og margt og margt fleira. Jóhannes Jóhannsson <3rundarstíg 2. Sími 4131. er, að „Le Temps“ bendir í þessu sambandi á, að atkvæðagreiðslan í Efri-Slesíu leiddi til þess, að landinu var skift á milli Þýska- lands og Póllands. Þjóðverjar eiga að’ kaupa kola námurnar í Saar af Prökkum og borga þær í gulli, ef Saar samein- ast Þýskalandi. Geta Frakkar og Þjóðverjar komið sjer saman um verðið, og geta Þjóðverjar aflað sjer nægilegs af gulli til þess að borga námurnar? Þetta o. m. fl. getur valdið alvarleg'um vandræð- um. Og við þetta bætist, að Saar- málið er viðkvæmt mál, og úr- lausn þess getur valdið miklu um sambúð Frakka og Þjóðverja framvegis. Khöfn í janúar 1934. P. Heimdalliir. Aðalfundur fjelagsins var hald- inn s 1. föstudag í Yarðarhúsinu. Þar lagði fyrverandi formaður fjelagsins, Jóhann G. Möller, fram skýrslu um starf f jelagsins á hinu liðna ári, og gat í því sambandi um helstu stjórnmálalegu viðburði ársins, og þá afstöðu, sem f jelagið hefði tekið inn á við og út á við til þeirra mála. Taldi hann, að fjelagið Heimdallur væri raun- verulega mjög sterkt og samstill- ing fjelagsmanna hefði aldrei ver- ið betri en nú, enda horfðu ungir Sjálfstæðismenn gunnreifir til komandi kosninga, en í þeim myndi það koma enn gleggra í Ijós en hingað til að Sjálf- stæðisflokkurinn er sá ^lokkur, sem skilur æskuna og kann best að varðveita hennar málefni, enda hefir líka æskulýður þjóðar vorrar fundið það, að einmitt með því, að styðju Sjálfstæðisflokkinn vinnur hún þarft verk í þágu lands og þjóðar. Að þessari ræðu lokinni var út- lilutað verðlaunum til nokkurra áhugasamra fjelagsmanna, og' hlutu þessir verðlaun: Frú Anna Jónsdóttir, Einar Ás- mundsson, Sigurður Þórðarson, Steinn Guðmundsson, Svavar Haf- stein og Magnús Þorsteinsson. Þá voru samþyktar nokkrar lagabreytingar á lögum fjelagsins, lagðir fram reikningar fjelagsins endurskoðaðir og síðan gengið til stjórnarkosninga. — Fráfarandi stjórn og formaður höfðu mælst undan að taka þátt í stjórnar- störfum. Fyrst var kosinn formaður, og hlaut kosningu Sigurður Jóhanns- soh verslunarmaður; því næst var stjórn kosin og hlutu þessir kosn- ingu: Bjarni Benediktsson, Einar Eigilsson, Finnhogi Kjartansson, Gunnar Thoroddsen, Jóhann G. Möller og Nanna Zoéga, og til vara: Gunnar Björgvinsson, Steínn Guðmundsson, Sigurður Þorsteins- son og Jón Gestsson. Endurskoð- endur voru kosnir: Guðm. Bene- diktsson og' Björn Snæbjörnsson, og til vara Hallgrímur Jónsson og Guðni Jónsson. Að kosningunni lokinni flutti hinn nýkjörni formaður fjelagsins ræðu um þau verkefni, sem biðu lausnar á komandi ári, og var síðan hrópað ferfalt húrra fyrir framtíð f jelagsins, sem þá, 16. febr., var 7 ára gamalt. Heimdellingar. t Ingiblörg Sigurðardóttir frá Brautarholti andaðist í fyrri- nótt að heimili sínu, Sjafnargötu 8, hjer í bænum. Þessarar mætu konu verður minst nánar síðar. —■■—---------- Cjagbók. Veðrið í gær: Hæg S-átt og rigning' með 2—5 st. hita suð- vestan lands. Hægviðri og víðast úrkomulaust með 1—5 st. frosti norðanlands og aústan. Grnnn lægð yfir Grænlandshafi á hreyfingu norðaustur eftir. — Lítur út fyrir að þíðviðri muni verða um alt land á morgun. Veðurútlit í dag: S og SV-kaldi. Þíðviðri og rigning. Föstuguðsþjónusta. í dómkirkj- unni í kvöld kl. 8%. Síra Friðrik Hallgrímssin prjedikar. í fríkirkjunni í kvöld kl. 8y2. Síra Árni Sigurðsson. Dánarfregn. Frú Guðríður Bjarnadóttir, kona Júlínsar Bjarnasonar, prentara í Alþýðu- prentsmiðjunni, ljest aðfaranótt mánudags. fsfregn. Frá skipstjóranum á Gullfossi fekk Veðurstofan svo- hljóðandi skeyti um hádegið í gær: „Sá í dag tvo ísjaka og merki þess að meira væri 8—10 sjómílur út af Hælavíkurbjargi“. Þórólfur, Skallagrímur og Gyll- ir hafa verið að búast á saltfisk- veiðar undanfarna daga, og fara líklega á veiðar í dag. Fisktökuskipið Fantoft fór hjeð an síðari hluta dags í gær til Vestmannaeyja til þess að taka þar fisk og heldur það áfram til titlanda. Franskur togari fór hjeðan á saltfiskveiðar í gær. Til Strandarkirkju frá A. B. S. 20 kr. Ónefndum (gamalt áheit) 2 kr. Ekkju á Eyrarbakka 5 kr. Konu á Eyrarbakka 5 kr. Rósu 5 kr. Nói 5 kr. Hafnarfjarðarhöfn. Togarinn Venus og Surprise komu frá Eng- landi í gær. Togarinn Garðar i fór á saltfiSkveiðar í gærkvöldi. Hafskipabryggjan í Hafnarfirði, hin eldri og stærri, skemdist mik- ið í vestanáttinni um síðastliðna helgi, þegar skip, sem lágu við hana voru að reyna að komast frá henni út á höfn. Skipin slitu laiidfestar sínar og löskuðust meira og minna. Útvarpið í ð.ag: 10,00 Veður- fregnir. 12,15 Hádegisútvarp. 15,00 Veðurfregnir. 18,15 Háskóla- fyrirlestur: Sálarlíf barna og ung- linga (Ágúst H. Bjarnasoú). 19,00 Tónleikar. 19,10 Veðurfregnir. 19,20 Tilkynningar. — Tónleikar. 19,30 Erindi: Baden-Powell og skáltahreyfingin (Jón Oddgeir Jónsson). 19,55 Auglýsingar. 20.00 Klukkusláttur. Frjettir. 20,30 Er- irnli: Landafræði dýraríkisins, V. (Árni -Friðriksson). 21,00 Tónleik- ar: — a) Fiðlu-sóló (Þórarinn Guðmundsson). — b) Grammó- fónn: 'Weber: Freischiitz: Auff- orderung' zum Tanz. Sálmnr. Skipafrjettir: Gullfoss fór frá ísafirði í gærmorgun á leið til Siglufjarðar. — Goðafoss er á leið til Hull frá Vestmannaeyjum. ■— Brúarfoss fór frá Kaupmanna- höfn í gær. — Dettifoss kom frá Hull og Hamborg í gærkvöldi. — Lagarfoss er á leið til Kaupmanna hafnar frá Seyðisfirði. — Selfoss er í Reykjavík. Sjúklingar á Laugamesspítala biðja Morgunblaðið að flytja P. O. Bernburg og fjelögum hans þakkir fyrir komu þeirra þangað og skemtun á sunnudaginn. Skákþing Reykjavíkur. Á sunnu daginn voru tefldar biðskákir; Eggert Gilfer vann Steingr. Guð- mundsson en jafntefli varð milli Jóns Guðmundssonar og Sigurðar Jónssonar. Níunda umferð var tefld á mánudagskvöldið. í meist- araflokki vann Jón‘Guðmundsson Steingr. Guðmundsson en biðskák varð milli Baldurs Möllers og Eggerts Gilfers. í fyrsta flokki vann Sigurður Halldórsson Sturla Pjetursson og Bjarni Aðalbjarnar- son Marg'eir Sigurjónsson. Tíunda umferð og sú síðasta verður í kvöld í Oddfjelagahúsinu. Maður og kona verða sýnd ann- að kvöld fyrir lækkað verð. Dronning Alexandrina hefir seinkað vegna óveðurs í hafi. Af- greiðsla. Sameinaða sendi fyrir- spurn til Færeyja í gær um skip- ið, og fekk það svar seint í gær- kvöldi að skipið mundi koma til Þórshafnar í nótt eða dag. Er það því ekki væntanlegt hing- að fyr en í fyrsta lagi seint á föstudagskvöld. Vestfirðingamót verður haldið í Hótel Borg í kvöld. Blaðið hefir verið heðið að geta þess að Vest- firðingar, sem ekki hafa náð í aðgöngumiða enn, geti fengið þá í dag hjá Jóni Halldórssyni trje- smíðameistara. Maðurinn, sem hvarf, heitir mynd er Gamla Bíó sýnir þessi kvöld, og er frásögnin frá ófrið- arárunum. Hermaður giftir sig, en er í sömu svifum kallaður til víg- stöðvanna, verður að kveðja kon- una í skyndi, hverfur í víti skot- grafanna, er talinn af. En þegar ekkja hans er um þáð bil að gifta sig aftur, kemur „maðurinn, sem hvarf“, aftnr fram á sjónarsviðið. Hann hafði verið tekinn til fanga. Aðalhlutverkin í þessum viðbnrða- ríka leik leika þau Claudette Col- bert og Olive Brook. Dánarfregn. Á föstudaginn var andaðist húsfrú Rannveig Helga- dóttir á Kotströnd í Ölfusi, 79 ára að a)ldri. Hafði hiin biiið á Kot- strönd myndarbúi í 50 ár. Eins og' allir vita er Kotströnd rjett við fjölfarnasta veg hjer á landi, Snð- urlandsbrautina, og var því oft gestkvæmt þar, enda var Kot- strönd um langt skeið helsti gisti- staðurinn austan fjalls. Mnnu allir þeir, sem þar komu minnast hinn- ar látnu húsfreyju með virðingu. Betania. — Vákningarsamkoma verður í kvöld kl. 8,30. Ræðumað- ur Páll Sigurðsson prentari. Söng- ur og samspil. Allir velkomnir. Nýir kaupendur að Morgunblað- inu fá hlaðið ókeypis til næstkom- andi mánaðamóta. „Esja“ var væntanleg hingað snemma í nótt. „Lyra“ var væntanleg hingað snemma í dag. Innflutningurinn. Fjármálaráðu- neytið tilkynti F. B. 19. febrúar að innflutt hefði verið til lands- ins í janúar fjTÍr kr. 3,322.068, þar af til Reykjavíkur fyrir kr. 2.331,609. Sendisveinadeild Merkúrs lijelt aðalfund sinn í gærkvöldi. — Á fundinum voru mættir 40—50 sendisveinar. Fimrn manna stjórn var kosin. í henni eiga sæti þeir, Einar Bjarnason, Gunnar Gunn- arsson, Grímur Aðalbjörnsson, Ellert Sölvason og Friðfinnur Friðfinnsson. Fundarmenn sýndu mikinn áhuga fyrir fjelags-starf- seminni. Fór fundurinn liið besta I fram. ■ Þetta Suðusúkkulaði er tippáhaíd allra hásmæðra. Ilár. Hefi altaf fyrirliggjandi hár yið íslenskan búning. Verð við allra hæfi. Versl. Goðafoss Laugaveg 6. Sími 3436. Odýrt hveiti, Alexandra, í 50 kg. sekkjum á 13.35. í smápokum, mjög ódýrt. Enn- fremur íslenskt bændasmjör, ísl. og útlend egg; ódýrast í Versl. Biðrninn. Verkfæri, skrár og lamir. Niðursett verð. Laugaveg 25. Næturvörður verður í nótt í Ingf- ólfs Apóteki og Laugavegs Apó- teki. Til Hallgrímskírkju í Saurbæ, minningar um 31. janúar 1934 10 kr. — Kærar þakkir Ó. B. B. Ljót lýsing. Blaðið Framsókn skýrir nýlega frá liinu fyrirhugaða flokksþingi Framsóknarflokksins, sem miðstjórn flokksins hefir boðað í Reykjavík 17. mars n. k. Segir blaðið, að meðal verkefna „þings- ins“ sje, að breyta „skipulaginu“ fræga frá síðasta flokksþingi, en bætir því næst við: . „Ovíst er, hvort það verður tekið nokkuð sjerstaklega fyrir, hvernig á að „skipuleggja“ árásirnar á Tr. Þ. og Þ. Briem. Vissir menn innan mið st.jórnarinnar munu líka telja sig hafa staðgóða, mentun í því að níða menn og rægja, þeg’ar á þarf að hálda, og þeir sæki naumast holl ráð-til atinara í því efni“., Farsóttir og manndauði . í Reykjavík vikuna 4.—10. febr. (í svigum tölur næstu viku á undan). Hálsbólga 36 (44). Kvefsótt 38 (69). Kveflungna- bólga 0 (3). Gigtsótt 1 (1). Iðrakvef 12 (11). Inflúensa 0 (4). Hlaupabóla 8 (4). Skarlat- sótt 3 (1). Munnangur 0 (1). Mannslát 5 (6). Landlæknis- skrifstofan (FB.). Fyrirspurn. Út af frjett hjer í blaðinu þ. 13. þ. m. um það, að Aðalstöðin sje einkaeign, leyfi jeg mjer að beina þeirri spurningu til rjettra hlutaðeigenda liver á Aðalstöðina, (nafn hennar) og' hver rekur haiia. Viðskiftavinur.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.