Morgunblaðið - 20.03.1934, Qupperneq 7
WOT?OTTNRT AF1TTT
7
ræð nauðsyn sje til þess frá þjóð-
liagslegu sjónarmiði.
Upp úr næstu kosningum hlýt-
ur að verða annað tveggja, að
Sjálfstæðisflokkúrinn fái hreinan
meirihlua og geti á sitt eindæmi
myndað sterka stjórn óháða dutl-
ungum og bitling'agræðgi hinna
flokkanna, eða þá hitt að sósíal-
eitisku flokkarnir sameinaðir nái
meirihluta og bræði sig saman með
margvíslegum kaupskaparsamning
um um stjórnarmyndun. Hvort
halda kjósendur að farsælla reyn-
ist! Þriðji möguleikinn er sá, að
alls ekki reynist unt að mynda
þingræðisstjórn eins og raun varð
á nú á síðasta þingi, og væri slíkt
ömurleg útkoma samhliða því, að
lýðræði er enn aukið með veru-
legri rýmkun kosningarrjettarins
samkv. hinni nýju stjórnarskrá.
Síðustu kosningar voru yfirleitt
illa sóttar einkum í sveitakjör-
dæmum. Það er öldungis víst, áð
ein veruleg orsök þess var sú, að
margt þeirra kjósenda sem áður
hafa stutt Framsóknarflokkinn
gátu ekki samvisku sinnar vegna
gjört það lengur, en veigruðu sjer
hins vegar við að ganga þá þegar
í Sjálfstæðisflokkinn. Svo sterk
var enn sú taug sem batt þá við
þennan vandræðaflokk sem þeir
höfðu illu heilli fylgt, sumir um
langt skeið. Er nú þess að vænta
að þessir kjósendur hiki ekki við
að styðja Sjálfstæðisflokkinn við
næstu kosningar. Ættu og síðustu
atburðir innan Framsóknarflokks-
ins: makkið við sósíalstia og' samn-
ingurinn við þá á kostnað sveit-
anna, valdastreit.a einstakra manna
innan flokksins og öll sú ringul-
reið sem þar er orðin, að hafa
opnað augu kjósenda alment fyrir
því, að þeim mönnum sem verið
hafa leiðtogar þess flokks að und-
anförnu sje ekki trúandi fyrir því
aðalverkefni þjóðfjelagsheildar-
innar sem óumflýjanlegast af öllu
þarfnast fljótrar og skynsamlegr-
ar úrlausnar. En þetta mál mál-
anna er fjárhagsviðreisn þjóðar-
innar á þjóðlegum sjálfstæðis-
grundvelli.
„Mickey Mouse“ hefir átt miklum vinsældum að fagna um allan
heim. Eins og sjest hjer á myndinni, hefir það verið móðins í Ame-
ríku að láta mála mynd af henni á bak sjer. Tíðkaðist það og í
Evrópu, og' þær stúlkur, sem best fylgdust með móðnum í París
og London, ljetu mála mynd af „Mickey Mouse á kápurnar sínar.
28. desemher 1933.
Þ.
Anny Rutz
sem á að leika hlutverk Máríu
meyjar í helgileikunum í Oheram-
merg'au.
Ásbjörn, einn af ísfirsku bát-
unum, kom inn til Hafnarfjarðar
í gær með góðan afla.
Dagbók.
I. O. O. F. O.b. 1, P.= 1153208V4
= K. P.
Veðrið í gær: Yfir Atlanshaf-
inu, Bretlandseyjum og norður á
milli Islands og Noregs eru all-
djúpar lægðir, og veita þær frem-
ur köldu lofti suðvestur yfir Is-
land. Sumstaðar á N- og A-landi
eru lítilsháttar snjójel, en á S-
og V-landi er víðast bjartviðri.
Frost er frá 1—8 st. Við S-Græn-
land er enn ein lægð, sem mun
hreyfast til austurs fyrir sunnan
ísland og herðir þá talsvert á A-
átt, a. m. k. sunnanlands.
Veðurútlit í dag: Allhvass A.
Úrkomulaust.
Fulltrúafundur Sjálfstæðis-
manna í Skagafirði hófst á Sauða-
króki á laugardag og stóð yfir í
2 dag'a. Voru 60 fulltrúar mættir
á fundinum, úr öllum hreppum
sýslunnar. !
Togararnir. Af veiðum komu í
gær: Máx Pemberton (103 tn.
lifrar), Belgaum (100 tn.), Þór-
álfur (110 tn.) og Kári Sölmund-
arson (85 tn.). Baldur er vænt-
anlegur af veiðum í dag.
Galerna, spanskur togari kom
hingað í gær til þess að fá sjer
kol. Var hann með um 250 smál.
af saltfiski. Á honum eru fimm
íslenskir sjómenn. Togarinn mun
halda áfram veiðum hjer við land
enn um nokkurt skeið.
Árshátíð Heimdallar var hald-
m að Hótel Borg á laugardags-
kvöld. Sóttu hana um 300 manns.
Hófst hún með borðhaldi og voru
margar ræður fluttar, m. a. af
formanni fjelagsins, Sigurði Jó-
lxannssyni, formanni Sambands
ungra Sjálfstæðismanna, Guðna
Jónssyni. Einnig töluðu þarna
Jón Þorláksson borgarstjóri og'
Magnús Jónsson alþm. Að loknu
borðhaldi var dans stiginn fram
undir morgun. Fór skemtunin að
öllu leyti vel fram.
Afli Norðmanna mun í viku-
lokin hafa verið 52 þús. smál. af
hausuðum og slægðum fiski, en 62
þús. smál. á sama tíma í fyrra.
Jarðarför síra Ólafs Stephensen
fyrrum prófasts fár fram í gær
að viðstöddu fjölmenni. Síra
Garðar Þorsteinsson flutti hús-
kveðju. Síðan var líkið flutt upp
að Lágafelli og jarðað þaðan.
j Var Lágafellskirkja troðfull af
j fólki. Þar flutti síra Bjarni Jóns-
son dómkirkjuprestur ræðu.
Meyjaskemman verður leikin
j annað kvöld. Aðgöngumiðasalan
| byrjar í dag'.
Fjölnismenn. Kappskákir í
kvöld kl. 8.
Sðllunarstððvar
hainarsjóðs Sigluliarðar til Seigu
í sumar.
Afnotarjettur að Anlegginu og síldverkunarstöð fyrir
norðan, bryggjur dr. Pauls, verður seldur ef viðunalegt
boð fæst á opinberu uppboði, sem fer fram á bæjarfógeta-
skrifstofunni, laugardaginn 31. þ. m., kl 1 síðdegis.
Nánari upplýsingar á skrifstofunni.
Skrifstofa Sigluf jarðarkaupstaðar,. 17. mars 1934.
Bæjarfógetinn
Aflinn á öllu landinu var 15.
þ. m. 10 þús. smál. (miðað við
fullverkaðan fisk) en á sama
tíma í fyrra 15 þús. smál.
Hjeraðsmálafund halda Norð-
ur-ísfirðingar nú að Ogri. Hófst
hann á sunnudaginn og stendur
til 24. mars. En þar mættu 25 full-
trúar úr 9 hreppum sýslunnar.
Saumanámskeið í Stykkishólmi.
Undanfarna 2 mánuði hefir verið
saumanámskeið í Stykkishólmi, að
tilhlutun heimilisiðnaðarfjelagsins
þar. Kennari var ungfrú Krist-
jana Hannesdóttir, og nemendur
voru 10. Námskeiðinu lauk á
laugardaginn var, og var þá hald-
in sýning á handarvinnunni.
Áhugi fyrir sundi eflist. Það
er eins og þjóðin sje að ranka við
sjer um það, hve sundíþróttin er
henni nauðsynleg og læri ár frá
ári betur og betur að meta „í-
þrótt. íþróttanna“. Sundlaugar og
sundhallir rísa upp víða um land,
og áhugi fyrir sundíþróttinni
eykst. Nú má t. d. segja frá því,
að sundnámskeið var í Sundskála
Svarfdæla frá 10. jan. til 15.
febrúar, og voru nemendur þar
87, þar af 41 úr Svarfdælahreppi,
13 úr Árskógshreuni, 2 úr Arnar-
neshreppi, 9 úr Ólafsfirði og 22
frá Siglufirði. 1 sundprófi, sem
haldið var að námimi loknu. skör-
uðu þessir fram úr: Jón Biörns-
son.Skafti Þorsteinsson og Gunn-
laugur Friðriksson. Sundskáli
þessi tók fyrst til starfa á.rið 1929.
Kristinn Jónsson, sem hefir verið
kennari þar síðan,segir að kunn-
ugt sje að 6 af nemendum sund-
skólans hafi bjargast frá drukn-
nn með þeirri sundkunnáttu, sem
þeir fengu þar.
Síúklingar á Lauganesi hafa
beðið Morgunblaðið að flytja
þeim Þórhalli Árnasyni og' Egg-
ert Gilfer kærar kveðjur og þakk-
ir fvrir komuna þangað á sunnu-
daginn var og skemtunina.
Hafnarfjarðartogararnir. f gær
! komu af veiðum Venus eftir 10
daga, með 105 tn. lifrar og 140
smál. af fiski, Valpole eftir 11
daga með 95 t.n. lifrar og 131
smálest af fiski, þar af var flatt-
ur og ósaltaður fiskur 26 smá-
lestir.
Slökkviliðið var kvatt að Vestur-
götu 52 um kl. 9,15 í gærkveldi.
Hafði kviknað þar í hesthúsi, í
því voru tveir hestar og nokkuð
af heyi. Hesthúsið og heyið brann
að mestu en hestunum var bjarg-
að. Um upptök eldsins var ekki
kunnugt í gærkveldi.
Siglingar: ísland kom að vestan
og norðan í fyrrinót.t.
Nýfísku sfeinhús
á góðum stað í bænum, ásamt stórri eignarlóð, er til sölu.
Ágæt lán hvíla á eigninni. — Upplýsingár gefur
Húsnæðísskrífstofa Reykjavíkar
Aðalstræti 8.
Nýung f innlendum iðnaði
Efnasmiðjan Harpa býr til:
Innilakk, tvær tegundir- Útilakk
Skipalakk - Gólflakk - Þurkefni
Vörur þessar, eru að verði og gæðum fyllilega sam-
bærilegur við erlenda tilsvarandi vöru.
Aðeins notuð bestu efni. Hráefni og framleiddar
vörur undir stöðugu eftirliti efnafræðings.
Kaupmenn, kaupfjelög og málarameistarar! Þjer
gerið hagfeldust kaup á ofangreindum vörum hjá
Efnasmiðfunni „HÖRPU“.
Sími 1994. Hverfisgötu 57. Sími 1994.
Reykjavík.
Reiðiiióiasmiðjan
Veltusundi 1.
Leiðrjetting. Þess hefir verið
beðið að geta, að villa hafi orðið
á laugardaginn var í afmælisfregn
Katrínar Eyjólfsdóttur frá Seli.
Var hún þar talin 85 ára, en átti
að vera 83 ára.
Allsherjarmót t S. f. 1. S. t.
hefir falið K. R. að standa fyrir
Allsherjarmótinu í sumar. Á
mótinu verður kept samkv. nýrri
reg'lugerð, sem íþróttaráð Reykja-
víkur hefir samið og í. S. í. stað-
es ' Hagsýnn kaupandi spyr
Frú Ragnhildur Bebe-Wilse, fyrst og fremst Um gæðin.
dottir bændaöldungsins Hjartar
Líndals á Núpi í Húnavatnssýslu, Ilaiiilet og Þór
kom hingað með „Gullfossi". I . . . , . .
Hún er gift dönskum manni og heimsþekt fyrir end-
hefi^ átt heima í Kaupmannahófn hlgurgæði Og eru því
um margra ára skeið. | ÓdýrUSt.
Til Strandarkirkju frá s. B. NB. Allir varahlutir fyrir-
4.00, S. Th. tvö gömul áheit 15,00,
J. D. 5,00, M. G. 2,00.
Skipafrjettir. „Gullfoss" kom
frá útlöndum í fyrrinótt. „Goða-
foss“ fór fiá Isafirði í gærmorgun
á leið til Patreksfjarðar. „Brúar-
foss“ kom til London í gær-
morgun. „Dettifoss“ fór frá Ham-
borg í gær. „Lag'arfoss“ var á
Sauðárkróki í gærmorgun. „Sel-
foss“ fór frá Vestmannaeyjum
í gærmorgun.
Franskur togari kom hingað í
Gullfoss j gær til að leita viðgerðar. Hafði
kom frá útlöndum. Lyra er vænt-
1 anleg hingað snemma í dag.
skriifan brotnað, og var honum
rent upp í fjöru.
liggjandi. Viðgerðir allar
fljótt og vel af hendi leystar.
Sigurþór
Sími 3341. Símnefni Úraþór.
Karlakór verkamanna fór suður
til Vífilsstaða á sunnudaginn og
söng fyrir sjúklingá. Hafa þeir
beðið Morgunblaðið að flytja
kórnum þakkir fyrip.