Morgunblaðið - 04.07.1934, Side 3
MORGUNBLAÐIÐ
3
Ðppbað.
Opinbert uppboð verður
íhaldið á afgreiðslu Eimskip,
föstudaginn 6. ]d. m. kl. 3
síðd. Verður bar seld kjöt-
hakkavjel tilheyrandi þrota-
búi Jóns I. Jónssonar (Kjöt
& Grænmeti).
Greiðsla fari fram við
hamarshögg;.
Lö^iiiaðurinn.
ilrosið dilkakiöt
fæst aðeins í
Verslun
Biörns lónssonar.
Vesturgötu 27. — Sími 3K)4.
_ Afliiigið.
Ágætt snijör, y2 kg. 1.60
Ný egg 12 aura.
..Alexaudra hveiti, kg. . 0,35 og í
smápokum, 5 kg. 1.75 pokinn.
_:iFyrsta flokks harðfiskur og allar
aðrar vörur eftir þessu.
Versl. Blðrnlnn.
áergstaðastræti 35. Sími 4091.
Nýsoðin kæfa,
Lifrarkæfa, pylsur, Skinka,
ostar o. fl. — Ennfremur
: inýjar kartöflur, tómatur,
blómkál og- gulrætur.
Lækkað verð.
Sveinn Porkelssnn.
Sólvallagötu 9. *
Sími 1969.
Lítiili vfelbátur
á ferð tum Norðtirhöf.
Fyrir helg'ina kom hingað lítill
: bátur, að nafni ,,Tlioi’<l. Hann er
; minsti báturinn sem farið liefir í
ferð um Norður-íshafið. „Thor“
• er 18 tonn að stærð, og' er 5 manna
. áhöfn á. honum. Eigandi og skip-
stjóri er A. Trolle fyrv. kapteinn
í danska flotanum. Trolle kapt.
> er heimsfrægur maður. Hann varð
í'inkum að g'óðii kunnur, er liann
tók þátt í „Danmark“-leiðangrin-
nm svonefnda, sem farinn var til
Austur-Grænlands 1906—08. Var
hann foríngi skipsins „Danmark“,
sem leiðangurinn heitir eftir, en
. 'Mylius Erichsen var foringi í landi.
Þeg'ar Mylius Erichsen og nokkrir
fjelagar hans urðu úti, tók hann
■ að sjer aðalstjórn leiðangursins
og kom (illum heilum á húfi til
Danmerknr aftur. Nú er Trolle
fcapt. búsettur í París,
Heiniildarmaður blaðsins fór
um borð í „Thor“ og hitti
þar 1. stýrimann og bað hann
■ að segja stuttlega frá ferðalagi
þeirra. Hann sagði að þeir hefðu
lagt af stað hinn 31. maí frá Rör-
vig í Danmörku, þaðan fóru þeir
’ beina, leið til Kristianssunds í Nor-
.egi, fóru svo innan skerja með-
fram Noregsströndum og komu
við í Björgvin og Þrándheimi;
þaðan fóru þeir til Tromsö. Frá
Tromsö lögðu þeir af stað liinn
14. júní, og stefndu þá norður í
liaf. Fengu þeir landsýn af Bjarn-
arey og af Spitsbergen 4 dög'um
síðar. Vindar voru oftast NV-N-
og N-A-lægir, og f-engu þeir liríð-
ar. Hitinn var kringum 0° C.
Þeir fóru í gegnum snnd Karls
prins og gengu á land á „Dansk-
öen“ og' tóku þar olíu og matvæli.
,,Dansköen“ er á 80° n.br„ en
lengst, komust þeir á 80° 10’ n.br.
og hefir jafn lítið skip aldrei
komist svo langt norður á bóginn
áður. Voru þeir þá komnir alveg'
upp að ísröndinni sjálfri, en þá
skullu á þá norðan-stormar, og
urðu þeir því að snúa við og leita
suður aftur. Vegna stormanna
g'átu þeir ekki gert ein.s margar
vísindalegar athuganir og æskilegt
hefði verið, en voru þó fyllilega
ánægðir með árangur leiðangurs-
ins, en förin er einungis farin í
vísindaiegum tilgangi.
Svo sigldu þeir milli Jan Máyen
og' Grænlands, meðfram ísröndinni.
Var þá stormasamt og kalt mjög.
Ekki fengu þeir landsýn af ís-
landi, er þeir komu að því, heldur
urðu þeir að þreifa sig áfram með
dýptarmælingum.
Báturinn er útbúinn öllum nýj-
ustu tækjum til siglinga og haf-
rannsókna, svo það var ekki mikl-
um erfiðleikum bundið að mæla
dýptina. Var veðurhæðin 6—7 og
miklar þokur.
Trolle Kapt. kostar sjálfur för-
ina, og’ er hún farin vegna áhuga
hans á liafrannsóknum. Nú er
báturinn farinn hjeðan áleiðis til
Kaupmannahafnar.
Magnús Már.
Siglingamál.
Runciman verslunar-
málaráðherra hótar að
nota aðeins bresk
skip í siglingum innan
breska ríkisins.
London 3. júlí F.Ú.
Runciman, verslunarmálaráð-
lierra Breta lýsti því á þingi í
dag, að breska stjórnin hefði í
liyggju að byrja viðræður við
stjórnir annara landa um ráð-
stafanir til þess að minka svo
verslunarskipaflota siglingaþjóð-
anna helstu, að ekki þurfi til þess
,að koma, að skip ligg'i langtímum
samaji aðgerðalaus í höfnum eins
og nú tíðkast. Hann ljet þess get-
ið, að ef stirðlega yrði tekið í
þessar málaleitanir, þá mætti svo
fara, að gerðar yrðu ráðstafanir
til þess að tryggja breskum skip-
uin eing'öngu allar siglingar í þágu
hinna bresku samveldislanda.
Dagbók.
Veðrið (þriðjudag kl. 17): All-
djúp lægð suðvestur af Reykja-
nesi á hægri hreyfingu austur eft-
ir. í Vestm.eyjum er vindur hvass
A (8 vindstig). Annars er stinn-
ingsg'ola við suðurströndina en
yfirleitt hæg A-átt í öðrum hjer-
uðum. Dálítil rigning- hjer og hvar
á V- og S-landi. Hiti 10—15 st.
Veðurútlit í Rvík í dag: A-kaldi.
Skýjað loft en úrkomulaust að
mestu.
Útvarpið í dag: 10,00 Veður-
fregnir. 12,15 Hádegisútvarp. 15,00
Veðurfreg'nir. 19,00 Tónleikar.
19,10 Veðnrfregnir. 19,25 Grammó-
fóntónléikar. 19,50 Tónleikar.
20,00 Klukkusláttur. -— Frjettir.
20,30 Erindi: Siðaskoðun nútím-
ans (síra Gunnar Árnason). 21,00
Tónleikar: — a) Útvarpstríóið.
— b) Grammófóiln: Lög úr
W a gner-óperum.
Eimskip. Gullfoss fór til Kaup-
mannahafnar í gærkvöld kl. 8.
Goðafoss fór frá Hull í fyrra-
kvöld kl. 12 áleiðis til Hamborgar.
Brúarfoss fór frá Leith í gær á-
leiðis til Vestmannaeyja. Dettifoss
fer vestur og norður í kvöld. Lag-
arfoss var í Kaupmannahöfn í
gær. Selfoss kom til Kaupmanna-
hafnar í gærmorgun.,
Carinthia, skemtiferðaskip, kom
hingað í gærkvöldi. Er það fyrsta
skemtiferðaskipið af mörg'um. sem
væntanleg eru hingað í sumar.
Basar sá, sem Hvítabandskonur
halda til ágóða fyrir Sjúkrahús
Hvítabandsins er í dag, í Good-
templaraliúsinu, og er liann opn-
aður kl. 2 e. h. Ættu sem flestir
að iíta inn á basarinn, því að
margt er þar girnilegt á boðstól-
um fyrir lítinn skilding.
Landsfundur kvenna. Fundir
lialda áfram og eru daglega frá
kl. 1—4 og' 5—7. Á dagskrá í
dag: Mæðradagsmálið og Mæðra-
dagur. Kl. 8% í kvöld flytur frk.
Laufey Valdimarsdóttir fyrirlest-
ur. Allir eru velkomnir á fund-
ina að hlusta á.
Skip Sameinaða. Drotningin er
fyrir norðan en Island' í Kaup-
mannahöfn. Botnía er væntanleg
til Leith í dag.
Esja fer í strandferð austur um
annað kvöld.
H.f. Hamar liefir sótt um leyfi
til að byggja einlyft stálgrindar-
hús á grunni húss fjelagsins við
TryggVagötu, sem brann um dag-
inn. Hefir bvggingarnefnd gefið
leyfi til þessa með því skilyrði,
að húsið verði tekið burtu, bænum
að kostnaðarlausu, hvenær sem
krafist verður.
Atvinnuskrifstofa. Samkvæmt
tillögu borgarstjóra hefir bæjar-
ráð samþykt að bæjarstjórn setji
á fót ráðningarskrifstofu fyrir at-
vinmi leitandi bæjarmenn, karla
og- konur. Er ætlast til þess að
skrifstofan taki til starfa í byrj-
un septembermánaðar og forstöðu-
maður liennar verði ráðinn svo
snemma að liann geti kynt’sjer til-
högun á slíkum skrifstofum er-
lendis áður en skrifstofan teknr til
starfa.
Talstöðin á Gufunesi. Bæjarráð
hefir samþykt að leggja til við
bæjarstjórn að hún gefi ríkinu
kost á að kaupa 100 hektara spildu
úr Gufuneslandi undir hina fyr-
irhuguðu talstöð við útlönd, og
kaupverðið sje 35 þús. krónur.
Blómaverslunin Plóra hefir feng'
ið leyfi fil þess að selja blóm og
nýtt grænmeti á Lækjartorgi á
föstudögum í sumar.
Síldveiðin. Á mánúdaginn komu
nokkur skip inn með síld til Siglu-
fjarðar. Fór öll síldin í bræðslu,
ems og vant er á þessum tíma. í
gær komu 10—12 skip með síld og
höfðu fimm þeirra verið inni í
fyrradag. Björninn, Hrörn, Jakob
:og 2 ísafjarðarbátar. Oll skipin
höfðu fengið síldina rjett utan við
Sig'lunes. Línuveiðarinn Olafur
Bjarnason kom í gær með 300 mál.
eftir nokkra daga útivist. Síld-
arverksmiðja ríkisins byrjaði að
taka á móti síld 2. júlí og- hafði
í gær tekið á móti um 5000 mál-
um.
Mitt innilegasta hjartans þakklæti færi
jeg öllum þeim, sem á 70 ára afmæli mínu
glöddu mig með nærveru sinni, gjöfum og
heillaóskum.
Kristín Einarsdóttir,
Bergþórugötu 7,
4»
• «
HiH árlega iþróttamót U. M. S. B.
verður háð n. k. sunnudag, 8. júlí á Hvítárbökkum hjá Perjukoti.
Ferðir með e.s. Suðurlandi kl. 2 á laugardag og kl. 8y2 á sunnu-
dag og til baka um kvöldið. — Ennfremur verða bílferðir kl. 10 og
kl. 5 á laugardag. ,
Upplýsingar hjá
lerðaskrlfsloli íslands
Ingólfshvoli. Sími 2939.
Vönduð
og falleg fataefni nýkomin.
Vigfúi Guðbrands§on & Co.
Austurstræti 10,
Aðalfundur
Skipstjórafjelagsins „Aldan“, verður haldinn í kvöld kl.
Sy2 e. h. í K. R. húsinu, uppi.
Dagskrá samkvæmt fjelagslögum.
Fjelagar fjölmennið.
Stjórnin.
RICHARD FIRTH & SONS, LTD.,
MAKERS OF WOOLLEN AND WORSTED MACHINERY
BROOK MILLS, CLECKHEATON. ENGLAND.
ALL TYPES OF RE-CONDITIONED MACHINES FOR
THE WOOLLEN AND WORSTED TRADES ALWAYS IN
STOCK.
TELESRAPHIC ADPRESS:
„TEXTUES"
CLECKHEATON
SEND US YOUR
ENQUIRIES.
CODES:
A B C (5th EDITION)
AND BENTLEY’S
Ryfylke Folkehögskule
byrjar nýtt vetrarnámskeið 2. okt. sem stendur 6 mánuði. Bókleg og
verldeg kensla. Yeran kostar 45 norskar kr. á mánuði. Skólinn er 10
tíma sjóferð frá Bergen og 4 tíma frá Haugasundi og Stavanger. —
Bernhard Hávardsholm. Adr.: Sand i Ryfylke.
§Laus kennarastaða.
Kennara í allskonar handavinnu og vefnaði vantar við Hús-
mæðraskólann á ísafirði. Laún 800 kr. yfir skólatímann (8 mán.) og
auk þess frítt fæði og húsnæði.
Umsóknir, ásamt meðmælum sendist fvrir 1. sept. næstk. til
form. skólanefndar, frú Kristínar Sigurðardóttur ísafirði.
STJÓRN HÚiSMÆÐRASKÓLANS.
Allir muna A. S. I.