Morgunblaðið - 21.07.1934, Síða 3
MORGUNBLAÐIÐ
9
9
Frá siorskti
skatuntiiKi.
■i Norsku skátarnir, sem hjer
<3velja, hafa undanfarna daga
rjferðast um ísafjarðardjúp ásamt
12 íslenskum skátum, nndir for-
. ystu Gunnars Andrew skátafor-
ingja. Daginn eftir að skátarnir
komu til ísafjarðar, var farið á
mótopbát inn að Armúla í Djúp-
inu. Frá Ármúla var gengið inn í
Kaldalón, þar voru reistar tjald-
buðir og dvalið í 4 daga. Farnar
'voru ýmsar ferðir um nágrennið,
*an aðalferðin var á Drangajökul,
• og gengið á liæsta tindinn, sem
heitir Hrollleifsborg. Á tindinum
var skilin eftir tindabók í vörðu,
sem skátarnir hlóðu upp. Éftir að
komið var á sjálfan jökulinn
gengu skátarnir eftir, áttavita í
fjóra tíma, því svarta þoka vár á
- öllum jöklinum. Meðan dvalið var
í tjaldbúðunum voru iðkaðar
; ýmsar skátaíþróttir og skemt sjer
við leika, svo sem knattspyrnu og
.„Base ball“, sem lítið er iðkaður
hjer á landi, nema af skátum á
ísafirði. Seinasta daginn í tjald-
búðunum afhenti foringi norsku
skátanna, Ole Eger, Gunnari And-
réw heiðursmerki norska skáta-
bandalagsins, sem er skátamerki
úr gulli. Á þriðjudagsmorgun
■ voru tjöldin tekin niður og geng-
ið að Árinúla, og síðan að Mel-
gfaseyri. Á Melgraseyri dvöldu
skátarnir fram á næsta dag í
besta yfirlæti. Var nú haldið á
mótorbát yfir í Keykjanes, en
þar er mjög' góð sundlaug, sem
skátarnir notuðu óspart. Síðan var
haldið til ísafjarðar og komið
þangað um kvöldið. Á fimtudag-
inn fóru norsku og ísfirsku skát-
; arnir á sjúkrahús Isafjarðar og
; sungu ýmsa skátasöngva fyrir
i sjúklingana. Þótti það góð skemt-
un. Seinna sama dag, var sýnd
norsk skátakvikmynd, sem norsku
; skátarnir hafa meðferðis. Um
' kvöldið hjeldu skátarnir á ísafirði
kveðjusamsæti fyrir norsku skát-
; ana. Seint á föstudagskvöld fóru
- svo skátarnir með Goðafossi til
Akureyrar, en þangað er þeim
boðið af skátafjelögunum þar, og'
• dvelja þar tvo daga. Hingað suð-
ur koma þeir svo landveg og eru
væntanlegir á þriðjudagskvöld.
; Skátafjelögin hjer bjóða skátun-
• um til Þíngvalla á miðvikúdag og
- er öllum skátnm heimil þátttaka
í þeirri för. Um kvöldið er svo
kveðjusamsæti fyrir norsku skát-
. ana, sem allir reykvískir skátar
; ásamt „Normandslaget“ í Reykja-
■ vík taka þátt í. Norsku skátarnir
> eru afar hrífnir af viðkynnine'u
sinni við land og þjóð, og róma
þeir mjiig móttökurnar {« ísafirði.
Þýskir kennarar éiga ekki
slæpast.
í Þýskalandi hefir verið búin
‘ til reglug'jörð sem áltveður leyfi
í skólum landsins. Nú eiga kenn-
arar ekki lengur að hafa eins löng-
frí og' veríð hefir, hvers vegna
ættu þeir að lifa náðugra en aðrir
borgárar? Þegar börnin eru farin
í frí,' kemur að kennurunum að
• setjast á skólabekkinn, til þess að
• menta sig.
——-—
„Hvitir“
Islendingar í Vín.
Flokkur trúða notar sjer
fáfræði manna um ísland.
f austurríska blaðinu „Telegraf“
segir frá því nýlega, að flokkur
„hvítra manna“ sje kominn til
Vín. „Annars kalla þeir sig „ís-
fólk‘ ‘ á auglýsingum sínum, en
þeir eru hinir svonefndu Albinos,
eða „hvítir“ ménn. Þeir koma frá
hinu fjarlæga heimkynni sínu,
hinu sagnauðga íslandi, og ætla
að ferðast um Evrópu og sýna ís-
lénska þjóðsiðu, þjóðdansa og
leika. Þeir ganga í hinum skraut-
legu þjóðbúningtun sínum og ætla
að sýna í Zirkus-Zentral-Gebáude
í Prater (Tivoli). En þeir þjást
svo mikið af liita, að það varð.að
sækja lækni í dag handa tveimur
konum, sem eru í flokknum“.
Og svo á blaðið tal við foringj-
ann, sem heitir Tom Jack. Hann
segir, að á íslandi sjeu enn nokkr-
ar fjölskyldur „hvítra“ manna og
lifi þær einangraðar. Þeir sjeu
mjög næmir fyrir hita, því að hör-
und þeirra vanti lit. Og svo sjeu
augasteinarnir í þeim rauðir, og
þoli þeir ekki sterkt ljós. Fjelag-
ar sínir, sem sje nýkoranir frá ís-
landi, geti ekki lifað, nema þeir
fái stöðugt fjallag'rös og fjalla-
grasaseyði. Sjálfur kveðst hann
hafa farið þriggja ára gamall frá
íslandi og vera orðinn öllu vanur.
Svo bætir blaðið við:
,.Það er auðsjeð á -fólkinu, að
það getur pavrmast litið upp; svo
mjög særir sólskinið hjer það íaug
un. Þegar verið var að mynda
það, streymdu tárin úr augum
þess. Allir hafa snjóhvítt hár eins
og öldungar“.
Mynd af þessum „fríða“ hóp er
til sýnis í glug'ga Morgunblaðsins
í dag-, og má á henni sjá, þótt ekki
sje annað, að einkennilegir eru
þeir íslensku búningar, sem fólkið
er í. —
Finst íslensku stjórninni ekki
ástæða til þess, að koma í veg fyr-
ir að þessi flokkur flaggi með því
út um allan heim, að hann sje frá
íslandi?
Þess má geta, að flokkurinn ætl-
ar frá Austurríki til Sþánar, og
svo á heimssýninguna í Briissel.
Dagbók.
Veðrið (föstudagskv. kl. 5):
Hægviðri og úrkomulaust um alt
land, én þoka sunnan til á Aust-
fjörðum. Lægð við S-Grænland á
austurleið. Útlit fyrir S-átt og
rigningu hjer vestan lands um
lielgina.
Veðurútlit í Rvík í dag: Hæg-
viðri og úrkomulaust fram eftir
deginum, en S-átt og rigning með
nóttunni.
Messað í Dómkirkjunni á morg-
un kl. 11, sjera Bjarni Jónsson.
Fiskinnflutningnr Spánverja.
Hinn 11. maí var ákveðið af
spænsku stjórninni að ekki mætti
flytja meira inn af saltfiski til
áramóta en S70.233 kvintal. 15.
júní var þetta hækkað upp 1
440.551 kvintal.
Verslunarsambönd. Firma í
Bombay, Indlandi, vill flytja inn
niðursoðna mjólk, niðursoðið kjöt
og fiskmeti (246). Firma í Ahme-
dabad, Indlandj, óskar eftir fram-
boði af sápu (247). Firma í Ham-
borg óskar eftir framboði á nið-
ursoðinni mjólk og niðursoðnu
kjötmeti (250). Firma í Wien vill
kaupa saltsíld (feitsíld, matjes-
síld), saltfisk í vagnhleðshim o.
fl. (251). Upplýsingar í Udenrigs-
mi nisteriet (Erhvervskont or et),
Christiansborg, Kbhvn, g'egn því
að getið sje um tölurnar, sem eru
í svigum.
Hjónaband. Gefin voru saman í
lijónaband 14. þ. m. í Borgar-
kirkju á Mýrum ungfrú Jóna G.
Jón.sdóttir og Ágúst Kristjánsson
lögregluþjónn.
40 ára er í dag Geir Magníisson
legsteinasmiður, Bergþói'ug'ötu 1.
Til Hallgrímskirkju í Saurbæ:
Áheit frá Hólmfríði Jónsdóttur
(afh. af G. H. Jakobssyni) kr.
5,00. Áheit frá ,,Ónefndri“ kr.
5,00. Áheit frá „A“ ltr. 5,00. Áheit
frá „Stiilku“ (afh. af Lilju Krist-
jánsdóttur) kr. 25,00. Samtals kr.
40,00. — Bestu þakkir.
Ásm. Gestsson.
Skátafjelagið „Ernir“. Farið
verður í skeintiferð að Álafossi
sunnudaginn 22. júlí. Lagt af stað
frá Miðbæjarskólanum kl. 8 f. h.
stundvíslega, Fjölmennið!
Sáttmálasjóðurmn. Úr liinum
.danska hluta hans á nú að veita
20 þús. krónur og eiga umsóknir
að vera komnar fýrir 1. septern-
ber til „Bestyi'elsein for Dansk-
Islandsk Foi'bundsfond“, Krist-
iansgade 12, Köberihavn K. Um-
sóknirnar eiga að yera á dönsku
og eiga þeim að fylgja nákvæmar
og glöggar upplýsingar. Btxident-
ar eiga að skrifa umsóknir sínar
á umsóknareyðublöð Kaupmanna-
hafnarháskóla.
Höfnin. Katla fór í fyrradag út
á land að taka farm. Edda kom
í gær. ísland kom að vestan í gær-
morgun kl. 7, fer annað kvöld.
Ver kom frá Englandi í gærmorg-
un. Belgaum kom atf veiðum í gær
og t'ór til Enghtnds,
Skipafrjettir. Gullfoss er Rvík.
Goðafoss kom til Siglufjárðar í
morgun. Brúai’foss, er á leið
til útlanda frá Vetmannaeyjum.
Dettifoss fer frá Hamboi’g í dag.
Lag'arfoss er væntanfegur til Vest-
mannaeyja kl. 1—2 í nótt. Sel-
foss kemur til Akureyrar í dag.
Seinasti kappleikur H. I. K.
verður í kvöld á íþróttavellinum
kl. 8i/2. Keppa Danirnir þá við úr-
valsliðið. Aðgöngumiðar verða
seldir með 25% afslætti og fást í
K. R. lntsinu frá kl. 3 og við inn-
g'anginn.
Aðalfundur í garðyrkjufjelag-
inu verður lieima hjá Einari
Helgasyni í kvöld kl. 8y2.
Jarðskjálftakippur fanst í Borg-
arfirði kl. 10.55 í fyrradag.
Sænski fimleikaflokkurinn sýndi
á Akureyri í fyrrakvöld á íþrótta-
vellinum og var mikil aðsókn. í
gærkvöldi liafði hann sýningu á
Blonduósi.
80 ára afmæli átti Herdís Sig-
urðardóttir á Varmalæk í Borgar-
firði í fyrradag. Héimsóttu liana
þá margir vinir og vandamenn.
Hún hefir búið á Varmalæk í 50
ár, pg' er enn hin ernasta.
Síldveiðin að byrja. f gær komu
margir línuveiðarar með fullfermi
af síl(l til Siglufjarðar. Höfðu þeir
feng'ið síldina austur hjá Langa-
nesi. Önnur skip höfðu fengið
nokkuð af síld vestur hjá Reykj-
arfirði og út.af Skaga. Ríkisbræðsl
an tók á móti 10 þús.málum í gær.
Danska íþróttaf jelagið lijelt
knattsþyrnuflokki H. I. K. veislu
í gærkvöldi að Hótel Borg'. Flutti
forseti f. S. í. fyrirlestur um
íþróttalíf á íslandi, sungið var
kvæði og yfirleitt var kvöldið hið
i skemtilegasta.
Taktu í sumar
myndir af börnunum.
Myndirnar sem þú tekur núna verða
á komandi árum ómetanlegar gersemar.
Þær verða þjer sí og æ dýrmætari eftir
því sem stundir líða fram. Börnin vaxa
upp, en á myndunum verða þau ung um
aldur og æfi
En gættu þess, að þú fáir góðar
myndir; notaðu „Verichrome“, hrað-
virkari Kodak-filmuna. Á „Verichrome“
færðu skýrar og góðar myndir, þar sem
alt kemur fram, jafnvel þegar birtan er
ekki sem best.
„ V erichrome“
Hraðvirkari Kodak-filman
Kodak
HAMS PETERSEN.
Bankastræti 4, Reykjavík.
Nú geta allir ferðast.
Lengra og lengra teygist vegakerfi landsins.
Hraðar og hraðar, er kjörorð niitímans, nú er
hægt að komast á nokkrum klukkustundum
það sem áður þurfti marga daga eða vikur.
Altaf er hægt að skoða fleira og fleira, ísland
er svo undurfagurt og tilbreytingaríkt.
Þó hefir aldrei verið jafn ódýrt að ferðast eins
og nú, þrátt fyrir aukin þægindi.
Verið með! Allir af stað!
EN veitið okkur þá ánægju að sjá yður við búð-
arboi'ðið í verslunum okkar áður en lagt er af
stað. Þar er líka svo undur margt, sem gott er
að taka með, því enginn ferðast svangnr!
Yfirlýsing. Þar sem jeg hefi
orðið þess var, að sumir halda, að
jeg sje liöfundur ritdóhis þess, er
birtist í Alþýðubl. fyrir skemstu,
um viðbætir sálmabókarinnar, lýsi
jeg því hjermeð yfir, að jeg' á þar
engatí hlut að máli, enda vantar
þekkingu til að gagnrýna slikt
verk. Er því hjer um algerðan
misskilning að ræða.
Reykjavík 20. júlí 1934.
Ágúst Jónsson
Njálsgötu 48.
Undralæknir.
Á bóndabæ einum í Ontario er
undralæknir, sem hefir afarmikið
að gera. Stundum vitja hans 1000
sjúklingar á dag. Ilann er ekki
nema 3 raín. með hvern sjúkling'.
Er öll lækningin í því fólgin að
hann nuddar iljarnar á sjúkling-
unum. En eftir því sem sagt er,
batna við það þyngstu þrautir.
Allan daginn situr hann með
sjixklinga'na og nuddar iljar
þeþ'ra, án afláts, nema þann
stutta tíma, sem lxann þarf til
þess að tæma ljereftspokan, sem
hann treður dollarpeningunum
sínum í. Því að liann tekur 1 doll-
ar af hverjum sjúkling, og það
fyrirfram borgað.