Morgunblaðið - 18.08.1934, Síða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ
potpnHaHi
Útgef.: H.f. Árvakur, Reykjavík.
Ritstjórar: Jón Kjartansson,
Valtýr Stefánsson.
Ritstjórn og afgreiösla:
Austurstræti 8. — Sími >1600.
Auglýsingastjóri: E. Hafberg.
Auglýsingaskrifstofa:
Austurstræti 17. — Sími 3700.
Heimasímar:
Jón Kjartansson nr. 3742.
Valtýr Stefánsson nr. 4220.
Árni Óla nr. 3045.
E. Hafberg nr. 3770.
Áskriftagjald:
Innanlands kr. 2.00 á mánuði.
Utanlands kr. 2.50 á mánuöi
í lausasölu 10 aura eintakiö.
20 aura meö Lesbók.
Atvinnubótalánið
Blöð rauðu flokkanna hafa nú
hafði nýja rógsherfreð á hend-
ur Reykjavíkurbæ. Tilefnið er
það ,að bæjarráðið hafði leitað til
tveggja aðalbankanna hjer í hæn-
um um 150 þús. kr. lán til at-
vinnubóta ,en fengið neitun. Sneri.
því borgarstjóri sjer til ríkis-
stjórnarinnar og spurðist fyrir
um, hvort hún gæti gefið bænum
kost' á slíku láni, en í fjárlögum
er gert ráð fyrir þessu.
Atvinnumálaráðherrann sneri
sjer nú til hinna sömu banka og
bæjarráð hafði leitað til og' hann
fekk loforð fyrir 100 þús. kr. láni
í Landsbankanum Iianda bæjar-
sjóði og’ vilyrði um 50 þús. kr. lán
í haust (hjá Útvegsbankanum?).
Þetta nota svo blöð rauðliða,
stjórnarblöðin, ti] rógsherferðar
á hendur Reykjavíkurbæ og meiri-
lduta bæjarstjórnar, sem skipaður
* er Sjálfstæðismönnmn, sem kunn-
ugt er.
Alþýðublaðið segir um þetta í
gær, að stjórn Reykjavíkur hafi
nú ,,siglt fjárhag bæjarins svo
gersamlega í strand, að bankarn-
ir neita um bráðabirgðalán, og
gerast jafnvel svo djarfir að
minna fjármálaspekinga borgar-
innar á vanskil við það tækifæri‘‘.
Sje það rjett hermt hjá Al-
þýðublaðinu, að bankarnir hafi
neitað bæjarráðt um lán, vegna
þess hve bágborinn væri fjárhag.
ur bæjarins og' vegna vanskila,
hvaða breyting varð þá í þessu
efni, við það, að Haraldur Guð-
mundsson gerðist milliliður um
lántökuna?
Haraldur Guðmundsson er ekki
að taka lán fyrir ríkið; bæjarsjóð-
ur verður lántakandi eftir sem
áður. Har. Guðm. hefir engar
tryggingar að bjóða, hvorki rík-
isábyrg'ð eða neitt slíkt nefnt, á
nafn.
Nú spyrja menn: Hafi það ver-
ið óforsvaranlegt af bönkunum,
rrð lána fje þetta þegar bæjarráð
bað um það, vegna vamkila og
þess, hvernig fjárhag bæjarins
væri komið, var þá ekki jafn-ófor-
svaranlegt að lána fjeð þótt Har-
aldur Guðmundsson yrði þarna
milliliður ?
Væri óskandi að Alþýðublaðið
vildi svam þessu.
------—-----------
Pólitískum föngum
slept í Þýskalandi.
London 17. ágúst' P.Ú.
Vegna náðunar þeirrar á póli-
tískum föngum, sem Hitler hefir
boðað, var þúsundum af föngum
slept í Berlín einni í dag.
Stórield verkfoll enn yfir-
vofandi í Bandaríkjnnnm.
London, 17. ágúst. FÚ.
1 Bandaríkjunum gengur sí-
felt á verkföllum og verkfalls-
hótunum. Mest hætta stafar nú
sem stendur af verkfallshótun
Sambands verkamanna í klæða-
verksmiðjum. Verkfallið á að
hefjast 1. sept., ef ekki hefir
náðst samkomulag fyrir þann
tíma og mun ná til hálfrar mil-
jónar verkamanna. Þeir krefj-
ast hækkaðs kaups og stytts
vinnutíma, en sambandið krefst
þess einnig, að mega skipa full-
trúa í ráð það, sem hefir yfir-
umsjón með þessari iðngrein í'
NRA-kerfinu.
Verksmiðjufjelag eða
verklýðsf jelag.
Meginástæða verkfallanna í
Bandaríkjunum eru deilur um
viðurkenningu á rjetti verka-
mannaf jelaganna. Vinnuveit-
endurnir vilja verksmiðjuf jelög,
en leiðtogar verkamanna vilja
verklýðsf jelög. NRA hefir í
heild sinni hallast að verksmiðju
f jelögunum.
Ameríska verkamannasam-
bandið hefir lýst því yfir, að
það styðji klæðaverksmið.ju-
menn í kröfum þeirra. Forseti
sambandsins hefir sagt, að hægt
mundi hafa verið að komast hjá
mörgum deilum og árekstrum
um þessi mál upp á síðkastið,
ef vinnuveitendur hefðu viljað
fallast á það skipulag að veita
verkamönnunum ágóðahlut.
Verkfallið í Minneapolis.
Verkfall flutningavei'ka-
manna í Minneapolis heldur á-
fram. Verkamálaráðuneytið hef
ir verið beðið þess, að láta
flutningamennina sjálfa skera
úr því með atkvæðagreiðslu,
hvort þeir vilji heldur vera í
verksmiðjufjelagi eða verklýðs-
fjelagi.
Bílstjóraverkfallið í Chicago.
Öflugur lögreglu- og hervörð-
ur er nú hafður um alla Chica-
goborg til öryggis, og til þess
að verjast því, að truflanir verði
af verkfalli bílstjóra, sem stend-
ur yfir í borginni.
Verkföll yfirvofandi í
Pennsylvaníu.
í Philadelphiu hafa verka-
menn hjá stóru olíufjelagi sent
áskorun-til verkamálaráðuneyt-
isins, um viðurkenningu á verk-
lýðsfjelagsrjettinum, og í York
í Pennsylvaníu hafa verkamenn
í stórri vjelsmiðju boðað verk-
fall. Á vesturströndinni hafa
verkamenn í fisk- og niðursuðu-
verksmiðjum í Oregon krafist
kauphækkunar.
Stórfeld smyglmál
í Danmörku.
Sýning flugtækja
í Kaupmannahöfn.
Kalundborg 17. ágúst F.Ú.
Víðtæk smyglmál eru nú á döf-
inni í Danmörku, og er sakamála-
lögreglan önnum kafin við rann-
sóltn þeirra þessa dag’ana.
Meðal annara þeirra mála, sem
upplýst eru orðin, ér það, að í
sænska skipinu Albert, sem strand
aði við Sjálandsstrendur, fund-
ust 6000 silkisokkar og stóð lengi
í þjarki við ]>ann, sem hafði þá
‘meðferðis, um það fyrir hvern
bann hefði ætlað að smygla þeim,
og skýrði hann loks frá því í dag,
að hann hefði gert það fyrir stór-
kaupmann eínn í Vimmelskaftet,
Olsen að nafni, og var hann taf-
arlaust tekinn fastur.
Grafinn í jörð í 25 mínútur.
Kalundborg 17. ágúst F.Ú-
Maður ,sem í dag var að gra-fa
brunn á bæ einum í Danmörku
varð fyrir því, þegar hann var
kominn 7 metra niður, að brunn-
veggirnir hrundu saman yfir hann.
Eftir 25 mín. tókst að grafa upp
úr brunninum og bjargaðist mað-
urinn óskaddaður.
Haiti fær frelsi.
Kalundborg 17. ágúst F.Ú-
| í Forum, sýningarhöll í Kaup-
mannahöfn var í dag opnuð al-
, þjóðleg flugtækjasýning, og flutti
| þá Friis Skotte, ráðherra, ræðu
i og Tyge Rothe, forstjóri, sem er
formaður sýningarnefndarinnar.
Ráðherrann talaði um hinar geysi-
miklu framfarir flugmálanna,
; sagði að flugið væri nú orðið al-
| mannaeign, og að þetta væri ekki
^ einungis að þakka miklum end-
urbótum í f.’ugvjelunum sjálf-
um, heldur einnig margskonar
i
breytingum og bótum á hjálpar-
tæk.jum flugmánna, s. s. loft-
skeytatækjum og ýmsum björgun-
artækjum, og síðast en ekki síst
bættum veðurathugunum og því,
að loftskeyti og útvarp gerði það
mögulegt fyrir fhigmenn að hag-
nýta sjer þær miklu betur en áð-
ur. —
Flugsýningin er mjög f jölbreytt,
þar sem sjást flestar eða allar nýj-
ustu framfarir á sviði flugsins og
ýms sögulega merkileg tæki, s. s.
flugvjel úr Tjeljuskin björgunar.
| leiðangrinum, og „autogiro“ flug-
i yjél. Þar eru einnig' sýnd skot-
taki til loftárása, og einnig varn-
artæki gegn þeim.
— —--------------
London, 16. ágúst. FÚ.
Haiti fekk í gær fullkomið
frelsi aftur, eftir 19 ár undir
umsjá Bandaríkjanna. Síðasti
hermaður Bandaríkjanna var
fluttur þaðan f gær. Forsetinn
sqndi stjórninni í Haiti heilla-
óskir sínar, og óskaði lýðveld-
inu góðs gengis.
Meistaramót í. S. í. hefst 25.
og 26. þ. m. á íþróttavellinum. Er
það síðasta mótið í frjálsum í-
þróttum á þessu ári. Er búist við
góðri þátttöku. Þeir sem ætla að
taka þátt í mótinu eig'a að til-
kvnna það fyrir þriðjudagskvöld
til hr. Guðm. Ólafssonar, for-
manns K. R.
Söngskemtun
í Iönó.
Sig. Skagfield.
:Sigurður Skagfield hjelt söng-
skemtun, með aðstoð Emil Thor-
oddsen, í „Iðnó“ á miðvikudaginn
var, eftir langa fjarveru erlendis.
Munu margir hafa beðið þess með
óþreyju, að hlusta á hann nú, ekki
síst vegna þess, að mikið orð hefir
farið af söng hans Yestanhafs,
þar sem hann liefir dvalið undan-
farið og sungið víðsveg'ar; Sig.
Skagfiéld hefir og átt miklum vin-
sældum að fagna hjer heima.
Rödd Sigurðar er frábær fyrir
margra hluta sakir og glæsileiki
hennar mikill á köflum. Hefir hún
og þroskast síðan hann söng hjer
síðast ,og eflst til muna.
Söngskráin var í senn fjölbreytt
og sundurleit: alt frá Beethoven
og Mozart til Indíánasöngva. Oft
skorti mikið á að smekklega
væri farið með hlutverkin. Milli
þess að ágætum köflum brá fyrir,
ýkti („forceraði“) söngvarinn oft
fram úr hófi, svo að hin litsræna
hlið béið hnekki. En þótt þessa
gætti stundum, var söngur hans
oft prýðilegur, og má sjerstaklega
nefna meðferð hans á lögum eins
og „Hvorfor hyler de sorte
Hunde“, eftir Hurum, „Odins
Meeresritt“ eftir Loewe, hvort
tveggja framúrskarandi lög, en
best söng' þó söngvarinn „Liebes-
lied“ eftir Wagner, og var svipur
mikils söngvara yfir meðferð þess.
Áheyrendur fögnuðu söngvar-
anum hið besta, og varð hann að
endurtaka fjölda laga.
Páll ísólfsson.
Olía ir sallvatai.
Ný uppgötvun.
London 17. ágúst F.IJ.
Franskur vísindamaður í Rouen
liefir skýrt frá því að sjer hafi
tekist að framleiða olíu eða. ben-
sínlíki úr saltvatni, og hefir boð-
ið uppgötvun sína til sölu.
Le Matin segir, að franski her-
málaráðherrann, flugmálaráðherr-
ann og' aðrir leiðtogar hafi skoðað
verkstæði vísindamanns þessa í
Rouen og reynt vökvann. í blaða-
viðtali segir vísindamaðurinn, að
sjer hafi upphaflega dottið í hug
þessi framleiðslumöguleiki vit frá
einfaldri athugun á litlu náttúru-
fyrirbrigði, s. s. því, að umhverf-
is alla steina eða klettá, som olía
er í, megi finna saltvatnslög. Hann
reyndi að endurtaka í rannsókn-
arstofu sinni, það sama, sem gerð-
ist úti í náttúrunni, og það varð
til þess, að hann fann mjög ein-
falda aðferð til þess að framleiða
bensínlíkið.
v. Papen
hjá* Miklas forseta.
Berlín, 17. ágúst. FÚ.
von Papen gekk á fund Mikl-
as forseta í Wien í gær, til þess
að heilsa honum. Var höfð tvö-
föld heiðursfylking við dyr for-
setahallarinnar, er hinn nýi
sendiherra Þýskalands kom og
fór. Síðar heimsótti von Papen
Schússnigg kanslara, og Berger-
Waldeneck utanríkisráðherra.
Onll tr b«l8balnl.
Londonderry, 17. ág. FB.
Að undanförnu hefir verið
unnið að því að ná því, sem eft-
ir er af gullinu úr skipinu Laur-
entic, sem skotið var í kaf í
heimsstyrjöldinni (1917).
Hefir köfurum frá björgunar-
skipinu, sem notað hefir verið
við þetta starf, nú tekist að ná
öllu því gulli sem eftir var £
skipinu þar sem það liggur á
hafsbotni. Er talið að síðasti
fengur þeirra hafi verið að verð-
mæti um 1 miljón sterlings-
punda.
Þegar Laurentic var sökt
1917 var það á leið til Banda-
ríkjanna og var verðmæti gulls-
ins sem það hafði meðferðis,
sex miljónir sterlingspunda.
(United Press).
Verððhækkun
i Ameriku
á landbúnaðarvörum
. vegna rýrnunar af
völdum þurkanna.
London, 16. ágúst. FÚ.
Landbúnaðarráðuneyti Banda
ríkjanna hefir birt skýrslu um
tjón það sem hlotist hefir af
þurkunum og hitunum þar í
sumar, og er það talið meira
en nokkru sinni áður hefir orðið
þar í landi af völdum þurka.
Kjöt- og nautgripabirgðir eru
sagðar hafa rýrnað mjög, og er
því haldið fram, að kjötverð
hljóti að haldast rnjög hátt
fyrst um sinn, og að tninsta
kosti fram eftir næsta ári, og
ennfremur að verð á korni muni
haldast mjög hátt, fram á næsta
vor.
Austurríki
leyft að auka her sinn.
Berlín, 17. ágúst. FÚ.
Frjettastofa Reuters flytur þá
fergn, að stjórnir Bretlands og
Frakklands hafi samþykt að
leyfa Austurríki að auka her
sinn upp í 30.000 manns, og
er talið víst, að ítalir muni
einnig gefa samþykki sitt til
þess. —
Á hinn bóginn segir frjetta
stofan, að fregnir um það, að
stjórn Austurríkis hafi farið
fram á enn meiri aukningu,
sjeu gripnar úr lausu lofti.
*
„Hvítu fslendingarnir“. Dr.
Hans v. Jaden skrifar MorgUn-
blaðinu, að hann og kona hans
b.afi f'arið á fund trúðleikara
þeirra, sem hafa sýnt sig í Vín-
arborg undir nafninu ..Hvítir Is-
lendingar". Segir hanu ín. a. að
hann hafi bent þeim á þá óhæfu,
að ganga þannig undir fölsku
nafni. „Þjóðbúningur“ þeirra er,
segir hann, rauðröndóttir sokk-
ar, bláar treyjur með röndum og
skringilegar húfur. Þá segir v.
Jaden, að sami flokkur muni hjer
áður hafa sýnt sig sem „svarta
dvergþjóð" (,,búskmenn“).
Fríkirkjan í Reykjavík. Móttek-
ið áheit kr. 10.00 frá „þeirii
g'ömlu“. Bestu þakkir. Ásm. Gests_
son.