Morgunblaðið - 14.09.1934, Blaðsíða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ
■
Bresku
flugmeoiiiriiir
urðu að snúa aftur
vegna veðurs.
Oban (í Skotlandi) 13. sept. F.B.
Bresku flugbátarnir, sem lögðu af stað hjeðan áleið-
íst til Færeyja, sneru aftur vegna óhagstæðs veðurs.
United Preu
italski
Grænlandsleiðangurinn
er á leið tUÍslands með,NjáIi‘
Osló 13. sept. F.B.
Grænlandsstjórn tilkynnir, að Njáll sje kominn út úr
ísbeltinu og sje á leið til Reykjavíkur. ítölsku leiðangurs-
mennirnir eru á Njáli og líður þeim og öllum skipsmönn-
um vel.
Inntaka Rússa
í ÞfóHabandalagið.
Ðe Valera Ifel i Ifös á
faiBidi i gær „|mð sesn
allir Siafa verið að
reyna afl þegja yfir“.
Útgef.: H.f. Árvakur, Reykjavlk.
Rltstjórar: J6n KJartansson,
Valtýr Stefánsson.
Rltstjðrn og afgreitSsla:
Austurstræti 8. — Simi 1600.
AuglýBlngastjðri: E. Hafberg.
Auglýsingaskrifstofa:
Austurstræti 17. — Slml 8700.
Helmasimar:
Jðn Kjartansson nr. 8742.
Valtýr Stefánsson nr. 4220.
Árni Óla nr. 3045.
E. Hafberg nr. 8770.
Áskriftagjalð:
Innanlands kr. 2.00 á mánutil.
TTtanlands kr. 2.50 á mánutSl
1 lausasölu 10 aura eintakitS.
20 aura metS LesbÖk.
Þjóðminjasafnið.
Eins og skýrt var frá í blaðinn
í g'ær, hefir Þjóðminjavörður
Matthías Þórðarson, og aðrir
menn, velviljaðir þjóðlegum
minningum, komist að þeirri nið-
urstöðu, að Þjóðminjasafnið gæti
fengið tryggan stað í húsakynn-
um Þjóðleikhússins.
Alla stund, meðan hið íslenska
Þjóðminjasafn er geymt á háa-
lofti Landshókasafnsins, geta menn
ekki verið öruggir um framtíð
þess, þó ekki sje annað, en kvikn-
aði út frá raflögn í húsakynnum
safnsins, eru öll verðmæti þess k
einni svipstundu í voða, og' undir
hælinn lagt, hvort nokkuð af safn-
inu varðvéitist frá glötun. Er
skamt að minnast þess, er safn-
ið var varðveitt í húsakynnum
Landsbankans, sein talin voru
nokkurnveginn eldtrygg, en
hrunnu skömmu, eftir að safnið
var þaðan flntt.
Og þess má íslensk þjóð minnast,
hvert afhroð hún hefir goldið við
glötun þjóðminja, þegar safn A'rna
Magnússonar brann í Kaupraanna-
höfn.
Allir, sem kynnj hafa af Þjóð
minjasafninu, eru sammála um, að
þau þjóðlegu, menningarleg'u verð
mæti, sem þar eru geymd. sje
ómetanlegur fjársjóður þjóð vorr'
um ókómin ár. Því hlýtur það að
'vera óblandið gleðiefni öllum, sem
um það hugsa, að horfur eru á þv\
að safninu verði fengið húsnæði,
þar sem það er trygt gegn eld-
hættu, en svo mun vera í hús-
næði því, sem safninu er ætlað í
ÞjóðleikhúsbyggingUnni.
London 12. sept. F.Ú.
Aðalræðumennirnir á fundi
Þjóðabandalag'sins í dag voru De
Valera og Schussnigg. Ræða de
Valera vakti einkum mikla at-
hygli. Hann sagði meðal annars,
að hann áliti sig aðeins segja það
sem öllum hyggi í huga, er hann
heldi því fram, að um upptöku
Rússlands í Þjóðahandalagið ætti
að ræða opinberlega, en ekki á
leynifundum, eins og um eitt-
hvert hættumál væri að ræða.
Hann sagðist vera hlyntur því, að
Rússum væri veitt upptaka í
Þjóðahandalagið, en liann vildi
láta setja sömu skilyrði 'fyrir
henni, og Bandaríkin hefðu sett,
er þau viðurkendu Sovjetríkin, í
vor, sem sje, að Rússar lofuðu því,
að reka engan pólitískan undir-
róður meðal þeirra þjóða, sem til-
heyrðu Þjóðabandalaginu, og enn-
fremur að þeir veiti öllum trú-
málaflokkum fullkomið frelsi inn-
an Sovjetríkjanna. Þá vildi hann
ekki láta veita Rússum nein sjer-
stök hlunnindi.
Þessi ræða er mikið umtöluð í
ýmsum blöðum álfunnar, og ltom-
ast nokkur þeirra svo að orði, að
de Valera hafi aðeins látið í Ijós
það, sem allir aðrir hafa verið að
reyna að þegja yfir.
Grieríion
kominn til New York,
og er hættur við að fljúga
austur um haf aftur.
I fyrramorgun fekk Geir Zoega,
kaupmaður í Hafnarfirði, sem var
umboðsmaður Griersons flug'-
manns hjer, skeyti frá honum frá
New York. Segir Grierson í því
skeyti, að hann sje kominn þanga'5
heilu og höldnu, en sje hættur við
þá fyrirætlun sína að fljúga aH-
ur norðurleiðina til Evrópu, sjer
þyki orðið of áliðið sumars, og n.ú
sje allra veðra von. Þess vegna
verði nú flugvjelin tekin sundur
í New York. búið um hana og svo
sigli hann á skipi til Evrópu.
Arnold Földesy, eelloleikari,
ætlaði að halda liljómleika í Gamla
Bíó í kvöld. En vegna þess að
hann var sjóveikur á leiðinni
hingað, og hefir ekki náð sjer
enn, verður hljómleikunum frest-
að til þriðjudags, 18. þ. m.
að til þriðjudags 18. þ. m.
Fimm ára
verkfallsdeilu
í Noregi lokið*
Osló 13. sept. F.B.
Randsfjord-deilan var leyst á
fundi hjá Claussen, sáttasemjara
ríkisins, þar eð tillögur hanS voru
samþyktar af hlutaðeigendum.
Vinnufriður kemst því á og vinna
hefst á ný við skógarhögg' og við-
arflutninga og sú hætta, að sam-
úðarverkfall verði gert í pappírs-
iðnaðinum, hjá liðin. — Rands-
fjorddeilan hefir staðið yfir um
fimm ár.
XJnited Press.
Evrópu-flugið.
Berlín 13. sept. F.T'.
Tuttugu og tveir af þátttak-
endum í Evrópu-hringfluginu
flugu í gær frá Tunis yfir Paler-
mo og Napoli til Róm. Hafa kepp-
endurnir nú alls flog'ið 6600 kíló-
metra.
Flugferðir Lufthansa.
Re^lubundnar flug-
ferðir milli Ev-
rópu off Suður-
Ameríku.
Berlín 13. sept. F.Ú.
Flugfjelagið Lufthansa hefir
gefið út skýrslu um hinar reglu-
bundnu flugferðir frá Berlín til
Brasilíu, sem hófust í febrúar þ. á.
AIIs liafa verið farnar 20 ferðir
fram og aftur, og' hefir farartím-
inn milli endastöðva verið rúmlega
4 sólarhringar til jafnaðar. Við-
komustaðir hafa verið Sevilla, Las
Palmas og Natal.
Þar sem þessar ferðir hafa tek-
ist svo Vel, hefir fjelagið í hyggju
að færa út kvíarnar á næsta ári,
og fara reglubundnar ferðir til
Rio de Janeiro og Buenos Ayres
méð stuttu millihili.
Hjálpræðisherinn. Hinir árlegu
blómadagar, sem haldnir eru á
íslandi t,il styrktar starfsemi Hers-
ins, verða í dag og á morgun.
Verkfallið í Bandaríkjunum.
Sáttanefnd Roosevelts gagnslaus.
Washington, 13. sept. FB.
Ráð það, sem Roosevelt forseti
skipaði, til þess að leiða vefnaðar-
iðnaðardeiluna til lykta, hefir
géfið út tilkynningu þess .efnis, að
allar tilraunir þess til þess að
miðla málum, hafi orðið árangurs-
lausar. — Ráðið hefir þó ekki hætt
störfum. (TJP.).
Óeirðir halda áfram í sam-
bandi við verkfallið.
London 13. sept. F.Ú.
Óeirðunum í Rhode Island, í
sambandi við verkfallið í vefnað-
ariðnaðinum, heldur enn áfram, og
í morgun skaut lögreglan á 5000
mauns, sem ráðist höfðu á verk-
Eystrasaltsríkin
ffera með sjer 10 ára
sáttmála.
Genf, 13. sept. FB.
Eystrasaltsríkin, Lettland og
Eistland, hafa fallist á Eystra-
sa.ltsríkja-sáttmálann og' undir-
skrifuðu utanríkismálaráðherrar
þessara ríkja hann í dag. Sáttmál-
inn gildir fyrst um sinn éinn ára-
tug, en framlengist af sjálfu sjer,
ef enginn aðilja seg'ir honum upp.
Samkvæmt sáttmálanum verður
stefna Eystrasalts ríkjanua
tveggja hinna fyrnefndu og Lit-
haugalands, sameiginleg', en í
sáttmálanum eru þó ekki ákvæði
um Vilna- og Memel-deilumálin,
sem finna verður lausn á sjer-
staklega. (UP.).
Sjó§ly§ið
mikla.
London 13. sept. F.Ú.
Loftskeytamaður skipsins, Morr
ow Castle bar það fyrir rannsókn-
arrjetti í dag, að liálf klukku-
stund hefði liðið frá því að eldsins
í skipinu varð vart, þar til neyð-
armerkin voru send út. Hann ját-
aði einnig, að áður en neyð-
armerkin voru send út, hafði non-
uin bcrist fyrirspurn frá skipi úti
á hafi um skip, sém væri að brenna
nálægt New Jersey ströndinni.
Flugferðir.
Lík skipstjórans fundið.
Berlin, 12. sept. FÚ.
Lík skipstjórans á Morrow
Castle hefir nú fundist, og mun
verða tekið til rannsóknar, til
þess að komist verði fyrir, hvort
hann hafi dáið éðlilegum dauða.
Unlted Press.
Þýsk blöð
bönnuð í Austurríki.
Berlín 13. sept. F.Ú.
í Austurríki hefir hið almenna
bann á sölu þýskra blaða verið
framlengt um 3 mánuði frá 16. þ.
m. að telja. Bannið nær til svo að
ségja allra dagblaða, sem gefin eru
út í Þýskalaudi, en fle.st tímarit
og sjerfræðirit eru undanþegin
banninu.
smiðjur og vefnaðarverslanir.
Fjórir menn særðúst hættulega, og
einn hefir síðan dáið af sárum,
Tvær sveitir Iiermanna hafa ver-
ið sendar á vettvang, lögreglunni
til aðstoðar. Óeirðir hafa orðið
víða í Bandaríkjunum, þar sem
verksmíðjur hafa áður verið sett-
af undir lög'regluvernd.
Formaður vérkfallsnefndar gaf
út boðskap í dag, þar sem hann
segir, að úr því svo hafi farið, að
vinnuveitendur hafi hafnað til-
boði um að setja málið í gerðar-
dóm, megi við því búast, að verk-
fallið standi yfir í að minsta kosti
einn mánuð enn, ef það eigi að
ná tilgangi sínum.
Viðskifti
Þjóðverja og Breta.
London, 13. sept. FÚ.
Ríkisbankinn hefir stöðvað í
bili allar greiðslur úr reikningi
þeim, sem er í nafní Englands-
banka, en það er gert samkvæmt
ákvæði í nýlega gerðum yfirfærslu
samningi milli Englands og Þýska-
lands, að stöðvaðar sjeu greiðslur
til Englands, þeg'ar meira én 5
miljónir ríkismarka sjeu óseldar.
Það þýðir það, að þangað til meira
er keypt í Englandi af þýskum
vörum, *geta Þjóðverjar ekki sam-
kvæmt samningum keypt breskar
vörur.
London 13. sept. F.Ú.
18 þýsk firmu hafa ákveðið að
byggja verksmiðjur í nánd við
London og Manchester í Eng'landi.
Fjelögin verða að nafninu til
ensk, með enska yfirstjórn, en
vinnukraftnrinn verður að miklu
leyti þýskur.
Pólverjar kippa að
sjer hendinni.
London, 13. sept. FB.
Samkvæmt áreiðanlegum heim-
ildum hefir Beck, pólski sendiherr-
ann, gefið í skyn, í viðtali við
Anthony Eden, að Pólland liafi
tekið fullnaðarákvörðun um að
taka ekki þátt í Austur-Evrópu-
sáttmálanum, sem Barthou utan-
ríkismálaráðherra Frakklands hef-
ir lagt mikla áherslu á að fá þjóð-
irnar í Austur-Evrópu til þess að
sameinast um. (UP.).
Frá $aar.
Saarbiicken, 12. sept. FB.
Socialistar og kommúnistar hafa
í sameiningu sent stjórnarnefnd-
inni ávarp og krafist þess að ráð-
stafanir verði gerðar til þess að
koma í veg fyrir, að nasistar geri
byltingartilraun. Ennfremur telja
þeir hættu þá vofa yfir, að nas-
istar í Þýskalandi sendi herlið inn
í Saarhjerað. Loks er því lýst yfir
í ávarpinu, að nasistar hafi á einu
ári verið valdir að 500 liryðju-
verkum í Saarhjreaði.
Unlted Presa