Morgunblaðið - 01.12.1934, Blaðsíða 6
6
MORGUNBLAÐIÐ
Hrossabnff
af unga.
KíQtöúðin,
Týsgotii 1.
Sími 4685.
Svinakiðl.
Tamdar og viltar endur.
Spikþræddar rjúpur.
Nýlagað Salat, tvær teg.
Áleggspakkar á 25, 50,
75 aura og 1 kr.
Allskonar ávextir
og grænmeti.
Fantið í tíma.
Milnersbúð,
Laugaveg 48. Sími 1505.
Kisa veiðikló
kemur
á mánudíiginn.
fáanlegar í
Helldverslun
Gaiðars Ofslasonar.
rakarastofu mína,
frá Bankastræti 14
á Vesturgötu 23.
Virðingarfylst.
Viggo Andersen.
Bókafregti.
Einar H. Kvaran: Ljóð,
útgefandi Isafoldarprent
smiðja hf. 1934.
Einari H. Kvaran hefir fyrir
löngu verið skipað á hinn æðra
bekk íslenskra skálda. Hann er
4
einn þeirra örfáu manna, sem
að allra dómi á þar heima með
rjettu. Þjóðin sjálf hefir valið
honum eitt af sætunum. Einar
H. Kvaran hefir það til síns á-
gætis umfrarn alian þorra ís-
lenskra skálda, að hann leggur
jafngóða hönd á flestar grein-
ar skáldskaparins: Stærri sög-
ur, smásögur, æfintýri, leikri^
og ljóð. Að sjálfsögðu eru sög-
ur hans þjóðkunnastar og vin-
sælastar með allri alþýðu
manna. Leikritin ná ekki til
eins margra, en náð hafa þau
einnig almennri hylli þeirra
manna, sem átt hafa þess kost
að sjá þau á leiksviði. Sennilega
verður sá flokkur fámennastur,
sem þekkir ljóð skáldsins, sjálf-
sagt fjöldi manna, sem varla
veit, að þau eru til. Þó mun
það mælt verða, að þau standi
síst að baki öðrum skáldskap
þessa höfundar, þótt ekki sjeu
þau fyrirferðarmikil.
Kvæði Einars H. Kvaran
komu fyrst út fyrir fullum 40
árum, það var lítil bók, 64 bls.
í litlu broti, samtals 32 kvæði,
flest stutt. Samt var þetta merk-
isatburður 1 bókmentalífi ís-
lendinga. Bókin var að vísu
alveg óvenju lítil frá hendi stór-
skálds, en hún var líka alveg
óvenjulega góð. Jeg nefni til
sannindamerkis kvæði eins og
Kossinn, Halurinn minn, Kon-
ungurinn á svörtu eyjunum,.
Bólu-Hjálmar, og síðast en ekki
síst seinasta kvæðið, Rizpa eft-
ir Tennyson. Heyrt hefi jeg því
haldið fram, að það væri eitt-
hvert fegursta kvæði á íslenska
tungu. Ekki tel jeg þörf að
fella svo stóran dóm. En fyr
getur líka gott verið en best
sje.
Þessi litla kvæðabók er fyrir
löngu ófáanleg í bókabúðum
og mun vera í fremur fárra
manna höndum. Það var því
vel fallið nú á afmæli skálds-
ins að gefa hana út aftur. í
þessari nýju útgáfu eru einnig
mörg yngri kvæði. Bókin er
fyllilega helmingi stærri. En
svipurinn er sami. Þetta er
óvenjulega góð bók eins og
litla kverið var. Jeg skal ekki
nefna mörg hinna nýrri kvæða,
ekki spilla ánægju þeirra, sem
bókina lesa. Þó skal jeg að
eins nefna til kvæði eins og
Rosi, Þokan, Vorhret, Lífsins
fjöll, Krossinn og Bam í
myrkri — hvert kvæðið öðru
betra. Það var ekki að ástæðu-
lausu að útgáfan var aukin. —
Jeg efast ekki um, að skáldið
hefði getað haft bókina stærri.
En það hefir sett sjer þá reglu
— og fylgt henni- — að láta
ekkert nema gott.
Oft hefir verið deilt um það,
hvort meira s.je vert í skáld-
skap, form og búningur, eða
efni og innihald. Jeg hygg, að
það dyljist ekki þeim, sem les
kvæði Einars H. Kvaran, að
af þessu tvennu vandar hann
meira til efnisins, hugsunin er
honum meginatriðið. — Hann
yrkir ekki til þess að leika sjer,
að dýrum háttum, orðum og
rími, heldur af því, að hann
þarf að láta hug^anir í ljós —
fyrst og fremst fallegar hugs-
anir, sem orðið geta öðrum til
göfgunar og gleði.
Bókin er falleg að öllum ytri
frágangi eins og vænta mátti
úr þeim stað. Hún er jafn-eigu-
leg hvernig sem á hana er litið.
Freysteinn Gunnarsson.
. Dagbók.
□ Edda 59341247—1-
Veðrið í gær: Alldjúp lægðar-
miðja yfir vestanverðu íslandi og
mnn hún hreyfast norðaustur yfir
landið í nótt. Veður i er mjög
brfeytilegt» hjer á landi. Sunnan
lands og austan er hæg S-átt með
rigningu og 5—7 st. hita, en vest-
an lands er N-átt með 1—3 st-
liita. Nyrst, á Vestfjörðum er NA-
rok með 0 st. hita og til hafsins
úti fyrir Norðurlandi mun vera
NA-fárviðri.
Veðurútlit í Ftvík í dag: All-
hvass NV- eða N. SnjójeJ.
Messur: í dómkirkjunni á
morgun kl. 11, síra. Bjarni Jóns-
son. Kl. 2 Barnaguðsþjónusta. síra
Friðrik Hallgrímsson. K. 5 síra
Friðrik Hallgrímsson.
í fríkirkjunni á morgun kl. 2,
síra Arni Sig'urðsson.
1 Aðventistakirkjunni kl, 8 e.
li. Frenning.
í fríkirkjunni í Hafnarfirði á
morgun kl. 2- Barnaguðsþjóhusta
verður í kirkjunni kl. 5, síra Jón
Auðuns.
í Hafnarfjarðarkirkju á morgun
kl. 5, Minning 20 árá afmælis kirkj
unnar; síra Garðar Þorsteinsson.
Alþýðleg sjálfsfræðsla, heitir
bók, sem út er komin eftir Frið-
rik Ásmundsson Brekkan. FjaJlar
hún um starf fræðsluhringa þeirra,
er öscar Olsson hátemplar hefír
Stofnað í Svíþjóð, og á hún erindi
til allra þeirra, sem nnna bindindi
og liófsemi.
Eyvind Wiese, trjeskurðamaður
í Þingholtsstræti 3, sýnir ýmsa
smíðisgripi þessa dagana í giug'ga
Vöruhússins. Hann hefir um mörg
ár stundað trjeskurð í Kaup-
mannahöfn, og stundað nám við
m yndhöggvaradeil d , .Kunstmu -
seet“. Hann er nti alfluttur hingað
og er kvæntur íslenskri komi,
Rag-nhildi Líndal, dóttur Iljartar
hreppstjóra á Núpi í Miðfirði.
Eimskip. Gullfoss er á leið til
Kaupmannahafnar frá Vestmanna-
evjum. Goðafoss er í Hamborg.
Dettifoss var á Siglufirði í gær.
Brúarfoss var væntanlegur til
Vestmannaeyja í gærkvöldi og
hingað kl. 9 í dag. Lagarfoss var
á Akureyri í gær. SeLfoss fer á
mánudagSkvöld til Óslóar.
Hjónabahd. í gær voru gefin
saman í hjónaband ungfrú Guð-
björg Jóhannesdóttir og Guðmund
ur Jónsson, Björnssonar katip
manns, Vesturgötu 4,
Nokkrir stærstu eggjaframleið-
endur í nágrenni Reykjávíkur
hafa myndað með sjer samlagssölu
á eggjum sínum í heildsölu. Eggin
verða aðgreind eftir stærð og hef-
ir hver framleiðandi sitt sjerstaka
söluinerki og stimplar egg sín
með því. Verði vart við skemd
eg'g er hægt að s.já hver selt hefir.
'Sláturfjélag Suðurlands hefir
heildsöluna á hendi fyrir Sam-
lagið.
Xeksitilagent.
Agenturet for várt firma blir ledig fra 1. jan. 1936.
Vi fabrikerer dress- og frakketöier, kápe- og kjoletöier,
trikotasje etc. og önsker forbindelse med branchekyndi^:
vel innfört agent.
Ansökning med alle oplysninger sendes:
As, De Forenede Uldvarefabriker
Grensen 16, Oslo, Norge.
ÓMÓTSTÆÐILEGUR
ER ÞOKKI MJÚKÁ HÖRUNDSINS
ER HÖRUND YÐAR
SVONA YNDISLEGT?
„Til þess að halda húðinni m.júJaá
finst mjer Lux Toilet-sápan und—
ui'samleg", segir
MARION DAVIES.
Ilversu töfrandi eru ekki kvikmyndadísirnar ’ Jafnvel í na rmyndun-
um sjest enyinn Ijóður á hörundinu — það er ósprungið og' mjúkt.
705 af 713 aðal kvikmyndastjörnunum í Hollywood og Englandi trúa
Lux sápunni fyrir því, að hakla hörunditm mjáku og fullkomnu. —
Látið' hörund yðar njóta sömu meðferð-
arinnar og kvikmyndaleikararnir veita
sínu. Takið stykki af Lux Toilet-sápu heim
inrð yður í dag — þjer fáið hað hjá kaup-
manninum yðar.
LUX
TOILET SOAP
X-LTS 287-50
LEVER HROTHERS LIMITED, PORT SUNLIGMT, LNGLANl*
Nestlé
átsúkkulaðt.
titomið afiur.
I. Bryníólfsson $ Kvaran.
, /
Blðmkðl
Tomatar,
Hvítkál,
Rauðkál,
Púrrar.
* Selleri,
Gulrætur,
Rauðbeður,
Laukur.
Versslunin
Kjöt & Ffskisr.
Símar: 3828 og 4764.
Þjer
haldið
tönnum
yðar
óskemd-
um og
hvítum
með því
að nota ávalt Rósól-Tanncream..
\