Morgunblaðið - 08.01.1935, Blaðsíða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ
Þriðjudaginit 8. jan. 1935.
Útgef.: H.f. Árvakur, Reykjavík.
Ritstjórar: Jón Kjartansson,
Valtýr Stefánsson.
Ritstjórn og afgreiösla:
Austurstræti 8. — Sími 1600.
Auglýsingastjóri: B. Hafberg-.
Auglýsingaskrifstofa:
Austurstræti 17. — Sími 8700.
Heimasímar:
Jón Kjartansson, «r. 8T42.
yaltýr Stefánsson, nr. 4220.
Árni Óla, nr. 2045.
E. Hafberg, nr. 8770.
Áskriftagjald:
Innanlands kr. 2.00 á mánubi.
Utanlands kr. 2.50 á mánuði.
í lausasólu: 10 aura einu kiö.
20 aura með L-esbók.
ÞJóðnýtlng
togaranna.
Alþýðublaðið hefir ekkert lát-
ið til sín heyra síðustu dagana
um hervaldið, sem beita átti
gegn stjórnarandstæðingum. -
Ósagt skal látið hvort þessi
þögn stafar af því, að kommun
istasprauturnar við blaðið hafi
fengið maklega ráðningu frá
yfirboðurunum, ellegar af hinu,
að verið sje að undirbúa stofn-
un hins rauða hers.
En Alþýðublaðið heldur samt
áfram að gera ,,kröfur.“
Seinasta krafa blaðsins er sú,
að togaraflotinn verði tekinn
eignarnámi og þjóðnýttur.
Það er ekki nema eðlilegt,
að þessi krafa komi fram frá
þessu kommúnistiska málgagni
ríkisstjórnarinnar. Hið nýaf-
staðna ,,Alþing“ sýndi mjög
greinilega, að það vill fúslega
reyna þjóðnýtinguna. í því efni
hafði ömurleg reynsla frá þjóð
nýtingu síldarútvegsins engin
áhrif.
Og þó að fyrir liggi svipuð
reynsla frá þjónýtingu togara-
útgerðar, sbr. Bæjarútgerðin í
Hafnarfirði, er ekki sjáanlegt
að rauða fylkingin láti slíkt
hafa nein áhrif á sínar gerðir.
Vegna útgerðarmanna sjálfra
getur ekkert verið því til fyrir-
stöðu, að sósíaiistar þjóðnýti
togarana. Þeir hafa hvort sem
er ekkert annað upp úr sínu
basli en svívirðingar, róg og
lygar frá herbúðum rauðliða.
Það er sýnilegt, að rauðliðar
stefna að því, að leggja í rústir
allan sjálfstæðan atvinnurekst-
ur í landinu. Þjóðnýting togar-
anna myndi verða stórt spor í
þá átt. Hví ekki að stíga sporið
strax? Þá yrðu útgerðarmenn
lagðir af velli með einu höggi,
í stað þess að nú er verið að
smámurka úr þeim lífið.
Björgunarstarfi
stjórnað úr fluguel.
Kalundborg 7. jan. FÚ
Stórt amerískt farþegaskip,
systurskip Morro Castle strand-
aði í dag á rifi í Bermuda.
Mannbjörg varð; ekki ist
vegna þess að flugvjel stjórn-
aði björgunarstarfi skipa og
báta, benti björgunarbátunum
á það hvar skipsbátarnir voru
með strandmennina, þá sem yf-
irgefið höfðu skipin. Búist er
við -því að skipið náist aftur
af rifinu.
Togiraverkfallið
og bæiarútge ðin í Hafnarfirði.
Alþýðublaðið vill algerða stöðvun.
Þess var nýlega getið hjer
í blaðinu, að lögskráð hefði
verið á „Maí“, togara Bæjar-
útgerðarínnar í Hafnarfirði, án
þess a8 minnast einu orði á
hinn nýja kauptaxta Sjómanna-
f jelagsins.
Útgerðarráð Bæjarútgerðai'-
innar birtir í gær í Alþýðublað-
inu ,,yfirlýsingu“ og vill með
henni telja, að ekkert taxtabrot
hafi verið framið með lögskrán-
ingu þessari.
En „yfirlýsingin“ sjálf segir
ekkert um þetta, þvert á móti
staðfestir hún, sem Morgun-
blaðið sagði, að Sjómannafje-
lagið láti aðrar_£eglur gilda um
skip Bæjarútgerðarinnar.
Útgerðarráðið segir, að skráð
hafi verið á „Maí“ til ísfisks-
veiða, en ekki fiskkaupa. Alveg
eins var ástatt um togarann
„Baldur“ hjer, sem Sjómanna-
fjelagið stöðvaði skráningu á.
Hann átti að fara á ísfisksveið-
ar, og snerti þar af leiðandi
hinn nýi taxti ekkert það skip.
En samt sem áður bannar Sjó-
mannaf jelagið að skrá á skipið,
nema því aðeins að viðurkendur
sje einnig hinn nýi taxti.
En þegar skráð var á „Maí“
í Hafnarfirði, er ekki einu orði
minst á hinn nýja taxta. Hvers
vegna?
Útgerðarráðið segir, að Bæj-
arútgerðin hafi jafnan, þegar
keypt hefir verið í skipin, hald-
ið öllum mannskapnum á skip-
unum, allan tímann. En þetta
út af fyrir sig snertir ekki nema
eitt atriði á hinum nýja taxta
Sjómannafjelagsins, sem sje
það, hve margir menn skuli
vera á skipunum, þegar nflinn
er keyptur.
Útgerðarráðið segir ekkert
um það, hvort fylgt verði hjer
eftir hinum nýja taxta að því
er kaupgreiðslu (og hlunnindi)
snertir, ef keypt verður í skip-
in. —
Og stjórn Sjómannafjelagsins j
hefir sýnilega látið þetta af-1
skiftalaust, þegar skráð var á
skip Bæjarútgerðarinnar. En
hún stöðvar skráningu á skip
hjer í Reykjavík einmitt vegna
þess, að ekki er yfirlýst að hinn
nýi kauptaxti gildi ef einhvern
tíma verði keypt í skipið.
Engin lausn er enn
þá fengin í deil-
unni.
Sáttasemjari átti í gær tal
við samninganefnd útgerðar-
manna og stjórn Sjómannafje-
lagsins, til þess að heyra máls-
ástæður hvors aðila, en engar
tillögur komu frá sáttasemjara
þá í málinu.
í dag mun sáttasemjari kalla
samningsaðila aftur á fund, en
ókunnugt er blaðinu hvort til-
lögur verða væntanlegar þá.
Alþýðublaðið heldur áfram
að ala á sundrun og illindum
í þessu máli. Vilji blaðsins er
bersýnilega sá, að koma öllum
togaraflotanum í höfn, til þess
að bágindi almennings verði
sem mest.
Ósannindi
Alþýðublaðsins
kveðin niður.
Yfírlýsíng frá samn-
ínganefnd útgerðar-
manna.
Út af ummælum er birtust í Al-
J)ýðublaðinu í gær, þar sem því er
j haldið fram, að samninganefnd
j útgerðarmanna hafi haft í frammi
jbrigðmælgi og svikið gefin loforð,
barst blaðinu í, gærkvöldi eftir-
farandi yfirlýsing:
j Við undirritaðir, sem kosnir vor-
um af hálfu útgerðarmanna til að
eiga tal við stjórn Sjómannafje-
lagsins, út af auglýstnm taxta fje-
lagsins til hækkunar á kaupi tog-
araháseta, lýsum ummæli þau, er
birtust í Alþýðublaðinu í dag al-
gerlega rakalaus ósannindi, þar
scm talið er, að við höfum svikið
gefin loforð, og haft í frammi
brigðmælgi, og neitum því ein-
dregið, að hafa nokkurntíma gef-
ið loforð um, ,,að ganga að kaup-
íaxta Sjómannafjelagsins í Öllum
aðalatriðum", enda vorum við þá
umboðslausir til að taka slíkar á-
kvarðanir.
Reykjavík, 7. jan. 1935.
Kjartan Thors.
Geir Thorsteinsson.
Páll Ólafsson.
Hafsteinn Bergþórsson,
Ólafnr H. Jónsson.
Ólafur Tr. Einarsson.
Jan Kiepura
veíktir í hálsíntim,
ofkætdist vfð átísöng.
Kalundborg 7. jan. FÚ
Söngvarinn Kiepura er nú
hættulega veikur í hálsinum.
Nýlega, er hann hafði sung-
ið sem gestur í Vín, var honum
tekið með afskaplegum fögn-
uði, einnig af mannfjöldanum
sem beið hans fyrir utan veislu-
höllina.
Kiepura söng þá fyrir mann-
fjöldanum á götunni, og er talið
hugsanlegt að hann hafi of-
kælt sig í kvöldkulinu og stafi
hin hættulega hálsveiki hans af
því.
Fjölmsnmr fundir í Saar
fara friðsamlega fram.
Vinnaál Nazista við Frakka.
Atkvæðagreiðilan byrjuö.
Verksmiðjur í Saar.
KAUPMANNAHÖFN í GÆR.
EINKASKEYTI TIL
MORGUNBLAÐSINS.
Útifundir þeir, sem haldnir
voru í Saarbrticken á sunnudag-
inn voru geisilega fjölmennir,
bæði fundur sá, sem Nazistar
hjeidu, og eins fundur þeirra,
sem vilja að stjórnarfyrirkomu-
lag í Saa_ verði framvegis hið
sama og það nú er.
Nazistar halda því fram, að
yfir 300.000 manna hafi verið
viðstaddir fund þeirra, en hlut-
lausir áhorfendur geta sjer þess
til, að fundarmenn hafi verið
150.000.
Hríðarjel skall á, á meðan á
fundinum stóð, og gerði það
minna úr honum en annars
hefði verið.
En þeir, sem hafa vilja
sama stjórnarfyrirkomulag og
nú er, fengu 75.000—100.000
á sinn fund.
Fundarstjóri á þeim fundi
ljet alla viðstadda lofa því.há-
tíðlega með hárri röddu, að
þeir skyldu greiða því atkvæði,
að alt slcyldi vera við sama í
Saar.
stað hverri styrjöldinni á fætur
annari.
Er talið að ræða þessi sje
enn eitt tákn þess hve Þjóðverj-
ar vinna nú að því, að jafna
alla misklíð milli sín og Frakka
en að því verði unnið fyrir al-
vöru að atkvæðagreiðslunni
lokinni. Páll.
Á SUNNUDAG.
London 6. .jan. FÚ.
„Hörð orð, engar óeirðir, lít-
il æsing.“ Þetta er saga dags-
ins í dag í Saar.
Menn höfðu staðið með önd-
ina í hálsinum af ótta um það,
að lenda myndi í hart milli Hitl
erssinna og andstæðinga þeirra,
í sambandi við útifundina sem
leyfðir höfðu verið.
En fylkingar þessara andvígu
flokka gengu hvor fram hjá
annara á götunum, á leið til
fundarstaðanna, án þess að
skiftast á einu móðgandi orði,
eða sína hvor annari nokkur
óvináttumerki. — Hitlerssinnar
hyltu ,.leiðtogann“ á fundi sín-
um, en andstæðingar hans unnu
e'ð að óstöðvandi baráttu gegn
honum.
Stjórnin í Berlín býst við því,
að 85% af íbúum í Saar greiði
atkvæði á sunnudaginn kemur
með því, að Saar sameinist
Þýskalandi.
En flokkur þeirra, sem enga
breytingu vilja, gera sjer vonir
um að fá 30% atkvæðanna.
Göbbels friðarvinur.
Nazistastjórnin í Berlín hefir
sett upp sýningu um Saar.
Göbbels ráðherra hjelt þar
ræðu á sunnudaginn.
Hann komst m. a. að orði á
þessa leið:
Jeg geri mjer vonir um það,
að eftir atkvæðagreiðsluna í
Saar verði hægt að jafna að
fullu óvináttu og hatur er öld-
um saman hefir ríkt milli Þjóð-
verja og Frakka, og komið af
Atkvæðagreiðslan er
byrjuð.
London 7. jan. FÚ.
Atkvæðagreiðslan í Saar hófst
í dag.
Póstmenn og ökumenn, alls
um 2000, greiddu atkvæði í dag
af því að þeir verða önnum
kafnir á sjálfan kosningadag-
inn, þann 13.
Kosið var á átta k.jörstöðum
og var erlendur kjörstjóri á
hverjum staS.
Strangar ráðstafanir eru
gerðar til þess, að ekkert vitn-
ist um þessa atkvæðagreiðslu.
Kjósendurnir kom og fóru án
þess að segja eitt orð, og heils-
uðu hvorki nje kvöddu.
I dag voru einnig greidd at-
kvæði í sjúkrahúsum, og í fang
elsinu í Saarbrucken.