Morgunblaðið - 08.01.1935, Page 3
Þriðjudaginn 8. jan. 1935. MORGUNB L‘A Ð I Ð
3
Ohagstæður
verslunarjöfnuður Dana,
gerir fjárhaginn erfiðan.
Stjórnín gefttr út áramótaskýrslu tíl aðvörtmar
KAUPMANNAHÖFN í GÆR
EINKASKEYTI TIL
MORGUNBLAÐSINS. !
Hagstofan danska hefir ný-
lega gefið út f jármálayfirlit;
sitt fyrir árið 1934. Samkvæmt |
því hefir verslunarjöfnuður
Dana verið óhagstæður á þessu
ári, innflutningurinn numið 135 |
miljónum króna um fram út- ’
flutninginn.
Árið 1933 var þessi mismun-
ur mikið minni, 53 miljónir |
króna.
Að innflutningurinn árið sem j
leið hefir svo mjög farið fram j
ór útflutningnum stafar að j
miklu leyti af því, hve innflutn- j
ingurinn hefir aukist, einkum j
á efnvörum ýmiskonar, er flutt- i
ar hafa verið inn til þess að
auka atvinnuna í landinu.
Áætlað er að greiðsluhalli á |
árinu hafi numið 40 miljónum
króna.
Þá segir í yfirlitinu að ástand
og horfur landbúnaðarins sje
ekki sem verst, því verð á land-
búnaðarvörum hefir hækkað
síðara missiri ársins. Framfarir
í iðnaði hafa og haldð áfram
á árinu.
Atvinnúleysingjum hefir
fækkað á árinu, svo nú eru að
eins 22% atvinnulausir, en
29% voru atvinnulausir fyrir
ári síðan. Tekjur af siglingum
hafa aukist.
En vegna þess, hve verslunar
jöfnuðurinn er óhagstæður, eru
fjárhagsástæðurnar mjög erfið-
ar nú um áramótin.
Dagblaðið „Börsen“ gerir
þessa opinberu skýrslu að um-
talsefni.
Segir blaðið, að í skýrslu þess-
ari sje meiri bölsýni en ástæða
sje til. En bölsýni þessi sje bor-
in fram í þeim ákveðna til-
gangi, að draga úr vaxandi
bjartsýni almennings í viðskifta
málum.
En blaðið segir ennfremur, ð
fjármálastefna stjómarinnar,
einkum er að lánveitingum
lúti, miði beinlínis að því ,að
auka ósamræmið milli tekna
af útflutningi og innflutnings-
þarfanna.
Páll.
Fjármálaræða
Rooserelfs.
Hann kvartar tmdan
hækktm átgjaldanna.
London 7. jan. FÚ.
Roosevelt flutti fjármálaræðu
mna í fulltrúadeild þingsins í
dag. í fyrra sagðist hann hafa
haft von um það, að geta lagt
fram hallalaus fjárlög á þriðja
ári viðreisnaráætlunarinnar.
í dag sagði hann að þessar
vonir væru farnar út um þúfur
yegná hinna afskaplegu gjalda
sem þótt hefði nauðsynlegt ao
greiða í atvinnuleysisstyrki og
fyrir opinbera vinnu. Þar að
auki sagði hann, að gjöld til
landvarnar hefði aukist um
átta hundruð miljónir dollara
frá því á síðastl. fjárhagsári.
Forsetinn sagði að tekjuhalli
núverandi fjárhagsárs mundi
nema 20 þús. miljónum dollara,
og álíka mikill áætlaður á
næsta ári.
Dýrt hundsbit.
Kalundborg 7. jan. FÚ
Ef hundur bítur konu í nefið
í Danmörku kostar það eig-
anda hundsins 1000 kr., sam-
kvæmt dómi, sem kveðinn var
upp í dag.
Bænagerðir.
Sjerstakar bænir verða flutt-
ar í mörgum kirkjum í Saar,
þangað til atkvæðagreiðslunni
er lokið. Erkibiskupinn í Köln
hefir einnig gefið fyrirskipanir
um það, að sjerstakar bænir
skuli lesnar eftir messu í sínu
biskupsdæmi, '
Barnfóstran yfirheyrð
í Hauptmannsmálinu.
London 7. jan. FÚ.
Betty Gow, barnfóstran sem
gætti Lindberghsbarnsins þegar
því var rænt, var í dag yfir-
heyrð í máli Bruno Hauptmanns
í Flemington, New Jersey.
Hún lýsti því, sem fyrir hafði
komið um kvöldið áður en barn-
inu var rænt. Hún sagði að all-
ir gluggar barnaherbergisins og
svefnhérbergisins hefðu verið
lokaðir og einnig hefðu verið
hlerar fyrir þeim öllum, nema
suðaustur glugganum, þar hefði
hlerinn verið svo undinn að
ekki hefði verið hægt að loka
honum.
Dómur um
„verkfallshi'ot**.
Maðttrinn gegndí
skyldu sínní.
Kalundborg 7. jan. FÚ
Verkamannafjelag eitt í Dan
mörku hafði rekið úr fjelags-
skapnum dýravörð við skóla
einn fyrir það, að hann hefði
annast ræstingu skólans meðan
stóð á verkfalli þvottakvenn-
anna.
Fjelagið taldi dyravörðinn
verkfallsbrjót og því rjettræk-
an. Dyravörðurinn stefndi fje-
laginu og vann -málið í dag.
Dómarinn sagði að brottrekst
urinn úr fjelaginu væri ólögleg-
ur, því að maðurinn hefði ekki
gert annað en það, sem honum
bæri skylda til, samkvæmt reglu
gerð skólans.
Afyinnubéfa-
vinnan.
Bæjarráð samþykkir
að þar verðí 400
manns næstu viku.
Á bæjarstjórnarfundinum síð-
asta skýrði borgarstjóri frá því,
að hann hefði ekki tilfært neitt
ríkissjóðsframlag til atvinnu-
bóta á frumvarpi því til fjár-
hagsáætlunar fyrir Reykjavík á
þessu ári, því þegar hann samdi
frumvarpið var langt frá því,
að gengið væri frá fjárlögun-
um fyrir árið í ár.
Á bæjarráðsfundi, er hald-
inn var í gærkvöldi var sam-
þykt:
Að fara fram á það við rík-
isstjórnina, að hún til bráða-
birgða, þar til fjárhagsáætlun
er fullsamin og endanlegar á-
kvarðanir teknar viðvíkjandi
fjárframlögum til atvinnubóta
á þessu ári, greiði vikulega V3
kostnaðar við þá atvinnubóta-
vinnu, sem bærinn heldur uppi
á meðan, með 24 kr. fyrir hvem
mann, sem vinnunnar nýtur. Að
því tilskyldu að þetta fáist, á-
kveður bæjarráðið að taka 400
manns í atvinnubótavinnuna
næstu viku.
Ennfremur samþykti Bæjar-
ráðið að óska eftir því, að rík-
issjóður greiddi Vs af öllum
kostnaði bæjarins við atvinnu-
bótavinnu á árinu 1934, þegar
Sá kostnaður er endanlega upp
gerður.
En, eins og borgarstjóri
skýrði frá á bæjarstjórnar-
fundinum vantar enn nokkuð á,
að ríkissjóður hafi greitt þriðj-
ungstillag sitt fyrir árið 1934.
Fannkoma
i Englandl.
London 7. jan. FÚ.
Kuldastormar og allmikil
fannkoma er víðá í Englandi í
dag, sumstaðar svo mikil að,
svo sem í Lincolnshire og
Yorkshire að snjóplógar eru
notaðir til þess að ryðja
brautir.
Annars hefir verið einmuna-
tíð í Englandi undanfarna tvo
mánuði.
Hörmulegnr
glæpur
í Júgóslafíu.
Kalundborg, 5. jan. FÚ.
Samkvæmt fregn frá Belgrad
hefir í dag komið þar fyrir
hörmulegt glæpamál.
Fátæk ekkja og dóttir henn-
ar bjuggu saman í litlu húsi og
í gærkvöldi heimsótti þær og
fekk næturgistingu hjá þeim
ungur maður.
Mæðgurnar urðu þess varar,
þegar hann var sofnaður, að
hann hafði meðferðis mikið fje
og í myrkrinu um nóttina myrtu
þær hann.
I birtingu um morguninn
þektu þær manninn, hann var
sonur ekkjunnar. Mæðgunum
varð svo mikið um þetta að þær
frömdu sjálfsmorð.
Fult samkamulag
milli tauals" og mussulini
viKii sfálfsfæði Ansiurríkis.
Sáttmálinn á að tryggja friðinn í álfunni.
Rómaborg 7. jan. FB.
Mussolini og Laval undirskrif-
uðu í kvöld í Feneyjahöllinni
sáttmála þann, sem gerður hef-
ir verið að umtalsefni í fyrri
skeytum, þ. e. sáttmála til
tryggingar friðnum í álfunni
og sjálfstæði og öryggi Aust-
urríkis, auk þess sem hann inni-
felur ákvæði um deilumál ítala
og Frakka.
Samkomulagið miili ítala og
Frakka er í rauninni þrenns-
konar:
1) Samkomuíag um deilumál
Frakka og Itala, að því er ný-
lendurnar snertir.
2) Samkomulag um sáttmáia
til þess aS tryggja sjálfstæði
Austurríkis og friðinn í Dón-
árríkjunum og
2) Samkomulag til frekari
íryggingar friðnum í álfunni.
London 6. jan. FÚ.
Vináttumerkin milli Laval og
Mussolini virtust ná hámarki
sínu í veislu þeirri, sem Musso-
lini hjelt Laval í Róm í gær-
kvöldi.
Laval afhenti Mussolini stór-
kross frönsku heiðursorðunnar,
og Mussolini sæmdi Laval stór-
krossi ítölsku heiðursorðunnar.
Báðir mæltu mestu vinarorð-
um hvor til annars. Laval kall-
aði Mussolini „Leiðtoga mikill-
ar þjóðar“, og sagði að hann
hefði skráð hinn glæsilegasta
þátt í sögu Ítalíu. 1 lok ræðu
sinnar mælti hann á þessa leið:
„Rústir Rómaborgar, alt í kring
um okkur, ættu að vera okkur
viðvörun um að lát aekki heim-
inn falla aftur í það myrkur
og þá eymd, sem þær bera vitni
um, en að beita öllum okkar
kröftum til að koma í veg fyrír
það, að styrjaldir steypi menn-
ingu okkar, og hinni fornu
menningu Rómaveldis."
London 7. jan. FÚ.
Samningar um nýlendumál í
Norður-Afríku voru undirskrif-
aðir í Róm í dag, af Mussolini
og Laval. Þetta eru síðustu
samningarnar, sem þessir tveir
stjórnmálamenn hafa gert með
sjer, þessa þrjá daga, sem þeir
hafa talast við.
Kommúnistar
CEtluðu að myrða
Starhemberg.;
Vínarborg 7. jan. FB.
Tveir kommúnistar voru hand
teknir í gær nálægt flugstöð-
inni í Aspern. Þeir hafa játað,
að áform þeirra hefði verið að
drepa Starhemberg, foringja
heimwehrmanna. (UP).
Upprefsnin
i Albaniu.
Ætlar konungur að
flýja land?
Kalundborg, 5. jan. FÚ.
Óeirðir eru nú í Albaníu og
er einkum kurr í hernum. —
Fregnir eru annars óljósar af
þeim. Ein frjettin segir að kon-
ungurinn sje við því búinn að
flýja land í flugvjel.
Forn mannabein
borin i kirkju.
Sauðárkróki 6. jan. FÚ
í dag voru borin í kirkju
á Sauðárkróki fom mannabein,
sem vegagerðarmenn fundu hjá
Grafargerði á Höfðaströnd þ.
3. desember síðastliðinn. Með
beinum þessum fundust einnig
hrossbein.
Mannabeinin voru send til
hjeraðslæknisins hjer á Sauð-'
árkróki. Skoðaði hann þau, og
áleit mjög forn. Beinin eru að
áliti hans úr stórum miðaldra
manni, konu við aldur og barni.
Síra Helgi flutti minningar-
ræðu yfir beinum þessum. Síð-
ar verða beinin send fornmlnja
verði.
Benzinfuiioa
springur
á ípróttavellinum.
Botn hennar kast-
ast 100 metra
í loft upp.
Um hádegið í gær söfnuðust
nokkrir unglingar saman suður
á Iþróttavelli við rústirnar af
Þrettánda brennunni. — Höfðu
verið skildar eftir olíu- og ben-
síntunnur og var eitthvað eftir
á nokkrum þeirra.
Unglingarnir tóku nú olíu-
tunnu og heltu úr henni á völl-
inn, kveiktu síðan í olíunni og
veltu hinum tunnunum á bálið.
Ein bensíntunnan veltist þannig
í bálið að hún stóð rjett, og
skyndilega sprakk botninn úr
henni og þeyttist um 100 metra
í loft upp.
Var mesta lán að ekki hlaust
stórslys af þessu tiltæki. Tölu-
vert bál varð þarna í gær og
safnaðist mannfjöldi mikill til
að horfa á það.
HeiRnrslaun
fyrir björgun úr
sjávarháska.
Berlín, 5. jan. FU.
Á fundi norska ríkisráðsins í
gær var ákveðið, að sæma ellefti
menn af þýska skipinu „New
York“ björgunarpeningi úr gulli.
Þessir ellefu menn eru áhöfnin á
björgunarbátnum frá New York,
sem bjargaði skipshöfninni af
norska skipinu „Sisto“ úr lífs-
háska skömnm fyrir jól..