Morgunblaðið - 24.01.1935, Blaðsíða 3
MORGTJNBI/AÐIÐ
3
Fimtudaginn 24. jan. 1935.___
liiw———I im IH . «■■■——■—B——
Togarinn „leria**
mun hafa farist undir Látrabjargi í
fyrrinótt með allri áhöfn.
Fjögur leitarskip voru á þéssum slóðum í
fyrrinótt og í gærdag en urðu einkis vísari
um togarann. En leitarmenn í landi fundu
margskonar rekald úr honum.
Skipverjar senda hinstu kveðju þegar
þeir sjá sjer bana búinn.
Talið er nú víst, að enski tog-
arinn „Jeria“ frá Grimsby hafi
iarist með allri áhöfn, anstarlega
•miir Látrabjargi, í vestanofviðr-
inu í fyrrakvöld.
Bins og getið var í blaðinu í
g»er hafði skipið getað sent út
aeyðarskeyti síðdegis í fyrradag-
Tar það þá um 4 sjómílur innan
visð Bjargtanga, og skamt undan
landi. Hafði það fengið áföll svo
stór, að yfirbygging þess var öll
ferotin og einnig reykháfurinn,
^ósaleiðslur allar í ólagi, stýri bil-
íéS og móttökutæki loftskeyta. —
Mrakti skipið þarna fyrir veðri,
sjó og straumi og var eina lífsvon
skipsverja að þá hrekti sem lengst
austur með, austur að Keflavík
etSa Rauðasandi.
Slysavarnafjelag íslands sendi
þ»gar út skeyti til allra skipa, sem
kynnu að vera á þessum slóðum
•g bað þau að koma, „Jeria“ til
hjálpar. Jafnframt bað það bænd-
»r í næstu sveitum þar vestra að
ttbygnast eftir skiþinu og reyna
að bjarga skipvérjúml
bændum vestra, voru gerðir út
leitar- og hjá,l]•)arleiðangrar, bæði
frá liauðasandi og HvaHátrum.
Þá um kvöldið fóru 10 menn frá
i Ilvallátrum, undir forystu Dan-
íels Eggertssonar, út á Bjarg, og
höfðu með sjer eldsneyti fil þess
að geta kynt bál, ef vera kynni að
þeir sæi eitthvað tii, skiþsins. Atti
þá bálið að vísa ensku togurunum
þremwr, sem áttu að leita þar fyrir
utan, hvar „Jeria" væri. Leiðaug-
' ursmenn komu beim aftur kl. 9 í
! íyrrakvöld og sögðu að verið hefði
slíkt aftakaveður, að tæplega hefði
verið stætt, og stórbrim undir
^ Látrabjargi. Til togarans böfðu
! þeir ekkert sjeð.
i
Hinsta kvéðja,
Enski to^irinn „Wambery" sem
I var hjer úti í flóanum í fyrra-
kvöld, mun hafa náð seinasta loft-
skeytinu frá „Jeria“.
| í þessu skeyti, sem skipvérjar.
> 'ssu ekki bvort, heyrast múndi,
, þar sem móttökuvjel þeirra va.r
I biluð
Þrír enskir togarar
ráðast út í óveðrið.
Um þessar mundir lágu margir
■tlendir togarar í Patreksfirði, og
köfðu þeir leitáð þar skjóls fyrir
•fviðrinu.
Þegar nú fregnin kom um það,
hvað togarinn „Jeria“ væri nauð-
lega staddur, brutust þrír enskir
togarar á stað frá Patreksfirði-
Heita þeir „Lord Plewder“, „Reef
Flower“ og „Stoke“ og heldu þeir
smður úr Látraröst og inn á Breiða
fjörð, en munu ekki hafa komist
þangað fyr en með mórgni. Leit-
»ðu þeír síðan í allan gærdag að
„Jeria“, en urðu togarans hve.rgi
varir.
Varðskipið „Ægir“ fer
að leita.
Varðskipið „Ægir“ var um þetta
leyti einhversstaðar úti fyrir Vest-
fjörðum. Sendi Skipaútgerð ríkis-
ins því skeyti og bað það að snúa
soður á Breiðafjörð og leita að
„Jeria“. Var þá veður svo vont, að
„Ægi“ svaraði því, að allar björg-
mnartilraunir mundu reynast, á-
rangurslausar, stórviðri, sjógaug-
mr, hríð og myrkur væri svo mikið,
að hvert skip, sem væri úti í sjó
hefði nóg að gera að sjá um sig
sjálft.
Það var ekki fyr en kl. 9—10 í
gærmorgun að „Ægir“ komst fyrir
Bjargtanga. Sigldi hann þá innmeð
öllu Látrabjargi, fyrir Rauðasand
og alla leið inn að Skor, en varð
einkis vísari.
Bændur hefja leit.
Undir eins í fyrrakvöld, þegar
áskorun Slysavarnafjelagsins harst,
■i '' Uit I ,i B
báðu þeir hvem þann. sem heyra
kynui að bera hinstu kveðju sína
til ættingja og vina, því að nú
væri skipið að farast og engum
manni á því mundi lífs auðið.
Bendir .þetta til þess að þá, hafi
skipið verið að reka upp í hjargið.
Allskonar rekald úr
skipinu fanst í gær.
í gærmorgun fóru 6 menn frá
Hvallátrum aftur á stað tU þess að
gá að skipinu. Hófu þeir leit við
Bjargtanga og þaðan inn eftir.
Um árangur leitarinnar barst
Slysatryggingarfjelagi Islands eft-
irfarandi skeyti frá þeim seint í
gærkvöldi:
Látramenn gengú inn eftir
Látrabjargi í dag. Fundu engan
reka utan Kef 1 a víkúrbjargs, en í
Keflavík og þar rjett í grend
fanst eftirfarandi:
£ hveitipokar ómerktir og var
annar furðanlega lítið blautur.
Tvennar buxur nýjar.
Peysa og sokkar.
Töluvert af litlum Hessianpokum.
Hlutir úr þilfari, mahognybútar og
snerlar af stýrispallshurð.
Dálítið af þorski og karfa, einnig
nokkuð af braki.
Keflavík var áður vestasti bær
á Rauðasandi, en er nú í eyði.
Skamt fyrir vestan víkina taka við
Keflavíkurbjörg, sem eru austasti
hluti Látrabjargs. Er bani búinn
hverjum þeim, sem hrekst á skipi
upp að þeim í stórviðri og stór-
sjó, og þar mun „Jeria“ sennilega
liafa farist eða undir svonefndum
Lambahlíðum. Hefði hana rekið
inn á Kefíavík, eðá austar, var von
til þess að um björgun héfði verið
að ræða. Annars er ill landtaka
austaii Keflavfkur, þar á milli og
Naustabrekku.
Rauðsendingar leita.
í fyrrinótt fórú bændnr á
R;anðasandi að leita með fram
ströndinni, samkvæmt ósk Slysa-
varnafjélagsms. Urðn þeir einkis
Vísari fyr'en þeir komu út undir
I'austiibrekkn, eyðíbæ á Rauða-
sandi og næsta bæ við Keflavík.
Þar rákust þeir á í f jörunni
bjálka úr fiskikössum og brot
af tveimur bjarghringum. Stóð á
þeim báðum nafnið „Jeria“. Þeir
fundu því meira af rekaldi, sem
þeir heldu vestar, og lejtuðu enn
í gærdág. Barst Slýsavarnafjelag-
inu s'keyti wm þetta um miðjan
diig frá Patréksfirði, en þangað
höfðu Rauðsendingár símað frá
Hvalskéri. Voru þeir þá lagðir á
stað aftur í nýja leit, og bjuggust
við að geta sent skeyti í gærkvöldi
um hana, en það skeyti kom ekki-
„Jería“ var smíðaður árið
1930, stór togari, 144 „nettó“
smálestir og með um 700 hest-
afla vjel. Verður að teljast
einn af nýtísku togurum Breta.
Eigendur voru „The Great
Grimsby and Eastcoast Steam
Fishing Co. Ltd.“ í Grimsby.
Ekki er enn kunnugt um það
hve margir menn hafa verið
á skipinu, en venjulegt er að
15 manna skípshöfn sje á ensk-
um togurum, sem veiða hjer
við land.
Kveikt í vjelbáti.
Hann brennur til
kaldra kola
! Norðfirði, miðvikudag.
EINKASKEYTI TIL
morgUnblaðsins.
Klukkan 11 í gærkvöldi vár
slokkvilíðið fevaf.t iún á Strönd,
iiist í bænum. YaY* þar kominn
npp eldur í vjelhátmim „Akkiles“,
sein Páll Árnason á.
Báturinn stoð á; -þuru landi og
var alelda þégar að var komið.
Ofsarök':vát á ðg engin leið til
þess að bjarga bátnum og brann
hann þarna til lraldra kola.
Báturinn var óvátrygður.
Áuðsjeð er, að einlivér Hefir
kveikt í honnm.
--------------—
Drengur slasast.
Klukkan rúmlega 3 e. h. í gær
var komið með slasaðan dreng á
Landsspítalann. Fanst hann með-
vitundariaus á gatnamótum Bar-
onsstígs og Leifsgötn. Hafði hann
auðsjáanlega dottið af reiðhjóli.
Vegfarendur höfðu orðið varir við
bíl á þessum slóðum, en ekki er
vitað hvort hann var valdur að
slysinu. Drengurinn heitir Einar
Guðgeirsson, til heimilis á Kára-
stíg 3, er hann sendisveinn í versl.
Guðm. Gunnlaugssonar, Njáls-
götu 65.
Drengurinn var með fullri rænu
í gærkvöldi og leið miklu betur.
Stór sár voru ekki á höfðinu, að
eins skrámur, en líldegt er þó
talið að höggið sem hann fekk á
höfuðið, muni hafa orsakað heila-
bristing.
Ofviðri í fyrradag
og fyrrinótt.
Ensknr togari missir sfýri*
mann sinn úfbyrðis.
logaraárekstur á yfri
höfninni i Beykjavík.
Enskur tögari laskast suður með sjó.
I fyrradag og fyrrinótt var
aftaka veður um alt Suðvestur-
Iand, með hríðar dimmviðri á;
köflum. Æsti fljótt sjó og gerði
haugabrim. Varð sjógangur svo
mikill hjer, að togararnir, sem
lágu í Reykjavíkurhöfn, þorðu
ekki að hafast þar við, og
fluttu sig allir út á ytri höfn.
Meðal þeirra var þýskur togari, i
sem leitað hafði hjer hafnar
daginn áður. Þegar skipin voru
komin út á ytri höfnina, varð j
árekstur milli hans og togarans'
„Ver“ og skemdust báðir nokk-
uð.
Enskur togari, Welbeck, kom
hingað í gærmorgun. Hafði
hann tekið niðri innan skerja j
á Vatnsleysuströnd í ofvið.inu(
í fyrrinótt, fengið þar á sig
hvern brotsjóinn á fætur öðrum,
en losnað þó aftur og komst af
eigin ramleik til hafnar. í gær
var kafari fenginn til þess að
skoða þær skemdir, sem á skip-
inu höfðu orðið við strandið.
l
Annar enskur togari, Wam-
bery, sem var hjer vestur í fló- |
anum, fekk stór áföll í fyrra-;
kvöld, og eitt þeirra skolaði!
stýrimanni skipsins fyrir borð. j
Togarinn kom hingað í gær,!
og er ekki mikið skemdur. í
fyrrakvöld náði hann seinasta
loftskeytinu, sem togarinn
„Jeria“ sendi frá sjer, eins og
getið er um á öðrum stað í
blaðinu.
Lá við manntjóni á
Akranesi.
Bátur sekkur.
Bryggjan skemmist
Akranesi 23. jan. FÚ
í gærdag var vestan rok og
stórbrim. Klukkan 15 ætluðu
4 menn að bjarga bát frá
bryggju, en brotsjór fór yfir
bryggjuna og tók 3 menn út.
Björgun tókst. Kl. 21 í gær-
kvöldi fór vjelbáturinn 'Víðir
að draga legufærin. Rak hann
þá á klappir og sökk um kl. 23-
Báturinn er ónýtur.
Bátur þessi kom hingað til
Akraness nýr frá Danmörku
1930. Eigendur voru Ólafur
Björnsson o. fl. Báturinn var
vátrygður hjá Sjóvátryggingar-
fjelagi íslands.
Þrjá aðra báta rak áleiðis til
lands en sakaði ekki.
Ysti endi hafnargarðsins er
seig í haust, seig enn á ný.
Gömul trjebryggja skemdist
talsvert.
Sjómannaverkfallið.
Kl. 4 í gær komu samninga-
nefndir útgerðarmanna og sjó-
maijna á fund. Ræddu nefnd-
armenn saman nokkra hríð. En
ekkert sjerstakt gerðist á þeim
fundi, sem í frásögur er fær-
andi.
Nefndirnar koma aftur á
fund kl. 11 árd. í dag.
Bátatjón í Sand
gerði.
Sandgerði 23. jan. FÚ
Ofsarok að vestan með af-
taka brimi var hjer í gær, og
helst fram á nótt. Með flóðinu
í gærkvöldi rak á land vjel-
bátinn Brúarfoss. Er hann tölu
vert brotinn en mun þó líklega
nást út aftur. Ennfremur rak
hjer á höfninni 5 báta en ekki
varð tjón að því.
Þak fýkur af húsi
í Keflavík.
23. jan. FÚ
Úr Keflavík símar frjetta-
ritari útvarpsins, að þar hafi
verið mikið hvassviðri síðdegis
í gær. Fauk þar nokkur hluti
af þaki af húsi í smíðum og
skall á húsi Jóns Gwiðbrands-
sonar og skemdi mæni þess.
Margir útlendir togarar komu
inn á höfnina í Keflavík í gær-
kvöldi til þess að leita skjóls
fyrir veðrinu. í morgun var
gott veður og fóru togararnir
út í flóann til veiða, en sneru
aítur til Keflavíkur því sjór
var úfinn. — Nokkrir útilegu-
bátar liggja einnig í Keflavík.
í Alþýðublaðinu í gær, er
I grein eftir Óskar Jónsson.
; Hafnfirðing, þar sem hann reyn
ir að fetta fingur út í frásögn
Mörgunblaðsins af samþykt
hafnfirskra sjómanna á dögun-
um.
I Telur Ó. J. það fjarstæðu,
að Hafnfirðingarnir hafi sam-
þykt tilboð útgerðarmanna.
Tilboð útgerðarmanna var
, sem kunnugt er, að sjómenn
fengi sama kaup og þeir hafa
fengið samkvæmt samningi frá
1929.
j Sjómannafundurinn í Hafn-
I arfirði samþykti með 50 atkv.
j gegn 2, að gefa samninganefnd
i fult umboð til þess að semja
i um kaup þetta ár, með því skil-
yrði, að ekki yrði gengið að
lægra kaupi en gilt hefir síðan
i árið 1929.
Verður eigi annað sjeð, og
j má Ó. J. og Alþbl. birta um
; það jafn margar greinar og
1 vera vill, að af þeirri samþykt
j verður eigi annað ráðið, en að
þessir 50 sjómenn sem greiddu
atkvæði með umboði þessu til
nefndarinnar hafi lýst yfir þeim
vilja sínum, að þeir gætu sætt
sig við sama kaup og þeir hafa
áður haft.