Morgunblaðið - 26.01.1935, Side 7
Laugardaginn 26. jan. 1935.
MORGUNBLAÐIÐ
7
Togaraverkfallið.
Frá saraníngaamleítan
tmum tindanfarna
daga.
Undanfarna daga hafa samninga
nefndir útgerðarmanna og sjó-
manna átt með sjer langa fundi,
sem þó hafa engan árangur borið.
Útgerðarmenn vilja ekki fall-
ast á neina kauphækkun, en for-
kólfar sjómanna hafa neitað, að
framlengja samninga án kaup-
bækkunar.
Hafa útgerðarmenn reynt að
noiðla málum, með því að stinga
upp á formbreytingu í fyrri
samningi, án út.gjaldahækkunar.
Hn eftir nokkra íhugun synjuðu
samningamenn sjómanna þeim
uppástungum.
mningamenn sjómanna greindi
þó alhnjög á um þetta, og vildu
fulltrúar Hafnfirðinga sem.ja, en
fulltrúar R.eykvíkinga vildu ekki
ganga að þessu, óg munu þeir
]>ó ekki allir hafa verið á einu
máli.
Bftir þessi fundarhöld er ekk-
ert sýrma eií að samningaumléit-
wnum sje lokið, a. m. k. í bili.
Ofsaveðnr
i Norðfirði.
Skip rekst á bryggju.
Þök f júka af húsum.
Margar fleiri skemdir.
Norðfirði í gær.
Einkas-keyti til Morgunblaðsins
Ofsarok var hjér í Norðfirði
í »ótt á norðaustan.
Vjelskipið ,,Sleipnir“ hrakti
frá festum og lenti það á
bryggju fóðurmjölsverksmiðj-
unnar. Við áreksturinn brotn-
aði það nokkuð ofan þilja og
skemdi bryggjuna talsvert.
Þakjárn reif veðrið af nokk-
trum húsum, þar á meðal húsi
bæjarstjórans og húsi Lifrar-
bræðslunnar.
Hjallur, sem Ingvar Pálmason
aiþingismaður átti, fauk og var
ekki neitt eftir af honum.\
Ýmsar skemdir urðu einnig
i öðrum húsum.
Hauptmanns-
fnálið.
.Nú er komíð að verjanda
London 24. jan. FÚ
Sólcn í máli Hauptmanns er
nú lokið fyrir rjettinum í Flem
ington, og í dag byrjaði verj-
andi vitnaleiðslu sína. Hann
krafðist sýknu fyrir Haupt-
mann, með því að ekki hefði
fengist nein sönnun fyrir því,
að Hauptmann hefði . verið
staddur á þeim stað sem barn-
rnu var rænt, á þeim tíma sem
því var rænt, þar sem ekki
hefði verið hægt að leiða fram
eitt einasta vitni sem hefði sjeð
hann. — Væri því mál sækj-
•enda eingöngu á líkum bygt.
Dómsmálafulltrúi svaraði: —
Þótt við höfum enga sjónar-
votta, þá höfum við lausnar-
fjárkröfuna, stigann, og föt
barnsins, og öll þessi vitni tala
ótvírætt máli sínu.
Movinckel situr.
Oslo, 25. jan. FB.
Við atkvæðagréiðslu í Stórþing-
inu um tillögu verkalýðsflokksins.
er Nygaardsvold bar fram, varð
niðurstaðan sú, að tillagan sem fól
í sjer vantraust á Mowinckelstjórn
ina var feld með 78 gegn 67 at-
kvæðum.
Tillaga bændaflokksins var feld
með 122 atkvæðum gegn 23 og
tillaga hægrimarma var og feld.
Nýja samsteypustjórn er því
ekki hægt að mynda eins og sakir
standa.
Mussolini
tryggír síg enn-l sessí.
Berlín 25. jan. FÚ.
ítalska frjettastofan Agenza
Stefani skýrir frá því,' að full-
komin nýmyndun hafi verið
framin innan ítölsku stjórnar-
innar, og hafi nýir menn verið
settir í öll ráðherraembættin,
nema þau, sem Mussolini gegn-
ir sjálfur.
□agbók.
□ Edda 59351297 = 2.
Veðrið í gær; N-átt um alt land
og 3—7 st. frost. Allhvast og hríða
veður austan lands, en kaldi vest-
an lands og úrkomulaust. Djúp
Jægð er yfir S-Svíþjóð, veldur
hvassviðri og kaldri N-átt á haf-
inu miJJi íslands og Nore^s. Ný
Jægð er að uálgast Grænland suð-
vestan að.
Veðurútlit í Rvík í dag: Hæg
N-átt. Ljettskýjað.
Messur á morgun:
í Dómkirkjunni kl. 11, síra
Bjarni Jónsson; kl. 2 Barnaguðs-
þjónusta, síra Friðrik Hallgríms-
son; kl. 5 síra Friðrik Hallgríms-
son.
I fríkirkjunni, kl. 2, síra Árni
Sigurðsson. ,
! Hafnarfjarðarkirkju kl. 2,
síra Biríkur Brynjólfsson prje-
dikar.
1 Aðventkirkjunni, kl. 8 e. h.
0. Frenning.
Trjesmiðafjelag Reykjavíkur
heldur fund í kvöld, kl. 8V2 í Bað-
stofu iðnaðarmanna.
Otur. Togarinn Otur var í gær
fluttur úr höfninni og var honum
lagt á Kleppsvík.
Þýski togarinn. sem laskaðist
við áreksturinn við „Ver“ í þriðju
dagsverðinu, hefir nú fengið við-
gerð. Skijrið fór lijeðan í gær á
veiðar.
Suðurlandið fór til Borgarnes
í gær.
G-ullfoss er væntanlegur um há-
!egi í dag.
Skemtifundur K. R., fyrir alla
starfandi fjelaga, verður haldinn
annað kvöld kl. 9 í K. R. húsinu.
Til skemtunar verður; Sungnar
aanvísnr, K. R. „kvartett"
svngur nokkur lög, Bjarni Ólafs-
son einsöngur, og að lokum verður
dans stiginn. Ágæt hljómsveit
spilar. Skemtunin er eingöngu
fyrir K. R. fjelaga og aðgangur
mjög ódýr.
Kirkjuritið, heitir nýtt tímarit,
sem Prestafjelag tslands gefur út.
Eru ritstjórar þess Sigurður Si-
vertsen vígslubiskup og Ásmund-
ur Guðmundsson docent. „Kirkju-
ritið“ tekur beint við af „Presta-
fjelagsritinn" og „Kirkjublaði“ og
á að koma 1 þeirra stað, því að
þau verða nú lögð niður. Var það
ákveðið á seinasta aðalfundi
Prestafjelagsins að ritin skyldu
sameinuð á þann hátt. „Kirkju-
ritið“ kemur út 10 sinnum á ári
og er tilgangi þess svo lýst, að
það „vill fyrst ,og fremst vinna
að glæðingu trúarlífsins með þjóð-
inui og að sem mestu samstarfi
milli presta innbyrðis, og presta
og safnaða landsins“, alveg éins
og var tilgangur Prestaf jelags-
ritsins áður.
Dánarfregn. 1 gærmorgun and-
aðist í Dilknesi í Hafnarfirði frú
Halldóra Stefánsdóttir, níræð að
aldn. Hún var móðir Ingvars ís-
i' ■■ j
dals Bymundsonar ög þeirra syst-
kina.
Fermingarbörn Dómkirkjnsafn-
aðarins gjöri svo vel að koma í
kirkjuna í þessari viku, t.il síra
Bjarna Jónssonar miðvikudag 30.
þ. m„ og til síra Friðriks Hall-
grímssonar fimtudag 31. þ. m„
báða dagana kl. 5 síðdegis.
Háskólafyrirlestrar á ensku.
Næsti fyrirlesturinn verður flutt-
ur í Háskólanum á mánudaginn kl.
8 stundvíslega. Efni: Bnsk skáld
frá Tynnyson til Havdy.
Hjónaefni. Kýlega hafa opin-
berað trúlofun sína Kristín Guðna
dóttir, Skarði, Landi, og Árni K.
Jónsson, Lækjarbotnum í sömu
sveit.
Austur yfir fjall er nú ágætis
færð og segja bifreiðastjórar veg-
inn óvenjugóðan á þessum tíma
árs.
Guðrún Eiriksdóttir hefir flutt
lianskasaumastofu sína frá Þórs-
gatu í Austurstræti 5. Eins og
kunnugt er tekur hún að sjer
saum á höuskum eftir máli.’
Leikfjelag Reykjavíkur. Annað
kvöld verður alþýðusjónleikurinn
„Piltur og stúlka“ leikinn í 13.
sinn og hefir aðsókn að leiknum
ætíð verið mikil.
Eimskip. Gullfoss er væntanleg-
úr í dag. Goðafoss var á ísafirði
í gær. Dettifoss er í Hamborg.
Bráarfoss fór til útlanda í gær-
kvöidi kl. 10. Lagarfoss var á
Siglufirði í gær. Selfoss er á leið
til Hull frá Vestmannaeyjum.
Kirkjunefnd dómkirkjnsafnað-
arins hefir ákveðið að bafa „bas-
ar“ í byrjun marsmánaðar, n. k„
til ágóða fyrir kirkjuna, Skorar
hún á konur að styðja starf nefnd
arinnar með gjöfum, og biður þær
konur, sem vilja sinna því, að g^ra
aðvart í Dómkirkjunni (gengið
inn um suðurdyr). Eru konur úr
efndinni þar til viðtals í dag kl.
4—5 eða i síma 2113 á sama tíma.
Farþegar með Brúarfossi til út-
landa í gærkvöldi. Ágiista Sigfús-
son, María Magnúsdóttir, Magnús
Signrðsson, bankastj., Hallgr.
Tnlinius stórkaupm. og frú, Nauna
Korsgaard, H. Riis Ebbesen, Björg
nlfur Olafsson læknir og frú,
Friðþjófur Jóhannsson, Harald
Gudberg kaupm., Þórdís Jónsdótt-
ir, ITnnur Jónsdóttir 0. fl.
Vatnsskortur í Hrísey. í Hríse.v
eru nú ajlir brunnar að þorna,
sem nothæft vatn er í, svo til vand
ræða horfir verði ekki aðgert sem
fyrst. Álitið er að þverrun vatns-
ihs stafi af sprungum neðan jarð-
ar, vegna jarðskjálftanna síðastlið-
ið sumar, enda hafa jarðskjálfta-
kippir fundist þar öðru hvoru
langt fram á vetur. (FU.).
EJdur kviknaði í dag í húsinu
Yíðivöllum lijer i Vestmannaeyj-
um. Slökkviliðinu tókst fljótlega
að slökkva og urðu litlar skemdir
af eldinum, en talsverðar skemdir
urðu af vatni. — Bldurinn kvikn-
Jörðin Melar
i Kjalarnesnreppi fæst til ábúðar í næstu fardögum. Túnið
gefur af sjer 250 hesta, nokkrar nærtækar útheysslægjur.
Ágæt samgönguskilyrði. Sala gæti komið til mála- Semja
ber við Ólaf Bjarnason í Brautarholti eða Halldór Jóns-
son sóknarprest að Reynivöllum, fyrir 20. febr. 1935.
FÍAT.
7 manna Fíat bifreið hefir verið ekið hjer á landi. síð-
astliðið ár frá bílstöð, 30.000 km., 0g hefir bensíneyðsla
orðið að eins frá 11—12 Itr. að jafnaði á hverja 100 km.
Fíat er sterkur.
Fíat er rúmgóður.
Fíat er ódýr í rekstri.
Fíat er ítölsk framleiðsla.
Fíat fæst með góðum kjörum.
Fíat fæst í öllum stærðum.
Lækkað verð.
Aðalumboðsmaður: '
II Egill Vilh)álm§son.
Laugaveg 118. Sími 1717.
aði í legubekk upp á lofti. Talið
er að börn hafi farið þar ógæti-
lega með eld. (25. jan. FÚ.).
Fólksfjöldi Siglufjarðarkaup-
staSar um áramótin var 2511. Fjöl-
mennasta gatan var Lindargata,
en þar búa rúmlega 300 manns,
eða. jafn margt og var í öllu Siglu
f jarðarprestakalli frá Hvanndöl-
um til Mánár fyrir 40 árum. (FÚ).
Áheit á Hallgrímskirkju í Saur-
bæ: Frá ónefndum 5 kr. Afh. af
Sn. J. frá Adda 160 kr„ frá A. F.
L. 10 kr., frá Þ. Á. 2 kr„ frá S. M.
1 kr., frá G. M. 25 kr., frá G. J.
1 kr., frá L. G. 2 kr„ frá N. N.
5 kr., frá K. P. 1 kr„ frá G. J. S.
15 kr., frá tveimur Keflvíkingum
50 kr.
Farsóttir og manndauði í Rvík
vikuna 30. des. 1934—5. jan. 1935
(í svígnrp tölur næstu viku á und-
an): Hálsbólga 48 (46). Kvefsótt
42 (51). Kveflungnabólga 1 (1).
Iðrakvef 3 (13). Taksótt 0 (1).
Skarlatssótt 3 (4). Munnangur 0
(5). Ristill 0 (1). Heimakoma 21
t-0). Hlaupabóla 1 (0). Mannslát
4 (4). Landlæknisskrifstofan. FB.
Farsóttir og manndauði í Rvík
vikuna 6.—12. janúar (í svigum
tölur næstu viku á undan): Háls-
bólga 75 (48). Kvefsótt 57 (52).
Kveflunfenabólga 2 (1). Iðrakvef
2 (3). Taksótt 2 (0). Skarlatssótt
5 (3). Munnangur 3 (0). Heima-
koina 0 (2). Hlaupabóla 2 (1).
Mannslát 5 (4). Landlæknisskrif-
stofan. FR.
Útvarpið:
Laugardagur 26. janúar.
10.00 Veðurfregnir.
12,10 Hádegisútvarp.
12,50 Dönskukensla.
15,00 Veðurfregnir.
18,45 Barnatími: IJpplestur (Dóra
Háraldsdóttir. 10 ára).
19,m Veðurfregnir.
19,20 Erindi; Land og saga, IV
(Einar Magnússon mentaskóla-
kennari).
20,00 Klukkusláttur.
Frjettir.
20.30 Leikrit: „Bónorðið“, eftir
Anton Tsjekov (frú Soffía Guð-
HðDtðklfit,
Kálfskjöt,
Dilkakjöt, *
Rjúpur
og allskonar álegg.
Kjötsalan,
Sólvallagötu 9. — Sími 2.508.
Hangið klöt.
Hangið kjöt!
Hangið kjöt!
Ódýrast best
Barónsbúð,
Hverfisgötu 98. — Sími 1851.
laugsdóttir, Hjörleifur Hjörleiís
son, Þorsteinn Ö. Stephensen).
21,05 Tónleikar: a) Utvarpstríóið;
b) Grammófónn: Lög úr ópw-
ettum.
Danslög ti| kl. 24.
Blóðgjafi.
Maður nokkur í Loudon, 32 ára
að aldri, fekk nýlega heiðurspen-
ing úr silfri fyrir það, að sein-
ustu 5 árin hefir liann 51 sinni
levft. að taka sjer blóð til þess að
dæla því inn í æðar sjúklinga, og
hefir á þennan liátt bjargað lífi
tíu rnanna á ári til jafnaðar. Alls
liefir hann á þennan hátt fórnað
20 lítruni af blóði. Segir liann, að
sjer hafi liðið ágætlega eftir
hverja blóðtöku og nú sje hann
miklu hraustari heldur en hann
yar áður.
/