Morgunblaðið - 09.02.1935, Page 2
2
MORGUNBLAÐIÐ
Laugardagiim 9. febr. 1935
3^1orp,utibIaí)iD
Útgref.: H.f. Árvakur, Reykjavlk.
Ritstjórar: Jón Kjartansson,
Valtýr Stefánsson.
Rltstjórn og afgreiösia:
Austurstræti 8. — Sími 1600.
Auglýsingastjóri: E. Hafberg.
Auglýsingaskrifstofa:
Austurstræti 17. — Sími 3700.
Heimasímar:
J6n Kjartansson, nr. 3742.'
Valtýr Stefánsson, nr. 4220.
Árni Óla, nr. 3045.
E. Hafberg. nr. 3770.
Áskriftagjald:
Innanlands kr. 2.00 á mánuBi.
Utanlands kr. 2.50 á mánuöi.
í lausasöiu: 10 aura eintakitt.
20 aura meö Uesbök.
„í þágu umbótanna“.
------ •
Þegar gagnrýndar eru gerðir
ríkisstjórnarinnar eða einstakra
manna í herbúðum stjórnar-
flokkanna, er viðkvæði þeirra
jafnan eitt og hið sama, að þeir
sjeu að vinna „í þágu umbót-
anna“. Hvaða afbrot sem þessir
menn eru sakaðir um, öll eru
þau unnin ,,í þágu umbótanna!"
Þegar útvarpsstjórinn ljet
hjer um árið „skrifa hjá út-
varpinu“ bílferðirnar fyrir sig
persónulega og sitt heimilisfólk,
átti þetta að vera unnið „í þágu
umbótanna“.
Þegar Hermann Jónasson
drap æðarkolluna út við örfir-
isey „í gáleysi“ og tókst að losa
sig við rjettmæta refsingu fyrir
athæfið, var þetta unnið „í
þágu umbótanna".
Og þegar Jónas Jónsson vann
hinn eftirminnilega eið, var það
einnig gert „í þágu umbót-
anna“.
Er það ekki að skjóta yfir
markið, að telja slík afrek(!)
unnin „í þágu umbótanna"?
En — „eftir höfðinu dansa
limirnir“.
Þar sem Hrifluhöfðingjarnir
telja öll sín afbrot unnin „í
þágu umbótanna“, þarf engan
að undra, þótt lærisveinarnir
:gerí slíkt hið sama.
Þegar mjólkurmálið var til
umræðu í útvarpinu á dögun-
um, höfðu minni spámennirnir,
þeir síra Sveinbjöm Högnason,
síra Ingimar Jónsson og Guðm.
R. Oddsson engar aðrar varnir
fram að færa en þetta sama, að
þeir væru að vinna „í þágu um-
bótanna“!
Það átti að vera „í þágu um-
bótanna“, að brauðgerðarhús
sósíalista hjer í bænum fekk
einkaleyfi til brauðasölu í búð-
um Samsölunnar! ,
Það átti sömuleiðis að vera
„í þágu umbótanna“ ,að setja
það sem skilyrði fyrir því að
stúlkur fengju vinnu í mjólkur-
búðum Samsölunnar, að þær
væru sjerstök deild innan á-
kveðins stjómmálaflokks, Al-
þýðuflokksins!
Og það átti að vera „í þágu
umbótanna“, að pólitískir ang-
urgapar og lýðskrumarar voru
skipaðir í mjólkursölunefndina,
menn sem aldrei höfðu nálægt
mjólkursölu komið og enga
þekkingu höfðu á því starfi!
Svona mætti lengi telja —
alt á að vera gert „í þágu
umbótanna“.
Nú hafa bændur sjálfir feng-
ið nóg af þessu viðbjóðslega
lýðskrumi stjórnardindla. <
Fárviðri skali yfir Suð-
vesturland síðdegis í gær.
Þakplötum rignir yfir
bæinn. - Loftnet útvarps-
stöðvarinnar á Vatnsenda
slitnar. - Síma- og Ijósa-
bilanir. - Fólk ósjálfbjarga
á götunum.
Enskur togari strandar við Dýrafjörð
Övíst um örlög mannanna.
andi út í veðrið. Var konan svo
örmagna orðin, þegar fólkið
kom, að hún gat ekki hreift sig.
Var hún tekin upp í bílinn og
flutt heim.
Símabilanir utan
bæjar.
Um símabilanir út um land
var ekki hægt að segja, en þær
hafa sjálfsagt orðið all-víða,
einkum hjer á Suðurlandi.
Eftir kl. 8 náðist ekki sam-
band á Suðurlandslínunni nema
til ölfusár, því þar fyrir austan
voru brotnir símastaurar. — I
nágrenni Reykjavíkur voru
víða brotnir staurar, en hve
inikil brögð voru að því, gat
landssímastjóri ekki sagt um,
vegna þess, að ekki náðist til
stöðvanna.
Sambandið norður á land var
sæmilegt, en slitrótt til Vest-
fjarða.
Loftnet Útvarps-
. stöðvarinnar á
Vatnsenda slitnar.
Kl. um 71/2 slitnaði loftnet
Útvarpsstöðvarinnar á Vatns-
endá, eíte rjettara sagt leiðsl-
an upp í loftaetið. Stöðvaðist
því útsending frá útvarpinu,
Strax og veðrið lægir, verð-
' ur gert við loftnetið, svo að
væntanlega verður hægt að út-
varpa aftur strax í dag.
Einnig slitnaði stóra netið á
loftskeytastöðinni á Melunum;
en stöðin gat eftir sem áður
haft samband við skip á stutt-
bylgjum.
Um miðaftanleytið í gær skall
hjer á ofsaveður af suðaustri,
Stormsveipsmiðjan var um það
leyti skamt suðvestur af Reykja-
nesi.
Var stormsveipurinn krappur
mjög og fór hratt yfir til norð-
austurs.
Um það leyti var rokið skollið
á um alt Suðurland. En veðra-
brigði voru svo snögg og misvindi
mikið á litlu svæði, að þá var t. d.
rok af suðaustri með 7° hita ,í«
Síðumúla, en í Stykkishólmi og á
norðanverðu Snæfellsnesi var norð
austan hríð með frosti. Á Vest-
fjörðum var um líkt leyti skollin
á blindhríð af norð-norðaustri.
Járnplötum rignir
yfir Austurstræti.
Þegar veðrió var sem mest
urðu menn þess varir að járn-
plötur voru að losna af húsi
Júlíusar Björnssonar, Austur-
stræti 12. Hús þetta stendur
sem kunnugt er, milli tveggja
stórhýsa, húss Jóns Þorláksson-
ar og Stefáns Gunnarssonar. —
Þegar stormur er af suðri
myndast mikill strengurí skarð-
inu milli stórhýsanna.
Þegar járnplötur fóru að
losna á þakinu, leið ekki á
löngu þar til plöturnar þejrtt-
ust út í veður og vind.
Var um skeið lífsháski að
vera á ferli í Austurstræti fyr-
ir járnplöturegni, enda lokaði
lögreglan alveg götunni á nokk-
uru svæði, og tókst þannig að
afstýra slysum.
Slökkviliðsmenn voru fengn-
ir til þess að fara upp á húsið.
Tókst þeim að negla þær plötur
sem eftir voru á þakinu.
- .......................m*MJ
Bændur hafa ekki , .komið
auga á, að verk þessara herra
sjeu unnin „í þágu umbótanna“.
Þeir sjá og skilja, að verkin eru
unnin í þágu pólitískra hags-
munaklíku sósíalistaburgeis-
anna í Reykjavík.
Þess vegna krefjast nú bænd
ur þess, að þessir lýðskrumar-
ar, sem eru að skreyta sín verk
með því að telja þau unnin ,,í
þágu umbótanna“, víkji tafar-
laust og aðrir menn komi í
þeirra stað.
Á nokkurum stöðum öðrum
í bænum losnuðu plötur af hús-
um, en hvergi stórvægilegt og
ekki vissi lögreglan til þess, áð
nein slýs hefðu af hlotist.
Eldur í reykháfum.
Samkvæmt upplýsingum er
blaðið fekk hjá slokkvistöðinni
urðu engir alvarlegir brunar í
bænum í ofveðrinu. Á nokkur-
um stöðum kviknaði í reyk-
háfum og var slökkviliðsmaður
strax sendur á vettvang og
tókst á þann hátt að stöðva
frekari eldsvoða.
Rafmagnsþræðir slitnuðu á
nokkurum stöðum, en' ráfveitu-
monnum og slökkviliðsmönnum
tókst að einangra þræðinga áð-
ur en tjón varð af.
Allir símar slökkvistöðvar-
innar (brunasímarnir) slitnuðu
og var því ekki hægt að ná
til slökkvistöðvarinnar nema
gegnum bæjarsímann.
* . s
Síma- og Ijósabil-
anir í bænum.
Talsverðár bilanir urðu á raf 1
leiðslutti víða um bæinn. Leiðsl-!
an til Vífilsstaða slitnaði og
var ljóslaust á hælinu í 2 tíma |
Götuljósin slokknuðu víða í
bænum, þar bem stauraleiðsla
var. Vesturbærinn, Grímsstaða-
holt og Skildinganes voru að
heita má ljóslaús, einnig tals-
verðar bilanir á gotuljósum í
Austurbænum. ‘Miðbærinn var
eíni bæjarhlutinn, sem hjelt
óskertum sínum götuljósum,
enda er jarðleiðsla um hann
allan.
Fólk ósjálfbjarga
á gÖtunum.
Til merkis um fárviðrið. hjer
á götunum í gærkvöldi má geta
þess, að um 7 leytið feykti veðr-
ið konu um koll í Hafnarstræti;
fjell könan í ómegin og var flutt
heim ti) gýpi/.í bíl.
Vm ffl&'t leyti kom bíll hlað-
inn fólki eftir Vonarstræti. Alt
í einu heyrir fólkið í bílnum
átakanlegt neyðaróp frá konu.
Sjer það þá hvar kona stendur
þar skamt frá og heldur dauða-
haldi í símastaur og var kápa
hennar rifin frá henni og flaks-
Togari i sjávarháska.
Kl. laust fyrir 7 í gærkvöldi
sendi tögarinn „Langanes“ frá
Grimsby út neyðarskeyti, og
kvaðst vera strandaður við
Dýrafjörð, eða svo hjeldu þeir.
Meira heyrðist ekki frá hon-
um. —
En eftir upplýsingum, sem
loftskeytastöðin hjer fekk frá
öðrum enskum togara, „Green
Howard“, frá sama fjelagi í
Grimsby, mun „Langanes“ hafa
strandað við Skagann, austan-
vert við Dýrafjörð, utan til.
Slysavarnafjelagið-hjer hafði
samband víð Vestfirði fram eft-
ir öllu kvöldi í gæfkvöldi, en
nánari fregnir fengust ekki af
strandinu, og enginn vissi þá,
hvort mannbjörg hefði orðið.
Enski togarinn „Green How-
ard“ og fleiri skip ,voru komin
nálægt strandstaðnum, en ekki
þó svo nálægt að þau sæu
strandið, því svartabylur var og
foráttu brim. Þessi skip voru á
20 faðma dýpi, en þorðu ekki
nær landi vegna illviðris og
brims. Skipin gátu því ekkert
aðhafst eins og sakir stóðu, en
ætluðu að bíða og sjá. hverju
fram vindi.
Samkvæmt upplýsingum er
Slysavarnafjelagið fnkk frá Isa-
firði í gærkvöldi var vindur þar
vestra norðaustlægur og álitu
menn þar, að aflandövindur
myndi vera á strandstaðnum.
Bjuggust því Isfirðingar við, að
brimið myndi eitthvað lægja.
Seint í gærkveldi höfðu eng-
ár fregnir bqrist um það, hvort
menn hafi bjargast af „Langa-
4esi“. Þegar enski togarinn
„Green Ho^^f4‘‘ símaði taldi
h^np mikla hættu á ferðum
yegna þesa hve brimið og sjó-
gangurinn var mikill. En Isfirð-
ingar voru eitthvað vonbetri,
töjdu landtöku þarna ekki mjög
vonda. Þó væri ekkert hægt um
þetta að fullyrða, þar eð menn
vissu ekki hvar skipið hefði
strandað.
Hafi „Langanes“ strandað éc
Skaganum, eins og ætlað var,
þá er þar engin bygð núna.
Áður fyr var þarna útræði og
mikil verstöð, en nú er hún
lögð niður og eyðibýli aðeins
eftir á Skaga.
Menn sendir á
strandstaðinn.
I gær náðist samband við
Núp í Dýrafirði, en það mun
vera næsti bærinn við strand-
staðinn er hefir símasamband,
ef skipið hefir strandað út á
Skaga.
Voru þegar gerðar ráðstafan-
ir til þess að senda menn frá
Núpi til þess að leyta að strand-
; inu. Ætluðu þeir að fara. út á
j Skaga með föt, tjöld og mat-
! væli, ef svo vel skyldi hafa til
tekist að strandmennirnir hefðu
komist lífs af. Er 4 tíma ferð
frá Núpi á Skaga.
Voru önnur skip í
sjávarháska?
Fregnir bárust um það til
Slysavarnafjelagsins síðdegis í
gær, að rákettuflug hefði sjest
í áttina til Skerjafjarðar og
einnig hefði heyrst skipsflaut
þaðan. Þetta hvorttveggja hafði
þó aðeins staðið stutta stund og
engar fregnir borist af því, að
skip væri þar í hættu.
Nokkrir togarar frá Reykja-
vík liggja suður á Skerjafirði,
en ekki var sjáanlegt að ne.itt
væri að hjá þeim, enda gat
flautið ekki komið frá þeim, því
þeir hafa ekki „damp“ uppi.
Vonandi hefir hjer aðeins verið
um missýning og misheyrn að
ræða.
Þá barst SlysavarnafjelaginU
einnig fregnir um það, að á
Hjörsey á Mýruitt hefði heyrst
mikið flaut frá skipi, en það
stóð aðeins stuttan tíma, en
hvergi sást neitt til skips þar í
nánd. Við Mýrarnar eru margar
iliætturnar fyrir skip, ef þau vill-
ast af leið eða eru ósjálfbjarga.
En vonandi er, að hjer hafi þó
ekkert orðið að.
Aðrar fregnir hafði Slysa-
varnafjelaginu ekki borist, er
bent gætu til þess, að slys hefði
orðið á sjó.
Háskólafyrirlestrar á ensku. —
Næsti fyrirlesturinn verður í Há-
skólanum á mánudaginn kl. 8
stundvíslega. — Efni: George
Bernard Shaw.