Morgunblaðið - 16.02.1935, Page 4

Morgunblaðið - 16.02.1935, Page 4
4 MORGUNBLAÐIÐ Laugardaginn 16. febr. 1935. KVEHDJÓÐIM OG HEIMILIM — Hver á að heilsa að fyrra bragði? Hver á að heilsa að fyrra bragði, karlmaðurinn eða kvenmaðurinn ? Það er spurning, sem fólk oft ræðir, en er ekki ásátt um. Hjer mun það þó alment tíðkast, að berrarnir heilsi og taki ofan að fyrrabragði, en þó eru margir í vafa, livort það sje rjett. Ung stúlka dönsk sem er því hlynt að stúlkurnar heilsi fyrst, mælir með því á þessa leið í dönsku kvennablaði: Víða erlendis þykir það sjálf- sögð venja, að stúlkumar eigi að heilsa fyrst. Það er m. a. s. talið móðgandi, éf herrarnir leyfa sjer að taka sjer þau rjettindi, að heilsa að fyrrabragði. Það er sagt sem svo, það er stúlkunnar að láta í ljósi, hvort hún kærir sig um að þekkja viðkomandi, eða rjettara sagt, að hve miklu leyti hún vill hafa kynni af honum. Þetta finst mjer bera vott um hærra menningarstig, um sjálf- sagða og eðlilega virðingu fyrir rjetti konunnar. Hún á að ráða, hvort hún vill heilsa eða ekki, þannig að hún sje ekki knúð til þess að heilsa hverjum pg einum náunga, sem hún við eitt eða ann- að tækifæri hefir verið kynt fyrir, þó hún kæri sig ekkert um að end- urnýja liunningsskapinn eða halda honum við, Því að auðvitað er það dónaskapur að taka ekki undir, of herra heilsar. Þegar rætt er um hvor heilsa eigi að fyrrabragði, stúlkan eða pilturinn, er sjálfsagt fyrir stúlk- urnar að vera því hlyntar að það sjeu þær sem lieilsa eiga að fyrra bragði — og þœr eiga líka að fylgja þeirri reglu þegar tækifæri býðst. Enda mun það og þægilegast fyrir herrana! Amerísk fyndni, Fyndinn náungi í Ameríku þyk- ist hafa fundið út hvernig háu hæl arnir urðu td. Hann heldur því fram að stúlkan sem fyrst fór að nota háa hæla hafi áður verið kyst á ennið. Einnig segir hann, að ekki sje mikið að sjá í litlum bæ, en í staðinn heyri maður þess meira. Hrotur. Oft eru hrotur ekki annað en óvani sem má venja sig af. Sje hinn sofandi maður miskunarlaust vakinn í hvert skifti og hann fer að hrjóta, lærir hann brátt að leggja niður þenna hvimleiða són, nema hroturnar stafi beinlínis af veikindum. Þeir, sem gjarnir eru á að hrjóta eiga að hafa heldur hátt undir höfðinu, og helst liggja á hliðinni. Móðirin: Nú gerir þú eins og jeg segi þjer. Sonurinn: Mundu nú eftir því móðir sæl, að þú ert ekki að tala við hann pabba. í l Brúðartrje í „þriðja ríkinu f smábænum Bernhausen í Þýskalandi var innleiddur sá sið- ur á afmælisdegi ,hins þriðja ríkis' að hver og ein brúður skuli á giftingardegi sínum gróðursetja trje. Brúðguminn og börnin í bænum, sem eru stofn „hins þriðja ríkis“, eiga að hjálpa henni við guminn og skólabörnin. Þau eru það. Með tímanum mun þannig í vinnufötum. Á neðri myndinni myndast trjágöng „brúðartrjáa“. Á myndinni, efst til vinstri sjest brúðurin með hjólbörur á leið þangað sem hennar brúðartrje á að standa. Með henni er brúð- 'sjest þar sem stuðningstrjeð r rekið niður og loks sjer maður b'rúðurina gróðursetja trjeð með hjálp barnanna. Matrefðsía. Matseðill fyrir eina viku handa 4 til 6 manns. Sunnudagur: Tómatsúpa með makkarónum. Karbónaði með soðnu káli og brúnuðum kartöflum. Appelsínubúðingur. Mánudagur: Bláberjasúpa með tvíbökum. Soðinn þorskur með kartöflum og sinnepssósu. Þriðjudagur: Kartöflusúpa með steiktu brauði Kjöthringur (úr saltkjöti) með gulrófujafningi. Miðvikudagnr: Hrísgrjónagrautur með soðnum sveskjnm og mjólk. Fiskur með makkarónum og lirærðu smjöri. Fimtudagur: Baunir og kjöt með káli, rófum og kartöflum. Pönnukökur og kaffi. Föstudagur: Áfasúpa með rúsínum. Steiktur fiskur á fati, og kar- töflnr. Laugardagur: Súkkulaðibrauðsúpa. Kartöfubúðingur með .......... smjöri. í þetta sinn birtist matseðdl fyrir eina viku. Að vísu er hjer ekki rúm fyrir allar uppskrift- irnar, og læt jeg nægja þær, sem mjer þykir líklegt að húsmæðrum sjeu ókunnastar. Sinnepssósa. 25 gr. smjörlíki. 15 gr. hveiti. 3 dl. fisksoð og mjólk. 1 tesk. sinnep. Salt eftir smekk. 15 gr. smjörlíki. Sósan bökuð upp og sinnep sett í og soðið í 5 mín. Rjett áður en borðað er er smjörlíkið sett í. og má ekki sjóða eftir það. Kartöflusúpa. 350 gr. kartöflur. 1 I. vatn. 1 púrra. Salt og pipar. 15 gr. smjörlíki. 15 gr. hveiti. Steikt franskbrauð. Kartöflurnar flysjaðar og soðn- ar í soðinu af saltkjötsbeini ásamt púrrunni, þar td þær eru komnar í mauk, síðan nuddað gegnum gatasigti. Smjörlíki brætt í potti, hveiti hrært út í og þynt út með soðinu. Púrran skorin í sneiðar og sett út í. Salt og pipar látið í eftir smekk. Borðaða með steiktu brauði. Fiskur með makkarónum. 1 djúpur diskur soðinn fiskur. 100 gr. makkarónur. 50 gr. rifinn ostur. 50 gr. smjör. 1 hnífsoddur pipar. Salt. 1 cil. mjólk. 1 egg. , Makkarónurnar eru soðnar í saltvatni og skornar smátt. Makka í'ónum og fiski er blandað saman (má nota leifar af gömlum fiski). Þar í er mjólkinni og egginu hrært. Pipar og salt sett í eftir smekk. Osturinn er rifinn smátt og helmingnum er hrært saman j við fiskinn. Eldfast mót eða venju- j legt blikkmót er smurt vel með smjöri. Þar í er fiskurinn settur 1 og smjörið í smábitum yfir. Því 1 sem eftir er af ostinum er stráð yfir. Bakað í ofni í klst. eða þangað til það er ljósbrúnt. Borð- að strax með hrærðu smjöri. Eigi maður leifar af fisksósu, t. d. •steinselju-, sítrónu- eða sinneps- sósu, er ágætt að nota liana í staðinn fyrir smjörið. Súkkulaðibrauðsúpa. 150 gr. rúgbrauð. 1 I. vatn. 25 gr. kúrennur. 1 sítrónusneið. 100 gi'. súkkulaði. 50 gr. sykur. Brauðleifar eru smátt. brytjaðar og lagðar í 1 J. vatn yfir nóttina. Vatnið síað frá og brauðið saxað í söxunarvjel. Soðið í 1 klst. Þá eru kúrennurnar, sítrónusneiðin og súkkulaðið sett í ásamt sykr- inum. Soðið í Vg klst. og stöðugt lirært í. ! Borðað með þeyttum rjóma eða mjólk. Kartöflubúðingur. 2 1. soðnar lcartöflur. y2 1. mjólk. 4 egg. * 100 gr. ostur. VIÐ BAKSTUR. Þegar verið er að baka er slæmt að eiga það á hættu að kökurnar brenni eða bakist ekki. Því er nauðsynlegt að vita nokkurnveg- inn live bökunarofninn er heitur. Það má gera með því að setja ögn af hveiti á hvítt brjef. Sje hveitið orðið dökkbrúnt eftir eina mínútu, er ofninn mjög heitur, sje það ljós brúnt er ofninn heitur, en sje það að eins ljósgult er það sem kallað er hægur eldur í vjelinni. Gula filmstjarnan. Þetta er mynd af Önnu May "Wong, kvikmyndaleikkonu frá Hollywood, sem er heimsfræg fyr- ir listir sínar og leik. Um þessar mundir er hún í Kaupmannahöfn, syngur þar franska og enska söngva á National-Scala, sem er einhver vinsælasti skemtistaður Kaupmannaliafnarbúa. Anna May Wong. Meðan Anna May Wong dvelur í Kaupm.höfn, verða þar sýndar tvær ný.jar kvikmyndir, sem hún leikur aðalldutverkið í, „Gula dansmærin“ og „Alibaba og ræn- ingjar'nir 40“. 50 gr. smjörlíki. Salt. Rrauðmylsna. Osturinn er rifinn. Eggjum, mjólk og osti lirært vel saman. Mót er smurt með smjörlíki og í það stráð brauðmylsnu. Kartöfl- urnar eru skornar í sneiðar og raðað niður í mótið og' salti stráð inn í milli. Þar yfir er eggjablönd- unni lirært. Stráð yfir brauð- mylsnu og smjörlíkisbitar settir hingað og þangað. Balcað í y2 klst. í ofni. Borðað með hrærðu smjöri. Helga Sigurðardóttir.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.