Morgunblaðið - 22.02.1935, Blaðsíða 7

Morgunblaðið - 22.02.1935, Blaðsíða 7
Föstudaginn 22. febr. 1935. MORGUNBLAÐIÐ 7 iímræti Hriflu-Jónasar o g lítt varð vart sjerstaks öldugangs í Faxaflóa að loknum þeim kosn- ingum. Og fram til síðustu kosn- inga hafa þeir Tímapiltar talið fylgi sitt fara þverrandi í rjettu hlutfalli við aukningu þess við þær kosningar. Enn á ný er nú Teynt að halda þessum spádómum áfram. Mjer er sagt að í Alþýðublað- inu hafi birst frásögn af fundin- nm í Stykkishólmi, þar sem mjög sje fagnað fylgisleysi Sjálfstæð- ismanna. Jeg skil vel að þeim bolsum svíði framkoma þeirra sjálfra á þessum fundi. Með eymd- arlegu málþófi og væli, sem stóð langt fram á nótt, reyndu þeir að flæma fólkið úr fundarhúsinu. Höfðu fundarmenn um skeið verið nm 150 manns og fylgi Sjálfstæð- ismanna mjög eindregið. Þrátt fyr- ir það að fjöldi Sjálfstæðismanna hafi eigi fengið sig til að hlýða á raus sósíalista lengur en góðu hófi gegndi, voru allar tillögur Sjálf stæðismanna samþyktar og sú fyrsta þeirra, er þeir rauðliðar töldu vantraust á meirihluta, Al- þingis og ríkisstjórnina, með 45 atkvæðum gegn 9. — Frásögn Alþýðublaðsins af þessum fundi mun vekja almennan hlátur í Stykkishólmi. Þá hafa blöð Hriflu-Jónasar æinnig gert þessa fundi að um- ræðuefni. Telja þeir sveitafund ina hafa verið illa sótta. ann- leikurinn er sá, að öllum þótti fundasóknin furðu gegna, þegar þess er gætt, að bændur eiga vart heimangengt um hávetur vegna mannfæðar, staðhátta og veðráttu. Og Tímamönnum til hugarhægðar skál þeim tjáð, að á engum sVeitafundamia vildi einn einasti máðúr láta hafa sig til þess að verja hinn illa málstað þeirra. Hafa þeir Tímamenn þó hingað til átt sitt aðalfylgi í þessum sveit- um. Sannaðist hjer sem víðast annars staðar í sveitum landsins að bændur eru þess alráðnir. láta eigi lengur teyma. sig undir ok sósíalista. Þessi sömu blöð segja að á Sandi hafi verið feld till. frá mjer im skuidaskilasjóð. Sannleikurinn er sá, að jeg bar enga slxka til- lögu fram. Ennfremur segja þau að samþykt hafi verið till. frá sendimanni Tímaliðsins, Jóni sýslumanni. En Jón bar alls enga tillögu fram. Og á sama hátt er frásögn þessara blaða um önnur fundaafrek Jóns og verður því á Snæfellsnesi aðeins að þeim bros að. Jeg vil svo að lokum geta þess; að fyrri frásagnir Mbl. af fund- umim á Sandi og í Ólafsvík eru í alla staði rjettar. Sjálfstæðis menn voru þar í yfirgnæfand meirihluta og vegna þessa urðu nokkrir rauðliðar til að hleypa þeim fundum upp, svo að eigi varð við komið atkvæðagreiðslum Mega andstæðingar mínir, mín vegna, fiislega gleðjast yfir slíku Fn jeg hefi aldrei fyrr haft ástæðu til að gleðjast yfir almennara fylgi og meiri velvild én jeg varð aðnjótandi í þessari síðustu för minni um kjördæmið. Thor Thors. Hvidbjörnen, danska eftirlits- ■skipið, kom hingað í gær frá Dan mörku. Hljómsveit Reykjavikur. Mozart-tónleikar í Gamla Bíó. Athyglisverðasti þáttur þessara tónleika var klarinettleikur Jó- hanns Krúger, hins nýja kennara Tónlistarskólans og hljómsveitar- innar, sem ljek hjer klarinett- konsert Mozarts mjög vel. Full- komið vald yfir hljóðfærinu og fínn smékkur fór hjer svo vel saman, að unun var að hlýða á leik hans. Það getur tæplega talist heppi- legt að fluttir sjeu tveir sóló-kons- ertar á sömu tónleikunum, jafnveí xótt um svo ólík hljóðfæri sje að ræða sem flygil og klarinett, en auk Klarinettkonsertsins var píanókonsertinn í d-moll á efnis- skránni. Engan getur furðað á því, >ótt yfirburðir klarinettleikarans, sem er þaulæfður tónlistarmaður, væru miklir, hvað þroska snertir, samanborið við píanóleikarann, ungfrú Katrínu Dalhoff Bjarna dóttur, sem (með stuttum fyrir vara) ljek þetta vandasama hlut verk. Hún leysti það þó furðu vel af hendi og fáir munu leika það eftir henni að spila síðan með fyrstu fiðlum. það sem eftir var tónleikanna. Symphonia í Es-dúr og Titus- forleikurinn ráku lestina og hefði vel mátt sleppa t. d. því síðar- nefnda tímans vegna. Dr. Mixa vinnur markvíst að þroska liljómsveitarinnar og tek- ur hún jöfnum og stöðugum fram förum undir handleiðslu hans, enda er hann ágætur stjórnandi nákvæmur, smekkvís og röggsam- ur. — P. í. Innbrotið hjá Blöndahl upplýst. Lögreglan hefir handsamað tvo unglinga 13 ára gamla. Þeir hafa játað á sig innbrot það, sem fram- ið var í Sælgætis- og efnagerðina Magnús Th. Blöndahl h.f., um seinustu helgi. Þeir brutust inn í skrifstofuna á sunnudagskvöld kl. 7—8, ekki á laugardagsnótt, eins og haldið var. Ekkert fjemætt höfðu þeir fje- lagar upp úr innbrotinu, nema eitthvað smávegis af sælgæti. □agbók. I. O.O. F.l = 11622287* = Veðrið í gær; Stormsveipurinn er nú milli Færeyja og Noregs og hreyfist hægt austur eftir. Hjer á landi er NA-átt og er úrkomu- laust á S- og SV-landi, en hríðar- veður um allan N- og A-hluta landsins. Sunnanlands er 3—4 st. frost en 5—7 st. frost nyrðra. Veðurútlit í Rvík í dag: NA- og A-kaldi. Skýjað en xírkomu- laust. Guðspekifj elagið. Reykjavíkur- stúkan. Fundur í kvöld kl. 8%. Efni: Draumar. — Gestir. M.A--kvartettinn syngur í Hafn- arfirði í kvöld, kl. 8y2. Á sunnu- daginn kemur syngur hann hjer í Nýja Bíó kl. 3. Skátaskemtun. Hin árlega skemt.un Reykjavíkurskátanna verður haldin í kvöld í Iðnó. Að- göngumiðar fást í Bókhlöðunni við Lækjargötu. Frá Akranesi er blaðinu skrifað: Síðastliðna viku hafa bátar róið alment og fiskað sæmilega. Er nú alment farið að salta, þó það sje ekki efnilegt framundan hvað xað snertir. Er nú enginn leikur að fást við framleiðslu í þessari grein á þessu landi, því ef nú ætti að fara að takmarka veiði- eða verkunarleyfi, þá er eins gott að setja strax öll skip í naust, því ein mitt á þessum óvenjulega afla fram yfir gamlar venjur, hefir xetta einhvernveginn haldist á horriminni síðustu ár. Meðal farþéga á e.s. Lyra, 19. þ. m. var ungur íselndingur, Giss- ur Elíasson, sonur Elíasar Bjarna- sonar kennara í Rvík. Gissur hefir dvalið í Karlstad í Svíþjóð, síðan vorið 1933 og lært smíði orgel- harmonía, og einnig stillingu og aðrar viðgerðir á píanóum og flygelum. Hann hefir allan tímann annið hjá hinu alkunna hljóðfæra- firma, J. P. Nyströms Orgel & Pianofabrik í Karlstad. Eimskip. Gullfoss kom til Leith í gær. Goðáföss er á leið til Vest- mannaeyja frá Hull. Brúarfoss er væntanlega á Vopnafirði. Déttifoss er á leið til Hull frá Vestmanna- eyjum. Lagarfoss er í Kaupmanna höfn. Selfoss fór frá Vestmanna- eyjum í gær á leið til Aberdeen. Þýskur tog-ari kom hingað fyrradag með lík eins skipverja. Hafði manninn tekið út, meðan togarinn var að veiðum, en líkið kom litlu seinna upp í vörpunni. Manchester City, enskur togari, kom í gær með veikan mann og lítilsháttar bilaður. Bisp, flutningaskip, fór í gær með fiskfarm áleiðis til útlanda. Lyra fór í gær kl. 6 áleiðis til Bergen. B.v. Hafstein kom í gærmorgun af veiðum með 2400 körfur fiskj- ar. Skipið fór samdægurs með afl- an áleiðis til Englands. Suðurland fór til Borgarness í gærmorgun. Backworth, kolaskip, sem hjer hefir verið undanfarið fór í gær. B.v. Kópur kom frá Englandi í gær. F rakkneski sendikennarinn, Mlle Petibon flytur í kvöld kl. 8 fyrirlestur með skuggamyndum í en háskólanum. Efni: ,,La Bretagne“. f stjórn vinnuiniðlunarskrifstofu voru þeir kosnir á bæjarstjórnar- fundi í gær. Ragnar Lárusson fátækrafulltrúi og Jón Baeh. M. A. kvartettinn söng fyrir sjúklinga í Landspítalanum á þriðjudaginn. Hafa þeir beðið Morgunblaðið að flytja kórnum kærar þakkir fyrir komuna og skemtunina. Kyrlát ástleitni heitir rnynd sem Nýja Bíó sýnir í fyrsta sinn í kvöld. Myndin er sænsk og aðal- hlutverk leikur Tutta Bentzen- Rolf, sem bíógestum er góðkunn af leik sínum „Við sem vinnum eld húsverkin“, og fleiri sænskum myndum. Mynd þessi hefir verið sýnd um öll Norðurlönd við feikna aðsókn og er sýnd enn, þótt bráð- um sje ár liðið síðan hún kom á markaðinn. Sænskar gamanmyndir eru fyrir löngu búnar að vinna sjer hylli bíógesta hjer í bæ, og mun þessi síst verða til að spilla því áliti. Dronning Alexandrine var vænt anleg til Vestmannaeyja kl. 7 í morgun, og hingað í kvöld. Skipið lá til drifs meiri hluta dogs í gær, sökum veðurs. Tveggia daga tækifæri. Með hverjum 5 króna kaupum gef jeg 5 góðar appelsínur. Að eins gegn staðgreiðslu. Ávastabúðin (við Óðinstorg). Týsgata 8- Sími 4268. Fyrirligg j andi: Rúsínur, 2 tegundir. Kúrennur — Fíkjur, Bláber - Súkkat. Eggert Kristidnsson & Co. Síml 1400. Höfunwu^öluver^afvið- tækium, sem vjer seljum með tækifærisverði. Viðtækjaútsalan, Tryggvagötu 28- Strætisvagnar Steindórs þykja ágætir. Akið í þeim til I Hafnarfjarðar. Fimtugsafmæli á í dag frú Katrín Guðmundsdóttir, Bergþóru- götu 29. Framhalds-aðalfund heldur Mál- arasveinafjelag Reykjavíkur í Hótel Borg á sunnudaginn kemur. Útvarpið. Eftir ítrekaðar óskir útvairpshlustenda verður Ljenharð- ur fógeti leikinn í útvarpið í annað sinn annað kvöld kl. 8%. Aðalhlutverkin leika Þóra Borg, Soffía Guðlaugsdóttir, Gunnþór- unn Halldórsdóttir, Haraldur Björnsson, Ragnar E. Kvaran, Friðfinnur Guðjónsson, Valdimar Helgason, Viðar Pjetursson og Tómas Hallgrímsson. Leikstjói'i Haraldur Björnsson. Til Hallgrímskirkju 1 Saurbæ: Áheit frá Robert Elíassyni Sandi 10 kr., frá Þórunni Jónsdóttur 2 kr., frá Hallgrímsnefnd í Lög- mannshlíðarsókn, ágóði af skemt- un 30 kr., frá sömu nefnd áheit frá tveim konum 20 kr., frá Hall- grímsnefnd Siglufjarðar, ágóði af skemtun, 149 kr., frá sömu nefnd gjafir frá einstökum mönnum 15 kr. Kærar þakkir. Ól. B. Björns- son. Útvarpið: Föstudagur 22. febrúar. 10,00 Veðurfregnir. 12.10 Hádegisútvarp. 12,50 Þýskukensla. 15,00 Veðurfregnir. 18,45 Erindi Búnaðarf jelagsins: Um kornrækt (Klemens Krist- jánsson kornyrkjumaður). 19.10 Veðurfregnir. 19,20 Þingfrjettir. 20,00 Klukkxxsláttur. Frjettir. Spftkfeitt k)ot aí ful’orðnu fje á 40 sura % kg. í frampöi'tum og 50 aura í lærum. Besía saltkjötið, sem til bæjar- ins hefir flutst, fæst í undirrit- aðri ve.slun. Alt stnt heim# Verslan Sveíns Jóhannssonar, Bergstaðastræti 15. Sími 2091. 20,30 Kvöldvaka: a) Jón Sigurðs- son skrifstofustj.: Upplestur; b) Steingr. Matthíasson læknir: Endurminningar um Gröndal, Steingrím og Matthías (frá Ak- ui'eyri); c) Jochum Eggertsson : Gömul ferðasaga. — Ennfremur íslensk lög. Freknóttur piltur. Gistihús eitt í Omaha auglýsti eftir freknóttum dreng til scndi- ferða. Danskur drengur varð fyr- ir valinu. Hann hafði 693 freknur í andlitinu, en hann sagði, að það væri aðeins vetrarfprðinn. A sumrin hefði hann mikiu fleiri. Rottumar átu fjeð. Bóndi' nokkur í Arnhem í Hol- landi hafði ekki traust á banka þeim, sem hann hafði sparifje sitt í. Hann tók því inneign sína út og geymdi hana í kassa upp' á þaklofti sínu. Eii einn góðan veð- urdag, þegar hann fór að gæta fjárins, uppgötvaði hann að rott- urnar höfðu etið 15.000 kr. í seðl- xxm.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.