Morgunblaðið - 23.02.1935, Qupperneq 3
Laugardginn 23. febr. 1935.
MORGUNBLAÐIÐ
3
SSSJí
Mótsagnirnar og staðleysurnar
\
i rógsaðferð Hriflunga á hendur Thor Jensen.
Ofsóknirnar á eiganda Korp-
úlfsstaðabusins halda áfram, og
vekja vaxandi andstygð allra
vitiborinna manna í öllum
flokkum. Thor Jensen hefir
aldrei gefið sig að stjórnmála-
deilum og dægurþrasi. Hann hef
ir gefið sig óskiftan að lausn
erfiðustu vandamála fátækrar
og fámennrar þjóðar, og reynst
henni þarfari en flestir sam-
tíðarmenn hans.
Þessi maður brýst á barns-
aldri úr heimahögum. Fátækur
og,.föðurlaus kemur hann á
f jórtánda ári hingað til íslands,
án annars veganestis en hæfi-
leika og áræðis. — Þessir eig-
inleikar hafa markað öll spor
hans á lífsleiðinni og jafnframt
markað spor í sögu íslensku
þjóðarinnar sem rógur og níð
öfundsjú'kra og heiftrækinna
smásálna fá aldrei afmáð.
Þjóðin þekkir æfistarf Thor
Jensen. Á sviði sjávarútvegs
var hann mikilvirkur; og eru
þó ef til vill landbúnaðar afrek
hans mest. Hann hefir verið
skáld jarðræktarinnar, trúboði
frjósemi íslenskrai moldar. Ó-
teljandi bændur hafa öðlast
aukna trú á lífsstarf sitt, ein-
göngu við það að skoða rækt-
unina á Korpúlfsstöðum, og
Búnaðarfjelag Islands hefir að
verðleikum gert hann heiðurs-
fjelaga sinn.
Ekki er það vitað, að Thor
Jensen hafi í ræðu eða riti, og
ekki heldur í verki gert á nokk-
urs manns hlut. Samt sem áð-
ur má nú lesa hverskonar sví-
viroingar um hann í blöðum
stjórnarinnar, og engu síður í
þeirri útgáfunni, sem ætluð er
bændastjett landsins.
Smávægileg óhöpp, sem kom-
ið hafa fyrir á búum hans, eru
gerð að átyllu fyrir svikabrigsl-
um á hendur honum. Talað er
um ,,mjólkurblöndun“, „flösku-
svik“ o. fl. Eru þó óhöpp þau
sem svipur hjá sjón hjá því,
sem hent hefir Hjeðinn Valdi-
marsson, að ekki sjeu nefnd
kaupfjelög Sigurðar Kristins-
sonar á Austur- og Norð-aust-
urlandi, en hjá þeim reyndist
nær hver vog röng, nær hvert
lóð of lítið og jafnvel kvarð-
amir voru of stuttir. Er þó
ekki vitað að þeir hljóti ámæli
fyrir meðal stjórnarliða.
Og enn er hert á rógnum.
Gefið er í skyn, að hann hafi
átt sviksamlegan þátt í
slæmri afkomu fjelags, sem
hann ásamt öðrum stjórnaði,
og bjargað sjer út úr klípunni
með ,,minnisleysi“. Er saga sú
gersamlega upplogin frá rót-
um.
Samtímis er svo reynt að
grafa undan búrekstri Thor
Jensen með hverskonar brögð-
um. Mjólkurlögin eru fyrsta
sporið. Án nauðsynjar og utan
við höfuðtilgang laganna, er
svo um hnúta búið, að það er
a.m.k. hægt að banna Thor Jen-
sen að selja mjólk sína ógeril-
sneydda, en þannig hefir hún
að makleikum unnið hylli
húsmæðra í Reykjavík. Og nú
loks er með ráðherra-úskurði
ákveðið að Korpúlfsstaðamjólk
megi ekki vera neysluvara,
nema blönduð mjólk frá hundr
uðum annara heimila.
Með þessu er brotin hugsjón
Thor Jensen, sú hugsjón, að
gefa neyterdum kost á því, að
fá ógerilsneydda mjólk sem þó
sje örugg frá heilbrigðissjón-
armiði.
Mjólkurlögin og núveranflij
framkvæmd þeirra skaða Tlior
Jensen um marga tugi þúsunda
á ári, og neyða hann ef til vil'l
til þess að hætta búrekstri. —
Fari svo, ætti heift þeirra
manna, sem hann hefir aldrei
lagt illt til, að vera svalað. En
þá er eftir að róa almenning,
sem krefst þess að fá áfram
að njóta ávaxtanna af Grettis-
taki Thor Jensen á Korpúlfs-
stöðum.
Sennilega er það í því skyni
gert að hafinn er ófyrir-
leitinn atvinnurógur á búrekst-
ur Thor Jensen. Síðasta ,dæmi
þess er greinin „Hvernig er
Korpúlfsstaðabúið" í dagblaði
Tímamanna. Þar er skýrt frá
því, að nefnd íróðra manna,
hafi athugað öll mjólkurbúin,
og síðan birtar aðfinslur nefnd
arinnar við Korpúlfsstaða-
mjólkurbúið. Með þessu á að
sanna hve ljelegt það sje. Ekki
er þess með einu orði getið að
hin mjólkurbúin sjeu aðfinslu-
verð, enda verður að játa, að
rógberunum var vorkun, því
með slíkri upplýsingu var auð-
vitað rógurinn að engu orðinn.
En sannleikurinn er sá, að öll
mjólkurbúin sæta aðfinslum frá
sömu skoðunarmönnum, ýmist
svipuðum eða meiri en Korp-
úlfsstaðamjólkurbúið. Þá er og
reynt að smeygja því inn í
huga lesenda, að búið á Korp-
úifsstöðum sje sama og mjólk-
urbúið, til þess að reyna að
gera að engu vottorð Hannesar
dýralæknis, sem segir, að „við
nákvæma rannsókn á . öllum
kúm frá kúabúum Thor Jen-
sen“ hafi komið í ljós, að
„kúastofn þessi er hinn örúgg-
asti og ákjósanlegasti til fraim
leiðslu heilnæmrar ungbarna-
mjólkur", „hirðing og fóðrun
skepnanna er í hinu frábæri-
legasta lagi og hreinlæti hið
fullkomnasta“. Og loks segir
Hannes dýralæknir um húsa-
kynni kúnna ,,að hvergi hjer-
lendis og tæpast erlendis mun
vera eins vel til þeirra vandað
og á búum Thor Jensen“.
Fram hjá öllu þessu er geng-
ið, og þó raunar ekki, því í
dagblaði Tímamanna segir Jón-
as Jónsson frá Hriflu um þessi
húsakynni: „úr öllum fjósum
hans (þ. e. Thor Jensen), emn-
ig þeim, sem álitin eru lítt hæf
fyrir kýr.“
Lýsing Hannesar Jónssonar
er rjett lýsing á búinu á Korp-
úlfsstöðum. Hitt er annað mál,
að við mjólkurbúið, þ.e. vinslu-
stöðina, hafa verið gerðar smá-
vægilegar aðfinslur.
Svona er nú vopnaburðurinn
gegn Thor Jensen. En til frek-
ari skilningsauka skál nú birt
orðrjett úr skýrslu áðúrgetrnna
skoðunarmanna, hókkfár áf
þeitn aðfinslumj sem þeir géfa
um hin mjólkurbúin, sem steíja
mjólk hingað tl Reýkjávikuf:
' ' j I. 1 * i ':v
„Mjólkurbústjófiíih ‘ 4 hefir
skýrt osS frá að váthíð'fí’á þess-
um brunni sje mjÖg blandað
óhreiniudum og ryðij sem erf-
Stt sje að hréinsa úr, og auk
þess hafi þáð reynst of lítið“.
H. '
Viðhald á húsum og vjelum
verksmiðjunnar virðist vera
mjög ófullnægjandi. Gólf húss-
ins eru víða skemd og slitin,
og ýmsar aðrar nauðsynlegaf
viðgerðir hússinu til viðhalds
hafa ekki verið gerðar. Loft-
ræsting í húsunum er mjög
ófullkomin.
Umgengni og hreinlæti: Við-
víkjandi þessu teljum vjer að
allmikið skorti á, að hjer sje
fuljnægt þeim kröfum, sem
gera þarf á fullkominni mjólk-
urvinslustöð.
III.
Umgengni, og -þreinlæti. I
sambandi við þennán lið skal
það tekið fram, að loftræst-
ing er mjög ófullnægjandi í
mjólkurmóttöku, dunkaþvotta-
lclefa, flöskuþvotta- og áfylling-
afklefa. Þetta orsakai* að loft
og jafnvel veggir þessarar her-
bergja eru mjög blautir, og er
því ekki hægt að viðhafa það
hreinlæti, sem nauðsynlegt er
á þessari mjólkurvinslustöð“.
Hjer er nú sýnishorn af því
sem sagt er um hin mjólkur-
búin. Um það, hvérsu alvar-
lega mjólkurnefnd og ríkis-
stjórn taka þessu, geta menn
dæmt á því, að nú hafa þessi
,,yfirvöld“ skipað svo fyrir, að
öll • mjólk skuli gerilsneydd í
stöð M. R., en síðasta aðfinslan
er um þá ^töð, og þar er sagt
að ekki sje „hægt aS viðhafa
það hreinlæti sem nauðsynlegt
er“, fyr en umbætur hafi farið
fram, en enn hefir ekkert í
því verið gert.
Morgunblaðið veit, að stöð
M. R. er af fullkomnustu gerð
í einu og öllu, og tekur því ekki
aðfinslur þessar of alvarlega.
En því eru þá samskonar að-
finslur gerðar að rógsmáli á
hendur Korpúlfsstaða-mjólkur-
búinu?
Hvort vilja þeir Sveinbjörn
Högnason, Egill og Guðmundur
R. Oddsson heldur kyngja lyg-
unum um Thor Jensen og at-
vinnurógnum á hendur honum,
eða Viðurkenna, að þeir hafa
knúð Hermann Jónasson ráð-
herra til þess að skipa svo fyr-
ir, að Reykvíkingar fái ekki
mjólkurdropa nema hann sje
Húsmæðra-
fjelagsfiindur
fi €amla Bíé fi dag kl. 3.
RriðandS mðl ? dinskri.
Konnr mæti stnndvislega.
áður „hreinsaður“ í stöð þar
sem „ekki er hægt að viðhafa
þ'áS ’hréinlæti, sem' háúðsýnlegt.
er“?
Nei, brigslið, níðið og at-
vinnurogurinn u«r Thör Jénsen
keyrir svo úr hófi, að í öllum
kvikindishætti Jónasar Jónsson-
ar er fátt verra. Þýkir rjett að
Ijúka þessum línum með því, að
minna þann mann á, að nú þeg-
ar hann á að hefja fundahöld
með dönskum gestum, þá færi
best á að hann legði niður fyrri
venjur, að skríða í duftinu fyr-
ir þeim eingöngu af því, að
þeir eru danskir, úr því hann
gerir það að svívirðingaefni á
Thor Jensen, að hann er
danskur að ætt.
Þmgtífiiindi.
Sveilasljérnar-
kosningar.
Frumvarp stjórnarinnar um
sveitarstjórnarkosningar var til
1. umr. í Nd. í gær.
Þegar atvinnnmálaráðherra
hafði fyígt frumvarpinu úr
hlaði með stúttri ræðu, kvöddu
sjer hljóðs þeir Thor Thors,
Pjetur Ottesen og Jón Pálma-
son og gerðu athugasemdir við
frumvarpið.
Höfðu þeir einkum það að
athuga, að fyrirskipuð væri
hlutfallskosning í sveitum, í
stpð þess aðeins að heimila þá
kosningaaðferð. Bentu þeir á,
að það væri ýmsum erfiðleik-
um bundið, að hafa hlutíalls-
kosningar í fámennum sveita-
hreppum og að þessu fylgdi
nokkur kostnaður og fyrirhöfn.
Myndi rjettara að láta sveit-
irnar sjálfráðar um það, hvort
þær,yjldu hafa þessa kosninga-
aðferð éða aðra. P. Ottesen
fann einnig sjerstaklega að því,
að samkvæmt frumvarpinu
ætti hreppsnefnd að kjósa sýslu
nefndarmann; nú væru sýslu-
nefndarmenn kosnir á almenn-
um hreppsfundi og væri það
frjálslegra og heilbrigðara.
Frumvarpinu var vísað til
allsherjarnefndar.
Afnánn sjálfs-
eignabýla.
Frumvarp þeirra fjórmenn-
inga (H. Vald., Bergs J., Páls
Zoph. og St. Jóh. Stef.), um
bann við sölu þjóð- og kirkju-
jarða kom einnig til 1. umr.
í Nd. í gær.
Frumvarp þetta mætti harð-
vítugri mótspyrnu frá þeim P.
Öttesen, Guðbr. ísberg, Sigurði
Kristjánssyni og Hanínesi Jóná-
syni. En þeir Hjéðinn Vald.,
P. Zoþh. og Hermann landbún-
aðarráðherra(!) vöíðú þetta
sameiginlega afkvæmi rauðu
fíokkanna, sem á að vera
fyrsta skrefið til afnáms
állrar sjálfsábúðar í landinu og
þjóðnýta allar jarðir. Sagði
Hjeðinn, að það væri eitt samn-
ingsatriðið milii stjórnarflokk-
anna að þetta frumvarp yrði
að lögum á þessu þingi og þvi
játaði landbúnaðarráðherrann.
Auðvitað hafa stjórnarflokk
arnir það á valdi sínu, að sam-
þykkja frumvarp þetta. En það
kom berlega í ljós í gær, að
málið fær ekki greiðan gang
gegn um þingið, svo kröfug-
lega tóku andstæðingar frum-
varpsins á móti því við 1. um-
ræðu og gat engum dulist, er
á hlýddi, að þeir fóru með full-
kominn sigur af hólmi í um-
ræðunum.
Umræðunni varð ekki lokið.
Ný þingmál.
Hannés Jónsson og Magnús
Torfason flytja enn á hý frum-
varp um breyting á lögum nr.
79, 1933, um heimildir til ým-
issa ráðstafana vegna fjár-
kreppunnar.
Samkvæmt frumvai’pi þessu
skal ríkisstjórninni vera heim-
ilt að greiða árlega úr ríkis-
sjóði alt að 2% af vöxtum
fasteignalána og lána gegn af-
gjaldskvöð þeirra manna, er
reka landbúnað sem aðalat-
vinnuveg, þó ekki meira en svo,
að lántakandi greiði sjálfur
2% vöxtu af lánum til nýbýla
frá byggingar- og landnáms-
sjóði og 3 % af lánum til end-
urbygginga íbúðarhúsa í sveit-
um, en 4% af öðrum fasteigna-
lánum.
Frumvarp samhljóða þessu
fluttu sömu menn á síðasta
þingi.
Flugmálaráðuneytið
brcska kaapír fltig-
vjel þeírra ScoUs
og Blacks.
London 22. febr. FÚ
Breska flugmálaráðuneytið
hefir nú keypt flugvjel þá sem
þeir Scott og Campell Black
notuðu þegar þeir settu met
sitt í fluginu milli London og
Melbourne. Flugvjelin heitir
Grosvenor House.
\
I