Morgunblaðið - 02.03.1935, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 02.03.1935, Blaðsíða 6
0 MORGUNBLAÐIÐ Laugardaginn 2. mars 1035.. Nýtt ttantaljfit. Dilkakjöt, Rjúpur, Grænmeti i i og allskonar álegg. HiOfsalon. Sólvallagötu 9. Sími 2303. Stórt kislloraplOss í miðbænum, nálægt höfn- inni, er til ligu nú þegar. Er hentugt fyrir iðnrekstur eða vörugeymslu. Sigurbór lónsson. úrsmiður. Sími 3341, milli 12—2 og 7—9 Viðsklftamenn >orir eru vinsamlega beðnir að panta til stmnudagsins fyrir kl. 4 í dag, það sein á að senda heim. Haupllelag Borgfirðlnga. Sími 1511. i BEYNIÐ okkar ágætu lrinda- og hrossabjúgu. Milnersbóð, Laugaveg 48. Sími 1505. SplkfeMt kföt af fulíorðnu fje á 40 aura % kg. f frampórtmm og 50 aura í lærum. Bésta saltkjötið, sem J1 bæjar- ins hefir flutst, fæst í undirrit- aðri ve.slun. Alt stnt beim, Versltm Sveíns Jóhannssonar, Bergstaðastræti 15. Sími 2091. Biðjið ávali um hið beata. Nýkomið: fsl. smjör og valdar danskar kartöflur á kr. 9,75 pokinn. Smjörlíki 0,65 og allar aðrar vörur með tilsvarandi.lágu verði Jóhannes Jóhannsson, Qmndarstíg 2. Sími 4131. Happdrætti Háskólans hefir lánast vel. Gróðinn fyrsfa árið ÍIO þús. krónur. Fyrirællanir þessa árs. í gær gaf dr. Alexander Jó- hannesson blaðamönnum eftir- farandi upplýsingar um Happ- drætti Háskólans. Happdrættið hefir nú starf- að í eitt ár, og 11. þ. m. hefst fyrsti dráttur á þessu ári. Þegar happdrættið tók til starfa í ársbyrjun 1934, var alt í óvissu um sölu happdrættis- miða og enginn vegur að gera sjer grein fyrir veltu happ- drættisins. Lögin ákveða tölu hlutamiða og vinninga: 25000 hluti og 5000 vinninga, eða alls 1 milj. kr. veltu og 1 milj. og 50 þús. í vinninga. Það var bersýnilegt, að yrði salan mjög lítil, gat hætta orðið á því, að andvirði happdrættismiða hrykki ekki fyrir reksturskostn aði og vinningum, ef happdrætt ið yrði mjög óheppið með stærstu vinningana. Hins veg- ar hafði happdrættið engan sjóð að grípa til, ef illa færi. Þess vegna var gripið til þeirr- ar varúðarráðstöfunar fyrsta árið, að selja aldrei meira en helming af hverju númeri, svo að happdrættið ætti a. m. k. helming í hverjum vinningi. Með þessu móti átti að vera girt fyrir það, að happdrættið gæti komist í greiðsluþrot, hversu mjög sem óhepnin elti það í dráttunum, ef nokkur þátttaka yrði á annað borð. Það fór nú svo, að salan varð mun meiri heldur en búist hafði verið við, eða nálega 690 þús. kr. Reiknað í fjórðungs- 'hlutum varð salan í 1. flokki 42642 fjórðungar, komst hæst í 3. flokki, 45089 fjórðungar, og í 10. flokki voru seldir 45080 fjórðungsmiðar. Hjer er stutt yfirlit yfir söluna: Reykjavík 1. fl. 28030 14 Akureyri------------2415 — Hafnarfjörður-------2117 — Vestm.eyjar--------- 1000 — ísafjörður---------- 900 — Siglufjörður-------- 800 — Akranes------------- 700 — Keflavík------------ 654 — Reykjavík 10. fl. 28317 14 Akureyri------------ 2694 — Hafnarfjörður------- 2280 — Vestm.eyjar---------1173 — ísafjörður----------1108 — Siglufjörður-------- 875 — Akranes------------- 737 — Keflavík — — 696 — Á þessum 7 stöðum seldust því í 1. fl. 8588 og í 10. fl. • 9563 fjórðungsmiðar. í öllum öðrum umboðum, 45 að tölu, seldust í 1. fl. 6024.og í 10. fl. 7200 fjórðungsmiðar samtals. Af þessu sjest, að Reykjavík og nágrenni heunar á lang- drýgstan þátt i viðskiftunum við happdrættið, enda hefir þar verið gert mest til þess að nalda því að mönnum. Af tekjum happdrættislns fara 70% i vinninga og 7% í sölulaun til umboðsmanna. Reksturshagnaður á síðastliðnu ári er yfir 110.000 kr. Á þessu ári verður sú breyt- ing, að settir eru í umferð heil- ir og hálfir hlutir, auk fjórð- unganna. Heilu hlutirnir eru nr. 1—500, 5001—5500, 10001 —10500, 15001—15500, 20001 —20500. Hálfu hlutimir eru nr. 501—1500, 5501—6500, 10501—11500, 15501—16500, 20501—21500. Á happdrættisráðinu hefir orðið nokkur breyting, og er það nú skipað þannig: Dr. Páll Eggert Ólason skrifstofustjóri formaður, Ólafur Sveinsson frá Eskifirði, Ragnar Kvaran skrif- stofustjóri, Ragnar Ólafsson lögfr. og Torfi Jóhannsson stjórnarráðsfulltrúi. Til viðbótar þessum upplýs- ingum gat dr. Alexander Jó- hannesson þess, að árangur happdrættisins hefði verið svo góður, að nú þegar væri farið að hugsa fyrir Háskólabygg- ingu. Væri henni þegar valinn staður fyrir sunnan stúdenta- garðinn, og hefði húsameistara ríkisins verið falið að gera upp drátt að byggingunni. Væri gert ráð fyrir því að Háskóla- byggingin muni kosta alt að 800 þús. króna, og rannsóknastofa hans í þágu atvinnuveganna muni kosta alt að 200 þús. kr., eða öll byggingin, sem happ- drættið á að standa undir, muni kósta hartnær eina milj. króna. Rannsóknastofa Háskólans í þágu atvinnuveganna, verður fimta deild Háskólans þegar hún kemst upp. Bygginganefnd Háskólans er skipuð fimm mönnum. Forseti hennar er dr. Alexander Jó- hannesson, en hinir nefndar- mennimir eru kosnir hver fyrir sína deild Háskólans: Ólafur Lárusson fyrir lagadeild, Sig- urður Nordal fyrir heimspeki- deild, Magnús Jónsson fyrir guðfræðideild og Guðmundur Hannesson fyrir læknadeild. Nýir ávexfir. Appelsíntir. Epli. Bananar. Hiðursoðnlr áuexiir: Pemr. Ferskjur. Apricots. Fíkjiir. BL Ávextir. m Bókasafn Dr. Finns Jónssonar prófessors. Prófessor Finnur Jónsson ánafn- aði Háskóla íslands bókasafn sitt að sjer látnum, með brjefi dag- settu 3. apríl 1909. Bókasafnið var sent hingað frá Kaupmannahöfn síðastliðið haust og hefir því nú verið komið fyrir í lierbergi í suðurhlið þinghússins, þar sem áður var lesstofa stú- denta, og verður það herbergi nú notað sem kenslustofa og vinnu- stofa fýrir stúdenta í norrænum fræðúm. Bókasafn þetta er mjög merki- legt. Er það 7—8000 bindi og þar á meðal margar fágætar bækur, eins og t. d. orðabók Guðmundar Andrjessonar (prentuð 1683), text- ar íslenskra fornrita (þar á meðal .,Margfróðir söguþættir“, útgefn- ir 1756, jiar sem er fyrsta útgáfa Grettis sögu). Þá er meðal fjór- blöðunga og tvíblöðunga mörg dýr og vönduð. verk, ljósprentað- ar handritaútgáfur, nmaverk Bug- ges, Wimmers 0. fl. En það sem er ef til vill dýr- mætast í þessu saí'ni, eru sjer- prentanir um íslensk og norræn málefni, sem rithöfundar um alla álfu, sendu dr. Finni Jónssyni. Bókasafni dr. Finns Jónssonar raðar dr. Einar Ól. Sveinsson. í gær var blaðamönnum sýnt þetta bókasafn. Gátu þeir þess þá báðir, dr. Aelxander Jóhannesson og dr. Einar Ól. Sveinsson, að ef safninu bættist bókagjafir frá hinum og öðrum, myndi hver bók eða handrit vera sett í sína hyllu, með samskonar bókum sem fyrir væri, og bver bók muni merkt gefanda, svo að það sæist bvað dr. Finnur Jónsson hefði mibið lagt til Háskólans og hvað aðrir. Við blaðamenn sagði dr. Einar Ól. Sveinsson í gær, nm leið og hann sýndi bókasafnið: — Hjer er merkilegt samsafn irita um norræn efni. Það er að vísu ekki samfeld nje samsteypt heild, en þó er það alveg ómetan- legt fyrir Háskólann að vjer skul- um hafa eignast, það. ' Og þetta er mikilsverður stofn, sem auðvelt. er við að bæta og æskilegt að það verði gert. Sjálfstæðismenn kjósa B- listann. Vor- og sumar- fí§ka La Mode de Paris. Juno. Elite. Elegance Feminine. Stella. Smart. Star. Splendid. Astra. Butterick. La Parisienne. Saison Parisienne. Das grosse Ullstein Moden-Album. Ullstein Moden-Album. Do. barnatíska. Eligant, barnatíska. Star, barnatíska. Confection Moderne (kápublað). Auk þess öll þau mán- aðartískublöð, sem við flytjum venjulega. BókUlaian Fj ármálaráðherr- ann reiknar. í inngangi að kattarþvotts- grein sinni um lántökuna í Eng: landi segir Eysteinn Jónsson að meðalútflutningur Islands árin 1933 og 1934 hafi verið ca. 50 miljónir króna. í ræðukafla, sem birtist eftir sama mann í sama bla'ði er sagt að útflutningurinn árið 1933 hafi verið 47 milj. kr. og ári& 1934 hafi útflutningurinn verið kr. 44.800.000. Meðaltal þessara tveggja upphæða telur f jármálaráð- herrann vera 50 miljónir(I) Sá hefir lært reikninginn I Samvinnuskólanum. Efnilegt að hafa svo reikn- ingslærðan mann sem fjármála ráðherra. Skíðafjelag Reykjavíkur fer skíðaför að Kolviðarhóli á sunnu- daginn, ef veðnr og færi leyfir. Áskriftarlisti liggnr frammi hjá formanni fjelagsins, hr. kanpm. I. H. Múller, Austurstræti 17. Kosningin í útvarpsráð. Kjör- stjórn hefir ákveðið að hafa kjör- stofuna á Lækjartorgi opna frá kl, 1—5 og frá kl. 6—8. Heyrist ekkert i útvarpstækinu. Flugmennirnir, sem eru í föetunr, flugferðum milli Kairo og Kbartun, hafa hvað eftir annað orðið þess varir, að ekkert heyrist í utvarpstækinu yfir svæði sem kongagrafreitirnir eru. Af iessu hefir allskonar hjátrú spunn- st.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.