Morgunblaðið - 22.03.1935, Page 4
4
MORGUNBLAÐIÐ
Föstudaginn 22. mars 1935,
í t> R Ó T T I R
Olympsmerki.
Allir íslendingar, bæði
íþróttamenn og aðrir, sem þjóð-
armetnað hafa, vonast til þess
að hægt verði að senda hjeðan
flokk íþróttamanna til Berlín
1936.En það er líkavitanlegt að
fjárhagslega hliðin verður erf-
iðust viðfangs, og ekki við því
að búast, að okkar fátæku fje-
iög geti staðið straum af þeim
kostnaði ein.
Þess vegna hefir verið leitað
til hins opinbera um styrk til
væntanlegrar Olympsfarar. —
Undirtektir hafa verið heldur
daufar og forgöngumenn þjóð-
arinnar virðast ekki skilja þýð-
ingu þessa máls.
Það er því hætt við, að ef
flokkur íþróttamanna fer hjeð-
an til Berlín, að þeir verði að
kosta sig að mestu leyti sjálfir.
Mjer finst nú liggja beint við
að reynt verði að safna inn fje
hjá almenningi til fararinnar,
því þar er ábyggilega mestan
áhuga að finna í þessu metnað-
armáli allra Islendinga. í Nor-
egi er höfð sú aðferð að gei;ð
eru sjerstök olympsmerki, sem
seld eru almenningi. Á þann
hátt safnast inn mikið fje til
styrktar norskum olympsförum.
Er nú ekki alveg til valið að
nota þessa aðferð hjer? Sum-
arið er að fara í hönd og íþrótta
mótin að byrja og því hentugur
tími til að selja merkin. Merkið
þyrfti að vera smekklegt málm-
merki, og gert svo að menn
gætu borið það í barmi sjer.
Merkið væri þá eins og nokk-
urskonar tákn þess, að sá, sem
það ber væri búinn að leggja
sinn skerf til olympsfarar ís-
ienskra íþróttamanna. Að sjálf
sögðu hefði olympsnefndin ís-
lenska alla forgöngu þessa
máls, og vil jeg hjer með beina
þessari hugmynd minni til henn
jar, til nánari athugunar.
Ivg.
Heimsmeistarar í hnefaleik.
Skautahlaup.
Evrópumeistari í hi*aðlilaupi á
skautum varð Wazulek, Austi'.r-
ríki, nr. 2 Evansen, Noregi. nr. 3
"VVasenius, Finnlandi.
Þótti Norðmönnum og Finnuui
hart að Austurríkismaðurinn
skyldi sigra, en þeir hafa lengi átt
skautameistarana. Var því mikill
„spenníngur“ um hver sigra mundi
í keppninni um heimsmeistaratign-
K. Þ.
nieistari í Imefaleik virðist nú kom
inn því nær að takmarkinu þ. e.
að fá að berjast við Max Baer um
titilinn nú í sumar.
Max Sehmeling fyrrum heims- Lasky svo nú stendur enginn í
veginum fyrir Sclimeling nema ef
vera skyldi ítalska tröllið Carnera
(fyrv. heimsmeistari). Það getur
því hugsast að þeir verði að berj-
ast um rjettinn til að mæta Baer.
En Carnera hefir verið aðgerðar-
lítill undanfarið. Sigraði þó Cam-
polo, annan risann frá á stigum
eftir 12 lotur. Schmeling er því
áreiðanlega færastur allra nú til
að mæta Baer, þó litlar líkur sjeu
til að honum takist að ná sigri,
Jack Dempsey,
Þegar Schmeling tapaði tithu *.m
til Sharkey (ranglega að margra
dómi) setti hann sjer það mark
að vinna titilinn aftur. Gekk hon-
um frekar illa í fyrstu. Hann tap-
aði fyrir Baer og síðar fyrir Steve
Hamas og var þá af mörgum tal-
inn alveg úr sögunni. En eftir
nokkra hvíld lielt hann áfram,
Barðist við Paolino hinn spánska
Max Schmeling.
því Baer þykir nú bera af öllum
öðrum hnefaleikurum í þyngsta
flokki. Þeir, sem næstir standa
Schmehng eru þessir: Carnera,
Lasky, Hamas, Neusel, Perroni
(sem þó er ekki nema miðþunga-
maður, en afburða snjall) og svo
svertinginn Louis sem undanfar-
Gene Tunney.
og sigraði hann að allra dómi, þó
aðeins næði hann jafntefli hjá
dómurunum. Síðan barðist- hann
við Walter Neusel og sigraði
hann í 8. lotu (fekniskt knock
out) og nú fyrir nokkrum dögum
barðist hann aftur við Steve
Hamas og sigraði hann í 9. lotu
(sbr. Morgunbl. 12. þ. m.).
ivÉíiigPÍI.
Max Baer
(núverandi heimsmeistari).
ið hefir getið sjer mikla frægð
sem hnefaleikari.
ina, en hún fór fram í Osló Hamas hafði áður sigrað ann- Sennilega verður ba
•.skömmu síðar. Stóð keppnin að an besta ameríkumanninn Art ilinn í sumar 4. júlí. F
vanda í tvo daga (fyrri daginn
kept í 500 og 5000 metra hlaupú ár aldur þyngd.
en hinn síðari í 1500 og 10000 og 1. John L. Sullivan 1890—’92 32—34 89 kg.
var aðsókn svo geysimikil að færri 2. James Corbett 1892—’97 26—31 84 —
'komust að en vildu. 3. Robert Fitzsimmons 1897—’99 35—37 76 —
Norðmenn sigruðu svo glæsilega 4. James Jeffries* 1899—’05 24—31 102 —
að þeir áttu 5 fyrstu mennina, en 5. Tommy Burns 1905—’08 25—27 81 —
heimsmeistari varð M. Staksrud; 6. Jack .Tohnson 1908— ’15 30—37 100 —
2. Ballangrud; 3. Engnestangen; 7. Jess Willard 1915—19 32—36 114 —
4. Haraldsen; 5. Mathiesen; 6. 8. Jalk Dempsey 1919—’26 24—31 86 —
Wasenius, Finnlandi; og 7. Wazu- 9. Gene Tunney* 1926—’30 28—32 88 —
leg (Evrópumeistarinn). 10. Max Schmeling 1930—’32 25—27 87 —
Er ástæða til að óska Norðmönn- 11. Jack Sharkey 1932—’33 30—31 88 —
vm til hamingju með þennan 12. Primo Carnera 1933—’34 27—28 ca. 120 —
glæsilega sigur. 13. Max Baer 1934—? 24—? 102 —
Jeffries og Tunney gáfu titilinn lausann bardagaleust.
Allsherjarmót 1. S. 1.
—
í frjálsum íþróttum verður háð
á íþróttavellinum í Reykjavík
dagana 16.—19. júní n. k. og hef-
ir Glímufjelaginu Ármann verið
falið að sjá um undirbúning þess.
Verður kept um Allsherjarmóts-
bikar 1. S. í., sem Knattspyrnu-
fjelag Reykjavíkur er handhafi
að, og verða einnig veitt þrenn
verðlaun í hverri íþróttagrein.
Kept verður í þessum íþrótta-
greinum: 100, 200, 400, 800,
1500, 5000 og 10.000 metra
hlaupum, 4x100 metra og 1000
metra boðhlaupi, kappgöngu 1.0
km„ hástökki, langstöltki, þrí-
stökki og stangarstökki (öll stökk
með atrennu), spjótkasti, kringlu-
kasti, kúluvarpi, sleggjukasti (öll
köst betri handar), ennfremur í
fimtarþraut og reiptogi (8 manna
sveitum).
í sambandi við Allsherjarmótið
verður háð íþróttamót fyrir kon-
ur og verður kept í þessum íþrótta
greinum: 80 og 300 metra hlaupi
og 5x80 metra boðhlaupi, einnig
hástökki, langstökki, og spjótkasti.
Öllum íþróttamönnum og konum
innan f. S. í. er heimiluð þátttaka
í mótunum, og eru öll ungmenna-
og íþróttafjelög sjerstaklega á-
mint um að senda sína bestu
menn á þetta mót, því samkvæmt
ávarpi Oljanpsnefdar í. S. 1„ sem
sent var öllum fjelögum innan 1.
S. í. á síðastliðnum vetri, er gert
ráð fyrir að á þessu íþróttamóti
verði valdir menn þeir sem hjeðan
verða sendir á Olympsleikana,
sem haldnir verða í Þýskalandi í
ágústmánuði 1936.
Umsóknir skulu sendar sam-
kvæmt leikreglum í. S. í. td fram-
kvæmdanefndar Allslierjarmótsins,
pósthólf 43, fyrir 6. júní.
Það má vafalaust þúast við
mjög mikilli þátttöku í 'þessu
móti. Ætti það að geta orðið
eitthvert f jölskrúðugasta og
besta mót í frjálsum íþróttum,
sem nokkurn tíma hefir háð
verið hjer á landi. Ármenning-
ar standa fyrir mótinu og eru
þeir þaulvanir að stjórna í-
þróttum og þektir að því að
vanda þau vel. Stjórn mótsins
er því í öruggum höndum.
Þá er það vitað um marga
íþróttamenn okkar, að þeir hafa
æft af kappi, eftir því sem
tækifæri hefir verið til. En hin-
ir, sem lítt eða ekki hafa stund.
að æfingar í vetur, munu byrja
æfingar bráðlega. Enn eru þrír
mánuðir til stefnu, og má kom-
gaman hafa af því að fylgjast
með set jeg hjer lista yfir þá, sem
hafa verið heimsmeistarar í
þyngsta flokki. — Það hefir aldrei
komið fyrir í þessum flokki, að
meistari, sem tapað liefir tigninui
einu sinni, vinni hana aftur. Árið
1889 var háður síðasti bardaginn
um meistaratignina með berum
hnefum. Sigraði Sullivan þá-Kil-
rain í 75. lotu. Síðan hefir ávalt
verið barist með hönskum.
K. Þ.
ast Iangt á þeim tíma, ef rækt
og ástundun er lögð við æfing-
arnar. Skora jeg því alvarlega
á alla íþróttamenn og konur
| að gera alt sem í þeirra valdi
stendur til að vera fullkomlega
þjálfuð á allsher jarmótinu í
sumar.
Því miður er það margt, sem
gerir íþróttamönnunum og kon-
unum erfitt fyrir um það, að
ná sambærilegum árangri við
aðrar þjóðir í frjálsum íþrótt-
um. Einhver versti örðugleik-
inn er íþróttavöllurinn. Á hon-
um er varla, hægt að æfa og
því nær ómögulegt að ná sæmi-
legum árangri. Og þessi völlur
verður verri og verri með
hverju ári. Allir íþróttamenn
og konur þessa bæjar sianda
einhuga að þeirri kröfu að
bygður verði hjer nýr og full-
kominn íþróttavöllur.
Bæjarstjórnin má ekki leng-
ur láta undir höfuð leggjast að
verða við þessari kröfu. Leið-
togar íþróttamanna, og þeir
sjálfir, h’afa þegar — og oftar
en einu sinni — boðið sína að-
stoð. Það er vitanlegt að ef
völlurinn á að vera fullkominn
þá verður hann dýr. Þess vegna
verður að byrja á byggingu
vallarins nú þegar. Mun jeg
síðar skrifa nánar um þetta
mál.
En í sambandi við það, vil jeg
beina því til iþróttamanna og
kvenna að þau með þátttöku
sinni í þessu móti sýni það, að
á þeim stendur ekki. Að þátt-
takan verði svo mikil og al-
menn að allsherjarmótið í sum-
ar verði fjölmennasta og besta
íþróttamót, sem háð hefir verið
á íslandi — þrátt fyrir íþrótta-
völlinn.
Hvort nokkur verður svo
frækinn á þessu móti, að hann
(eða hún) verði valinn til að
æfa áfram með þátttöku í 01-
ympsleikunum fyrir augum er
auðvitað mjög vafasamt. Kröf-
ur Olympsnefndar verða eðli-
lega að vera miklar og strang-
ar (eins og jeg hefi oft bent á),
en það er engin ástæða til að
vera svartsýnn. Við skulurn
vona það besta — hver svo sem
endirinn verður.
Síðar mun tækifæri til að
minnast nánar á þetta mót. En
.jeg vildi aðeins skjóta því til
forstöðumannanna hvort ekki
væri hægt í sambandi við mót-
ið að láta keppa í maraþon-
hlaupi. Einhverjir íþróttamanna
munu nú vera að æfa undir
slíkt hlaup, og þeir ættu einnig
að fá að sýna hvað þeir geta.
Mótið er ,,opið“ öllum. Mæt-
ið því allir fræknir íþróttamenn
og glæsilegar konur á allsherj-
armótinu í sumar.
K. Þ.
Heimsmeistari í listhlaupi á
skautum fyrir karlmenn varð enn
einu sinni Karl Scháfer, Austur-
ríki. Nr. 2, Jack Dunn, Englandi
og 3 Pataky, TJngverjalandi.