Morgunblaðið - 28.03.1935, Blaðsíða 7

Morgunblaðið - 28.03.1935, Blaðsíða 7
Flmtudaginn 28. mars 1935 MORGUNBLAÐIÐ / KVENDJOÐIN OG HEIMILIM Til lesenda kvennasíðunnar. Mgbl. er ánægja að sjá, með hve miklum áhuga lesendur kvenna- síðunnar hafa fylgt greinarstúf- um þeiin, sem birst hafa undan- farið- um, „varðveislu kvenlegrar fegurðar“, og teknir eru úr hinum svonefnda „Hoílywood-kur“. Lesendur munu hafa tekið eftir að í þessari fegrunaraðferð er lögð áhersla á að nota hráefnin, eins og þau koma fyrir frá nátt- úrunnar hendi. En sá er hængur á, að hjer heima eigum við ekki kosí á að fá öll þau efni sem „stjörn- urnar“ fyrirskipa, af þeirri ein- földu ástæðu, að þau eru ekki framleidd hjer. Mgbl. hefir orðið þess vart (af fýxirspurnum sem því hafa borist) að stúlkurnar eru í nokkrum .vanda út af þessu, þær hafa haft hug á að færa sjer í nyt reynslu „stjarnanna“, en skort efnin. En úr þessu má bæta, með því að nota önnur fáanleg efni, senx gera sama gagn, í þeirra stað. í „fegrunargrímu Kleopötru“, sem lýst var fyrir skömmu mun þannig illfáanlegt það efni, sem á að hleypa grímunni saman (möndlu- úrsældingur, „mandelklid“). Mgbl. hefir leitað sjer upplýs- inga hjá viðurkendum fegrunar- sjerfræðing og fengið vitneskju um að í stað þessa má nota eina -eg’gjarauðu og dálítið hveiti. Því er hrært saman í hæíilega þykkan graut og síðan jafnað með ögn af mjólk og sítrónusafa. Glycerín- inu má sleppa, því það er ekki jafn heppilegt fyrir alt hörund. Bins er gott að fara varlega með sítrónusaf'an, ef hörundið er mjog vdðkvæmt. Þá er annað efni, sem mætti minnast. á í þessu sambandi, þurmjóllx (í eggjahvítugrímuna), «n hún mun ekki fást h.jer í lyfja- búðum. f stað hennar má eins nota venjulega mjólk eða súr- mjólk, en annars nægir hvítan ein. Sjeu stúlkurnar í óvissu um fleira. er þeim velkomið að senda ivrirspumnir til Mgbl. (í lokuðu umslagi merkt „Kvenþjóðin og heimilin“), og mun þeirn þá vera svarað í kvennasíðun ni, en þó því aðeins að nafn og heimilisfang f.vf^i. T óbakslykt. Þegar gestir eru, ng hver reykir í kapp við annan, er stof an oft orðin full af tóbaksreyk, áður en varir. Meðan gestirnir fá sjer hress ingu í öðru herbergi er gott að fá alla tóbakslykt til þess að hverfa á skammri stundu. Það má gera þannig: Opnið gluggann, dreypið nokkrum dropum af lavendel- olíu í skál með sjóðandi heitu vatni og berið skálina um her- bergið. Eftir örlitla stuwd er orðið hreint og gott loft í stof- unni og reykurinn horfinn. Hvað segir vigtin ? ÍIÍ'W'IS'ÍS, ) »v ' jíg,’ Tímarnir breytast og mennirn- ir með, það er gamla sagari. Stulk- urnar breytast líka, ekki síst i klæðaburði ár frá ári, og þó að gömul tíska, sem við teljuni löngu dána og grafna, stingi við og við upp kollinum aftur, þá er nú- tímastúlkan alt öðruvísi á að líta en amma liennar var, þegar liún var ung. En í einu eiga allar stúlkur sammerkt: þæp vilja líta vel út, vilja ekki fyrir nokkurn mun vera einu grammi þýngri en tískari híð- ur í það og það sinnið. Og því er vigtin ómissandi fyrir stúlkurnar, jafnt nú og áður fyr, bær leita til hennar með saina á- buganum, og hún sýriir þeim það á svörtu og. hvít.u,. »hve vel þæv standa sig. Íiím Í1LU3JAÍ. Skápur undir gluggakistunni. Seljurótarrjettir. Um þetta leyti árs er fátt og lítið um grænmeti, en við get- um fengið ágæta seljurót, sem má matbúa á margan hátt. — Hjer fylgja á eftir þrír selju- rótarrjettir: Seljurótar-súpa. 1 1. kjötsoð. 1 seljurót, 1 gulrót. Salt, pipar. 10 gr. smjör. •' ^5 gfcðl$§ítL Glóðarbakað hyeitibrauð. Seljurótin flysjuð og skorin í bita og gulrótin hreinsuð. Þegar kjötsoðið sýður, er gul- rótin og seljurótin soðnar með þar til gulrótin er meyr og seljurótin soðin í mauk. Gul- riótin síðan skorin í bita en selju rótinni nuddað gegnum gata- sigti með soðinu. Soðið hitað aftur. Smjörið hrært lint í skál og hveitið hrært þar út í. Þegar súpan sýður, er smjördeigið sett út í og hrært í þar til sýður aftur. Þá er gulrótin sett út í, og ef súpan á að vera sjer- lega fín, er hún jöfnuð með eggjarauðu. Borðað með hveiti brauði, sem er bakað móbrúnt á þurri pönnu e‘ða járni, sem til þess er ætlað. Steikt seljurót. Soðin seljurót er skorin í sneiðar. Snúið upp úr eggja- hvítu og brauðmylsnu. Steikt rinóbrúntj, raðað á fat <og borð- að með gulróta jafningi. Seljurót í jafningi. 1 seljurót. Vatn, salt. 30 gr. smjörlíki. 30 gr. hveiti. 1 dl. rjómi. Seljurótin hreinsuð og skor- in í litlar ræmur, soðin í litlu vatni með salti, þar til hún er meir. Smjörið brætt, hveitið hrært út í og þynt út með seljurótar-soðinu. Seljurótin síðan sett út í, þá er lítið af sósunni hrært í rjóma, og því helt í sósuna, salt eftir geð- þótta. Þetta má ekki sjóða. — Borðað með kjöthring og öðr- um kjötrjettum. Helga Sigurðardóttir. Slái n. Eitt vitum við þegar úneð vissu, hvað snertir vor og sum- artískuna. Hún býður: Slá og aftur slá. Náttblinda af vöntun A-fjörvis. Við innrjettingu nýtísku húsa er lögð áhersla á það að nota sjer hvert autt rúm í húsinu fyrir skápa og hentuga geymslu staði. Þetta er ekki til lítilla þægindaauka fyrir húsmæðurn- ar, sem með þessu móti fá næga geymslustaði og geta haft viss- an stað fyrir hvern hlut. Þannig tíðkast það nú orðið .j mjög í þýskum húsum að hafa skáp í gluggaskotinu undir gluggakistunni. í barnaherþerginu er þa<ð fyr- irtaks staður til þess að geyma leikföngin í, eins og sjest á myndinni, og í eldhúsinu er það góður eldhússkápur fyrir bús- áhöldin. Hver stoía hefi-r sinn gluggaskáp, eða skrifstofa hús- bóndans, ágætt rúm fyrir bóka- hilíu; sem fer yel ,vjð önnur V 'ji '1 h- ■ ’m húsgögn í herberginu. Grár kjóll með síðu slái, bryddað gráum persianer. Hjer sjest slá af nýrri gerð. Klæðnaðurinn er grár kjóll, mjög óbrotinn með sljettum ermum og djúpri fellingu í pils- inu. Sláið er óvenju sítt, brydd- að með gráum persíaner. Hatturinn og beltið er há- rautt Ingiríður prinsessa. Ðanskur auglæknir, frú Helga Frandsen, sem fengist hefir við rannsóknir á náttblindu og or- sökum hennar, heldur því fram að hún stafi af skorti A-fjör- efnis í fæðuna, þ. e. a. s. að náttblint fólk borði of lítið af smjöri, grænmeti, gulrætum, eggjum, feitum fiski (t.d. síld), lifur og drekki of lítið af mjólk. Hjá náttblindu fólki verður oft vart annara sjúkdómsein- kenna, eins og t. d. þreytu og höfuðverkjar, það er kvef- gjarnt og á bágt með að lesa í ljósi o. fl. o. fl. Unnusta Friðriks ríkiserf- ingja lætúr sjer ekki nægja að vera fögur prinsessa, hún vill líka kunna til húsverka. Hjer á myndinni sjest hún við mat- reiðslu í matreiðslu skóla. M U N I Ð --------- að það sparar Ijós að liafa veggfóðrið ljóst í skápum, göngum og’ smáherbergjum, því að í dimmum herbergjum sýnist ennþá dimmra sje veggfóðrið dökt. ---------að gott er að ná blelc- klessum af fingrunum, með sítrónu xáfa eða sítrónusýrn.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.