Morgunblaðið - 21.05.1935, Side 4
MORGUNBLAÐIÐ
Þriðjudaginn 21. maí 1935«
KVENDJOÐIM OQ NEIMILIN
Tíska.
Kvöld kjóll
með löngum ermum.
Þó sumarið sje komið, getur
altaf verið þörf á verulega falleg-
um og fínum kjól ~neð löngum
ermum. Á tískusýningum stór
bæjanna hefir það og komið í ]jós,
að kvöldkjólarnir eru mjög oft
með löngum ermum, þó þeir sjeu
úr ljettum, rósóttum efnum. En
þá eru ermamar víðar og íburð-
armiklar eða með einhverju sjer-
kennilegu sniði.
Matreíðsla:
Kvöldkjóll með löngum, íburðar-
miklum ermum og hvítum piqué
blómum í hálsinn.
Á þessum kjól eru ermarnar að-
alatriðið. Þær eru saumaðar við
hálsmálið í djúpum fellingum,
sem eru opnar frá öxl, en saumað-
ar saman við hinar háu manehett-
ur.
Kjóllinn er alveg sljettur í
hálsinn, en blómin, sem hylja háls-
málið eru úr hvítu piqué.
Smórfeffir
á kvöldborðið.
Söltuð síld.
. Síldin er afvötnuð, hreinsuð og
lögð í mjólk í nokkra tíma. Tekin
UPP, þvegin og þurkuð og lögð :
ská á fat. Öðrumegin er settur
saxaður laukur og hinumegin
kapers. Borðað með soðnum jarð-
eplum og' hrærðu smjöri eða lauk-
sósu.
Lauksósa.
25 gr. smjörlíki.
25 gr. hveiti.
3,5 dl. mjólk.
1 tesk. salt.
1 laukur.
Lankurinn er skorinn í sneiðar
og soðinn í vatni. Smjörlíkið
brætt, hveiti hrært út í og þynt
út með mjólkinni. Lauknr og salt
látið út í.
Fiskikaka.
1 djúpur diskur soðinn, hreinsaður
og saxaður fiskur.
125 gr. smjörlíki.
1 laukur.
Vz ]. súr rjómi.
5 egg.
60 gr. hveiti.
Salt.
Smjörlíkið hrært lint og þar í
blandað hinum hreinsaða og sax-
aða fiski og lauknum, sem einnig
er smásaxaður.
Rjóminn hrærður í og ein og ein
eggjarauða, seinast hveitinu og hin
um þeyttu eggjahvítum. Saltað
eftir smekk.
Þetta er sett í vel smurt mót
og bakað við jafnan hita í %
klst.
Borðað strax með hrærðu
smjöri, eða hvítri fiskisósu.
Helga Sigurðardóttir.
Ananassafí
f vatnshönanara.
Frú Ulla Poulsen dansmær. Hann er sá rjetti —
Að búa til gott te.
íslensku húsmæðrunum verður
ekki skotaskuld úr því að hella
upp á kaffikönnuna og búa til
gott kafffi. En eru þær jafn dug-
legar að búa til gott te?
Fyrst og fremst þarf að hugsa
um sjálfan tepottinn: Hann vei'ð-
ur að vera úr leir, steini eða
postulíni. Áður en helt er á, ber
að skola tepottinn úr sjóðandi
heitu vatni. Eina fulla teskeið má
reikna í hvern bolla. Hellið á
sjóðandi, nýsoðnu vatni og látið
„trekkja“ í 6—8 mínútur. Hrærið
í teinu áður en skenkt er í boll-
ana og nú á teið að vera gott!*
Þ. 2. maí síðastliðinn átti frú
Ulla Poulsen, hin fræga danska
dansmær, 30 ára afmæli.
Hiin lærði að dansa við Ballet-
skólann við Konunglega leikhúsið
í Kaupmannahöfn, og dansaði þar
í fyrsta sinn í „Et Folkesagn“,
árið 1922. Síðan hefír hún dansað
í mörgum stærri hlutverkum, og
Privatmynd af frú Ullu Poulsen.
verið solo-dansmær síðan 1924.
Hún hefír alt það til að bera er
einkennir góða dansmær, enda
hefir fegurð hennar og yndis-
þokki skipað henni fremstan sess
í danska ballettinum. Frú Ulla
Poulsen er gift Johannes Poulsen
leikara.
Varðveisla kvenlegrar fegurðar.
Hvernig „stiörnuraarfc< í Hollywood fara að.
Á Honululu, höfuðborg Hawaji,
er drykkjarvatn afar dýrt. En þar
er aftur á móti hægt að fá ananas-
safa í svo ríkum mæli, að honum
er dælt ókeypis inn í eldhúsin,
eftir sjerstökum leiðslum, eftir
klukkan sex á kvöldin. Á mynd-
inni sjest stúlka í Honululu vera
að fá sjer ananassafa úr kran-
anum. Sælkerar í Honululu una
áreiðanlega vel slíku fyrirkomu-
lagi.
Fagrar hendur.
Fallegar, vel hirtar hendur
auka mjög á prýði konunnar.
Það eru ekki margar stúlkur, sem
hafa hlotið fagrar og fínlegar
hendur í vöggugjöf, en þeim mun
betur er tekið eftir sjerkennileg-
um höndum, sem ,eru ávalt snyrti-
legar og vel hirtar.
Það er að vísu ekki hægt að
breyta sköpulagi handanna, þó
nokkuð megi gera til að draga úr
sjerstökum ágöllum, og hendurn-
ar má gera hvítar og mjúkar og
láta neglurnar fá hið rjetta lag.
Og handsnyrtingu getur hver og
einn gefið sjer sjálfur, án mik-
illar fyrirhafnar.
Ein handa-aðgerð eða snyrting,
„manicure“, endrum og eins, dug-
ir ekki. Til þess að fá verulega
hirðulegar og fallegar hendur,
þarf daglega hirðingu.
Hörundið.
Hendurnar eiga fyrst og fremst
að vera mjúkar og hvítar. Þvoið
þær iðulega úr volgu vatni og
góðri sápu. Látið hendurnar liggja
dálitla stund í sápuvatninu, þurk-
ið þær síðan vel og vandlega (það
er mjög áríðandi að þurka hend-
urnar vel, en mörgum hættir til
að gleyma því) og nuddið þær á
eftir með góðum handáburði.
Ágætt er að blanda saman glyc-
erin, rósavatni og sítrónusafa, og
hafa við hendina til þess að mýkja
hendurnar.
Ef hendurnar eru sjerstaklega
slæmar, er gott að bera á þær
volga olíu á kvöldin og sofa með
vaskaskinnshanska yfir nóttina.
Fingurnir.
Ef fingurnir eru kubbslegir, eða
fingurgómarnir flatir og breiðir,
skuluð þjer nudda fingurna með
olíu, frá fingurgómunum og að
lófanum (sama átak og- þegar
maður fer í hanska), takið dug-
lega á og þrýstið fast að fingur-
gómunum.
Ef neglurnar eru gjarnar á að
brotna, ættuð þjer að halda þeim
nokkrar mínútur í volgri olíu á
hverju kvöldi. Hitið dál. olíu í
skál, og stingið fingurgómunum
niður í. Sömu olíu má nota aftur
og aftur .
Eyðið fimm mínútum fyrir
ir hendur yðar á liverju kvöldi,
það nægir.
Næst verður talað nánar um
handsnyrfíngu, „manicure' ‘.
Frá París.
Lágu hælarnir eru nú að brjóta
sjer braut. Það lítur út fyrir, að
margar stúlkur sjeu farnar að
snúa baki við „stólpahælunum“
óhollu, þótt þeir þyki klæðilegir.
Parísarstúlkurnar ganga ekki
aðeins á lágum hælum úti á götu
og í öllu sporti, þær eru líka á
lágum hælum við kvöld- og
eftirmiðdagskjóla.
*
„Clips“ og hnappar af öllum
mögulegum gerðum tíðkast nú S
meir en nokkru sinni, bæði á
kjólum og kápum. Stundum eru
„hnapparnir“ mislit glerblóm,
stundum eru þeir úr trje, og yf-
irleitt lagt mikið upp úr, að þeir j
hvað sem hver segir og hvað
sem hverjum finst — — —
— -----ef hann er sá eini mað-
ur, sem þjer getið hugsað yður
að tala við, þegar þjer eruð í
slæmu skapi, og yður finst allir
aðrir óþolandi.
— — — ef þjer eruð ekki 6-
leyfilega afbrýðissöm, undir eins
og hann er liorfinn sjónum, því
að sú tdfinning stafar frekar af
skyndilegu „skoti“, en hinni
sönnu og trúu ást.
--------ef þögn í samtali við
hann þvingar yður ekki.
--------ef þjer farið ekki að
byggja loftkastala um gull og
græna skóga, og tala um þau auð-
æfi, sem hann muni öðlast með
slíka konu við hlið sjer (og þjer
eruð).
--------ef hann fer ekki í fel-
ur með ást sína á þessari sömu,
ágætu konu, heldur vill láta all-
an heiminn vita um hana.
--------ef þjer grípið ékki
sjálfa yður í því að hugsa um
galla hans og ýmsa hvimleiða
siði, sem þjer ætlið að venja hann
af, strax eftir brúðkaupið.
— — — ef hann hefír ekki
eitthvað það við Sig, sem þjer
kunnið ekki við, en haldið þó að
þjer munið geta látið yður lynda
að sjá liann daginn út og dag-
inn inn alla yðar æfi.
------ — ef yður — þótt þjer
getið ekki með góðri samvisku
sagt, að hann hafi neinn af fyr-
nefndum „kostum“ — finst inst í
hjarta yðar, að hann sje í raun
og veru sá rjetti!
MUNIÐ
--------að gott er að hreinsa
saumavjelma með því að ryk-
sjúga hana með ryksugu.
— — — að gott er að þurka
sítrónuhýði, steita það smátt og
hafa það til bragðbætis í kökur,
ábætisrjetti og slíkt.
--------að mjög auðvelt er að
ná óhreinindum af hvítmáluðum
munum, hafi maður dálítið terpin-
tín í sápuvatninu.
— — —- að Skór, sem eru of
þröngir, víkka út, sjeu þeir látnir
standa yfir nóttina, úttroðnir með
votum prentpappír.
— — — að blettir hverfa af
postulíni, sjeu þeir nuddaðir með
votu salti.
sjeu sem sjerstæðastir og ó-
venjulegastir. Oft er ekkert ann-
að skraut haft á kjólunum en
þessir frumlegu hnappar, fíl þess
að sem mest beri á, hve frum-
stæðir þeir eru.
#
Af skrauti, sem stúlkurnar í
París bera nú á höttunum sínum,
ber langmest á allskonar ávöxt-
um, tómötum, baunum, eplum o.
s. frv. ' ' ff!l