Morgunblaðið - 30.07.1935, Side 5
Þriíjudaginn 30. jólí 1935.
MORGUNBLAÐIÐ
Þingtíðindi frá 3. Iðn-
þingi Islendinga
ék Akureyri.
ikýrsla utn tillögur og nefndarálit.
Þriðja iðnþing íslendinga
var sett á Akureyri, í húsi Iðn-
aðarmannafjelagsins þar, laug-
ardaginn 6. júlí kl. 2 síðdegis.
Stóð það í 4 daga, og var því
slitið miðvikudaginn 10. júlí að
kvöldi.
Iðnþingin eru aðalfundur
Landssambands Iðnaðarmanna
-og eru haldin annaðhvort ár,
til skiftis í kaupstöðum lands-
ins. Þetta þing sátu 50 fulltrú-
ar, 19 frá Akureyri, 15 frá
Reykjavík, 9 frá Hafnarfirði, 4
frá Vestmannaeyjum og 3 frá
ísafirði. í Landssambandi Iðn-
aðarmanna eru nú 22 fjelög
msð 1233 meðlimi.
Fyrir utan skýrslur um störf
.Sambandsins síðastliðin 2 ár,
fjárreiður þess, gang iðnaðar-
mála á Alþingi, breytingar á
lögum sambandsins, kosningar
o. f 1., lá fyrir þinginu fjöldi
mála, og skal hjer getið hinna
helstu:
Samþykt var að mæla með
frumvarpi til laga um atvinnu-
bætur og atvinnujöfnunarsjóð,
■ Og reglum um bátasmíði, er
Bárður Tómasson, skipaverk-
fræðingur á fsafiirði hafði sam-
ið, án breytinga.
Breytinugartillögur voru sam
þyktar við eftirfarandi frum-
vörp:
1. Frumvarp til laga um iðn-
aðarnám. Voru breytingarnar
aðallega viðvíkjandi vinnutíma
nemenda og kröfum til sveins-
prófs.
2. Frumvarp til laga um
iðju og iðnað. Sambandsstjórn
hafði lagt fyrir þingið nýtt
frumvarp um þann kafla þess-
ara laga, er aðallega snýr að
iðnaðarmönnum. Var það frum-'
varp samþykt með 2 smábreyt-
ingum.
3. Frumvarp til laga um at*
vinnuhagskýrslur, er milli-.
þinganefnd í atvinnumálum
hafði samið, var samþ. með 1
smábreytingu.
4. Frumvarp til laga um
rekstrarlánasjóð iðnaðarm., frá
sömu nefnd, var samþ. með
nokkrum smærri breytingum. |
5. Frumvarp til laga um
breytingar á lögum um verð-
toll, var samþ. með nokkrum
.smábreytingum.
6. Frumvarp til reglugerða
um kosningu og starfssvið iðn-
ráðanna, er sambandsstjórn
hafði sent ríkisstjórnni, en ekki
fengið staðfesta, var samþykt
með 2 smábreytingum.
7. Nokkrar breytingar voru
samþyktar við reglugerð um
iðnaðarnám.
Var sambandsstjórninni falið
að koma þeim tillögum og á-
lyktunum, er gerðar voru, á
framfæri við rjetta hlutaðeig-
■endur, og beita sjer fyrir fram-
jgangi þeirra.
Frumvarpi til laga um varn-
ir gegn vörusvikum var vísað
til milliþinganefndar með svo-
hljóðandi ályktun:
„3ja Iðnþing íslendinga lýs-
ir ánægju sinni yfir því, að
frumvarp þetta er fram kom-
ið, en álítur hinsvegar, að á
því þurfi að gera nokkrar breyt
ingar.
Ákveður þingið að kjósa 3ja
manna milliþinganefnd til þess
að athuga frumvarpið og koma
fram með breytingartillögur
við það.
Væntir þingið þess, að hið
háa Alþingi hafi samvinnu við
þessa milliþinganefnd iðnþings-
ins og stjórn Landssambands
Iðnaðarmanna um afgreiðslu
málsins.
3ja Iðnþing Islendinga sam-
þykkir að skora á ríkisstjórn-
ina, að hún leiti samvinnu við
iðnaðarmenn og iðnrekendur
um samningu reglugerðar í'
sambandi við frumvarp til
laga um varnir gegn vörusvik-
um“.
í milliþinganefndina voru
kosnir: Einar Gíslason, Tómas
Tómasson og Stefán Sandholt.
Um frumvarp til laga um
breytingar á lögum nr. 54, 15.
júní 1926, um vörutoll, var
samþykt svohljóðandi ályktun:
„Iðnþing Islendinga sam-
þykkir að skora á Alþingi að
afnema vörutoll af allri efpi-
vöru til iðnaðar í landinu, enn-
fremur vörutoll af vjelum og
vjelahlutum ög áhöldum, sem
notuð eru til iðnaðarfram-
leiðslu“.
Út af innflutningsbönnum og
gjaldeyrisverslun voru sam-
þyktar svohljóðandi tillögur:
„Iðnþingið skorar á lands-
stjórnina að hlutast til um, að
efnivörur ti/ iðnaðar og bygg-
inga verði látnar sitja fyrir um
innflutning og gjaldeyri, og sá
gjaldeyrir veittur iðnaðarmönn-
um sjálfum fyrst og fremst“.
„Þriðja Iðnþing Islendinga
skorar á ríkisstjórnina að hafa
strangar gætur á því, að inn-
flutningshöftin skapi ekki ein-
stökum mönnum aðstöðu til
þess, að hækka óeðlilega verð
á útlendum hrávörum til iðn-
aðar“.
Um lög um eftirlit með vjel-
um og verkstæðum var lagt
fram svohljóðandi álit frá Alls-
herjarnefnd og samþykt:
• „Nefndin hefir tekið til at-
hugunar lög um eftirlit með
vjelum og verkstæðum frá 7.
maí 1928, ennfremur frumvarp
til laga um viðauka við þessi
lög, flutt af Hjeðni Valdimars-
syni og Emil Jónssyni.
Nefndin telur nauðsynlegt að
aukið verði eftirlit með vjelum
og vinnustöðvum á landi frá
því sem núgildandi lög ákveða,
og lögin í heild sinni endur-
skoðuð og breytt með hliðsjón
af þeirri reynslu, sem fengist
hefir.
Nefndin vill enn fremur
leggja til, að kostnaður við
eftirlit með vjelum og vinnu-
stöðvum gje greiddur af Slysa-
tryggingarsjóði, vegna þess, að
með auknu cryggi og eftirliti
mundu skaðabætur Slysatrygg-
ingarinnar minka.
3. Iðnþing Islendinga felur
sambandsstjórn að undirbúa
endurbót löggjafar á þessu
sviði með því að fá tillögur og
upplýsnigar frá viðkomandi
fagfjelögum og iðnfjelögum í
hverri grein.“
Út af lögum um gjald af inn-
lendum tollvörutegundum voru
samþyktar eftirfarandi tillög-
ur:
„Iðnþingið felur stjórn Sam-
bandsins að vinna að því, að
lagt verði fyrir næsta Alþingi
frumvarp til laga, er heimili
endurgreiðslu framleiðslutolls
af innlendum tollvörutegund-
um, sem fluttar eru út úr land-
inu“.
„Iðnþingið felur Sambands-
■stjórninni að beita sjer fyrir
því, að ekki sjeu hækkaðir
framleiðslutollar á innlendum
tollvörutegundum meir en orð-
ið er og athuga hvort ekki eru
tiltök að fá þá lækkaða“.
„Iðnþingið felur Sambands-
stjórninni að skrifa ríkisstjórn
áskonin um:
1. Að leyfisbrjef til tollvöru-
framleiðslu sjeu aðeins veitt
hæfum kunnáttumönnum.
2. Að gengið sje eftir því, að
ekki líðist framleiðsla á tollvör-
um án leyfisbrjefs.
3. Að gengið sje eftir tolli
hjá þeim, sem vitanlega fram-
leiða slíkar vörur“.
„3. þing iðnaðarmanna skor-
ar á næsta Alþingi að breyta
lögum um blöndun smjörlíkis
þannig, að undanþága fáist fyr-
ir þá tegund smjörlíkis, er bak-
arar nota og heitir Bakara-
smjörlíki“.
Um bókhald fyrir iðnaðar-
menn var samþykt svohljóð-
andi þingsályktun:
„Eftir að nefndin hafði at-
hugað frumvarp til laga um
bókhald, lagt fyrir Alþingi
1931, leggur hún til, að Al-
þingi setji sem fyrst lög um
bókhaldsskyldu iðnaðarmanna,
sem hafa fleiri en tvo menn í
þjónustu sinni.
Sje væntanlegri sambands-
stjórn falið að semja tillögur
um fyrirkomulag bókhalds,
sem einkum hæfi smærri iðn-
rekstri“.
Um greiðslur fyrir iðnaðar-
vinnu var samþykt svohljóð-
andi nefndarálit:
„Nefndin hefir rætt um nauð
syn þess, að með lögum verði
sem best trygður rjettur iðn-
aðarmanna um greiðslur fyrir
vinnu og efni það, er þeir
leggja til við vinnu sína, svo
sem með forgangsveði í því,
sem unnið hefir verið að.
Því leggur nefndin til eftir-
farandi:
3. Iðnþing íslendinga sam-
þykkir að fela stjórn Lands-
sambandsins undii'búning lög-
gjafar um frekari tryggingu
fyrir greiðslu á vinnu og efni
iðnaðarmanna en til eru í nú-
gildandi löggjöf“.
Út af lögum um rannsóknar-
stofnun í þarfir atvinnuveg-
anna var samþykt svohljóðandi
nefndarálit:
„Nefndin hafði til saman-
burðar tvö frumvörp um það
efni, sam lögð voru fyrir Al-
þingi, ásamt nefndaráliti
mentamálanefndar efri deildar
með 5 fylgiskjölum.
Nefndin telur, að bæta þurfi
við 4. grein laganna ákvæðum,
sem tryggi það, að rannsókn-
arstofnunin vinni meira í þarf-
ir iðnaðarins, svo sem að vinna
að rannsóknum á ýmiskonar
byggingarefnum og að rann-
sókn á innlendum og erlendum
hráefnum til iðnaðar.
Nefndin léggur til:
Að 3. Iðnþing Isléndinga felí
Sambandsstjórn að koma *fram
breytingu á lögunum, svo að
rannsóknastofnunin fullnægi
sem best þörfum iðnaðarins“.
Innganga í Norræna Iðnsam-
bandið.
Um hana var gerð svohljóð-
andi ályktun:
„Iðnþing íslendinga, haldið
á Akureyri í júlí 1935, ákveð-
ur að Landssamband Iðnaðar-
manna skuli ganga í Norræna
Iðnsambandið (Nordiska Hand-
verkerkonferenserna) og felur
sambandsstjórn að framkvæma
þá ályktun".
Innganga í Alþjóðasamband
iðnaðarmanna.
Út af henni var samþykt svo-
hljóðandi þingsályktun:
„Nefndin leggur til, að for-
manni Landssambands iðnaðar-
manna verði falið að kynna
sjer frekar starfsemi Alþjóða-
sambands iðnaðarmanna til
undirbúnings undir næsta iðn-
þing og fræði hann iðnaðar-
menn um það í málgagni
þeirra“.
Um „standard“ mál var sam-
þykt svohljóðandi nefndarálit:
„Nefnd sú, sem kosin var á
Iðnþinginu 1933, „til þess að
rannsaka möguleikana á því að
fastsetja stærðir og gerðir á
ýmissi iðnaðarframleiðslu inn-
anlands og gera tillögur þar
um“, hefir athugað málið
nokkuð og komist að þeirri nið-
urstöðu, að með hinum öra
vexti innlenda iðnaðarins og
hinum hraðfara breytingum á
stíl og formi, er nú á sjer stað,
þá geti það verið beinlínis var-
hugavert nú sem stendur, að
setja skorður í þessum efnum.
Hinsvegar er nefndinni það
ljóst, að gagnlegt er og mjög
nauðsynlegt ef unt, væri að fast
setja stærðir og gerðir ýmis-
konar iðnaðarframleiðslu inn-
anlands og beinir því til stjórn-
ar Landssambands iðnaðar-
manna, að hún gefi nánar gæt-
ur að þessu máli í framtíðinni,
láti það til sín taka og geri til—
lögur til framkvæmda þegar er
henni finst tímabært,
Ennfremur vill nefndin beina
því til iðnaðarmanna yfirleitt,
að þeir gefi stjórninni bending-
ar um það, þegar þeir telja á-
stæðu til að „standardisera"
einhverja innlenda iðnaðar-
framleiðslu“.
Um slysatryggingarlögin var
gerð svohljóðandi samþykt:
1. Að 4. grein, a-liður breyt-
ist þannig, að í stað 10 daga
komi 5 daga, en læknishjálp
og lyf verði greidd frá þeim
degi, er slysið varð.
' 2. Að í 18. gr. breytist þau
ákvæði, að sá fulltrúi fyrir iðn-
aðarmannastjettina, sem Iðnað-
armannaf jelagið í Reykjavík
h'efir leyfi til að skipa, verði
skipaður af stjórn Landssam-
bands iðnaðarmanna.
3. Að 12. grein reglugerðar-
innar frá 28. des. 1931 breyt-
ist þannig, að skaðabótaupp-
hæðir sjeu greiddar á þeim
«tað, þar sem tryggingarnar eru
skráðar.
Þá vill nefndin leggja til, áð
iðnþingið lýsi því yfir, að það
telji að flýta beri almennri
tryggingarlöggjöf.
Þingið felur sambandsstjórn
að vinna að því, að tillögur
þessar nái sem fyrst fram að
ganga“.
Ódýrf.
Kaffistell 6 m. frá ío.oe
De. 12. m. frá 16.0«
Matarstell 6 m. frá 14.35
Do. 12 m. frá 19.75
Ávaxtastell 6 m. frá 3,75
Do. 12 m. frá 6.75
Bollapör, postulín frá 0.35
Vatnsglös, þjnkk frá 0.3«
Pottar með loki frá 1.0*
Borðhnífar, ryðfríir 0.75
Skeiðar og gafflar frá 0.2«
Teskeiðar frá 0.1«
Tappatogarar á 0.25
Höfuðkambar, fílabein 1.25
Hárgreiður, stórar 0.75
Barnaboltar frá 0.85
Kúlukassar frá 0.2«
I. Elirai i BHnssa
Bankastræti 11.
lnrneliils-
l.iáir.
Ljáblöð og ljábrýni.
Það er hagsýn!
aö tryggfa slg í
AN Ð V ÖK U.
Lækjartorgi 1. Sími 4250.