Morgunblaðið - 13.08.1935, Blaðsíða 3
Þriðjudaginn 13. ágúst 1935.
MORGUNBLAÐIÐ
p* tjm
Horfir til vandræða norð-
anlands vegna síldarleysis
Siglufirði í gær.
Ekkert rætist úr með síldveið-
ina enn, og verður ekki annað
sjeð en að stórvandræði liljótist
af.
Síðasta sólarhring kom einn
bátur með síld til Siglufjarðar.
Var hann með um 50 tunnur,
sem voru saltaðar.
Veðurfar hefir verið slæmt fyr-
ir Norðurlandi, kuldar og hrá-
slagaleg tíð.
Sjómenn verða varir við síld
víða, en hún kemu;: ekki upp,
nema helst að næturlagi og næst
þá ekki sökum myrkurs.
Talið er líklegt, að þeir bátar,
sem geta, fari á reknetaveiðar,
því síldin veiðist helst á þann
hátt nú. En það eru tiltölulega
fá skip, sem eru undir það búin.
Ekkert bendir til þess, að neitt
verulegt veiðist af síld hjeðan af.
Að minsta kosti eru menn orðn-
ir afar vondaufir nyrðra.
Búið er að salta um 30 þús.
tunnur á öllu landinu. Þar af á
Siglufirði 12—15 þús. tunnur.
Er það ekki meira en hægt
væri að salta á einum degi, ef
síldin veiddist.
Á sumum plönum hefir enn
ekki verið söltuð ein síld
Verkafólk, og þó sjerstaklega
aðkomufólk, er orðið mjög illa
statt, þar sem litla eða enga
vinnu hefir verið að fá.
Talið er líklegt, að aðkomufólk
fari að hugsa til heimferðar með
næstu skipum, ef síldveiðin glæð-
ist ekki von bráðar.
Hátíðin í Herjólfsdal.
Vestmannaeyjum í gær.
EINKASKEYTI TIL
MORGUNBLAÐSINS.
Þjóðhátíð Vestmannaeyja fór
fram í Herjólfsdal á laugardag
og sunnudag. Á Þjóðhátíðinni
fer venjulega hver maður, sem
vetlingi getur valdið, inn í dal.
Eru þar þá reistar tjaldbúðir og
voru að þessu sinni 253 íbúðar-
tjöld í dalnum.
Myndu þó langt um fleiri
tjöld hafa verið reist í dalnum,
eí ekki hefði verið þurkur fyrri
hluta laugardags og fólk þurfti
því að hugsa um fisk og hey,
því að votviðrasamt hefir verið
í Vestmanna,eyjum að undan-
förnu eftir hætti, en hverja góð-
viðrastund verður að nota til
þess að þurka fisk og hey.
Klukkán 9i/2 á laugardags-
morgun hófst hátíðin með kapp-
róðri frá svonefndu Klettsnefi,
að bæjarbryggjunni.
Því næst fór fram kappróður
á kajökum og síðan kappsund.
Kl. 11/2 e. h. var hátíðin sett
inn í dal, og flutti Jóhann Þ.
Jósefsson alþm. þar ræðu fyrir
minni íslands.
Þá hófust íþróttir.
Kept var í þrístökki, stangar-
stökki, 100 metra hlaupi og 800
metra hlaupi.
Kl. 4!/2 helt Páll Oddgeirsson
kaupmaður ræðu fyrir minni
sjómanna, en að ræðunni lok-
inni hófst söngur.
Því næst var sýnt bjargsig.
Sýndu það bræðurnir Jónas og
Ólafur Sigurðssynir.
Þegar bjargsiginu var lokið
hófst knattspyrnukappleikur
milli 3. fl. K. R. og K. V. Fóru
leikar svo, að Reykvíkingar
unnu með 3 mörkum gegn 0.
Um kvöldið var brenna í daln-
um, sem ljómaði upp fjöllin í
kring.
Þykir brenna eitt af því feg-
ursta á Þjóðhátíðinni og var ekk
ert til hennar sparað nú, því enn
eimdi úr henni á mánudags-
morgun.
Á sunnudaginn hófst hand-
knattleikur kvenna milli fjelag-
Hoover heimtar skýr
svör frá Roosevelt.
anna Þórs og Týs á knattspyrnu-
vellinum. * Fylgdu menn þeim
leik af áhuga.
Leiknum lauk með jafntefli,
þótt stúlkurnar úr Tý ljeki mik-
ið betur.
Eftir hádegi á sunnudag, kl.
21/2, flutti síra Sigurjón Árnason
guðsþjónustu inni í dal.
Var þá veður hið fegursta,
logn og sólskin. Á eftir flutti
síra Jes Gíslason ræðu fyrjr
minni Eyjanna.
Hófust nú íþróttir að nýju.
Þá talaði Þorsteínn Einarhson
íþróttakennari fyrir minni í-
þróttamanna. Þá var kept í þess-
um íþróttum: 400 og 1500 metra
hlaup, knattspyrnu milli 2. fl.
Þórs og Týs.
Um kvöldið var dans.
Frá þessari Þjóðhátíð Vest-
mannaeyja verður sagt nánar í
Lesbók Morgunblaðsins annan
sunnudag.
Enskur skipstjóri
dæmdur í fangelsi.
Látinn laus, en dóm-
ariim rekinn.
London 10. ágúst. F.tJ.
Enskur skipstjóri, að nafni
Kane, var fyrir nokkru tekinn
fastur í Majorca á Spáni fyrir
að sýna lögreglunni mótþróa, og
var hann síðan dæmdur í þriggja
ára fangelsi.
Bresk yfirvöld hlutuðust til
um það, að mál hans yrði tekið
fyrir aftur, og kom það fyrir
dómstólana sl. fimtudag.
Mælt er, að Kane skipstjóri
muni innan skamms látinn laus.
Þess er getið, að dómarinn, sem
upphaflega dæmdi skipstjórann
í þriggja ára fangelsisvist, hafi
verið sviftur embætti.
Sr. Óskar Þorláksson var á
sunnudagsmorgun settur í prests-
embætti sitt á Siglufirði af pró-
fastinum, sr. Stefáni Kristinssyni
á Völlum. (FÚ.'í
Hoover.
KAUPMANNAHÖFN í GÆR.
EINKASKEYTI TIL
MORGUNBLAÐSINS. ,
Hoover fyrverandi forseti
Bandaríkjanna hefir haldið
mjög skorinorða ræðu, þar sem
hann beindi orðum sínum aðal-
lega til Roosevelts forseta.
Heimtar hann að Roose-
velt gefi þjóðinni skýrt
og ákveðið til kynna,
hvað forseti ætli sjer með
einræðisstefnu sinni í
fjármálum og atvinnu-
málum Bandaríkjanna.
Alment er litið svo á, að með
þessari ræðu sinni hafi Hoover
kveðið upp úr með það, að hann
ætlist til þess, að hann verði í
kjöri við næstu forsetakosning-
ar.
Páll.
Dragnótaveiði við
Vestmannaeyjar.
Góður markað-
ur í Englandi.
Vestmannaeyjum í gærkvöldi.
Sex vjelbátar hafa undanfar-
ið stundað dragnótaveiðar hjeð-
an. Bátarnir eru þessir: Kap,
Gulltoppur, Von, Unnur, Emma
og Óðinn.
Með ’Goðafossi síðast voru
sendir út 54 kassar af fiski, sem
Kap hafði veitt. Fiskurinn var
seldur í Hull fyrir 106 stpd. Frá
Gulltoppi voru sendir út 30 ks.
og seldust þeir á 57 stpd. Frá
Von og Unni saman 111 ks., er
enn ófrjett um söluna. Af afla
Óðins og Emmu voru sendir út
63 ks., sem seldust fyrir 1591,4
stpd.
Með Primula voru sendir út
251 ks., sem er afli allra bát-
anna.
Afli bátanna hefir verið send-
ur út tvisvar í viku og í hvert
skifti hafa farið út frá 100—300
kassar.
Fiskurinn er mest smálúða og
þyrsklingur.
Þetta er besta verð, sem feng-
ist hefir fyrir dragnótaveiði.
Abyssiníiakeisari býö~
ar að láta af hendi
landsvæði fyrir fjár-
hagshlunnindi oghöfn
London 12. ágúst F.tJ.
Abyssiníu keisari ávarpaði í
gær embættismenn, presta ag
hershöfðingja sína, og skýrði
frá því, að ítalía hjeldi áfram
að senda hermenn og hergögn
til Afríku, þrátt fyrir alt, sem
hefði verið gert til að miðla mál-
um milli Ítalíu og Abyssiníu. —
Þrátt fyrir það sagðist hann
treysta Þjóðabandalaginu og1
vináttu Breta og Frakka í garð
Abyssiníu.
Abyssinía væri fús til sam-
vinnu við alla, sem kærðu ’si'g
um það, en hún myndi ekki þola
erlendu ríki neitt það, sem sétti
keisara hennar eða her niður í
tign.
Samt sagði hann, að
komið gæti til mála, að
Abyssinía ljeti af hendi
hluta af Austur-Abyssi-
níu í skiftum fyrir viss
f járhagsleg hlunnindi og
höfn.
ÍTALIR
ANDSNÚNIR.
Fregn frá ítalíu segir, að
þetta tilboð keisarans verði ekki
tekið til greina. Ítalía gangi
ekki að því að láta af hendi höfn
við Abyssiníu.
Abyssiníustríð verð-
ur upphaf að kyn-
þáttastríði.
London 12. ágúst F.Ú.
Forsætisráðherra Suður-Af-
rílcu, Hertzog, hjelt í gær ræðu
um Abyssiníudeiluna. Hann
sagði, að ófriður milli Ítalíu og
Abyssiníu mundi gerbreyta við-
horfi svertingja í Afríku við
hvíta menn og að það myndi
verða upphaf að kynþáttastríði
í Afríku.
Sjerhver innfæddur Afríku-
búi myndi hafa samúð með
Abyssiníumönnum. Hingað til,
sagði hann, hefir ekki þekst
kynþáttahatur milli Evrópu-
manna og Afríkumanna í Af-
ríku.
Hann sagðist því álíta, að ó-
friður í Afríku gæti gerbreytt
framþróun og menningu Afríku-
þjóðanna.
Saður-Afríka selur
ítölum kjötbirgðir,
fær ámæli fyrir
stuðning þann.
London 12. ágúst. F.Ú.
Suður-Afríka hefir selt ítá-,
líu 5000 smálestir af kjöti til
ítalska hersins og veitt á því
þriggja mánaða gjaldfrest.
Samband verkamannafjelaga
og samband verslunarmannafjé-
laga í Suður-Afríku hafa sént
stjórninni harðorð mótmæli
gegn þessari sölu, og segja að
ekki sje hægt að álíta hana ahn-
að en vináttubragð við Ítalíu.
Ennfremur mótmæla þeir kjöt-
sölunni á þeim grundvelli, að
kjötekla sje heima fyrir.
Mænusótt stingur sjer
niður norðanlands.
í júlímánuði bar venju frem-
ur mikið á mænusótt í Húna-
vatnssýslu.
Hefir blaðið snúið sjer til land-
læknis eftir frekari fregnum um
veiki þessa og útbreiðslu hennar.
Ilann skýrir svo frá:
Mænusótt hefir í sumar stung-
ið sjer niður í Sauðárkróks- og
Blönduóss-hjeraði.
Voru • í Sauðárkrókslijeraði 3
sjúkdómstilfelli í mars, 1 í apríl,
2 í maí, 3 í júní og 1 í júlí.
En í Blönduósshjeraði urðu
sjúkdómstilfellin 7 í júlímánuði,
eða 8, því maður búsettur í Rvík,
Magnús Konráðs.son verkfræðing-
ur, veiktist rjett eftir að hann
kom að norðan. Skýrslur eru ekki
komnar fyrir ágústmánuð.
— Eru þetta tiltölulega mörg
tilfélli af veiki þessari, saman-
borið við það, sem verið hefir
undanfarin ár?
— Síðan hinn mikli faraldur
var hjer 1924, hefir veikin gcrt
vart við sig á hverju ári, eink-
um norðanlands. Árið 1924 voru
hjer á landi skrásett 463 tilfelli
af mænusótt, og dóu 89 af sjúkl-
ingunum á því ári. Næsta ár
voru tilfellin aðeins 26 og árið
1926 aðeins 2. Voru aðeins fá til-
felli árin næ.stu til 1932. Þá gaus
upp nýr faraldur, þó mun minni
en 1924. Tilfellin voru 81 árið
1932 og dóu 15 af þeim.
Voru þá sjúkdómstilfellin til-
tölulega flest í Hofsóshjeraði. En
þar hefir enginn veikst í ár, þó
veilcin hafi ger-t vart við sig í
Sauð á rkróksh j er aði.
Þó að mænusót-t geri vart við
sig, er hún ákaflega mismunandi
þung. Má búast við því, að fleiri
taki veikina en vitað er nm með
vissu, því greinileg sjúkdómsein-
kenni koma ekki í ljós, nema
lömun eigi sjer stað.
Faraldur þessi norðanlands er
allskæður, hefir í Sauðárkróks-
hjeraði a. m. k. 1 sjúkbngur dá-
ið, en 5 eru alvarlega lamaðir.
En í Blönduósshjeraði hafa 2
dáið og 2 eru mikið lamaðir.
KÍGHÓSTINN.
Blaðið spurði landlækni um
leið, livað væri að frjetta af kíg-
hóstafaraldrinum.
Sagði hann, að kíghóstinn væri
nú mjög í rjenun, í flestum hjer-
uðum, nema þeim afskektustu.
Yfirleitt hefir hann verið væg-
ur, þó nokkuð mismunandi í hjer-
uðunum. Hafa sum hjeruð slopp-
ið svo vel, að ekkert bam hetir
þar dáið af hans völdum.
í flestum læknishjeruðum hafa
bólusetningar mikið verið notað-
ar, en ekki fullrannsakað, hvaða
árangur þær hafa borið.
Geysir hinn nýi í (jlfusi gýs
veiljulega einu sinni á sólarliring.
í gær mældi Benedikt Gröndal
verkfræðingur gos hans, er reynd
ist vera 32y2 m. á liæð. Nokkru
áður liafði hann gosið og var það
gos talsvert hærra, talið að það
hafi verið a. m. k. 40 metrar.
Blæjalogn var, þegar hverimi
gaus í gær.