Morgunblaðið - 25.08.1935, Blaðsíða 5

Morgunblaðið - 25.08.1935, Blaðsíða 5
Sunnudaginn 25. ágúst 1935, MORGUNBLAÐIÐ b i eyða nokkurri stund, til þess að .g-era náunganum greiSa. Hann -er einn af þeim hamingjusömu mönnum, sem hefir meiri á- nægju af að taka tillit til ann- ara, en að láta taka tillit til sín. Síglaður, með vakandi áhuga fyrir öllu, sem miðar til fram- iara og velfarnaðar, eykur hann blátt áfram gleði og á- nægju þeirra, sem honum kynnast og við hann tala. Þeir verða vinir hans. Hann er hinn besti „fellow*, hvar sem hann leggur sitt lið fram. í stjórn K. F. U. M. hefir hánn verið um mörg ár, og meðal áhugasomustu athafna mönnum þar. 1 kirkjumálum bæjarins hefir hann starfað mikið. Að ógleymdum störfum hans í þágu Sjálfstæðisflokks- ins, því þegar um málefni jflokksins er að ræða, er Sig- urbjörn altaí liðtækur áhuga- maður. Vinir hans. hinir fjölmörgu færa honum árnaðaróskir í -dag, þakka honum fyrir liðnu -árin og hlakka til þess að eiga hann fyrir vin og fjelaga í fjöldamörg ár enn. Rey kj a ví kurbrj ef. 24. ágúst. Fiskverslunin. Til Portúgal hefir Fisksölusam- bandið nýlega selt 60.000 pakka -af fiski. Og verið er að afgreiða einn farm til ítalíu. Br von á að annar farmur Mri þangað snemma í september. Fiskþurkur hefir gengið mjög •seint og treglega hjer sunnan- lands, ekki þó svo að neinar rskemdir hafi hlotist af. Þýskalandsförin. Mönnum verður tíðrætt þessa daga um Þýskalandsför lcnatt- spyrnuliðsins og hrakfarir hinna áslensku knattsþyrnumanna. í tveim fyrstu kappleikunum var ósigur íslendinganna svo mik- ill, að þeir fengu ekkert mark, en þýsku liðin, er ljeku á móti þeim, fengu 11 í hvert sinn. Útkoman var þá 22:0. Síðari hálfleik síðari leiksins, >er háður var í Berlín, var útvarp- að hingað, og heyrðist veh 12000 áhorfendur horfðu á leikinn. Qg sagt var, að áhorfend- um hefði runnið svo til rifja ófar- ir íslendinga, að engu var líkara, en áliorfendur væru íslenskir. í hvert sinn, sem það þótti líklegt, að lendingarnir gætu komið knettin- um í mark, ómuðu fagnaðarópin. En í hvert sinn urðu hinir þýsku Islandsvinir fyrir vonbrigðum. Sjálfþekking. En menn mega með engu móti líta svo á, að þessi för hinna ís- lensku knattspyrnumanna hefði betur verið ófarin. Osigur þeirra er þeim að vísu hvimleiður. Oóðar móttökur í Þýskalandi vega það nokkuð upp. En fyrir íslenska knattspyrnu- menn og knattspyrnuíþrótt fæst af þessu nauðsýnleg, nærri að segja ómetanleg vitneskja um það, á hvaða stigi við stöndum í þess- . ari alþjóða íþrótt. Þessi vitneskja kann að koma f einhverjum í fljótu bili á óvart- En hún kemur bókstaflega eng- um á óvart, þegar betur er gáð að. Skilýrði íslenskra íþróttamanna, til æfinga og þjálfunar eru hm verstu. Æfingar geta ekki farið fram í knattspyrnu, nema um hásumarið. Ytra geta menn æft sig og þjálfað alt árið. Og sumir telja, að áhuga margra ísl. íþróttamanna til æfinga, sje ábótavant. En sú deyfð kemur fyrst og fremst til af því, að ekki er runnið upp fyrir þeim, hve mikið útheimtist til þess að standa erlendum keppendum á sporði. í mörg horn að líta. A fleiri sviðum en sviði íþrótta vantar okkur ísléndinga sjálf- þekking. Einangrun okkar ;ög alda svefn er orsök þessa. Á seinni árum hafa erlendar þjóðir rekið upp stór augu, er þær hafa sjeð, að hjer voru ekki Eskimóar. Erlendir menn hafa oft lýst landi og þjóð lit frá því sjónar- miði, hve langt við stæðum skræl- ingjum framar. En þeir hafa leitt það hjá sjer að lýsa því, hvernig við stæðumst samanburð við aðra. Þó knattspyrnuliðið hafi enga sigurför farið til Þýskalands er ekki víst að ísl. knattspyrnumenn sjeu ver undir það búnir en landar þeirra eru á öðrum sviðum, að standast samanburð við stórþjóð- ir. Þetta ber okkur að hugleiða. Að ofmetnast ekki, eins og stund- um hefir bólað á, þegar útlend- ingar, sem gerðu til okkar litlar kröfur, töldu okkur ýmislegt til gildis. Bagalegt minnisleysi. Skúli Guðmundsson formaður innflutningsnefndar, er hælir sjer af því, að hann hafi ekki annað en „brjöstvit“ að bjargast við ,í verslunarmálum, hefir nú verið rekinn svo á stampinn, að hann er hættur að tala um hrjóstvitið, og kennir minnisleysi sínu um ýms- ar þær vitleysur, er liann hefir framið. Ein af tilfinnanlegustu vitleys- um og hörmulegum axársköftum hans er það, að þvinga íslenska innflytjendur til að kaupa vörur frá Danmörku, og m. a. þýskar vörur, sem betur væru keyptar í Þýskalandi, en takmarka svo mjög yörukaup í Þýskalandi, að ekki er hægt að lcoma þangað ís- lenskum framleiðsluvörum, enda þótt þar sje fáanlegt fyrir þær hæsta verð. Kemur þetta t. d. mjög liart niður á ullinni, sem hverig fæst jafn hátt verð fyrir og í Þýskalandi. En bráðabirgða- lög heimila stjórninni að tak- marka innflutning til Þýskalands m. a. á ull. Svo hörmulega ferst þessum Skúla sín forusta í viðskiftamál- um. Þegar honum er bent á tjón það, sem hann á þenna liátt hef- ir bakað framleiðendum, reynir hann að afsaka sig með því, að hann hafi ekkert vitað um fyrir- ætlanir stjórnarinnar með bráða- birgðalögunum! Það er sannanlegt, að Skúli beinlínis talaði á sínum tíma um nauðsyn laga þessara — til þess að hann gæti betur risið undir skömm sinni, af því að hafa spilt markaði fyrir íslenskar afurðir. Þegar ofan af honum er flett, reynir hann ekki lengur að bera fyrir sig brjóstvitið, en kemur til dyranna eins og hann er klædd- ur — eins og álfur út úr liól. Lánsfjaðrir. Kjötverðlagsnefnd sendi blað- inu til birtingar állítarlega skýrslu um kjötsöluna árið sem leið, og Ijet um leið þá ósk í 1 jósi, að skýrsla þessi gæti orðið til þess að leiðrjetta ýmiskonar misskiln- ing, sem lcomið liefði fram í þessu máli. En nú er það komið í Ijós, ð skýrslan hefir ekki að öllu leyti verið beinlínis samin til þess að „leiðrjetta“ misskilning, heldur alt eins til þess að auka' og rót- festa blekkipgarnar um verk kjötverðlagsnefndar og kjötsölu- skipulagið yfirleitt. Kjötverðlagsnefnd blandar sam- an í skýrslu sinni verðjöfnunar- gjaldi því, sem bændur, er selja á innlenda markaðnum láta af hendi rakna til þeirrá, sem selja kjötið til útlanda, og ríkissjóðstillagihu (150 þús.) sem greitt var út á útflutningskjötið, og telja ríkisstyrkinn, sem ekk- ert kemur „skipulaginu“ við, sem lið í kjötsölulögunum. En kjöt- verðlagsnefnd verður að leggja niður þessar lánuðu fjaðrir. Útkoman. Þegar greitt er úr blekkingum kjötverðlagsnefndar, kemur það í Ijós, að verðið á freðkjötinu, sem iit var flutt, varð tveimur aurum lægra, í fyrrahaust, en haustið 1933, og verð á saltkjöti 2y2 eyr- ír hærra. Þessi 2y2 eyrir á saltkjötinu, eða öllu ehldur % eyrir, sem salt- kjöt hækkaði umfram lækkun freðkjötsins, er þá hin endanlega niðurstaða af kjötsöluskipulag- inu. í höndum þeirra, sem með þessi mál fara, var ekki við öUu betri árangri að búast, óvíst, að stjórn- arliðið liafi vænst glæsilegri iit- komu. Þeir valdamennirnir í kjöt- sölumálinu, virðast a. m- k. vera mjög ánægðir. Þeir kvarta ekki. Ilvað segja bændur, framleiðend- ur. Eru þeir ánægðir. Eða bjugg-. ust þeir ekki við meiri árangri eftir kosningaloforðin í fyrra. Nú hefir Jón ívarsson kaup- fjelagsstjóri látið af formensku kjötverðlagsnefndar, en Páll Zop- honíasson er tekinn þar við stjórn- artaumunum. Svo bændur munu ekki þurfa að kvíða því að brenna inni með kjöt sitt ónotað. Páll hefir, sem kunnugt er, bor- ið fram þá frumlegustu markaðs- hugmynd, sem hjer hefir ]iekst, ef hann ráðlagði bændum að brytja ærnar niður í kýrnar. Ekki furða þó núverandi stjórn telja Pál hæfastan allra til þess að stjórna „skipulagi" kjötsöl- unnar. Tímaútgáfan. Vikublað Framsóknarflokksins Tíminn, er nú nálega tvítugur orðinn. Hefir blaðinu, sem kunn- ugt er, að mestu' leyti verið hald- ið úti fyrir fjárstyrk og stoð frá Sambandskaupfjelögunum. Ekki hafa Tímamenn enn get- að fundið neitt hliðstætt dæmi í heiminum þessi ár, um það, að samvinnufjelög kostuðu stjórn-. tryggingarfjelög, sem rjeðú málablöð í svipuðum anda og skipstjóra á liin íslensku skip. ís- Tímann. Meðal nágrannaþjóðanna varð- veita samvinnufjelögin pólitískt hlutleysi sitt, eins og væri það fjöregg þeirra. En ljjer á íslandi eru fjelögin látin standa straum af blaði eins og Tímanum. Ymsir Sjálfstæðismenn eru, sem kunnugt er í kaupfjelögun- um. Þeir eins 0g aðrir sem í fje- lögum þessum eru, eru því hlut- takendur í útgáfu Tímans. Þeir eru þannig þvingaðir til að standa að nokkru leyti straum af blaða- útgáfu, sem þeir hafa mestu and- stygð á. Sem einskonar hugnun fynr þetta ósjálfráða tillag sitt, hafa þessir menn fengið sent blaðið heim til sín. En nú þykir útgefendum Tím- ans þetta ekki nóg. Nú hafa þeir hafið allsherjarherférð á hendur þeim Sjálfstæðismönnum, sem á undanförnum áruxfi hafá tekið við Tímanum. Nú rignir stefnum yfir þessa menn fyrir ógreidd árgjöld' Tímans. Það er Páll Magnússon af Eski- firði, sem tekið hefir að sjer þessa umsvifamiklu skuldheimtu. Klaufaleg illmælgi. Stjórnarblöðin eru tekin upp á því, að halda því fram, að for- maður Sjálfstæðisflokksins, Olaf- ur Thors, beri óhróðurssögur í ei-lend þlöð um fjárhagsástand þjóðarinnar, til þess með þyí að spilla fyrir viðskiftum íslendinga við erlendar þjó.ðir og ná sjer þannig niður á landsstjórninni! Slíliar getsakir og söguburður sýna ekkert annað en lubbahátt og lágmenningu stjómarliða. Þeim finst slík bardagaaðferð möguleg. Þeir geta hugsað sjer hana. Máltækið segir: „Margur hyggur mann af sjer“. En ákaflega treysta þeir stjórn- arliðar. blint á ljelega dómgreind lesenda sinna, er þeir álíta, að hægt sje að telja nokkrum manni trú um í rauðu flokkunum, að formaður stærsta stjórnmála- flokks í landinu, sem jafnframt er formaður fjelags íslenskra tog- araeigenda, geri sjer leik að því, að gera þessum stærsta atvinnu- vegi íslendinga erfiðara fyrir, með því að bera fram ósannindi um fjárhag vorn í erlend blöð. Þeir menn, sem trúa slíkum áburði ættu skilið að fá verðlaun hjá stjórnarliðinu fyrir einfeldn- ingshátt og trúgirni. Á villigötum. Járnsmiðaverkfallið við togal’- ann Andra verður langfrægt í at- vinnusögu okkar íslendinga. Með því að halda skipinu ósjó- færu viku eftir viku á þuru landi, þykjast járnsmiðirnir vinna að því að fá viðgerðir skipa í fram- tíðinni inn í landið. Það eru erlend vátryggingar- fjelög sem annast viðgerðir skip- anna. Skyldu þau verða liðlegri til þess að láta draga skipin lijer á land til viðgerðar, eftir en áður? Það er erfitt að láta sjer detta slíkt í hug. Tökum hliðstætt dæmi. Hugs- um okkur að það væru erlend vá- lenskir skipstjórar vildu kippa þessu í lag. íslendingur yæri fenginn til þess að fara með skip stuttan spöl. Hann gripi tækifær- ið og hleypti því beina leið í strand. Segði síðan við vátrygg- ingarfjelögin: Jeg dreg ekki skip- ið af grunni, nema jeg fái að vera sldpstjóri áfram. Og svo hjeldi maðurinn því fram, að hann hefði strandað skipinu til þess að auka álit á stjett sinni og þjóð, gagnvart hinum erlendu viðskiftamönnum! Járnsmiðirnir, sem dregið hafa naglana út úr botni Andra, hálda því fram, að þeir eigi mikla samúð skilið fyrir að neitá að lialda verkinu áfram. Þeir segjast vera að gera sjer og þjóðinni gagn með þessu tíl- tæki- Þeir hafa ekki beinlínis „hitt nagiann á höfuðið“, í þeirri við- leitni sinni — og gera það ékki með neinu öðru en því, að hitta þá rjettu nagla, sem eftir er að setja í botninn á togaranum Andra. Fiskveiðar Færeyinga hjá Grænlandi og Islandi. Veiðarnar við Is- land minka, en auk- ast við Grænland. Síðan fiskveiðar Færeyinga liófust hjá Grænlandi fyrir 10 árum, hafa þær farið vaxandi ár frá ári. Seinustu þrjú árin hafa veiðarnar verið sem hjer segir: Ár Fiskimenn Fiskafli 1932 « 1411 6000 smál. 1933 1609 7258 — 1934 2625 10251 — En á sama tíma hafa fiskveiðar Færeyinga við ísland farið stór- um minkandi. Árið 1932 veiddu þeir hjer um 20 þús. smálestir af saltfiski, árið 1933 um 18 þús. smálestir, 1934 um 11 þús. smá- lestir og í vetur var afHnn svip- aður. Af þessum samanburði má sjá, að veiðarnar hjá Grænlandi hafa haft' stórkostlega þýðingu fyrir Færeyinga. Samkvæmt alþjóða liagskýrsl- um veiddust alls við Grænland árið 1932 um 44.000 smálesta af saltfiski, en sama ár við ísland um 485.300 smál., eða rúmlega 10 sinnum meirá, en þess verður að gæta, að við ísland eru fiskveiðar reknar alt árið, en ekki nema sumartímann lijá Grænlandi. . í fyrra veiddu Færeyingar hjer um bil jafn mikið hjá Grænlandi eins og hjá íslandi, og ef breyt- ingin verður jafn mikil næstu ár, eins og hún hefir verið -að undan- förnu, þá verða aðalfiskveiðar þeirra við Grænland í framtíðinni. Stórt dæmi. Englendingur einn, sem auðsjáanlega hefir haft næg- an tíma hefir reiknað út, að ef skifta ætti öllu ræktuðu landi í heiminum jafnt milli allra manna kæmi nákvæmlega 280 kvaðrat- metrar í hvers hlut.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.