Morgunblaðið - 11.09.1935, Page 5
Miðvikud. 11. sept. 1935,
MORGUNBLAÐIÐ
Síra Richard Torfason.
„Hvat brast þar svo hátt“.
Vábrestur hefir að oss borist,
þar sem fallinn er til foldar, og
færður til moldar í dag, síra
Richard Torfason, fyrverandi að-
albókari Landsbanka íslands.
Hinn óþekti „Finnur“, hefir
enn ör sinni skotið, og hitt „inn
mikla mann“.
Lífsstarf síra Rieh. Torfasonar
var svo margþætt, að eigi verður
rakið til hlítar í fáum dráttum.
Hann var fæddur í Vestmanna-
eyjum 16. maí 1866, og ljest hjer
í Landakotsspítala að morgni þess
3. september síðastl. Var því tæpu
ári vant til fyllingar sjöunda
tugar.
Poreldrar hans voru: Torfi
Magnússon prests í Eyvindarhól-
um, Torfasonar prests á Breiða-
bólsstað í Pljótshlíð, Jónssonar
prests í Hruna, Pinnssonar bisk-
ups. Kom Torfi heitinn 27 ára
að aldri, árið 1863, fra Kaup-
mannahöfn, til Vestmannaeyja,
og settist að þar, sem versiunar-
maður. Kvæntist ári síðar Jó-
hönnu Sigríði Margrjeti Pjeturs-
dóttur, Bjarnason kaupmanns í
Vestmannaeyjum.
Árið 1800 fluttust foreldrar R.
T. til Rvíkur. Bjuggu þau lengi í
húsi því, sem Geysir er neíiidur
við Skólavörðustíg, og munn eldri
Reykvíkingar minnast þeirra
sæmdarh jóna.
Síra R- T. gekk í Latínuskól-
ann í Reykjavík árið 1866, út-
skrifaðist þaðan 5. júlí 1885 með
I. einkunn. Átti hann því 50 ára
stúdentsafmæli 5. júlí yfirstand-
andi sumars og bauð þá til fagn-
aðar til sín heima, þeim af sínum
bekkjarbræðrum, sem hann náði
til.
Síra R. T. tók embættispróf við
prestaskólann 24. ágúst 1888.
Fekk veitingu fyrir Hrafnseyrum
og Álftamýrarprestakalli 24. okt.
1891, og settist að á Hrafnseyri,
vorið 1892, þá nýkvæntur, Mál-
fríði Kristinsdóttur, Lúðvígs
: steinsmiðs í Reykjavík, Alexíus-
sonar. Var hún systir Lárusar
Lúðvígssonar, þess sem stofnsetti
Bkóverslun Lárúsar G. Lúðvígs-
sonar, sém mörgum er kunn. Mál-
fríður dó 16. nóv. 1906, aðeins 35
ára. Um liana er sagt, að hún hafi
verið „atgerfiskona, góð og trygg-
lynd“. Með henni eignaðist síra
Riehard Torfason 2 sonu. Gunnar,
er fór til Ameríku á unga aldri,
— innan við tvítugt — kappgjam
sem hann átti kyn til og atgerfis-
maður. Gekk í her Canadamanna
og fell á Vesturvígstöðvunum í
Frakklandi, 25. mars 1918. Var
hann síra Richard Torfasyni mjög
harmdauði, þótt vart mætti þeir
á sjá, sem ókunnir voru. Til minn-
ingar um þann látna son sinn, til-
einkaði hann honum eitt herbergi
í hinum nýbygða „Garði“ ísl.
stúdenta hjer í Reýkjavík. Mun
það einnig verða þeim, sem það
herbergi byggja um ökomna fram-
tíð, ævarandi mining gefandans.
Annar sonur síra Rich. Torfa-
sonar er Magnús, í mörg ár sím-
ritari á landsímastöðinni hjer í
Reykjavík og nú stöðvarstjóri á
Borðeyri, við Hrútafjörð, kvænt-
Richard Torfason.
ur Sigríði dóttur Matthíasar Ól-
afssonar, frá Þingeyri, fyrver-
andi alþingismanns. Era þau
hjón svo vel látin af hinum mörgu
sem við þau þurfa að skifta, að
fágætt er.
Síra R. T. var þríkvæntur.
Þann 6. febr. 1909, kvæntist hann
í annað sinn, Kristínu Jóhönnu
Jónsdóttur, prófasts á Auðkúlu,
Þórðarsonar og Sigríðar Eiríks-
dóttur sýslumanns Sverrissonar.
Þriðja kona síra R. T. og eftirlif-
andi ekkja lians nú, er Ólafía
Runólfsdóttir Ólafs, komin af
hinni þektu Mýrarhúsaætt að Sel-
tjarnarnesi.
Systkini R. T. voru: Magnús
Torfason sýslumaður og alþingis-
maður Árnesinga. Guðrún, Gift
Ilelga Jónssyni, fyrrum kaupfje-
lagsstjóra á Stokkseyri, nú bú-
sett í Reykjavík. Pjetur og Ragn-
liildur, búsett í Vesturheimi og
Jóhanna, Sigurður og Sigríður,
sem einnig fóru til Vesturheims,
en eru nú látin.
Eins og áður getur, þá tók
síra R. T. Hrafnseyrar og Álfta-
mýrarprestakall árið 1892. Var
hann prestur þar í 9 ár. Árið
1901 fluttist hann frá Hrafns-
eyri til Holta-Þinga og var þar
prestur í 3 ár. Ljet af prestskap
eftir 12 ára þjónustu, árið 1904.
Er orð á því haft, að hann hafi
verið skörulegur og þrekmikill, og
hafi liaft allmikil afskifti af
sveitar og hjeraðsmálum á prests-
skaparárum sínum, en rækti jafn-
framt prýðilega embættisverk sín
og hafði góða búsumhyggju, enda
var hann í hvívetna mikill at-
hafnamaður. Er hann ljet af
prestskap, fluttist hann til Reykja
víkur og gerðist ritari Hallgríms
biskups Sveinssonar og starfaði
þar um skeið. Um nokkurt tíma-
bil var hann starfsmaður á skrif-
stofu verslunar Björns Kristjáns-
sonar hjer í bæ, þar til er hann
árið 1908 gerðist starfsmaður í
Landsbankanum og var settur til
að gegna bókarastörfum þar, 27.
sept. 1911 og fekk veitingu fyr-
ir því starfi 23. des. s- á. Gegndi
hann því embætti alt t’il ársloka
1933, er hann fyrir aldurs sakir,
samkvæmt lögum, varð að láta af
því starfi, þá við bestu heilsu og
fullum þrótti.
Skömmu síðar kendi hann van-
heilsu þeirrar, er leiddi hann til
dauða. Vann hann þó á köflum
við hinn svokallaða „Kreppulána-
sjóð“, þar til hann, fyrir rúmum
mánuði lagðist á Landakotsspítala
5 T
Sjöundi dráttur
i Happdrætti fláikóla íilands.
Nr. 11689 20000 krónur. Nr. 8627 5000 krónur.
Nr. 4417 2000 kr. Nr. 5423 2000 kr. Nr. 12640 2000 kr.
Nr. 115 1000 kr. Nr. 5656 1000 kr.
Nr. 13584 1000 kr. Nr. 23994 1000 kr.
Þessi númer hlutu 500 krónur:
1067 4899 6458 6633 8064 10593
10751 11152 17028 21203 21614 23221
Þessi númer hlutu 200 krónur:
198 4568 7366 8442 10202 12512 16654 20451 23327
499 5929 7556 8672 10675 12840 18168 20457 23586
1810 6077 7572 8708 10780 12882 18201 21758 23668
2320 6526 7943 9808 11699 13965 18882 22292 23996
3585 7114 8101 9832 11890 15593 19439 22651 24495
Þessi númer hlutu 100 krónur:
1 3692 6446 10335 12729 15879 19636 22570
33 3748 6537 10503 12735 15951 19670 22697
601 3877 6658 10571 12846 15966 19682 22773
667 3885 6877 10630 12952 15985 19685 22869
730 3893 6886 10641 13067 16003 19834 22872
764 3897 6911 10652 13237 16048 19999 22877
1032 4011 6935 10815 13280 16216 20023 22948
1058 4124 7012 10830 13301 16292 20074 23037
1094 4423 7102 10837 13366 16407 20121 23047
1302 4504 7155 10927 13455 16499 20228 23267
1315 4581 7194 10934 13464 16610 20267 23338
1377 4592 7265 11038 13474 16612 20374 23565
1426 4678 7405 11059 13485 16671 20444 23578
1465 4754 7512 11128 13660 16702 20453 23611
1812 4826 7548 11173 13747 16789 20718 23684
1813 4833 7555 11208 13824 16851 20719 23794
1844 4909 7747 11354 13968 16895 20753 23836
1858 4971 7756 11358 13972 17026 20764 23904
1914 4995 7767 11415 14011 17086 20782 23907
1979 5004 7796 11443 14048 17410 20810 23926
2002 5050 7802 11519 14260 17488 20817 23937
2112 5059 8654 11755 14323 17676 20862 23988
2394 5071 8709 11572 14394 17727 20879 24006
2453 5083 .8767 11700 14406 17801 20882 24009
2687 5103 8886 11702 14418 17939 20908 24103
2696 5166 8940 11769 14442 18163 20931 24133
2710 5173 8973 11776 14485 18237 21189 24161
2733 5208 9089 11885 14591 18266 21321 24199
2948 5333 9186 11983 14660 18338 21361 24288
2971 5336 9371 12180 14771 18385 21393 24306
3108 5353 9416 12222 15104 18589 21578 24313
3183 5479 9482 12260 15321 18674 21625 24378
3328 5589 9531 12311 15447 18684 21642 24445
3374 5609 9608 12343 15525 18710 21666 24501
3378 5774 9637 12348 15566 18852 21708 24595
3427 5857 9779 12353 15608 18954 21804 24615
3455 5968 9799 12522 15630 19025 21936 24661
3496 6017 9914 12580 15714 19044 22048 24720
3509 6041 9960 12590 15792 19061 22155 24750
3560 6233 10115 12608 15813 19236 22326 24772
3605 6240 10204 12654 15833 19351 22538
3684 6325 10234 12673 15837 19585 22561
(Birt án ábyrgðar).
og beið þar þess, sem orðið er.
Síra Riehard Torfason, var öðr-
um fremur höfðinglegur að vallar-
sýn, beinvaxinn, hár og herða-
breiður. Tígulegur í allri fram-
göngu, sem svo bar af» að flestum
þeim sem voru í návist hans, fanst
þeir yrðu hærri og stærri, ef þeir
voru í fylgd með honum. Mun hann
ekki hafa skort liðskort á sinni
æfibraut, svo vel sem hann var
til foringja fallinn. Mikilvirkur
og strangur við sjálfan sig og
krafðist sama af öðrum. Fámælt-
ur var hann og hreinslfilinn. En
skorinorður og gagnorður ef því
var að skifta.
Hvers trausts hann naut þegar
í byrjun starfstímabils síns, að
afloknu skólanámi, má marka af
munnmælum Pjeturs biskups, er
hann var ritari hjá. Eitt sinn
utan skrifstofutíma, þurfti Pjetur
biskup að afgreiða vandamál, sem
ekki þoldi bið. Varð honum þá
að orði: „Jeg vildi að hann
Richard væri kominn, þá væri
mjer borgið“. Mun svo hafa ver-
ið um þau störf, sem honum voru
falin á hendur, að eigi hafi þótt
betur borgið í höndum annara.
Nú ert þú horfinn sjónum okk-
ar. Bjartur varstu að yfirlitum og
í daglegri umgengni. Bjart var
eixmig yfir þjer, er jeg leit þig
síðast, þótt þú látinn værir. Var
sem þú svæfir værum bhindi, í
faðmi friðar og kærleika. Von
og vissa okkar er sú, að þú vakn-
aður sjert, nú í faðmi þess, er þú
trúðir best. Munt þú hjá honuní
njóta þeirra verka og uppskera
þau laun, sem eigi verða vegin á
vogaskálum þess mannlífs, þar
sem við vinir þínir hjer stöndumi
enn. Með innilegu þakklæti fyrie
samveruna, trygglyndið og vin-
áttuna.
Sú er vor kveðja til þín.
R. P. Levy.
■••I—• « • >
Þeir Ármenningar er vilja taSS
þátt í innanfjelagssundmóti Áir-
manns, eru beðnir að gefa sig franí
við Þ. Magnússon, Frakkastíg 13,
fyrir næsta sunnudag. Kept yer$»
ur í mörgum aldursflokkum. f