Morgunblaðið - 13.09.1935, Page 4
4
MORGUNBLAÐIÐ
wmmmmmmmimiimmmmmmmmmmmmmmmmm n i jiuhmiwmwwb
I D R O T T I R
_____Föstudaginn 13. sept. 1935L,
Menning og agi.
Norska „Morgenavisen“ í Berg-
en, birtir grein með þessari fyrir-
sögn og fer þar ákaflega lofsam-
legum orðum um flokk „Vals“,
sem fór til Noregs í sumar.
„Vjer fáum oft heimsókn af
erlendum knattspyrnufjelögum
segir í greininni og hefir oltið á
ýmsu um knattspyrnudugnað
þeirra. En um agann — bæði ut-
an og innan vallar — hefir ekki
altaf verið jafn vel.
„Heimsókn „Vals“ gefur oss til-
efni til að geta hinnar heiðarlegu
undantekningar um þenna flokk.
Valur kom ekki hingað til að sýna
okkur hinar ýmsu kúnstir
knattspyrnunnar, heldur til þess
að sjá og læra. En við gátum
einnig lært nokkuð af Islend-
ingunum, nokkuð sem er mikil-
vægara en knattspyma, en það er
menning og agi. Og um þetta bar
flokkurinn af þeim flokkum, sem
jeg hefi haft skifti af. Hjer þurfti
engrar barnfóstru við, sem varð
að gæta þess að allir kæmu jafn-
an fram sem heiðursmenn. Þegar
flokkar eru á ferðalagi, þá vill
oft svo við bregða, að gleðskapur
er mikill og einhverjir fara yfir
markið — svo að notað sje veikt
orðbragð — og óþ^egindin láta þá
ekki á sjer standa.
Þá þrjá daga, sem jeg var í
fylgd með liðinu, varð jeg ekki var
við neina „skál“, og er jeg inti
foringja fararinnar, hr. Frímann
Helgason, eftir því „hvort þeir
væru allir bindindismenn1‘, þá var
mjer svarað „að svo væri um
• en þegar við erum á ferða
' i til að iðka íþrótt okkar, þá
■ ;n við allir bindindismenn“.
;á, svo mæla konungar.
vissi að menning íslendinga
( . ikil, en að kleyft væri að
gero þetta á þann hátt, sem segir
í r.varinu vissi jeg ekki.
j>að hlýtur að vera ánægjulegt
fyrir landið og fjelagið að eiga á
að skipa öðmm eins fulltrú-
um, og notalegt fyrir okkur að
vita að skyldleikinn er í lagi. Jeg
vil ennfremur geta umsagnar um-
sjónarmannsins á „Viktoria
hótell“, sem sagði að „annan eins
flokk eða slíka fjelagsgistingu
hafði hótelið ekki haft“. Og þetta
segir meir en mörg orð.
Oreinin endar á þessa leið:
„Hafi fjelagsandinn og íþróttin
legið til grundvallar fyrir fram-
komu Vals, þá þurfa þeir sannar-
lega ekki að taka á sig ferð til
að læra, því að þeir eru lengra
komnir en margir.“
Undir greinina ritar Harald
Jernsrad, norskur íþróttafrömuð-
ur. Þessi lofsamlegu ummæli eru
„Val“ til mikils sóma og til góðs
gagns fyrir kynningu íslensku
þjóðarinnar erlendis.
Jafnframt örva þau til eftir-
breytni og ættu íþróttamenn okk-
ar að leggja kapp á að temja sjer
slíkan menningajr-aga utan og
innan vallar, ekki að eins þegar
þeir eru á ferðalagi, heldur einnig
í heimahögum.
Iþróitaskóllnn i Ollerup.
Hjer birtast myndir frá íþróttaskólanum í Ollerup. Til vinstri á myndinni sjest íþrótta-
höllin og í baksýn sjest íþróttavöllurinn nýi, þar sem lagður var 5000 kvaðratmetra leikfim-
ispallur, og þar sem íþróttasýningarnar á mótinu í sumar fóru fram. Meðfram þessum íþrótta-
palli var rúm fyrir 50.000 áhorfendur og auk þess fyrir 13.000 leikfimismenn. — Til hægri á •
myndinni sjest landslið Dana í leikfimi að æfingu hjá íþróttahöllinni í Ollerup.
IÞróttamot í frjálsum Tennis.
íþróttum 22. þ. m.
Perry tapar fyrir
Allison.
Fyrir forgöngu Olympsnefnd-
ar og stjórnenda íþróttafjelag-
anna Ármann, í. R. og K. R.,
verður haldið mót í frjálsum j
íþróttum hjer á íþróttavellin-;
um 22. þ.. m. kl. 2. Verður þar
kept í eftirfarandi íþróttum:
Hlaup: 100, 400, 800 og 1500
metra og 110 m. grindahlaupi.
Stökk: Langstökk og stangar-
stökk. Köst: Kringlukast, spjót-
kast og kúluvarp.
Á meistaramótinu síðast var
svo slæmt veður og kalt, að
engin vor var til að íþrótta-
mennirnir gætu náð þeim af-
rekum, sem þeir eiga best til.
Og þó stuttur tími sje til stefnu
að þessu móti 22. þ. m. má fylli-j
lega búast við, sjerstaklega ef^
íþróttamennirnir verða hepnirj
með veður, að þeir bæti mjög
árangurinn frá meistaramótinu j
og að jafnvel takist að setja
met.
Sjeð verður um að mótið
gangi fljótt og greiðlega og að
íþróttamennirnir keppi ekki í
of mörgum íþróttum hver. Einn-
ig má búast við því að allir
okkar bestu íþróttamenn keppi
á þessu móti, þeir sem í bænum j
eru og heilbrigðir eru.
Keppendur gefi sig fram við
hr. Ólaf Sveinsson, box 394,
fyrir n.k. mánudag. Og von-
andi sjá þeir sóma sinn í því
að mæta allir til leiks og gera
sitt besta til að ná verulega
góðum árangri.
Mótið er opið öllum, sem
keppa vilja 1 þeim íþróttum
sem á skránni eru, en þó má
að þessu sinni búast við að fje-
lagsstjórnirnar sendi aðeins af-
burðamennina, því keppnin
verður áreiðanlega mjög hörð.
Þeir bæjarbúar, sem ánægju
hafa af að sjá keppni í frjáls-
um íþróttum geta nú hlakkað
til að koma á völlinn 22. þ. m.,
því að þar keppa okkar bestu
menn og sjeð verður um að
keppnin gangi greiðlega. Mun
Helen Jacobs vinnur
heimsmeisfarafign-
ina í 4. sinn.
London 11. sept. F- Ú.
Fred Perry tapaði fyrir 'Wihner
Allison í gær í tenniskepninni sem
nú fer fram í Forest Hills í New
York. Allison og Wood hittast því
Fred Perry (til vinstri.
í úrslitaleiknum á morgun. Perry;
vildi sú óhepni til,.að hann ras-^
aði á tennisvellinum, og meiddi sig (
í baki, og hefir læknir hans bann- j
| að honum að leika tennis það sem
j eftir er ársins.
Helen Jacobs vann heimsmeist-i
aratignina í einmenningskepni
kvenna, á móti Mrs- Fabian. Er
þetta fjórða árið í röð, sem Miss
Jaeobs hlýtur heimsmeistaratign-
ina, en það hefir engin kona áð-
ur gert.
því verða fjölmenni mikið á
vellinum þennan dag til að
horfa á síðustu keppni ársins
í frjálsum íþróttum.
K. Þ.
Haustmót 2. ftokks.
Undanfarna daga hafa knatt-
spyrnumenn Reykjavíkurfjelag-
anna Fram, K. R., Yals og Vík-
ings háð harðvítuga baráttu um
meistaratignina í 2. flokki. Keppa
þá margir efnilegir knatt-
spymumenn og -hafa áhorfendur
skemt sjer ágætlega, því flestir
kappleikirnir hafa verið mjög
skemtilegir.
Kappleikirnir hafa farið þann-
Valur vann Víking 3—0
Fram — K.R. 1—0
Fram — Víking 4—1
Valur — K. R. 3—1
Fram hefir því 4 stig, Valur 4
en, K. R. og Víkingur ekkert.
Á sunnud. kl. 1,30 keppir K. R.(
og Víkingur, en kl. 2,45 Fram og
Valur og er síðari leikurinn úr-
slitaleikur.
Skal engu spáð um það hvor
sigra muni en fullyrða má að báð-
ir munu gera sitt besta til að ná
meistaratigninni í 2- flokki. Mega
því áhorfendur bíiast við góðri
skemtun og drengilegum leik.
K. Þ.
íþróttayfirlit.
Norska blaðið „Sportmand-
en“, sem þó alla jafna flytur
áreiðanlegar íþróttafrjettir, get-
ur þess að í milliríkjakeppni
milli íslands og Þýskalands
hafi íslendingar tapað með 0 :3.
— Mun þarna vera blandað
málum og átt við kappleikinn
milli K. R. og Þjóðverjanna í
sumar. Og þó K. R. sje sterkt
og gott knattspyrnufjelag munu
íslendingar ekki enn telja flokk
þeirra landsflokk okkar. Eða
hvað finst hinum Reykjavíkur-
fjelögunum?
Fyrir skömmu kepptu Finnar
og Þjóðverjar í frjálsum íþrótt-
um og má nærri geta, að báðir
hafi lagt mikið kapp á að sigra,
því að þessar þjóðir munu nú
einna fremstar í Evrópu í frjáls
um íþróttum, og báðar hafa
Viðeyjarsund i gær.
Pjetur Eiríksson.
í gærmorgun klukkan 11,
lagði Pjetur Eiríksson úr K.
R. til sunds frá Viðey og synti
að Steinbryggjunni í Reykja-
vík. Þangað kom hann kl. 12%
og hafði þá verið klukkutíma
og 30 mínútur á sundi.
Pjetur lagði af stað frá Virk-
inu, þar sem kallað er Há-
karlabás. Veður var hið besta,
lítil alda og sjávarhiti um 11
stig. Sundmaðurinn virtist
óþreyttur eftir sundraunina™
Hann synti skriðsund alla leið.
Bátur fylgdi Pjetri í gær frá
Viðey. Voru í honum Jón Páls-
son sundkennari, Benedikt Jak-
obsson íþróttakennari og Óskar
Þórðarson læknir.
Pjetur Eiríksson er sjötti
maður, sem syndir Viðeyjar-
sund.
Fyrstur synti þessa vega-
lengd Benedikt Waage árið
1914. Síðan hafa synt Viðeyj-
arsund, auk Pjeturs, Erlingur
Pálsson, Ásta Jóhannesdóttir,
Haukur Einarsson og Magnús
Magnússon frá Kirkjubóli.
Nokkrir fleiri hafa freistað
að synda þessa leið, en orðið
að hætta áður en sundinu var
lokið.
Viðeyjarsund hefir ekki ver-
ið synt áður á svo skömmum
tíma.
Haukur Einarsson synti á 1
klst. og 52 mín.
Annars er ekki hægt að
bera saman tíma hinna ein-
stöku sundmanna á þessari
leið, þar sem aðstaða þeirra
hefir verið svo misjöfn, vegna
veðurs, straums o. fl.
æft af kappi undir næstu Ol-
ympsleika undanfarið. Leikar
fóru svo að „litla þjóðin með
miklu íþróttamennina" — Finn-
ar — sigraði, en þó mátti ekki
tæpara standa, því að aðeins
munaði 4 stigum. Hlutu Finnar
103% stig en Þjóðverjar 99%.
Innanfjelagsmót K. R. hefst í
kvöld á íþróttavellinmn. Kept
verður í 5000 metra hlaupi fyrir
fullorðna og sleggjukasti.
Innanfjelagsmót Ármanns held-
ur áfram á Iþróttavellinum í kvöld
kl. 6 fyrir drengi og kl. 7 fyrir
fullorðna.