Morgunblaðið - 17.09.1935, Side 5

Morgunblaðið - 17.09.1935, Side 5
MORGUNBLAÐIÐ I»riðjudaginn 17. sept. 1935. I ÞROTTI R Læknisskoðun íþróttamanna. Stjórn Í.S.Í. hefir haft for- göngu að því, að hjer á landi er hafin læknisskoðun á íþrótta mönnum. Hefir bæjarstjórn Reykjavíkur sýnt því máli vel- vilja og stutt það með fjárfram- lögum. Þetta mál er eitt mesta velferðarmál íþróttamanna og þyrfti slík skoðun að komast é, um land alt. Sú reynsla, sem fæst við læknisskoðun íþrótta- manna hjer í bænum ætti að geta orðið íþróttaráðunum og fjelögunum út um land góður leiðarvísir um það hvernig best verður að koma skoðuninni í framkvæmd. Það skal sagt íþróttamönn- um bæjarins til verðugs lofs, að sífelt fjölgar þeim mönnum sem leita til íþróttalæknisins og vonandi fer þeim fjölgandi með hverju ári. Enn eru marg- ir sem ekki hafa álitið þörf á því að láta skoða sig fyrir kappraunir, en þess mun ekki langt að bíða að augu þeirra opnast fyrir þessu velferðar- máli. Það er nauðsyn hverjum íþróttamanni að vera vel undir buinn undir hverja keppni. Að vita það hvort hann er nægilega heilsuhraustur til að taka þátt í kappraunum, og hvort hann er smitberi, eða ekki. Allir þeir íþrottamenn, sem nokkuð hugsa um heilsufar sitt, og fje- laga sinna, láta því skoða sig. Óskar Þórðárson læknir hef- ir aðallega haft þessa skoðun með höndum undanfarið og er fróðlegt að lesa skýrslur hans um þetta mál. Á fyrsta árinu 1933—1934, skoðaði hann 241 íþrÖttamann og iíþróttakonur, en mun nú hafa skoðað um 435 manns alls. Þeir, sem hing- að til hafa látið skoða sig, eru mjög ánægðir yfir skoðuninni og hafa því nær allir komið oft til læknisins til að láta hann athuga sig. Til saman- hurðar má geta þess, að fyrsta árið, sem læknisskoðun íþrótta- manna var upp tekin í Kaup- mannahöfn voru skoðaðir 923 íþróttamenn. I Árósum, sem hefir yfir 100 þús. íbúa, voru skoðaðir innan við 80 íþrótta- menn fyrsta árið, sem skoðun fór þar fram. Mega íþróttamenn okkar samt fjölmenna enn meir til læknisskoðunarinnar því enn þá vantar mikið á að menn úr öll- um fjelögum í bænum hafi mætt. Skora jeg því alvarlega á alla íþróttamenn bæjarins að draga það ekki að láta læknir skoða sig áður en vetraræf- ingarnar byrja að þessu sinni — og að halda síðan áfram minst 2—3 á ári. K. Þ. Ameríkumaðurinn Flanagan hef- ir bætt met Arne Borg í 1 mílu sundi. Tími: 21 mín. 00,4 sek. Met A. Borg var 21 mín. 06,0 sek. Hinn frægi sundmaður og methafi Jáck Mediea varð nr. 2, um 10 jards á eftir Flanagan. — Innanfjelagssundmót Ármanns. Tvö oý §undmet, Innanfjelags sundmót Ár- manns fór fram í fyrradag. — Fyrst var kept í 25 metra sundi fyrir telpur innan við 12 ára. Þátttakendur voru þrír. Fyrst að marki varð Ásdís Erlingsdóttir á 24 sek. Þá var kept í 25 metra sundi fyrir drengi á sama aldri. 1. Ás- björn Sigurjónsson á 19,5 sek., 50 metra sund fyrir drengi 14 16 ára vann Dagbjartur Sig- urðsson á 40,5 sek. 50 metra sund fyrir pilta 16—19 ára: Pjetur Sigurjónsson á 34.9 sek. 50 metra sund fyrir stúlkur vann Klara Klnægsdóttir á 39,2 sek. Dagbjartur Sigurðsson setti nýtt drengjamet á 100 metra bringusundi. Synti hann vega- lengdina á 1 mín. 29,3 sek. Þá setti Klara Klængsdóttir einnig nýtt met á 100 metra bringusundi. Synti á 1 mín. 28 sek. Áhugi er mikill meðal yngra fólksins í Ármann fyrir sundi eins og sjest á ofangreindu. íþróttamótið 22. þ. m. Eins og getið var um hjer í blaðinu s.l. föstudag gengst Olympsnefnd íslands og íþrótta fjelögin Ármann, í. R. og K. R. fyrir íþróttamóti í frjálsum íþróttum á íþróttavellinum hjer 22. þ. m. kl. 2 e.h. íþróttir þær, sem valdar voru til kepni' að þessu sinni voru þessar: Hlaup 100—400—800 og 1500 metra og 110 m. grindahlaup. Stökk: Langstökk og stangarstökk. Köst: kringlukast, spjótkast og kúluvarp. Þótti hæfilegt að hafa ekki fleiri en 10 íþróttir á skrá að þessu sinni svo mótið yrði ekki um of langdregið. Þá voru íþróttirnar einnig valdar með tilliti til þess að utanbæj- armenn munu lítt eiga heiman- gengt um þessar mundir, t. d. Gísli Albertsson, Vestmanna- eyingarnir o. fl. utanbæjar- menn. En auðvitað er að for- göngumönnum mótsins er á- nægja að því, ef menn utan Reykjavíkur geta komið því við að keppa á þessu móti. Áhugi íþróttamanna fyrir þessu móti er mjög mikill og má búast við því að þarna keppi því nær allir bestu í- þróttamenn bæjarins. — Auk þeirra hafa tveir Vestmanna- eyingar óskað eftir að fá að reyna sig þar. Kemur enn fram hinn mikli áhugi Vestmanna- eyinga á íþróttaiðkunum og kepni. Verður því bætt á leik- skrá kepni í þrístökki og sleggjukasti. Annar keppand- anna frá Vestmannaeyjum, er methafinn í þrístökki Sigurður Sigurðsson, og er hann afburða stökkmaður. Sigurður er aðeins 21 árs gamall. Hið staðfesta met hans í þrístökki er nú 13 metrar 54 cm. En hann er sífelt að bæta metið og mun það ekki koma mönnum á ó- vart þó að hann stökkvi nú um eða yfir 14 metra. Takist honum það, verður þrístökks- metið einna besta metið, sem sett hefir verið hjer á landi. Og enginn þarf að efa það, að skamt verður þar til Sigurður fer yfir 14 metra í þrístökki. Margir aðrir ágætir íþrótta- menn keppa á þessu móti og mun nánar sagt frá keppendum síðar hjer í blaðinu, er allir hafa tilkynt þátttöku sína. K. Þ. Haustmót II. flokks. Valur sigraði í úrslitaleiknum 1:0. Á sunnudaginn lauk haust- móti II. fl. — Fyrri kappleik- urinn var milli K. R. og Vík- ings og varð jafntefli (1:1). Töluverður vindur var á syðra markið. Víkingur, sem átti undan vindi að sækja í fyrri hálfleik, náði ekki tökum á leiknum og snemma í þeim hálfleik skoraði Eiríkur Berg- mann K. R. mark hjá Víking. í síðari hálfleik var meiri festa yfir leik Víkings og tókst Þór- halli Ásgeirssyni þá að skora mark hjá K. R. Fátt gerðist söguleigt í leiknum, sem var linlega leikinn. K. R. átti meira í leiknum, en Víkingar vörðust vel, sjerstaklega í síðari hálf- leik, og áttu þá nokkur hættu- leg upphlaup. En yfirleitt ljek K. R. flokkurinn betur, þó hon- um tækist ekki að sigra. Dómari var Frímann Helga- son og mun hann verða góður dómari. Vantar aðeins meiri æfingu. (I föstudagsblaðinu var villa í frásögninni: Fram—Víkingur 4:1, átti að vera 3:1). Valur—Fram (úrslitaleikur) : Valur ljek undan vindi í fyrri hálfleik og skoraði Hans Petersen mark hjá Fram eftir 5 mín. leik. Átti Valur sókn- ina þennan hálfleik, en skoraði ekki fleiri mörk. Fram hóf harða sókn í síðari hálfleik, en tókst ekki að skora mark. Endaði leikurinn með sigri Vals 1:0. Voru þeir vel að sigrinum komnir, því þeir ljeku að mun betur en Fram, sem átti marga góða einstak- linga í sínum flokki, en skorti allan samleik og festu í leik sinn. Það sjest á kepninni í II. fl. að mikið vantar á að flokk- arnir sjeu æfðir sem skyldi. — Verða fjelagsstjórnirnar að leggja meiri áherslu á að kenna og æfa yngri flokkana, en nú á sjer stað. Þorsteinn Einarsson dæmdi vel, og færi vel á því, að hann sæist oftar sem dómari á vell- inum. N En Val er ástæða til að óska til hamingju með sigurinn, því að þeir áttu besta flokkinn. K. Þ. 5 i B & Sjötugsafmæli. Sjötugsafmæli eiga í dag þau hjónin Stefanía Benjamínsdóttir og Guðmundur Ólafsson, Grettis- götu 73. Þau eru bæði úr Múla- sýslum, Guðmundur fæddur að Brennistöðum í Eiðaþinghá, en Stefanía að • Ásgrímsstöðum í Hjaltastaðaþinghá. Þau giftust á afmælisdag beggja 17. sept 1891, 26 ára göm- ul og reistu bú að Hnitbjörgum í Jökulsárhlíð. Bjuggu þau þar í 4 ár, svo eitt ár á Kleppjárnsstöðum í Hróarstungu, en fluttnst síðan til Vopnafjarðar. Áttu þau þar heima næstu 5 árin, en fluttust svo til Seyðisfjarðar og bjuggu bar í 11 ár. Árið 1917 fluttust þau hjónin hingað til Reykjavíkur og hafa bú- ið hjer síðan. Guðmundur gerðist 'innheimtumaður hjá hinu íslenska j steinolíufjelagi, árið 1919, og er það enn. ! Þau - Stefanía og Guðmundur , liafa eignast 5 börn. Tvo drengi 'mistu þau á barnsaldri, en þrju börn þeirra eru á Iífi; Elís, versl- unarmaður, Valdimar prentari og Anna, gift Páli Þorleifssyni versl- unarmanni, öll í Reykjavík. Ern börn þessi öll annáluð fyrir. hæfi- leika og dugnað. Það mun vera sjaldgæft að hjón sjeu svo jafnaldra, að bæði sjeu fædd á sömu stundu. Sambúð þeirra Stefaníu og Guðmundar liefir verið til fyrirmyndar og hjónaband þeirra hið farsælasta. Munu margir vinir og kunningj- ar fjær og nær minnast beggja sjötugu afmælisbarnanna í dag. Davið Copperfield á talmynd. Gamla Bíó sýnir um þessar mundir hina heimsfrægu skáld- sögu Dickens, Davíð Copperfield á talmynd. Ætla má, að aðsókn að þessari mynd verði meiri en að flestum myndum, sem hjer hafa verið sýndar, og ber margt til þess. í fyrsta lagi þekkja margir söguna um æfintýrabamið, Da\úð Copper- field, því að hún kom út í ís- lenskri þýðingu eftir Sigurð Skúla son á forlag barnablaðsins „Æsk- an“ fyrir tveim. árum, og seldist þá allra bóka mest. En í öðru lagi er hjer að ræða um stórmerka kvikmynd. íslenska þýðingin af Davíð Copperfield var stytt við hæfi unglinga, og er það athyglis- vert, að kvikmyndin þræðir að mestu leyti sömu uppistöðuatriðin úr hinni langdregnu frumsögu Dickens og þar er gert. Sagan af Davíð Copperfield, er saga ungs manns, sem brýst gegn- um raunir og örðugleika fram td frægðar og frama. Er talið að í þessari bók sje enska skáldið Dickens að segja æfisögu sjálfs sín, í skáldlegum búningi. Tal- myndina hefir ameríska kvik- myndafjelagið Metro Goldwyn Mayer, látið gera, og leika aðal- hlutverkin, Davíð Copperfield og Dóru, þau Frank Lawton og Maureen Sullivan. — Micawber er leikinn af W. C. Field, en frú Gummidge og Dan Pegotty, eru leikin af Una O’Connor Og Linoel Barrymöre. í þessari kvikmynd stíga per- sónurnar, sem við þekkjum úr sögunni, ljóslifandi fram eins og andar liðinnar aldar. Það er athyglisvert, að Gamla Bíó hefir tekist að ná í þessa merkilegu mynd á undan öllum öðr um kvikmjTidaleikhúsum á NorS- urlöndum. X Bærinn var fullur af rottum, slönpum og froskum. Um daginn komu eftirlitsmenn ríkisstjórnarinnar til bæjarins Pazsony í Ungverjalandi. Einn Embættismannanna stakk hend- inni niður í fatahrúgu, en sjer til skelfingar fann hann að hanii hafði gripið niður í slönguhreiður. Rannsókn var þegar hafin tíl að vita hvernig á þessu stæði og kom þá í ljós að bærinn var fullur af snákum og rottum. íbúarnir gátu ekki gefið aðra skýringu en þá, að bæjartjörnin væri full af froskum og það myndi hafa dregið snábana að. Rotturnar voru þarná vegna snákamergðarinnar. Þrátt fyrir að allar þessar dýra- tegundir áttu í stöðugum erjum innbyrðis, þrifust þær allar ágæt- lega og fjölgaði dag frá degi. . Yfírvöldin hafa nú gert ráðstaf- anir til að útrýma þessum ófögn- uði, svo hinir raunverulegu íbúar bæjarins geti búið þar áfram í næði. ,

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.