Morgunblaðið - 06.11.1935, Side 6
6
MORGUNBLAÐIÐ
Útgerðarman afjelag
stofnað í ísafirði.
Isafirði þriðjudag.
EINKASKEYTI TIL
M ORGUNBL AÐSINS.
Hinn 30. október var hjer stofn-
að Utgerðamannafjelag Isfirðinga,
með góðri þátttöku hje'ðan og úr
nærliggjandi veiðistöðvum.
Tilgangur fjelagsins er að vera
málsvari útvegsmanna og styðja
jiagsmunamál þeirra.
j Fjelagið hefir sótt um upptöku
I Yinnuveitendafjelag íslands.
Arng.
Fiskbirgðir
á Vestfjörðum
eru nær fjórðungi
minnl en á sama
tíma i fyrra.
ísafirði, þriðjudag.
EINKASKEYTI TIL
M ORGUNBL AÐSINS.
Fiskhirgðir á Yestfjörðum voru
s. L nóvemher alls 3359Í/2 smálest,
en á sama tíma í fyrra 4260 smá-
lestir.
Birgðamae skiftast þannig:
Verkaðar fiskur 2993^ smál.
Pressufiskur 132 —
Óverkaður fiskur 234 —
Arng.
Guðjón Guðjónsson.
Frh. af 5. síðu.
fjörlegur og hraustlegur lengst
af, og bauð af sjer hinn hesta
þokka. Hárið var tinnusvart, aug-
un brún og skarpleg • svipurinn
hreinn. — Alt frá hernsku hafði
Guðjón verið heilsuhraustur, þar
til laust fyrir síðustu áramót, að
hann kendi sjer lasleika, er mun
hafa stafað af magasjúkdómi.
Kom hann þá til Reykjavíkur
til að leita sjer lækninga. Mun
honum svo hafa skánað eitthvað
um stund, og var hann allhress
með vorinu. Yann svo í sumar að
heyskap, af kappi. En vafalaust
rjeði þar mestu ótrauður vilji
hans og starfsþrá. Hann stóð á
meðan stætt var, og bar sjúk-
dóm sinn sem hetja fram að
dánardegi. En sjúkdómur hans
ágerðist mjög snögglega, eins og
áður er sagt, svo að ekki mun
hafa Verið unt að bjarga.
Vini Guðjóns setti hljóða og
dapra við fregnina um hið snögga
fráfall hans. Þungur harmur hvíl-
ir yfir fámenna, kyrláta heim-
ilinu langt upp í sveit, þar sem
þau dvelja, móðir hans — er
hjer á sínu eina barni á bak að
sjá — og fóstri hans og unnusta.
Vinurinn þeirra trausti og
tryggi er „dáinn, horfinn“.
Jarðarför Guðjóns heitins fór
fram á Hvanneyri 17. september,
að viðstöddu mörgu fólki úr
nærsveitunum. Og auk þess voru
þar viðstaddir nokkrir ættingjar
hans og vinir úr Reykjavík.
P. P.
Meðferð einkamála
í hjeraði.
Mikilvæg rjettarbót.
Fram er komið á Alþingi
frumvarp um meðferð einlta-
mála í hjeraði.
Frumvarp þetta er að mestu
leyti samhljóða frumvarpi því,
sem Einar hæstarjettardómari
Amórsson sendi fyrverandi
stjórn vorið 1934, en honum
var af þáverandi dómsmílaráð-
herra, Magnúsi Guðmundssyni,
falið að undírbúa þessi mál.
Þegar svo núverandi stjórn
tók við völdum' skipaði hún
þriggja lögfræðinga nefnd, til
þess að endurskoða alla rjettar-
farslöggjöfina. Nefnd þessa
skipuðu þeir Einar Arnórsson,
Stefán Jóh. Stefánsson og Berg-
ur Jónsson.
Þessir þrír menn hafa nú at-
hugað frumvarp Einars Arnórs-
sonar og er það nú fram komið
á Alþingi, nálega óbreytt eins
og E. A. gekk frá því.
Samkvæmt því, er Stefán Jó-
hann Stefánsson sagði í fram-
sögu á Alþingi, liggja þrjár
höfuðástæður til grundvallar
frumvarpinu.
í fyrsta lagi sú, að setja í
eina heild alla rjettarfarslög-
gjöf, um einkamál. Nú eru á-
kvæði um meðferð einkamála
dreifð í fjölda mörgum lögum,
alt frá 17. öld og til vorra daga.
Munu þau 40—50 talsins laga-
fyrirmælin, sem nú gilda um
þetta efni.
I öðru lagi sú, að flýta fyrir
afgreiðslu mála. Nú er dráttur
á meðferð einkamála oft óhæfi-
legur, sepi stafar af því, að að-
iljar eru sjálfir að mestu ein-
ráðir um málsmeðferðina. —
Kemur jafnvel fyrir, að einka-
mál sjeu árum saman að flækj-
ast milli málsaðilja og oft tekur
það dómara marga mánuði að
kvéða upp dóm í málinu. Á
þessu er reynt að ráða bót í
frumvarpinu, með því m. a., að
munnlegur málflutningur er yf-
irleitt upp tekinn; ennfremur
með því, að frestir allir eru
mjög styttir, stefnufrestur,
dómsuppsagnarfrestur og frest-
ur sá, sem málflutningsmenn
mega halda málunum.
I þriðja lagi er reynt að
tryggja rjetta niðurstöðu mála.
Eru ýms ákvæði í frumvarpinu,
sem miða að þessu. M. a. er
leyft að yfirheyra málsaðilja
og heimta skýrslu af þeim um
ýmis málsatriði. Þeir eru teknir
fyrir ‘rjett og spurðir. Þetta er
nýmæli í okkar rjettarfarslög-
gjöf. Þá er vitnaleiðsla méð
nokkuð öðrum hætti en tíðkast
hefir. Nú er vitnaleiðslu hagað
þannig, að dómari spyr vitnin,
en hann hefir fengið skriflegar
spurningar, sem hann á að
leggja fyrir vitnin. Samkvæmt
frumvarpinu geta málsaðiljar
Sjálfir spurt vitnin í rjettinum.
Þá er það nýmæli, að lagt er
til að sjerfróðir menn sitji dóm
í verslunarmálum, líkt og nú á
sjer stað, að sjerfróðir menn
eru til kvaddir þegar dæma á í
siglingamálum, sbr. sjódómur.
Yfirgangur togara
vestra er óþolandi.
Kærur til
sf|órnarráðsini
ísafirði, þriðjudag.
EINKASKEYTI TIL
MORGUNBLAÐSINS.
Yfirgangur togara hjer vestra
er afskaplegur um þessar mundir
og hafa þeir valdið stórtjóni á
veiðarfærum landsmanna.
Hinn 29. október sópaði tog-
arinn GY 285 burtu 16 lóðum og
3 uppihöldum frá vje’lbátnum
Eggert Ólafssyni. Togari þessi
hefir áður verið kærður fyrir
landhelgisbrot hjer vestra af
vjelbátnum Yíking RE 4.
, Útgerðarmenn hafa sent ríkis-
stjórn háværar kvartanir um
gæsluleysið hjer vestra, en þó
hefir ekke*rt ræst úr enn, og tog-
ararnir fara sínu fram.
Amg.
„Hafnbannið"
á útgerðarmenn í
Súðavík heldur
áfram.
ÍSAFIRÐI, ÞRIÐJUDAG.
EINKASKEYTl
TIL MORGUNBLAÐSINS.
Verkfallið í Súðavík stend-
ur enn.
Rauðliðar banna alla að-
flutninga til annara en verk-
fallsmanna, og er fyrir löngu
orðið úar vÖrulaust.
Arng.
Nýr Kabarett.
Fyrir svo sem 10 árum var gerð
tilraun með svonefndar kabarett-
samkomur. Eru það kvöldskemt-
anir með upplestri, smáleiksýning-
um, smáfyrirlestrum, vísnasöng,
listsöng, hljóðfæraleik, listdans o.
fl. Var þetta mestmegnis í sam-
bandi við kaffihús Rósenbergs, sem
þá var í Bíókjallaranum. — Nú
er í ráði að setja á stofn nýjan
kabarett í Oddfellowhúsinu, er
starfi fyrst um sinn tvisvar í viku
og byrjar næstkomandi föstudags-
kvöld. — Svo er til ætlast að
þarna verði einkum yngri kröft-
um gefinn kostur á að leika listir
sínar, en ýmsir af eldri árgöngum
hafa og þegar lofað aðstoð sinni
eins og t. d. Pjetur Jónsson og
Friðfinnur Guðjónsson, Kristmann
Guðmundsson rithöf. mun og lesa
upp smásögur eftir sjálfan sig.
Yngsti listamaðurinn er 9 ára
gamall drengur, sem sagður er
gæddur afburða tónlistagáfu.
• Tf ii ijtlTI---
Vafalaust eru breytingar þær
á rjettarfarslöggjöfinni, sem í
frumvarpi þessu felast, mjög til
bóta og munu mraka nýtt tíma-
bil 1 rjettarsögunni.
Vjelbáturinn
Percy sekkur.
Mannbförg.
ÍSAFIRÐI í GÆR.
EINKASKEYTI TIL
MORGUNBLAÐSINS.
Vjelbáturinn „Percy“ sökk
um hádegi í dag út af
Sauðanesi- Áhöfn bátsins
bjargaðist á land.
Verið var að flytja kol á
„Percy“ úr flutningaskipinu
„Bisp“, frá Önundarfirði til Súg-
andafjarðar og var báturinn hlað-
inn kolum, e'r hann sökk.
Eigendur bátsins em Högni
Gunnarsson, útgerðarm., Bjarn?
Þortseinsson, skipstjóri bátsins og
Gísli Hannesson, sem var vjel-
stjóri á bátnum.
Percy var 44 smálestir brutto
að stærð.
Hann var trygður hjá Vjelbáta-
ábyrgðarfjelagi Isfirðinga fyrir
27,500 krónur.
Amg.
Síldveiði í Faxaflóa
lokið.
Um 200 tunnur
bárust á land i
V estmannaeyfum
í gær.
Undanfarna daga hafa
síldarbátar úr verstöðvun-
um við Faxaflóa farið á sjó
en síldarafli hefir engin
verið hjá þeim.
Eru síldarbátar nú hætt-
ir veiðum hjer í flóanum, en
nokkrir eru farnir til Vest-
mannaeyja, því þar hefir
veiðst nokkuð af síld undan-
fama tvo daga. Síldin veið-
ist í álnum milli lands og
Eyja.
Bárust um 200 tunnur af síld
til Vestmannaeyja í gær.
Sjóveður var þá ágætt og íóru
margir bátar til veiða í nótt.
Aldarafmælis
Matthíasar
r
minst í Isafirði.
ÍSAFIRÐI í GÆR.
EINKASKEYTI TIL
MORGUNBLAÐSINS.
Karlakór ísafjarðar hefir for-
göngu að því að haldið verði hjer
hátíðlegt aldarafmæli þjóðskálds-
ins Matthíasar Jochumssonar. —
Lætur kórinn leika Skugga-Svein
og byrja leiksýningar væntan-
lega um næstu he'lgi. Sjerstök
hátíðarsýning verður mánudag-
inn 11. nóvember.
Amg.
Miðvikudaginn 6. nóv. 1935.
Aðalfundur Sjálfstæð-
ismannafjelagsins
á Akureyri.
AKUREYRI í GÆR.
EINKASKEYTI TIL
MORGUNBLAÐSINS.
Aðalfundur Sjálfstæðismanna-
fjelags Akureyrar var haldinn í
gærkvöldi.
1 stjórn voru kosnir: Sigurður
E. Hlíðar, form., Axel Kristjáns-
son, ritari, Lárus Thorarensen,
gjaldkeri.
Umræður urðu talsverðar og
fjörugar með köflum.
Ahugi fyrir málefnum Sjálf-
stæðisflokksins er mikill innan
fjelagsins og má búast við fjör-
miklu starfi í vetur.
Kn.
Minningar-Konsert
fim
Markús Krístjánsson.
Það hefir verið fremur hljótt
um nafn og minningu Markúsar
Kristjánssonar undanfarin ár og
mun það að nokkru stafa af því
að lög hans hafa veríð í fárra
höndum, og almenningi að nokkni
ókunnugt um hvað hann hefir
látið eftir sig af tónverkum.
Nú hefir Einar Markan söngv-
ara og Gunnari Sigurgeirssyni
píanóleikara tekist að ná í öll
einsöngslög Markúsar heit. og
ætla þeir að gefa Reykvíkingum
kost á að heyra þau öll á konsert
í Gamla Bíó í kvöld, miðvikud. 6.
þ. m„ kl. 7,15. Eru lögin 9 að
tölu. Sum þeirra hafa mjög lítið
eða ekkert verið sungin hjer, svo
sem, „Þú nafnkunna landið“
(kvæði: Bj. Thorarensen), „Tungl
ið, tunglið taktu mig“, „Er sólin
hnígur“ (kvæði. H. Hafstein),
„Bí, bí og blaka“, gamla þjóðlagið
sem Markús samcji undurfagurt
unddirspil við, „Den blonde Pige“
(kvæði Bj. Björnsson). Öll þessi
lög eru hvert öðru fallegra og
listþrungnara og bera á sjer sjer
kénnileika Markúsar. Önntír lög
sem almenningi mun veTa kunnari,
eru „Bikarinn“ (kvæði Jóh. Sig-
urjónssonar), „Minning“ og „Gott
er sjúkum að sofa“ (kvæði Davíð
Stefánsson), sem öll hafa markað
eftirminnanleg spor í huga allra
sem heyrt hafa. Þar sem lögin eru
ekki nema 9, hefir söngvarinn 4
úrvalslög e'ftir Grieg, til að fylla
söngskrána.
Þá er enn ótalið eittlag Markús
ar, sem mun hafa verið eitt af
seinustu lögum sem hann samdi.
Valdi hann sjer texsta úr „En
glad gut“, eftir Björnstjerne
Björnson og lýsir val þessa texta
og innihald hans, e'f til vill betur
en ýmislegt annað, hugarfari þessa
göfuga listamanns og þeim mikla
krafti, sem með honum bjó, þar
sem hann tekur undir með Björn-
son og hrópar út yfir himinn:
Elsk din næste du kristetí sjæl
træd ham ikke med jærnskoet hæl
ligger han end i stövet.
Alt som le'ver ér underlagt
kjærlighedens gjenkalder magt
bliver den bare1 prövet. X.