Morgunblaðið - 23.11.1935, Side 6
MORGUNBLAÐIÐ
ff
Laugardaginn 23. nóv. 1935.
Föstud. 22. nóv.
Síldin er komin
fyrlr Reykjanes
Þrjú skip kömu hingað í
dag, sem höfðu veitt síld út
Stafnesi og í Hafnasjó.
Hingað kom'n dag þrír vjelbát-
ar með síld til söltunar. Voru
þar Kristbjörg frá Vestmanna-
eyjum með 135 tunnur, Frigg frá
Vestmannaeyjum með 50 tunnur
og Þorsteinn frá Reykjavík með
15 tunnur.
Allir þessir bátar fengu síldina
út af Stafnesi eða í Hafnasjó.
Mun hjer vera um að ræða sömu
síldargönguna, sem undanfarið
hefir verið út af Eyrarbakka og
Herdísarvík og er því ekki ólík-
legt, að síldveiði byrji aftur hjer
í Faxaflóa, ef tíð verður hagstæð.
Uppfyllingln við
liöfnfina stækkuð.
Hafnarstjórn hefir nýlega á-
kveðið að láta vinna að stækkun
uppfyllingar við höfnina, fram af
Strandgötu 4, fyrir átta til tíu
þúsund krónur. Verður byrjað
á þessu verki éihhvern næstu daga
og er áætlað að til þess muni
þurfa að kaupa fjögur til fimm
hundruð teningsfaðma af grjóti.
Leikfimikensla —
íþróttastarffsemi.
Leikfimiskensla hefir engin
verið hjer við barnaskólann það
sem af er vetrj'n»m og stafar það
af því, að húsúieði hefir vantað.
Var byrjað á þýi snemma í haust
að færa leikf&lishúsið upp að
nýja barnaskólamum, en það hef-
ir staðið við gamla barnaskólann.
Varð að rífa húsið niður og er nú
búið að endurbyggja það í sömu
stærð syðst í lóð nýja skólans.
En e.kki er eng lokið við að ganga
frá húsinú a<f" ííinan og er búíst
við að ekki verði hægt að byrja
kenslu í því í'ytv en undir áramót.
Mun húsið, þegar það er fullgert,
verða naun betra til leikfimisiðk-
ana heldur en það var áður og
með meiri þægindum. T. d. verð-
>
ur nú í því miðstöðvarhitun og
fullkomin baðtæki, en það- var
hvorugt í því áður.
Knattspyrnnffelagið
„Ilaukar44.
\j '.. J6I9IÍ
Það fjelag ætlar Sjer að æfa
fimleika og hándknattleik í vetur
og mun byrja á þeim æfingum
undir eins o£ leikfimishúsið er
tilbúið. Ketnnári þeirra í leikfimi
verður Baldur Kristjánsson úr
Reykjavík. —
Enn fremujr. þefir fjelagið í
tyggju að æfa knattspyrnu inn-
an húss í vetur, ef það getur feng-
ið til þess heppilegt húsnæði, t.
d. stórt' fiskhús. Kennari fjelags-
ins í knattspyrnu hefir verið og
verður Halldór Árnason frá
Reykjavík.
Leiðinlegur ómagi.
Hjeðinn Valdimarsson hefir
um margra ára bil haldið því
fram, að örðugleikar útgerðar-
innar væru að mjög miklu leyti
því að ke'nna, að á henni lifðu
dýrir ómagar. Voru framkvæmd-
arstjórar útgerðarfyrirtækjanna
þar fyrst til nefndir, og árásirnar
á þá afar svæsnar. Heita má, að
síðan Hjeðinn náði völdum í Al-
þýðuflokknum og yfirráðum yfir
blöðum hans, hafi þeim söng aldrei
lint í • blöðum þessum, að „brask-
ararnir“ væru ómagar á útgerð-
inni, svo eru þeir menn nefndir
af Hjeðni & Co., sem reka eða
stjórna útgerð hje'r á landi.
Vitanlega er þessi söngur Al-
þýðublaðsins og fylgikrata þess að
mestu leyti ósannur, þótt svo
kunni að vera, að einstaka maður
hafi á vegum útgerðarinnar verið
eyðslufrekari en æskilegt hefði
verið, e'ða tekið hærri laun en
þurft hefði. Slíkar undantekning-
ar eiga sjer vitanlega stað á öllum
sviðum atvinnulífsis, án þess að
það ráði úrslitum um afkomu
heildarinnar. Samt sem áður ættu
menn að geta orðið sammála um
það, að nema á brott slíkar mis-
fellur, hvar sem þær finnast.
Nú er svo komið, að löggjafar-
valdið er farið að blanda sjer
mjög í stjórn atvinnurekstrarins,
eins hvort það er einkarekstur
eða opinber. Hefir þessi breyting
orðið, síðan sósíalistar fengu meiri
hlutaaðstöðu á Alþingi. Skyldu
menn nú ætla að við það, að þess-
ir vandlætarar tóku, að blanda
sjer í stjóm þessara mála hefði
meinsemdunum fælikað. En þetta
hefir farið á annan vég. Má heita
að atvinnuve'gimir sjeu kýluiu
hlaðnir og kauuum, eftir þessi
tæplega tvö þing, sem háð hafa
verið, síðan Hjeðinn steig Fram-
sókn á bak með Alþýðuflokkinn í
taumi. Er ekki aðeins að með lög-
sje nú bannað að selja landbúnað-
arvörur innanlands beint eða án
milliliða, heldur eru fjölmennar
og dýrar yfirsstjórnir me'ð lögum
greinir, flestár -í óþökk fram-
settar yfir flestar framíeiðslu-
leiðendanna, en allar á þeirra
kostnað. Þessar stjórnarlýs sjúga
án afláts blóð úr framleiðslunni.
Fremstur í hópi hinnar nýju
ómegðar á atvinnuvegunum ,varð
Hjeðinn Valdimarsson. Þegar
hann hafði fengið því framgengt,
að 7 manna ne'fnd yrði sett á
laun hjá fiskeigöndum (Fiski-
máianefnd) skamtaði hann sjer
þegar formannsstöðuna. Auðvitað
vinnur nefnd þessi ekkert nýti-
legt verk fyrir fiskframleiðslu
landsins, og það lítið, sem hún
læst vera að skifta sjer af útgerð-
armálum og fisksölumálum, ger-
ir hún í fullri óþökk útgerðar-
manna og fiskeiganda. En það
hefir ekki bugað einurð Hjeðins
til þess, að láta Ilarald skamta
sjer 5500 krónur fyrir það, að
kallast formaður nefndarinnar.
En Hjeðni þótti þetta samt ekki
nóg fyrir sig. Hann ljet Harald
líka troða sjer í stjórn Sambands
ísl. fiskframleiðenda, einnig í fullri
óþökk fiskeiganda. Ekki er á-
kveðið, hvað H. V. fær fyrir þetta
nýja starf. En líklegt má telja,
að það verði um 300 kr. á mánuði.
Er þá maður þessi, sem talinn er
einhver tekjuhæsti maður á ís-
landi, búinn að krækja sjer í
9000 kr. bitling hjá fiskeigönd-
um. Mun það flestra mál, að fáir
sjeu síður maklegir slíkra gjafa
frá útgerðarmönnum. Hitt mun
ekki síður sýnast, að allfágæta
einurð þurfi til þess fyrir for-
ingja hinna fátæku og tekjulágu
að setjast að slíkum krásum of-
an á þau óhófslaun, er hann áður
hafði.
En frá hverri hlið, sem á mál
þetta er litið, mun varla finnast
öllu ógeðþekkari ómagi en þessi
nýi niðursetningur á heimili út-
gerðarinnar.
Maðurinn í gapa-
sfokknum.
Framhald af bls. 3.
í brjefi sjávarútvegsnefndar
til atvinnumálaráðuneytisins
dags. 3. maí 1932 segir m. a.
svo um reikningsfærslu Þ. E.
„Telur nefndin slíka reikn-
ingsfærslu óviðunandi og
undrast, að þeir menn skuli
hafa reikningsfærslu verk-
smiðjunnar með höndum, er
, svo lítil skil virðast kunna á
bókfærslu".
Um tillögur mínar sagði
pefndin, að hún væri þeim
fylgjandi í öllum aðalatriðum.
Undir þetta brjef ritaði
Sveinn Ólafsson frá Firði f. h.
sjávarútvegsnefndar.
Þegar hjer var komið- sögu
kærði jeg með brjefi 6. maí
1932 framferði Þormóðs til
Tryggva Þórhallssonar þáver-
andi atvinnumálaráðherra.
Mun sú kæra hafa orðið til
þess, að Tryggvi skipaði ekki í
stjórn verksmiðjanna, þegar
umboð stjórnarinnar fjell niður,
samkvæmt lagabreytingu á vor-
þinginu 1932, heldur eftirljet
það verk komandi ríkisstjórn
Ásgeirs Ásgeirssonar, sem tók
við völdum í maílok 1932. Má
þó geta nærri, hvort þess hefir
ekki verið freistað af vensla-
mönnum Þormóðs í Framsókn-
arflokknum að fá Tryggva til
að skipa Þormóð í verksmiðju-
stjórniria áður en stjórnarskifti
yrðu, en Tryggvi Þórhallsson
hafði, sem atvinnumálaráð-
herra, kynst starfsferli Þor-
móðs of mikið til þess að hann
vildi láta það verða eitt sinna
síðustu verka.
Framh.
Sveinn Benediktsson.
Nýll
naulakföl
off besta
hsnglkjðtlð
jVerslunin
Kföt & Fiskur.
Símar 3828 og 4764.
Víkingsprent
Hvcrfisgötu 4 (hús Garðars Gíslasonar) Sími 2864
Tekur að sér alla prentvinnu fyrir lægsta verð
Baekur, blöð og tímarii; einnig allskonar tæki-
færisprentun svo sem bréfhöfuð, umslög, reikn-
ingseyðublöð, frumbækur, auglýsingar o. s. frv.
MF* Leitið upplýsinga um verð.
Skiptið Yið Yíkingsprent, pér tapið ekki á pyf
Kvöldskemtan
til ágóða fyrir blásnauðan, veikan mann, verður haldin
í Varðarhúsinu á sunnudagskvöld, kl. 8%. — Upplestur,
síra Árni Sigurðsson og Herdís Andrjesdóttir skáldkona.
Kristján Kristjánsson söngvari syngur. Nokkrir ágætir
kvæðamenn kveða.
Aðgöngumiðar seldir við innganginn á 1 krónu.
Sendimaður
Hitlers á
fundi Lavals.
KAUPMANNAHÖFN I GÆR.
EINKASKEYTI TIL
MORGUNBLAÐSINS.
von Ribbentrop sendi-
herra Hitlers er nú kom-
inn til Parísar og hefir
átt viðræður við Laval.
Hefir Hitler falið von Ribb-
entrop að ryðja brautina fyrir
bættri sambúð Þjóðverja og
Frakka.
Komið hefir í ljós að vináttu-
samningar þeir sem Frakkar
gerðu við Rússa í fyrra eru erf-
iðasti þröskuldur í vegi fyrir
því, að Þjóðverjar geti borið
fult traust til Frakka.
Frönsk blöð leggja hinsvegar
áherslu á að fransk-rússneska
sáttmálanum sje ekki beint
gegn Þjóðverjum.
Páll.
Frú Halla Jóhannes-
dóttir.
Framh. af 5. síðu.
enda er það ekkert meðalmanns-
afrek að hafa alið tíu mannvæn-
leg höm, hafa komið hinum stóra
hóp upp og auk þess stjórnað
stóru heimili með rausn og prýði.
Það er eins og ekkert hafi unnið
bilhug á henni, hvorki erfiði og
umsýsla nje heldur sjúkdómar og
sorgir, og klýtur hún frá upp-
hafi að hafa verið að öllu vel úr
garði gerð.
Jeg kyntist á sínum tíma flest-
um heimilum í Haukadal, og er
mjer ávalt síðan hlýtt til sveit-
arinnar og fólksins. En það er
ekki kastað rýrð á. neinn, þótt jeg
taki það fram, að heimilið á Leik-
skálnm var dálítið sjerstakt í
sinni röð. Það var höfðingjasetur
sveitarinnar. Það var orðlagt nm
Dali, og enda víðar, fyrir höfð-
ingsskap og glaðværð engu síður
en dugnað og atorku. Allir vissu,
að það var ekki síst húsfreyjan,
er setti þann brag á, enda þótt
Páll Magnússon
cand. juris.
Allskonar lögfræðisstörf, mál-
færsla, innheimta, samningagerð,
kaup og sala fasteigna o. fl.
Skrifstofa: Brekkugötu 9,
Hafnarfirði. Sími 9066.
Heimasími 9121 (Sethergi).
Viðtaístími 4—5.
húsbóndinn væri og vel að sjer
ger og höfðingi á marga lund.
Mjer er altaf í minni sú vin-
semd og alúð, er strax kom á móti
mjer er jeg kom fyrst ókunnugur
að Leikskálum, og hygg jeg að
rnargur hafi sömu sögu að segja
um það. Hinsvegar get jeg fyrir
eigin kynni flestum hetur horið
um hjartagæsku og höfðingsskap
húsfreyjunnar þar, þegar í raunir
rak. Hún er áreiðanlega ein af
þeim, seto hefir safnað sjer þeim
fjársjóðum, sem mölur og ryð
ekki granda.
Þrátt fyrir alt erfiði • og um-
hyggju hefir frú Halla altaf átt
sjer andleg áhugamál og opinn
huga fyrir öllu því, sem verða
má til að fegra og göfga mann-
lífið. Hún var full af áhuga fyrir
sjálfstæðisbaráttn íslendinga, enda
fór sá áhugi vel við skömngs-
skap hennar að öðru leyti.
Trúkona hefir hún altaf verið,
og mundi hún seint fylla flokk
þeirra, er lítt hngsað vilja kasta
gömlum verðmætum fyrir borð.
Er hún þó frjálslynd og hefir
glöggt auga fyrir nýjn ljósi; veit
jeg að sálarrannsóknirnar og hoð-
skapnr þeirra hefir fundið næm-
an hljómgrunn í huga henuar.
Margir hlýir hugir munu bein-
ast til frú Hölln Jðhannesdóttur
á þessum degi, með ósk nm að
æfikvöld hennar megi verða eins
og fagurt sólarlag eftir langan
og athafnaríkan dag.
Yngvi Jóhannesson.
— Amma, er pabbi sonur þinn?
— Já, drengur minn.
— Hefirðu rekið hann frá þjer?
— Hversvegna spyrðu svo?
— Jú, hann e*r altaf að flækj-
ast heima hjá okkur.