Morgunblaðið - 15.01.1936, Side 5

Morgunblaðið - 15.01.1936, Side 5
Miðvikudaginn 15- j an. 1936. MORGUNBLAÐIÐ 5 Fjársukkið mikla og varnarskrif rauðliða. Efflr Mannús Jónsson, alþm. Niðurl. ( Hafa fjárlög ekki hækkað? Þá er að líta á það, sem bæði . f jármálaráðherra og nú J. G. bera fram sem aðal vörn sína gegn á- j -■sökunum okkar um sífelda hækk- J rnn f járlaganna. Þeir vilja alveg, ^eyða þessari ásökun með því, að | hjer sje aðeins um rjettari áætl- anir að ræða, eU raunveruleg hækkun sje engin á ferðinni. Ut- koma þessara ára verði ekkert hærri, þó fjárlögin sjeu hærri. # Til þess að sanna þetta birtir -J. G. yfirlit yfir tekjur og gjöld síðasta áratugsins, 1925—’34. Síð- an ber hann þetta yfirlit saman •við fjárlögin, sem afgreidd voru síðast, upp á 151/2 miljón, og dreg- nr þá ályktun af þessu, að af þjóðinni verði ekki heimtað meira nú en áður að meðaltali. En á þessari röksemdafærslu -eru verulegar gloppur. Fyrst e'r nú það, að J. G. gerir sig hjer sekan um eitt af því, sem fyrst og fremst verður að varast, Jjegar samanburður er gerður; Þ. e. að bera saman það, sem er ósam- bærilegt. — Samanburði má haga ýmisle'ga, en fyrsta og óhjá- kvæmilegasta grundvallarreglan verður að vera sú, að samanburð- Æ,rliðirnir sjeu jafnan hliðstæðir. Annars verður samanburðurinn anarkleysa ein. Það þýðir t. d. ekkert að hera saman rekstrar- afkomu fyrirtækis og nota í eitt skifti nettóhagnað ög í hitt skift- að brúttóhagnað. En þe'ssa grund- vallarreglu brýtur J. G. hjer með því að hera saman annarsvegar útkomu ríkisbúskaparins á lands- reikningi 1934—’35 og hinsvegar fjárlög 1936. Því að hann er ein- anitt biiinn að sýna það svart á livítu, hve mikill munur er á þessu tvennu. En það sem þe'ssi röksemdafærsla byggist á, það, að útkoma ársins 1936 verði sú sama, sem fjárlögin mæla fyrir um, er alveg í lausu lofti. Hún er í raun ■og veru það sem sanna á. Það sem sanna á, er því gert hje'r að sönn- un fyrir sjálfu sjer. En það er það, sem stundum er kallað .,,hringavitleysa“, af því að þar fer röksemdin í hring, eins og hundur, sem reynir að ná í skott- ið á sjer og snýst því á sama hlettinum. Með þessu er því rölt- ■semdin fállin.x Ef bera á saman verður annaðhvort að bera fjárlög saman við fjárlög eða landsreikn- ing við landsreikning. Að öðrum kosti er alt ónýtt, og það stend- vir óhrakið, að með hærri fjárlög- rum verði að búast við hærri reikn- ingi. Onnur meginve'ilan í röksemda- færslunni er sú, að greinarhöf. virðist ganga útfrá því, að gjöld fyrirfarandi ára hafi ekki verið hærri en svo, að vel sje óhætt að œtla þjóðinni sama bagga 1936 æins og hún hefir borið í góðum og vondum árum að meðaltali síð- asta áratug. Jeg ætla mjer ekki að fara að draga upp þá mynd, sefn þyrfti til þess að sýna hvílík' fjarstæða slíkt er. Markaðir hafa tapast, framleiðslutækin gengið úr sjer, verslun dregist saman. Dýrtíð eykst svo að minna gjaldþol verð- ur eftir hjá þeim, sem fasta pen- ingaborgun hafa, og þannig er svo að se'gja hvert, sem litið er. En altaf eru fjárlögin hækkuð og jafnhliða aukast þyngslin á sveita- og bæjafjelögum. Þetta segir J. G. að sje pólitík stjórnar- flokkanna gegn okkur Sjálfstæð- ismönnum. Það getur vel verið, að hún geti haldið áfram eitthvert stundarkorn Cnn. En það verður ekki lengi. Og hvað tekur þá við? Og svo kemur sú leiðinlegasta, af veilunum í röksemdafærslu J. G. Og hún er sú, að fjárlögin bera það. sjálf með sjer, að þau eru raunverulega hærri en nokk- uru sinni fyr. Eða hvað segir J. G. um það, sem skemst er á að minnast, að síðasta þing bætti inn á fjárlögin alveg nýjum liðum, : sem nema mörgum hundruðum þúsunda? Er það ekkert annað en lagfærð áætlun ? Og hvers vegna ! þarf hvert þing að liækka skatt-' ana, þingið 1934 um h. u. b. 2 miljónir og þingið 1935 um h. u. | b. IV2 miljón? Er það aðeins til þess að standast jafnhá gjöld og áður ? Jeg býst við að J. G. svari þessu síðasta með því að segja, að hækk- anirnar eigi aðeins að vega móti þeim lækkunum, sem erfiður liagur þjóðarinnar og atvinnuveg- anna hljóti að hafa í för me'ð sjer. En er hann þá ekki að slá niður sína eigin röksemd um það, að þjóðin sje enn fær um að bera jafnhá gjöld og áður eða hærri? Á hverju ári þarf þá að bæta við nýjum og nýjum sköttum og hækka þá, sem fyrir eru, aðeins til þess að ná sömu te'kjum. Ef annað eins fyrirbrigði og þetta getur ekki opnað augu manna, þá hljóta þeir að vera steinblindir. Ef bóndi, sem fekk ákveðið mjólk- urmagn úr 5 kúm, þarf næsta ár 6 kýr til þess að fá sama mjólltur- ; magn og síðan 7 og svo 8, án þess ■ að sjá, að hje'r væri eitthvað al- I variegt á ferðum, þá held jeg að 1 flestum litist illa á þá búmensku. En kannske að þetta sje alt öðru- j vísi þegar um mjólkurkýr ríkis- , sjóðs er að ræða? Lýðskrumið. j J. G. segir, að allar fyrirfarandi stjórnir hafi haldið áætlunum fjárlaga niðri af því, að þær hafi ekki viljað, e'ða þorað að láta þjóð- ina sjá þá rjettu mynd ríkisbú- skaparins á fjárlögunum. Þetta á Jmeð öðrum orðum að hafa verið t lýðskrum. Jeg skal ekJícrt, segja um þetta að því er snertir þær stjórnir, sem : mestu hafa eytt umfram f járlög. j En vill nú e'kki jafn sanngjarn j maður og J. G. er, stinga hendi í J eigin barm og spyrja, hversvegna I núverandi valdhafar halda öllu í háspennu þó að bersýnilegt virðist, að það liljóti að leiða til glötunar? Er ekkert í því af lýðskurmi e'ða von um pólitískan hagnað? Þegar hann skrifar síðari part greinar sinnar, flíltar þar miljónunum til verklegra framkvæmda, talar um nauðsyn þess að halda öllu gang- andi og lofar stórfje til þess að Jjetta mönnum afkomum, þó að hann viti að hjer er ve'rið að þurausa þær lindir, se'm almenn- ingur verður að lifa af, — hvað er það annáo en lýðskrum, og það af hættulegustu tegund? Af ótta við fólkið er uni að gera að haída öllum hjólum í gangi fram um næstu kosningar. „Eftir okkur kemur svo synda- flóðið“! Magnús Jónsson. *!**t>*!t*!>>?M!t,?**?**V!**?>*?*<W!*<t**t*<?t*?**?t*!**T**^ Rjúpur. Ágætar Rjúpur ca. 400 stykki, seljum við ódýrt næstu daga. Sig, Þ. Skjaldberg. Af sjerslökum ástœðum er 5 manna bíll til sölu með tækifærisverði ef samið er strax. — Upplýsingar á Aðalstöðinni, Sími 1383. SJÁLFVIRKT ÞVOTTAEFNI Oskoðlegt Klórlaust Gjörir þvottinn mjallhvítann án þess að hann sje nuddaður eða b I e i k j a ð u r. Minningarorð. Símon Sveinbjörnsson. 1 gamla daga voru margar svaðilfarir farnar milli Akra- ness og Reykjavíkur, og komu ekki allir heim úr hverri för. Þann 9. desember 1891 fór sex- mannafar eina slika. Á þessu skipi var formaður Sveinbjörn Þorvarðarson frá Kalastöðum, bróðir Þorv. Þorvarðarsonar prentsmiðjustjóra í Reykjavík. Sex manns voru á skipinu, þar á meðal systir Sveinbjarnar, en enginn komst lífs af úr þessari för, nema Jón Árnason frá Heimaskaga. Hann var þá að- eins 20 ára þegar þetta skeði. Komst hann á kjöl og var þar í 2!/j klst. í 8—10 stiga frosti, áður en honum varð bjargað af skipi frá Akranesi. Hafði sjst að heiman hvernig komið var, og því þegar reynt að bjarga. Jón hætti ekki, þrátt fyrir þessa þrekraun að stunda sjóinn. Hann gerir það enn. Og hefir oftar komistíhann krapp- ann. Sveinbjörn heitinn var giftur Margrjeti Kristjánsdóttur, — Símonarsonar frá Akri á Akra- nesi, og síðari konu hans Þóru Jónsdóttur frá Kópsvatni, en Þóra var áður gift síra Oddi Sveinssyni frá Rafnseyri. — Sveinbjörn og Margrjet eignuð- ust 6 börn. Dó eitt þeirra ný- fætt, en hin komust upp. Var Símon skipstjóri þeirra elstur, og var á 10. ári þegar þetta skeði, en yngsta barnið var að eins 19 vikna gamalt. Þetta er ekki í fyrsta skiftið, sem ung móðir hefir orðið að taka að sjer að uppfylla föður- og móð- urskyldurnar. En þessi harða barátta hefir komið mörgum ungum manni til þess að stíga á stokk og strengja þess heit, að berjast drengilega við hlið þeirrar veru, sem bar hann undir brjósti. Þau elska gagn- kvæmt og láta eitt yfir bæði ganga. Æfi Símonar sannar, að hann var slíkur sonur móður sinnar. Hann barðist af miklum dugnaði með henni og fyrir hana, til þess að koma yngri systkinum sínum úr „grasi“. Árið 1904 fluttist Margrjet með bömum sínum til Reykja- víkur. Hafa þau Símon dvalið þar síðan. Stundaði hann þeg- ar sjóinn og ljet sjer hvergi bregða. Hann gekk á Stýri- mannaskólann í Reykjavík og útskrifaðist þaðan. Var hann lengi skipstjóri á kútterunum gömlu meðan þeir voru við líði. En síðan keypti hann línuveiða- skipið „Rifsnes“ og var me® það lengst af síðan. Símon var og eitt ár skipstjóri á fyrsta togaranum, sem hingað var keyptur. Árið 1907 gekk hann að eiga ástmey sína Sigríði Jóns- dóttur, ættaðri úr Reykjavík, hina elskulegustu konu. Þau bjuggu skamt saman, því hana misti hann af bamsförum 9. jan. 1908. Barnið lifði, og var heitin eftir móður sinni. Mar- grjet gat nú launað hinum góða syni, með því að ganga barai hans í móðurstað. Enda var það ekki gert með hangandi hendi. Sigríður þessi er nú gift Ólafi Friðrikssyni verslun- armanni í Reykjavík. Árið 1920 giftist Símon í ann- að sinn eftirlifandi konu sinni, Ástu Hallsdóttur, systur Halls tannlæknis, hinni ágætustu konu. Áttu þau saman 5 drengi. Dó einn þeirra á 1. ári, en hinir 4 lifa. Er sá elsti 15 ára, en sá yngsti tveggja ára. Móðurhlutverkið er því erfitt eins og oft áður. Og svo sonar- skyldurnar við aldurhnigna móður manns hennar, sem með þessum ágæta syni hafði þolað sýrt og sætt í lífinu. En alla þessa erfiðleika og sjálfsögðu skyldur hygst Ásta að uppfylla og sigra, með Guðs hjálp og gcðra manna, þrátt fyrir erfiða tíma og alskonar mótgang lífs- ins. — Nú standa þessir ungu vinir svo að segja í sömu sporum sem faðir þeirra stóð fyrir rjettum 44 árum,. Og við vonum að þeim aukist með degi hverjum ás- megin í því erfiða hlutverki, að berjast til sigurs við hlið góðrar móður, fyrir framtíð þeirra allra og velferð. Og pabbi þeirra mundi bæta við. Munið að vera ást og yndi hennar ömmu ykkar meðan þið megið og megnið. Hún hlýtur nú hvað af hverju að fara að gefast upp. Því oft hefir gefið á bátinn þann. Símon Sveinbjörnsson var fæddur á Akranesi 2. apríl 1881. Hann dó í Landakotsspít- ala 7. júlí 1935, eftir uppskurð við magasári. Símon heitinn var fríður sýnum, meðal maður á‘ vöxt og samsvaraði sjer vel. Hann var vel greindur. Ein^rð- ur, eindreginn og ákveðinn, og viídi als ekki láta hlut sinn. Hjelt hann skoðun sinni fyrir hverjum sem var. Hann var til- finningamaður, vinur vina sinna. Boðinn og búinn til að rjetta þeim hjálparhönd. Sambúð þeirra hjóna var á- gæt. Þau voru bæði vel gefin. Lík um margt, og virtu hvert annað mjög mikils. Það er því mikils mist við sviplegt fráfall ástríks sonar, maka og föður. En margreynd móðir hefirfyr komið „út í jel“. Hún veit að þau birta um síðir. Og kona sem hefir elskað, sem biður og vonar, sem trúir og treystir, henni er líka óhætt. Hún getur m;itt í raunum sínum talið kjark í aðra. Og einmitt það hefir Ásta gert. Akranesi, 14. desember 1935. Ól. B. Björnsson. I

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.