Morgunblaðið - 20.02.1936, Blaðsíða 6
6
MORGUNBLAÐIÐ
Fimtudaginn 20. febr. 1936.
Fjármálaræða Eysteins.
FRAMHAT.D AF ÞRIÐJU SÍÐU.
milj. króna fram yfir það, sem
áætlað var í fjárlögmm. Það er
m. ö. o. „svartidauði", sem hefir
verið flotholt ríkissjóðs árið sem
leið.
Þegar á þetta er litið og hitt
er jafnframt athugað, að margir
af,hý.mpi gömlu, föstu tekjustofn-
uní' ;franss jóðs eru að bregðast,
veMur lítið fyrir fjármálaráð-
hecra af að státa.
Ejármálaráðherra var að gorta
af útkomunni, að orðið hefði um
500 þús. kr. afgangur á reksturs-
reikningi ríkissjóðs árið sem leið.
Kö'þessi afgangur er þó ekki nema
þrjiðjungur af þeim óVænJta
„grÚða“, sem stjómin fekk af
„svartadauða" -áf enginu.
Ríkisskuldirnar hafa
vaxið.
Þessu næst gaf ráðherrann yfir-
lit um skuldir ríkisins. Þær voru
kr. 41 milj. 937 þús. í árslok 1934
en kr. 46 milj. 359 þús. í árslok
1935, svo hjer er um mikla hækk-
un að ræða. Þess ber að gæta,
að með skuldunum í árslok ’35
éru taldar rúml. 3 milj. kr. skuld
Utvegsbankans, sem bankinn á að
standa straum af og 600 þús. kr.
lán, er Fiskimálasjóður fekk til
umráða. Taldi því ráðherra raun-
veralegar skuldir ríkisins í árs-
lok 1935, kr. 42 milj. 300 þús.,
en það er einnig talsverð hækkun
frá árinu áður.
Afkoman út á við.
Þá gaf ráðherrann yfirlit um
verslunarafkomuna út á við.
Samkv. bráðabirgðaskýrslu hefði
innflutningurnm á árinu numið
kr. 42 milj. 600 þús., eða kr. 41
milj. 897 þús. ef innfl. til Sogsins
væri ekki með talinn. En útflutn-
ingurinn hefði numið kr. 43 milj.
880 þús. Yæri því hagstæður versl
unarjöfnuður um 2 milj. kr.
Hinsvegar væri greiðslujöfnuð-
ur enn óhagstæður um margar
miljónir króna.
En þó að þessi útkoma mætti
teijast góð, sagði ráðherra að enn
yrði að herða á innflutningshöml-
um á þessu ári.
Ennfremur sagði ráðherra, að
nauðsynlegt væri að afla nýrra
markaða fyrir afurðir vorar og
finna nýjar framleiðsluleiðir. Að
þessu stefndi stjómin og nefndi
ráðherra sem dæmi karfaveiðar og
útflutning á frystum fiski til N.-
Ameríku. Brostu ýmsir er ráð-
herra nefndi stjórnina í sambandi
við frysta fiskinn til Ameríku.
Fjárlagafrumvarpið
1937.
Um það varð ráðherrann fáorð-
ur. Kvað það samið eftir sömu
reglum og fjárlögin 1936.
Að síðustu sagði ráðherrann að
núverandi stjórn teldi það vera
hlutverk sitt, að stöðva skulda-
söfnun erlendis og reka hallalaus-
an ríkisbúskap. Hann taldi ekki
vafa á, að takast myndi að sigr-
ast á erfiðleikunum.
Stjórnarandstæðingar
taka til máls.
Er fjármálaráðherra hafði lok-
ið sinni ræðu, fengu andstöðu-
flokkar stjómarinnar sinn hálf-
tímann hvor til umráða.
Magnús Guðmundsson talaði f.
h. Sjálfstæðisflokksins og rakti í
stórum dráttum fjármálastefnu
stjómarinnar.
Af hálfu Bændaflokksins töluðu
Hannes Jónsson og Þorst. Briem,
stundarfjórðung hvor.
Kosning utanríkis-
málanefndar. l-
WKT
Bændaflokkurinn fær
ekki að svo stöddu
mann í nefndina.
Kosning utanríkismálanefndar
var annað dagskrármálið í sam-
einuðu þingi í gær.
Áður en kosning hófst fór Hann-
es Jónsson fram á það f. h. Bænda
flokksins, að fjölgað yrði í nefnd-
inni og að Bændaflokknum yrði
gefinn kostur á að fá mann í
nefndina.
Forseti (J. Bald.) gaf stutt
fundarhlje til þess að flokkamir
gætu tekið ákvörðun um þessa
ósk Bændaflokksins.
Að loknu fundarhljenu lýsti for-
sætisráðherra því yfir f. h. Fram-
sóknarflokksins, að kosnir yrðu
strax í nefndina 7 menn, en það
er sú tala sem verið hefir í nefnd-
inni; hinsvegar óskaði forsætis-
ráðherra að frestað yrði að taka
ákvörðun um málaleitan Bænda-
flokksins.
Ólafur Thors lýsti yfir því f. h.
Sjálfstæðisflokksins, að hann væri
því fylgjandi, að fjölgað yrði í
nefndinni og að Bændaflokkurinn
fengi mann í nefndina. Hann kvað
það eðlilegast, að allir flokkar
ættu mann í nefndinni.
Haraldur Guðmundsson utan-
ríkismálaráðherra sagði, að Al-
þýðuflokkurinn væri „eftir atvik-
um“ því fylgjandi, að frestað yrði
að taka ákvörðun um ósk Bænda-
flokksins.
Bændaflokksmenn undu þessum
málalokum illa.
Var nú kosið í utanríkismála-
nefnd og hlutu þessir kosningu:
Ólafur Thors, Magnús Jónsson,
Pjetur Magnússon (S), Bjami Ás-
geirsson, Jónas Jónsson, Stefán
Jóh. Stefánsson, Hjeðinn Yaldi-
marsson (R).
Mænusótt
í Saurbæjarhreppi
Skólahald bannað
í elnn mánuð.
Ljárskógum, miðvikudag. FU.
ænusótt hefir gosið upp á
þrem bæjum í Saurbæjar-
hreppi.
í Ólafsdal veiktist tveggja ára
barn, en vægt.
1 Stórholti eru 3 sjúklingar, 2
drengir 10—11 ára, lítt sjúkir og
karlmaður 28 ára gamall, Þórarinn
Alexandersson, töluvert lamaður.
Á Hvoli er 12 ára drengur mjög
sjúkur.
Sýktu heimilin eru öll í sóttkví
og einnig sveitin og skólahald
bannað, um einn mánuð til að
byrja með.
Þingfrjettir
útvarpsins.
Misklíðin milli
útvarpsstjóra og
forseta Alþingis.
Gísli Sveinsson hreyfði utan
dagskrár í sameinuðu þingi í gær
misklíð þeirri sem risið hefir milli
útvarpsstjóra og forseta Alþingis,
viðvíkjandi þingfrjettum útvarps-
ins.
Útvarpsstjóri hafði farið fram
á, að Alþingi sæi um þingfrjett-
imar, veldi mann til þess að taka
frjettirnar saman og annast flutn-
ing þeirra, en útvarpið bæri allan
kostnaðinn.
Forsetar þingsins vildu hinsveg-
ar engin afskifti hafa af þessu
máli, töldu að það væri útvarps-
ins að sjá um það.
G. Sv. þótti miður, að forsetar
skyldu hafa snúist þannig í þetta
mál. Afleiðingin yrði sú, að þing-
frjettir útvarpsins yrðu nú mjög
styttar frá því sem verið hefði.
Taldi G. Sv. heppilegast að þing-
ið annaðist þetta starf, með því
/æri hægt að tryggja það, að góð-
ur maður yrði valinn til þess að
flytja frjettirnar. Bar hann fram
þá eindregnu ósk, að forsetar
tækju mál þetta til nýrrar yfirveg
unar.
Jón Baldvinsson forseti Sþ.
varði gerðir forseta, en lofaði
hinsvegar, að gefnu þessa til-
efnis frá G. Sv., að forsetar tækju
málið fyrir að nýju.
Elsa Sigfúss
vinnur aðdáun
Þjóðverja.
Khöfn 19. febr. FÚ
J SLENSKU söngkon-
% unni, Elsu Sigfúss, var
forkunnarvel tekið í Er-
langen í Þýskalandi, þar
sem hún söng alt-solo í
Messias Hándels í há-
skólakirkjunni.
Stærsta blað borgarinnar rit-
ar t. d. á þessa leið um söng
hennar:
„Ungfrú Elsa Sigfúss hafði
verið fengin hingað til Erlang-
en til þess að syngja þetta alt-
solo hlutverk. Hún hefir mjög
fagra og þróttmikla rödd, og
ræður yfir svo þroskuðum stíl
í söng sínum, að hin mikla tón-
fegurð í þessu verki Hándels
naut sín framúrskarandi, í með-
ferð hennar.“
2-3 herbergi
á góðum stað í bænum, óskast 14.
maí. — 6 mánaða fyrir fram
greiðsla gæti komið til greina.
Tilboð merkt: „1936“,
sendist A. S. í.
íSTUTTU
MÁLI.
Stanhope lávarður lýsti yfir
því, fyrir hönd stjórnarinnar í
gær, að breska stjórnin hefði
ekki í hyggju, að koma með
neinar nýjar tillögur til sátta
í Abyssiníudeilunni. Reynslan
hefði sýnt, að við hverja slíka
tilraun gerðist ítalska stjórnin
aðeins heimtnfrekari, gerði
kröfur sem ómögulegt væri að
ganga að, og þegar þeim kröf-
um væri svo synjað, notaði hún
það sem afsökun til að herða
sóknina í Abyssinu. (FÚ).
*
Stanhope lávarður sagði enn
fremur, að fyrst í stað kynni
afleiðing refsiaðgerðanna að
hafa verið sú, að sameina Itali
sem einn mann með Mussolini,
en hann fullyrti, að í dag væri
þetta breytt. Það væri farið að
sverfa að Itölum, þeir væru
farnir að efast um mátt sinn
til þess að standa í móti, og
farnir að efa viturleik þess, að
bjóða heiminum byrginn. Refsi-
aðgerðirnar væru farnar að
hafa raunverulegan árangur.
(FÚ).
*
Lögregluvörður var í gær
hafður um skrifstofur bresku
og frönsku sendisveitanna í
Róm, vegna vaxandi andúðar
gegn Bretum og Frökkum í
borginni, og æsinga þeirra, sem
gætt hefir í sambandi við há-
tíðahöldin vegna sigursins í
„hefndar“-bardaganum við
Makale. í kvöld var aftur farin
blysför um götur Rómaborgar
í fagnaðarskyni vegna sigurs
þessa. (FÚ).
Drýgstur.
Fljótvirkastur.
Bestur.
MÁLAFLDTNINGSS■'! :7 ;A
Pjetur Magx s:r
Einar B. Guðni .tsrcr.
GuðLaugur Þorl, r?Sv
Símar 3602, 3202, 2Cr2
Austurstræti 7.
Skrifstofutími kl. 10—1'. cf, 1—6.
Súr hvalur,
Sauðatólg,
Hangiflot.
Hafnarstræti 18. Sími 1575.
40 króna sekt fyrir
að gefa út ávisun,
sem ekki var
til fyrir.
"TJómur var kveðinn upp I
ávísunarmáli Sigurðar
Jónssonar rafvirkja í gær af
lögreglustjóra. Var Sigurð-
ur dæmdur í 40 króna sekt
fyrir að gefa út ávísun, sem
ekki var innstæða fyrir.
Það er löngu bert að Sigurður
Jónsson var kærður fyrir ávísana-
svik í pólitískum tilgangi, vegna
þéss að hann er fulltrúi Sjálf-
stæðismanna í bæjarstjóm.
Sigurður gaf ávísun þessa út til
bílstjóra hjer í bænum. Var hún
27 krónur að upphæð, en Sigurð-
ur átti ekki nema kr. 5,16 inni á
bankabók sinni þegar ávísuninní
var framvíst.
Hefir hann haldið fast við það
í rjéttarhöldum að honum hafi
ekki verið kunnugt um að ekki
Var hóg fyrir ávísuninni á bók
hans.
Bifreiðarstjórinn sem tók á móti
ávísuninni í fyrstu seldi hana
manni, og ljet hann um leið vita
:að hún væri ekki „góð“, en þessi
sami maðnr fór fyrst til Nýja
dagblaðsins og kærði „ávísna-
svikin“ fyrir því og síðan til lög-
reglunnar.
Eftir því sem lögreglan skýrir
frá er það, því miður afar algengt
að menn gefi út ávxsanir án þess
að eiga inni fyrir þeim. Hefir lög-
reglan við og við borist slíkar á-
vísanir og innheimt þær fyrir
menn.
En eftir að þessi dómur er feng-
inn mun verða tekið strangara á
ávísnamálum sem lögreglunni ber-
ast og sagði lögreglustjóri í sam-
tali við blaðið í gær, að eftirleið-
is myndi slík ávísnamál, ekki verða
jöfnuð með innheimtu, heldur yrði
látin ganga dómur í þeim.
| í dag
| bjóðum vjcr yður
} Tannkrcm.
|
l Nýja ágæta tcgund. |
| Ódýrt.
iReykjavíkar
| Hpótek
X
lijúkrunardcildin.
y
!................
Verslunin Goðafoss.
Sími 3436. Laugaveg 5.
Silkisokkar frá 3,50, Greiður,
Höfuðkambar, Svampar, Sápur,
Hárburstar, Fataburstar, Vasa-
klútar, Þvottapokar, Hálsfestar,
Clips og Barnatúttur 20 aura.