Morgunblaðið - 06.03.1936, Page 2
MORGUNBLAPIÐ
Föstudaginn 6. mars 1936.
JPIotSttltSladtd
Útget.: H.f. Árvakur, Reykjavfk.
R4tstJ*rar: J6a KJartansson,
Valtýr Stefánssan.
RítstJ6rn og afgreiSsla:
Austorstrætl 8. — Stmi 1606.
Auglýsingrastj6ri: E. Hafberg.
Auglýsingaskrifstofa:
Austurstræti 1T. — Síral S790.
Heámaslmar:
J6n Kjartansson, nr. 8742
Valtýr Stefánsson, nr. 4220.
Axni 6la, nr. 8045.
E. Hafberg, nr. 3T70.
Áskriftagjald: kr. 3.00 á mánuM.
í lausasölu: 10 aura eintakið.
20 aura mei Lesbik.
Umráð gjaldeyrisins.
Þegar gjaldeyrislögin voru
samþykt, var með valdboði tek-
inn allur umráðarjettur fram-
léfð'enda yfir gjaldeyri sínum.
Hafa þessar ráðstafanir leitt
tik* mjög aukins kostnaðar og
í för með sjer margvísleg
óþægindi fyrir framleiðendur
og þá sjerstaklega útvegsmenn.
Þótt öllum komi saman um
að hart sje aðgengið, þegar ein-
slaklingar eru þannig sviftir
umráðum og ráðstöfunarrjetti
yfir lögmætri eign sinni, þá
hafa menn þó unað þessu fyr-
irkomulagi, frá því sjónarmiði,
að nauðsynlegt væri með þeim
takmarkaða gjaldeyri, sem fyr-
ir hendi er, að umráð hans væru
falin einum aðila.
Á undanförnum árum og alt
fram á síðasta tíma hafa út-
vegsmenn, smærri sem stærri,
getað keypt þurftarvörur sínar
söálfir frá útlöndum, ef þeir
hafa óskað þess. Hafa þeir
fje,ngið 6—9 mánaða gjaldfrest
á þesspm 'vörum og auk þess
sætt góðu verðlagi.
En á síðastliðnu ári voru
gjaldeyrislögin framkvæmd
með , þeim hætti, að útvegs-
mönnum var gert ókleift að
standa í skilum. Þar við bætist
svo, aði.skömmu fyrir áramótin
gáfu bánkarnir út tilkynningar
sem mjög hafa verkað í sömu
átt.
Afleiðingar þessa tvenns eru
þær, að útvegsmenn hafa ger-
samlega mist lánstraust sitt. er-
lendis. ••
Ef útvegsmenn vilja nú
kaupa þurftarvörur sínar sjálfir
frá útlöndum, er þeim gert að
ófrávíkjanlegu skilyrði, að
setja ■•bankatryggingu fyrir
þeim viðskiftum.
En bankarnir eru hinsvegar
afar tregir, eða jafnvel alveg
ófáanlegir til að veita slíkar
tryggingar, og bera fyrir sig
að á krepputímum sje óverj-
andi að ganga í miklar ábyrgð-
ir.
Þeim, sem nokkuð þekkja til
útgerðarmála er fyllilega Ijóst
í hvert öngþveiti hjer er komið.
Þessvegna bera þeir Ólafur
Thors og Sigurður Kristjánsson
fram frumvarp það, sem prent-
að er á öðrum stað hjer í blað-
inu. Virðist þessum málum svo
komið, að leitt geti til stöðvunar
á útgerðinni, ef frumvarp þetta
nær ekki samþykki.
Munu állir ' Öjálfstæðismenn
á þingi fyígja þéssu frumvarpi,
sem er fyrst ög fremst hags-
munamál útgerðarmanna, stærri
og smærri.
SAMSALAN I HENDUR
FRAMLEIÐENDA!
Loftskeyta-
maðurinn
á „Venus“
játar á sig
varðskipa-
njósnir.
Hann gefur
upp fleiri
njósnara.
Togarinn Venus kom frá Eng-
landi um miðnætti í fyrrinótt.
Var loftskeytamaður hans,
Daníel Oddsson, þegar tekinn
fastur og settur í gæsluvarð-
hald.
í gærdag hófust yfirheyrslur
í máli hans.
Játaði Daníel að hann hefði
þýtt dulmálslykla dómsmála-
ráðuneytisins, Skip aútgerðar-
innar og skrifstofu sendiherta
Dana.
Auk þess gaf Daníel ýmsar
upplýsingar um njósnarmálin,
sem elíki vóru áður kunnar.
T.d. gaf hann upp nöfn ýmsra
manna, sem við mál þetta eru
rfiðnir, en sem ekki hefir verið
kunnugt um áður.
Byrjar rannsóknardómarinn
yfirheyrslur yfir þeim í dag, og
vildi hann ekki gefa upp nöfn
þeirra að svo stöddu.
Daníel situr enn í gæsluvarð-
haldi.
Óskar Jóhannsson, sjómaður
á Klapparstíg 13, játaði í gær,
að hann hafi sent togaranum
„Vinrlr“ dulmálsskeyti um
ferðir varðskipanna.
Áfján manna nefnd falið fnlf
framkvæmdavald i málimiu.
Einróma vantraust á meiri hluta
mjólkursðlunefndar.
Frá Brúarlandsfundinum í gær,
D JÖLMENNASTI bœndafundur, sem nokkru
sinni hefir haldinn verið hjer í nágrenni
Reykjavíkur, var haldinn að Brúarlandi í Mos-
fellssveit í gær.
Fundinn sátu um 250—300 bændur úr Gull-
bringu og Kjósarsýslu, Reykjavík og Hafnar-
firði.
Mjólkurbúin og framleiðendafjelög bænda
vestan heiðar boðuðu til fundarins og var um-
ræðuefnið mjólkurlögin og framkvæmd þeirra.
Fundurinn samþykti einróma kröfu um, að
framkvæmd mjólkursölunnar í Reykjavík og
Hafnarfirði verði fengin bændum sjálfum í hend-
ur og mjólkursölunefnd hafi þar engin afskifti.
Ennfremur samþykti fundurinn einróma van-
traust á meirihiuta mjólkursölunefndar.
Loks var kosin 18 manna nefnd til þess að sjá
um, að koma í framkvæmd kröfum fundarins og
fekk nefndin ótakmarkað vald til þess að gera
sjerhverjar þær ráðstafanir, er með þurfa, til
þess að knýja kröfurnar í gegn.
50 skíðamenn
koma kaffibrúnir
af fjöllum.
Q kíð&færi er nú ágætt í öll-
um nærliggjandi fjöllum,
eftir fannkomuna á dögunum.
Milli 40 og 50 manns notuðu
sjer góða veðrið í gær, o.g fóru
á skíðum, flest upp á Hellis-
heiði.
Komu skíðamenn aftur í
bæinn kaffibrúnir eins og
þeir hefðu legið í sólbaði
dögum saman, að sumar-
lagi.
Er nú tækifæri á meðan
skíðafæri helst og veðrið er
gott, að fara á skíði og ættu
sem fléstir að nota tækifærið.
Einni'g ættu skólarnir að at-
huga hvort ekki væri hægt að
gefa nemendum frí til að fara
á skíði, því einn dagur á fjöll-
um fyrir skólanemendur, getur
bætt upp marga daga, sem
hangið er ýfir bókáskræðum.
Fundurinn hófst kl. laust fyrir
2 e. h.
| Evjólfur Jóhannsson setti fund-
inn. Fundarstjórar voru Björn
Bja-rnarson hreppstjóri, Grafar-
holti og Magnús Þorláksson bóndi
Blikastöðum. Skrifarar vom Gísli
Sigurg.eirs.son.- Selskarði og Björn
Birnir, Grafarholti.
Öllu öfugt snúið.
Eyjólfur Jóhannsson hóf um-
ræður á fundinum.
Harm rakti fyrst í stórum drátt-
um sögu mjólkurmálsins. Gat þess
m. a. í því sambandi, að allir
hefðu verið sammála um, að óska
eftir mjólkurlögunum.
Tilgangurinn með lögunum hefði
í höfuðatriðum verið:
að lækka dreifingarkostnað
mjólkurinnar, með því að hafa
eina samieiginlega sölumiðstöð, og
að lækka reksturskosfnáð bú-
iimna, með því að skipuleggja
i unsluna,
Mjólkursölunéfnd liefði alger-
ílega svikist ,iim, að framkvæma
jsíðara atriðið. Að því er fyrra
atriðið snerti, liefði að vísu ve'rið
komið á sameiginlegri sölumið-
stöð. En sá gálli hefði þar á orð-
ið, að bændur hefðu verið sviftir
öllum ráðum þar og' útkoman því
orðið sú, að gagnið fyrir bændur
á þessu sVæði liefði ofðið mínna
en ekkert. ’
Verðjöfnunargjaldið hefði verið
lmgsað sem greiðsla fyrir þau
lilunnmdi, að hafa forgangssölu á
markaðinum. En á móti átti að
sjálfsögðu að koma, að hin keyptu
rjettindi afhentusf skilyrðis-
laust. í liendur þeirra, er gjaldiS
greiddu i— framleiðendanna.
Þetta hefði ekki verið gert,
þrátt fýrir margítrekaðar kröfui'
og því væri nú þolinmæði bænda
þrotin.
Eyjólfur benti í frumræðu Sinni
fá mörg og margþætt mistök í
rekstri Samsölunnar og hlutdrægni
Mjólkursölune'fndar gagnvart hin-
um ýmsu mjólkurbúum.
Kvað hann framkvæmd Samsöl-
unnar hafa verið ein öfugmæli frá
upphafi til enda.
Að síðustu las Eyjólfur upp
hinar rökstuddu kröfur og álykt-
anir, sem fundarboðendur höfðu
fomið sjer sarnan um að bera fram
á fundinum og eru þær preritaðar
á öðrum stað hjer í blaðirm.
Sósíalistar voru
keyptir.
Þorsteinn Björnsson í Skálholti
í Hafnarfirði tók næst til má.ls.
Þorsteinn er, sem kunnugt er
einn af aðalmönnum sósíalista í
Hafnarfirði. Hann fór þungum
orðiini um stjórn Samsöluhnar og
gaf ófagra lýsingu af ástaiidinu
hjá mjólkurframleiðéndum í Hafn-
arfirði.
; ,Ekki væri von, að vel hefði
farið, sagði Þorsteinn ennfremur,
þar sem skipulagningin hefði ver-
ið gerð að versiunarvöru. Það ar
vitað, að sósíalistar hafa lifciS
kaupa sig í þessu máli og »4.
hver sem vill hafa þetta eftir
mjer, sagði Þorsteinn.
S j á lf stæðisf lokkurinn
styður kröfu bæiid-
anna.
Þá talaði Ólafur Thors. . Fyrst
svaraði liann fyrirspurn, er Þorst.
Björnsson hafði beint til haas,
þess efnis, hvort Sjálfstæðisflokk-
urinn vildi breyta mjólkurlöguH-
Um í samræmi við óskir og kröfur
bænda, svo að Sámsalan mætti
verða starfrækt ópólitískt.
Þessari fyrirspurn svaraði Ólaf-
ur hiklaust játandi. Allur Sjálf-
stæðisflokkurinn undantekningar-
laust styddi kröfu bændanna, enda
hefði það frá byrjun verið krafa
flokksins, að þessu máli yrði hald-
ið utan við flokkspólitíkina.
Þessu næst sneri Ólafur Thors
sjer að sjáli'u málinu.
Benti m. a. á, að ein lröfuðsynd
mjólkursölunefndar liefði verið,
að hún hefði í upphafi þverbrotið
þá grundvallarreglu kaupsýsiu-
mannsins, að taka ekki minsta tii-
lit til óska kaupendanna.
Mjólkuilögin hefðu orðið mikil
vonbrigði fyrir bændur, sem staf-
aði eingöngu af pólitískú versl-'
unarbraski um málið.
Að lokum sagði Ólafuf eitthvað
á þessa leið: .
j Það sem nú þarf að ger'a er
þetta: Bæiidur verða sjálfir að '
fá fullan umráðarjett yfir rnjólk-
úrsölunni.
Þetta er sú krafa, sem bændur
verða að halda fast í.
Bændur hafa hingað til reynt
allar hugsanlegar samningaleiðir,
jtil þess að ná rjetti sínum. En
J einhverntíma kemur að þvi, aS
þolinmæði bænda þrýtur. Og nú
er hún þrotin!
V erð j öf nunar e i aldið.
Talsvert var á fundinum rætt
urn yerðjöfnunargjaldið.
Töldu sumir ræðumenn (Þorst.
Björnsson, Indriði Guðmundsson
o. fl.), ,að óheimilt hefði verið að
fara upp í hámark gjaldsins,
nema sjerstakar ástæður væru
fyrir liendi, eti ekkert hefði ie'gið
fyrir ennþá, sem rjettlætti þá ráð-
stöfun.
Mesta ógæfan.
Jónas Kristjánsson mjólkurbús-
stjóri frá Akureyri var mættur á
fundjnum. Var honum sjerstaklega
boðið þangað, sem fomanni hinn-
ar stjórnskipuðu nefndar, sem fal-
ið var að. endurskoða . mjólkjy-
ögin.
Jójias flutti ali-ianga ræðu á
íimdinmn ö'g talaði aðallega um
FRAMHALD Á SJÖTTU SíÉ)U.
i