Morgunblaðið - 06.03.1936, Qupperneq 4

Morgunblaðið - 06.03.1936, Qupperneq 4
4 rc— MORGUNBLAÐIÐ Föstudaginn 6. mars 1936. IÐNfiÐUR VERSLUN siGLiNOflR Pukrið I verslunar- mðlunum. Leynd sú og pukur sem á sjer stað meðal núverandi valdhafa um öll almenn viðskiftamál þjóðarinnar út á við, veldur miklum óþægindum og tjóni fyrir alla menn sem víðtæk við- skifti reka. Gerðir eru viðskiftasamning- ar við hverja þjóð á fætur ann- ari, en samningarnir ekki birt- ir fyr en eftir dúk og disk, og sumir aldrei, nema hvað frjett- ist um einstök atriði þeirra, undan og ofanaf og þá jafn- vel á skotspón. Svona var um viðskiftasamn- ing þann, sem gerður var við Dani í fyrra, svona var með samninginn við Þjóðverja, o. fl. Og samningurinn, sem gerður var um árið við Spán fjekst með engu móti birtur hjer, fyr en blöð skæðustu keppinauta okkar, Norðmanna, höfðu birt hann fyrir þrem vikum. Og þó er fjölda manna ætlað og þeim fyrirskipað, að haga viðskiftum sínum að ýmsu leyti samkvæmt þeim samningum, er menn mega ekki vita hvernig eru. Nú mætti ætla, að innflutn- ingsnefndin bætti úr þessu með því, að gefa glögga og greini- lega skýrslu um þær fyrirætl- anir sínar, sem byggjast á við- skiftasamningum við erlendar þjóðir og fyrirmæli þau, sem nefndin gerir vegna breytinga þeirra, sem viðskiftahöftin gera nauðsynleg á verslunarháttum þjóðarinnar og viðskiftasam- böndum. Nefndin veit, sem er, að allir sem við erlend viðskifti fást hjer á landi, sjá og skilja nauð syn þjóðarinnar á því, að beina vörukaupum vorum sem mest til þeirra, sem kaupa afurðir okkar. — Verslunarstjett landsins stendur einhuga í því, að greiða fyrir því, að þessar breytingar á verslunarháttum vorum megi takast sem greiðast, og þær baki þjóðinni sem minst aukin útgjöld. En hvað gerir svo innflutn- ingsnefndin? Hún liggur á því eins og dýpsta leyndarmáli í hvaða löndum hún ætlast til þess, að landsmenn kaupi vörur sínar, þangað til hún seint og síðar meir slettir innflutningsleyfum í menn, með þeim fyrirmælum að þeir eigi að kaupa vöruna í alt öðrum löndum eða heims- áifum, en þeir hafa áður haft viðskiftasambönd við. Ef menn hugsa sjer svo, að leggja út í, að afla þjóðinni hagkvæmra viðskifta á þessum nýju stöðum, og biðja um gjald eyri til þess að komast þangað, til að svipast um eftir góðum kaupum, er þeim neitað um er- lendan gjaldeyri til fararinnar. Með þessu móti eru hin nýju Baráttan gegn atvinnuleysinu í Frakklandi, Italíu og Þýskalandi. Þýskaland. f Þýskalandi hefir „Atvinnu- hjálpar- og tryggingarstofnun rík- isins“ háð langa og harðvítuga baráttu gegn atvinnuleysinu. Á seinni árum hefir og vinnuþjón- ustan (Arbeitsdienst) sýnt glæsi- legan árangur. Hún var í upphafi sjálfboðavinna ebt hefir nú feng- ið fastmótað lagalegt form, sem þegnskylduvinna. Þegnskylduvinn an er einkum fólgin í jarðabót- um og stórum óræktarsvæðum hef- ir verið breytt í frjósamt arðber- andi land. Það er metnaðarmál Þjóðve'rja að vinna að einhverju leyti aftur í landinu sjálfu, það sem þeir mistu út á við í heims- styrjöldinni. Það sýndi sig- einnig- í stríðinu, hversu ótækt það var að vera öðrum þjóðum háður hvað snerti brýnustu lífsnauðsynj- ar. Og nú er þegnskylduvinnunni ætlað að auka framleiðslu lands- ins á landbúnaðarafurðum svo að nemi 40—50 miljónum ríkis- marka. Annar tilgangur þe'gnsltyldu- vinnunnar er sá, að veita fólks- strauminum, sem um langt skeið hefir stefnt til bæjanna, aftur til sveitanna. Þær geta tekið við miklum fjölda fólks og öreigalýð bæjanna býðst ágætt tækifæri til nýbýlaræktar á ónotuðu landrými. Styrksupphæðin, sem hverjum atvinnule'ysingja er veitt, fer eft- ir ástæðum. Hún nemur að jafn- aði 50 Rm. á mánuði, en getur farið niður í 30 Rm. fyrir ein- hleypa og upp í 70 Rm. fvrir f jölskyldufeður. Þá hefir verið ráðist í stórkost- legar opinberar framkvæmdir og hafa hinar vönduðu ríkisbrautir fyrir bíla, sem verið er að gera, vakið heimsathygli. Miklar breyt- ingar og endurbætur hafa verið gerðar á húsum og hefir verið var- ið til þess 500 milj. Rm. Skráðir atvinnuleysingjar í Þýskaiandi: viðskiftasambönd gerð alveg ó- þarflega torsótt. Og með þessu má búast við því, að vorurnar, sem til landsins fást verði alveg óþarflega dýrkeyptar. Innflutningsnefnd er óspör á að brýna fyrir mönnum, hve skortur á erlendum gjaldeyri er tilfinnanlegur. Nefndin ætti því, ef hún skil- ur hlutverk sitt til fulls, að kosta kapps um, að gera mönn- um mögulegt, að njóta sem hagfeldastra kaupa, fyrir þann gjaldeyri, sem fáanlegur er, en það gerði hún best með því að birta áætlun þá, sem hún hefir gert um það, hvernig hún ætl- ast til að viðskiftum lands- manna verði hagað á þessu ári, Hefði hún að rjettu lagi átt að gera það fyrir löngu. 1929 1.915.025 1934 2.657.711 1932 4.573.219 Jan. 1935 2.973.544 933 5.579.858 Ág. 1935 1.706.230 Frakkland. Atvinnuleysisskýrslur Frakk- lands hafa tiltölulega lítið gildi þar eð þær grípa ekki yfir alt svið atvinnuleysisins. — Þó að atvinnu- leysi hafi aukist mjög í Frakk- landi, þá er ástandið þar ekki ná- lægt eins dapurlegt og í mörgum öðrum löndum. Er þetta fyrst og fremst að þakka heppile'gri hlut- fallstölu þeirra, sem stunda land- beinað og iðnað. Auk þess er fólksfjölgun og þjettbýlið ekki eins mikið og víða annars staðar, þar sem í Frakklandi koma að- eins 76 íbúar á hvern km2. en t- d. 255 íb. á hvern km2. í Hollandi oú 270 í Belgíu. í byrjun kreppunnar var hægt að halda tölu atvinnuleysingja lágri með því að takmarka erlend- an vinnukraft. Árið 1930 hafði um það bil 1,3 miljón útlendinga atvinnu í Frakklandi, en nú eTu það aðeins 700 þús. Atvinnuleysingjar fá styrk úr atvinnuleysissjóði sem stofnaður var 1926. Heildarútborgunin úr þessum sjóði nam 1933 1 miljarð franka. Hjeruðin í Frakklandi faka á sig hluta kostnaðarins, en ríkið greiðir þó bróðurpartinn. Árið 1934 var útborgunin 1.300 miljónir fr. og hluti ríkisins þar af 800 milj. fr. Upphæðin fyrir árið 1935 var áætluð a. m. k. 100 milj. fr. hærri. Atvinnulaus fjölskyldufaðir fær um 7 franka í styrk á dag að við- bættum 4 fr. fyrir konu og jafn- mikið fyrir hvert barn. Þó að ríkið taki á sig stóran liluta byrðarinnar, þá hvílir saint kostnaðurinn þungt á hjeruðun- menn a um. Það he'fir verið samin skrá um yfir þær borgir og hjeruð, þar sem meir en 3% íbúanna eru at- vinnulausir. í byrjun árs 1935 voru 60 nöfn á þessari skrá. Eins og aðrar þjóðir verja Frakkar stórum fúlgum til opin- berra framkvæmda og er talið að þær hafi veitt 60 þús. manns vinnu 1935. Samgöngubætur (bætt járnbrautarkerfi og aukning neð- anjarðarbrauta í París) eTu fremstar framkvæmdanna. Skráðir atvinnuleysingjar í Frakklandi: 1930 13.859 1934 376.320 1931 75.215 Jan. 1935 532.127 1932 308.096 Okt. 1935 418.687 ftalía. Atvinnuleysisskýrslur Italíu eru all áreiðanlegar, þar* sem þar er tryggingarskylda. Atvinnuleysistryggingar og styrkveitingar eru mjög frá- brugðnar í ítalíu, því sem er í öðrum löndum. Beinir fjárstyrkir eru svo til óþektir enda segir Mussolini að þeir sjeu eingöngu „verðlaun letinnar“, Greiðslur tryggingarsjóðanna ne'ma í hæsta lagi 3.75 lírum á dag á hvern verkamann og eru ekki intar af hendi í lengri tíma en 120 daga. Tilgangur þeirra er aðeins sá, að hjálpa verkamönnum yfir fyrstu örðugleikatíma at- vinnuleysisins. Sje verkamaður atvinnulaus, þá er honum hjálp- að af hinu svokallaða „Assistenza Sociale“ sem heyrir að öllu léyti undir fasistaflokkinn. Styrkur þessa aðila er einungis fæði, klæðnaður o. þvl. Tekjurnar eru meðlimsgjöld fasistanna og ann- ara einstaklinga. Ef atvinnuleys- ingjar eru heimilislausir og geta 'enga húsaleigu greitt, fá þeir í- verustað í svonefndum „Gistivin- áttuhúsum fasista“. . Vinnutíminn hefir verið styttur til þess að draga úr atvinnuleys- inu og þess utan hafa stjórnar- völdin komið á verðlækkun ým- issa vörutegunda. Þá hefir iðnaði og landbúnaði verið hjálpað mjög til þess að standast samkepnina við erlenda framleiðslu. Við framkvæmdir þess opinbe'ra, sem hafa verið miklar, er verka- mönnum greidd sömu laun og við einstaklingsfyrirtæki. Telja valdhafarnir að annað myndi verða til ills eins. Framkvæmdir þessar eýu sem víðast annars staðar vega- gerð og jarðabætur, en auk þess hafnarbætur, vatnsleiðslulagning- ar, breyting eimreiðanna í raf- reiðar, endurnýjun flotans o. s. frv. Á 11 mánaða tímabili (frá okt. ’33 til sept. ’34) voru alls greidd laun fyrir 43 miljónir vinnudajfa. Samsvarar það at- vinnu fyrir um 155 þús. verka- ári. Ríkið hefir á 10 ár- í verkalaun yfir 24 miljarða líra. Þessi upphæð kem- ur að nokkru leyti frá atvinnu- trygginguimi. — Hún skilar álit- legum hagnaði árlega og rennur hann til ríkisins. Við þetta bæt- ist arður hinna ýmsu banka, sem heyra undir ríkið. Þá hefir ríkið einnig tekið gríðarstór lán hjá sparisjóðum og vátryggingarfje- lögum. Þetta hefir leitt til gífur- legrar skuldaaukningar ríkisins á síðari árum og hefir jafnframt haft það í för með sjer að næst- um er ókleift fyrir einstaklings- fyrirtæki að xá lán. Ríkisskuld- irnar námu 87 miljörðum lira árið 1930 en voru orðnar 110 miljarðar 1935. Er vafalaust að Mussolini ætlar Abyssiniu að fylla aftur „lírukass- ann“ á einn eða annan hátt. Tala atvinnulausra í Italíu: 1930 425.437 Jan. 1935 1.011.711 1933 1.018.955 Sept, 1935 609.094 P. J. Útgerðarmenn vllja fá umráð yfir gjaldeyri. Til þess að kaupa ú t^erðar vör ur. A lafur Thors og Sig. " Kristjánsson leggja til að gjaldeyrislögunum verði breytt, bannig að — „útgerðarmönnum skuli heimilt að ráðstafa teim er- lendum gjaldeyri, sem fæst fyrir útflutningsvörur þeirra, að því leyti, sem þeir þurfa hann til greiðslu á vörum til útgerðar sinnar“. Hafa þeir lagt fyrir Alþiugi frumvarp til laga um breytingu á g-jaldeyrislögum, sem fara í þessa átt. I greinargerð fyrir frumvarpinu segir: Með framkvæmd laga nr. 11, 9. jan. 1935 eru útgerðarme*nn sviptir því lánstrausti, sem þeir áður höfðu og hagnýttu sjer til innkaupa á útgerðarvörum er- lendis. Sjá erlendir seljendur sjer yfir- leitt ekki fært, meðan lögin eru framkvæmd eins og nú, að láta vörur af hendi við útgerðarmenn án bankatryggingar fyrir greiðslu á umsömdum tíma, því synjun um yfirfærslu getur valdið vanskilum. Bankarnir munu hinsvegar treg- ir til, og stundmn ófáanlegir til að gefa tryggingaryfirlýsingar. Liggur við borð, að þetta skapi útgerðinni óviðnnandi verðlag á útgerðarvörnm, svo sem olíu, kolum, salti og veiðarfærum, eða jafnvel stöðvi alveg ýmsa útgerðar- menn. Sýnist það ekki ná nokkurri átt að meina útgerðarmönnum að nota sinn eigin gjaldeyri til þess að kaupa vörur til útgerðarinnar og þannig tryggja öflun gjalddyris- varanna. Nú er hinn marg eftirspurði freðfiskur kominn, einnig riklingur. Lostæti með góðu smjöri.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.