Morgunblaðið - 24.06.1936, Blaðsíða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ
Miðvikudaginn 24. júní 1936,
Útgef.: Hít, Árvakur, Reykjavlk. f
Ritstjðrar: Jðn Kjartansson og
Valtýr Stefánsson —
áby rgS arr.iaö ur.
Ritstjðrn og afgreiösla:
Austurstráeti'8. — Sími 1600.
Auglýsingastjóri: E. Hafberg.
Auglýsingaskrifstofa:
Austurstræti 17. — Sími 3700.
Helmasimar:
Jðn Kjartansson, nr. 3742
Vaitýr Stefánsson, nr. 4220.
Árni Óla, nr. 3046.
E. Hafberg, nr. 3770.
Áskriftagjald: kr. 3.00 á rnánuöi.
í lausasölu: 10 aura eintakiö.
20 aura meö Lesbðk.
Varanleg Kreppuhjálp.
Það er upplýst, að 720 verka-
menn í Reykjavík voru at-
vinnulausir 1. maí síðastliðinn.
Jafnframt er það upplýst, að
15 leiðtogar verkamanna hafa
svo háar tekjur, að þeir greiða
sama útsvar og 2400 verka-
menn.
Þessar tölur segja ákaflega
skýrt eftir um vinnubrögð
þeirra manna, sem fyrir síðustu
kosningár gerðu „vinnu handa
öllum“ að kjörorði sínu. Þeir
hafa alveg gleymt „sauðsvört-
um almúganum“ í flokki sín-
um fyrir ákefðinni að skara eld
að sinni eigin köku.
Hjeðinn Valdimarsson og
hans nótar þurfa ekki að
kvarta um atvinnuleysi. — En
margir þeir, sem gáfu slíkum
herrum umboð sitt við síðustu
kosningar, hafa á andvökunótt-
um eftir vinnulausa daga ver-
ið að velta fyrir sjer þeirri
spurnirigu, hvernig því sje eig-
inlega háttað með jafnrjettið
og kíræðralagið innan samtaka
alþýðunnar á íslandi.
Sapifara því, sem fátækir
verkamenn bylta sjer andvaka,
af því þeir fá ekki vinnu til að
sjá sjer og sínum farborða, slíta
þúsundir bænda kröftum sín-
um fyrir aldur fram, af því að
þeir eru þess ekki megnugir að
fá ^iayðsynlega hjálp til at-
yinnurekstrar síns.
Þessir menn hugsa líka til
leiðtoganna úr sínum flokki,
sem lofuðu þeim bættum hag
fyrir síðustu kosningar.
Bændur hafa fengið kreppu-
hjálp. Verkamenn atvinnuleys-
isstyrki. En hvorttveggja er
skammgóður vermir. Hvort-
tveggja þyngir skattana, og
verður þannig til að lama at-
vinnuvegina enn meir.
Varanlega kreppuhjálpin til
bænda er sú, að gera þeim
kleift að hagnýta nægjanlegt
vinnuafl til atvinnurekstrar
síns.
Varanlega krepuhjálpin til
verkamanna er sú að fjölga
vinnudögum.
Þetta er það, sem sameina
þarf. Lækningin á meinsemd
hinnar vinnandi stjettar í sveit-
unum er jafnframt lækning á
meinum hinnar vinnandi stjett-
ar við sjóinn.
Svona einfalt dæmi ætti að
vera auðið að leysa, ef viljinn
til þess er nægur hjá þeim, sem
með völdin fara í landinu.
RAUÐI FÁNINN Á SKIPUM
í MARSEILLE OG ROUEN.
Sjómannaverkfall breiðist út í Frakklandi.
Delbos: Frakkar vilja hætta
refsiaDgerðum.
Vjer verðum að endurskipu-
leggja Þjóðabandalagið.
Anthony Eden fór á fund
Haile Selassie I gær.
N
viðskiftalegar og fjármálalegar
refsiaðgerðir að skyldukvöð.
Strangari ákvæði.
Þá vildi hann, að breytt yrði
því ákvæði, sem krefst einróma
samþykkis Þjóðabandalagsins mp,
ákveðin atriði.
! Loks sagði hann, að franska
stjórnin vildi alþjóða afvopnun,
og að hergagnaframleiðsla
væri sett undir eftirlit alþjóða-
nefndar, sem hefði aðsetur sitt í
Genf.
FRÁ FRJETTARITARA VORUM:
KHÖFN í gær.
ý verkfallsalda er hafin í Frakklandi,
landi hinnar ungu „Alþýðufylkingar“.
Sjómenn hafa lagt niður vinnu og sest að í skip-
unum, sem þeir unnu í áður.
Þeir hafa dregið við hún hinn rauða fána Sov-
jet Rússlands og neitað að hlýða yfirboðurum sín-
um á skipunum.
Skipstjórar og stýri-
menn hafa árangurs-
laust reynt að koma í
veg fyrir að rauðu fán-
arnir væru dregnir við
hún.
Að lokum neyddust þeir til
að flýja skip sín, vegna þéss
að sjómennirnir neituðu að
taka ábyrgð á því, að þeim
yrði ekki unnið neitt tjón.
í Marseille hafa fimm þús-
und sjómenn lagt niður vinnu,
og í Rouen átta hundruð.
Sjómennirnir í Marseille hafa
40 skip á valdi sínu.
I Rouen hafa sjómennirnir
sest að í 30 skipum.
Frakkar gefast upp.
London 23. júní. FÚ.
Delbos, hinn nýi utanríkisráð-
herra Frakka, lýsti yfir því í
franska þinginu í gær, að Frakk- j
ar myndu styðja þá tillögu Breta,
að refsiaðgerðum gegn Itölum
yrði hætt.
Hann sagði, að stefna stjórnar-
innar væri sú að eiga frið við allar
þjóðir. Kringumstæður hefðu kraf
ist þess, að Frakkar samþyktu og
tækju þátt í refsiaðgerðum gegn
ítalíu, en það hefði komið í ljós,
að þær hefðu reynst ónógar, og
virtist sjer, að hjer eftir ggetu þær
ekki gert neitt gagn.
Hræðslan við Hiíler.
En nú bæri þjóðum bandalags-
ins að leysa nýtt vandamál, sagði
Delbos, en það væri, á hvern hátt
mætti tryggja í framtíðinni, að á-
kvæði sáttmálans um aðgerðir
gegn friðrofa gætu náð tilætluðum
árangri.
Hann hjelt því fra,m, að það
ætti að skylda aUa- meðlimi
Þjóðabandalagsins til þess að
leggja fram. ákveðinn herafla
gegn friðrofa, og samtímis gera
Haile Selassie (t. v.), sonur hans og dóttir. Anthonv Eden fór
í gær á fund Abyssiníukeisara. Tölnðust þeir við í 3 standfjórði
" 'M . . - -
Rússar vilja geta
hiálpað Frðkkum
FRÁ FRJETTARITARA VORXJM.
KHÖFN í gær.
Iumræðum þeim, sem nú
standa yfir í Montreaux í
Sviss um endurvopnun friðlýsta
svæðisins við Dardanellasund
hafa Rússar krafist þess, að
þeim verði altaf, jafnt á friðar
og stríðstímum, frjálst að fara
um sundið.
Krafa þessi er gerð með það
fyrir augum, að Rússar geti
veitt Frökkum lið í ófriði.
Fundur þessi er haldinn sam-
kvæmt tilmælum Tyrkja. — Á
fundinum eru samankomnir
fulltrúar' frá stjórnum Bret-
lands, Búlgaríu, Grikklands,
Jugo-Slavíu, Rúmeníu, Frakk-
lands og Tyrklands.
Samkomulag hefir náðst um
uppkast að nýjum samningi,
og eru aðalatriði hans þau, að
Tyrkland skuli fá full umráð
yfir Dardanellasundi, og um-
ráðarjettur Þjóðabandalagsins
afnuminn. /
Sir John Simon og
Attlee deíla um
refsiaðgerðirnar.
Vantraiist á stfórn Baldwtns.
KHÖFN og LONDON í gær.
\ framhaldsfundi um
utanríkismál í
breska þinginu í ga^v,
töluðu Attlee af hálfu
stjórnarandstæðinga og
Sir John Simon af hálfu
stjórnarinnar.
Kjarninn í ræðu Sir
John Simon var þessi:
að tilgangurinn með refsi-
aðgerðum hefði verið að
binda enda á stríðið, en nú
væri stríðinu lokið, og væri
því refsiaðgerðir gagns-
lausar hjereftir, og
að Bretar hefðu aldrei
verið hálfvolgir í afstöðu
sinni í Abyssiníudeilunni,
og að enginn hefði beitt
sjer jafn öfluglega fyrir
því að alt yrði gert, sem
unt væri að gera, en þó án
þess að til stríðs þyrfti að
koma eins og Anthony
Eden.
Sir John Simon sagði enn-
fremur: að sjer dytti þó ekki í
hug að bera á móti því, að Ab-
yssiníudeilan hefði haft mjög
alvarlegar afleiðingar fyrir
Þjóðabandalagið, þar sem
komið hefði í ljós, að hervaldið
mætti sín meir en alþjóðasamn-
ingar til verndar friðnum.
Vantraust á stjórnina.
Mr. Attlee, leiðtogi verka-
mannaflokksins á þingi, bar
fram þingsályktunartillögu þess
efnis, að stjórnin hefði brugð-
ist kjósendum. sínum, rýrt vald
Þjóðabandalagsins, og á þann
hátt stofnað friðnum í hættu.
Mr. Attlee sagði að verka-
mannaflokkurinn teldi ekki ein
göngu utanríkisráðherrann eiga
sök, heldur alla bresku stjórn-
ina, og svo virtist, sem stjórn-
in ætlaði sjer ekki í þetta skifti
að fórna utanríkisráðherranum
til að bjarga sjálfri sjer, eins
og hún hefði gert, þá er Sir
Samuel Hoare var settur af.
FRAMHALD Á SJÖTTU SÍÐU-