Morgunblaðið - 28.06.1936, Page 2
í'iíV
ífI0f
MORGUNBLAÐIÐ
Sunnuáagmn 28. júní 1936.
JjXtOTðttis)bIæ&i&
Útgef.: H.f. Árvakur, Reykjavtk.
Ritstjórar: Jðn Kjartansson og
Valtýr Stefánsson —
ábyrgSarraaður.
Ritstjðrn og afgreiSsla:
Austurstræti 8. — Strai 1600.
Auglýsingastjðri: B. Hafberg.
Auglýsingaskrifsto "a:
Austurstræti 17. — Sími 3700.
Heimastmar:
Jðn Kjartansson, nr. 3742
Valtýr Stefánsson, nr. 4220.
Árni Óla, nr. 3045.
E. Hafberg, nr. 3770.
Áskriftagjald: kr. 3.00 á mánuöi.
í lausasölu: 10 aura: eintakiS.
20 aura meC Lesbðk.
Konungstijónin
fóru heimleiðis
i gærkvöldl.
PÓLVERJAR ERU HÆTTIR
-~—r- .0
REFSIASGER9UM.
I. jg;
Svavar og S. í. S.
Svavar Guðmundsson, núver-
andi bankastjóri á Akureyri,
hafði um mörg ár verið velmet-
inn starfsmaður hjá Sambandi
ísl. samvinnufjelaga. Honum
var sagt upp starfi sínu í fyrra,
vegna þess að blað, sem hann
var viðriðinn hafði flutt um-
mæli, sem snertu illa ýmsa
menn innan Hrifluklíku kaup-
fjelaganna. Svávar hafði ekki
skrifað þessi ummæli sjálfur,
en hann varð að gjalda þess að
hann vár í ritnefnd blaðsins.
Kom hjer í ljós slíkt ofbeldi,
sbm aðeins á sjer hliðstæður í
einræðislöndum. Gæti sú hlið
riaálsins gefið nægilegt tilefni til
hugleiðinga, þótt ekki verði
frekár að því vikið að þessu
slnni.'
Eftir að Svavar yfirgaf Fram
sþknar|Iokkign hefir formaður
hans hvað eftir annað sent hon-
ifm tónýin. Brígslaði hann Svav-
ari meðaí annars um fjár-
gi'æðgi.
• Þetta varð til þess að Svavar
skýrði opinberlega frá störfum
sínum og tekjum meoan hann
var í þjónustu Sambandsins. —
Hann hafði í laun hjá Sam-
bandinu 900 krónur á mánuði.
En ,auk þess vann hann í inn-
flutriings og gjaldeyrisnefnd og
skilanefnd síldareinkasölunnar.
Fyrir þessi störf fekk hann
samtals á tveimur árum 30.100
krónur. Þetta er drjúgur skild-
ingur, og mun hafa verið undir-
staðan að fjárgræðgisbrígslum
formanns Framsóknarflokksins.
En 'sagan er ekki sögð.
Svavar skýrir nú frá því, að
enginn eyrir af þessurn 30 þús.
krónum hafi runnið til sín. —
Upphæðin hafi runnið óskift til
sambandsins, en hann haft eft-
ir sem áður sínar 900 krónur
á mánuðí. Þannig telur Svav-
ar að hann hafi gefið með sjer
í sambandinu 8500 krónur á
tveim árum, en hafi þó unnið
þar, eftir því sem tími leyfðist
frá öðrum störfum.
Svavar hjelt áfram sömu
launum hjá Sambandinu og
hafa þau auðvitað verið talin
til útgjalda.
» ,
En hvað verður um þessar
30 þús. kr. Hafa þær að ein-
hverju — og þá hvað miklu
leyti — runnið til sambandsins,
eða beint í flokkssjóð Fram-
sóknar?
Vilja Tímamenn gera grein
fyrir þessu?
Þjóðabandalagsfylkingin riðlast,
Litvinoff:
Konungur og drotning kveðja.
Roosevelt undir vernd
600 Iðgregluþjóna.
Kjörinn forsetaefni
demokratafiokksins gæi.
sáttmálans ábótavant.
Breytingar á sáttmálanum
N’
verða ræddar á þinginu.
---------í nn
: , j í >ÖNDON í gær. FÚ.
ICÁRAGUA tilkynti skrifstofu Þjóðabandalags-
ins í dag, að hún ætli .að segja sig úr Þjóða-
bandalaginu. Áður hafa stjórnir Guálémala og Paraguay
lagt fram samskonar tilkynningar.
Áður hafa gengið úr Þjóðabandalaginu fjögur ríki:
J,apan, Brasilía, Costa Rica og Þýskaland, en fimm ríki
hafa ætíð staðið fyrir utan það: Bandaríkin, Egyptaland,
ísland, Philipseyjar og Arabía.
FEÁ FKJETTAEITAKA VORITM.;
KHÖFN í gær. j j
iq« FTIR að 60 ræðu-jl
•®--4 menn iköfðu sam-;
fleytt í 12 khikkustimd ■ j
ir stutt framboð Roose-j
velts við forsefeakosning-
arnar í haust, samþykti
fundur demokrata
flokksins í Philadelphiu
loks í morgun að biðja j
Roosevelt að gef a kost i
á sjer fcil endurkosning-
ar.
Þegar úrslitin voru tilkynt,'
ætlaði fagnaðarlátunum aldrei;
að linna.
Roosevelt ætlar að tala á ;
flokksfundinum í kvöld, sem
haldinn verður á íþróttaveíli
Philadelphiu-borgar. — Er þá
gert ráð fyrir að hann geri
grein fyrir þeirri stefnuská,
sem þingið samþykti að leggja
til gundvallar kosningabarátt-
unni.
600 lögreglurnenn vopnaðir
vjelbyssum, halda vörð um líf
Roosvelts.
200 sheikar
aðvara
Breta.
Samkvæmt skýrslu innanrík-
isráðuneytisins franska standa
enn 154 þús. menn í verkfalli
þar í landi. Skýringin á þes- um
mikla fjölda verkfallsmanna er
sú, að enda þótt meginhlut:;
þeirra, sem áður stóðu í verk-
falli, sjeu horfnir til vinnu sinn-
ar aftur, þá hafa verkföll jafn-
óðum brotist út á öðrum stöð-
og í öðrum iðngreinum. FÚ
KHÖFN í GÆR.
EINKASKEYTI TIL
MORGUNBLAÐSINS
Tvöhondruð sheikar,
sem saman eru komnir í1
Amraan í Transjordaniu,
hafa ákveðið að tilkynna
Bretum, aS yfírvofandi
sje uppreisn í Transjor-
daniu, ef Bretar virða
kröfur Arabanna í Palest
ínu vettugi.
Sextíu þútmnd. Budu.in.ar
eru viS því búnir að ráðast
yfir landamæri Palestínu, til
þess að veita Aröbum þar lið.
hvenær sem er.
En uppreisn í Transjordan-
íu er ialin geta orðið stórum
hættuiegri en Palestínu upp-
reisnin. Afleiðing bennar geti
orðið sú, að öll hin nálæg-
* ari Austurlönd fari í bál og
|brand.
um
Pjetur Halldórsson borgarstjóri
hefir gerst æfifjelagi íþróttasam-
bands Lslands, í tilefni af aldar-
fjórðungsafmæli AHsherjarmótsins
og cru nú æfifjelagar 104 að tölu.
Þá hafa Pólverjar til-
kynt, að þeir muni ekki
bíða hess, að refsiaðgerð-
irnar verði formlega
numdar úr gildi, heldur
hætta þeim nú þegar.
Chiíe kemur á óvart.
Það fór nokkuð á annan veg,
en búist hafði verið við, um um-
ræður á Þjóðabandalagsfundin-
um í gær.
Það hafði verið gert ráð fyr-
ir, að ekki yrði annað gert, en
taka ákvörðun um að fresta um
ræðum um Abyssiníustríðið,
þar sem fundur Þjóðabanda-
lagsþingsins stæði fyrir dyrum.
En þá 3tóð fulltrúi Chile
á fætur, og sagði, að
stjórnin í Chile teldi brýna
nauðsyn á því, að taka
þegar til athugunar breyt-
ingar á ÞjóSabandalags-
sáttmálanum, þar sem hún
óttaðist, að hún kynni
annars að dragast út í
stríð, sem yrði að teljast
henni óviðkomandi.
Litvinof: fram-
kvæmdum var
ábótavant.
Litvinoff stóð á fætur til þess
að svara þessu. Sagði hann, að
ef nú yrði farið að hrófla við
Þjóðabandalagssáttmálanum,
gæti það leitt til þess, að Þjóða-
bandalagið leystist upp. Ef á-
kveðið yrði, að taka til athug-
unar breytingu á sáttmálanum,
þyrfti fyrst að skipa nefnd til
þess að undirbúa málið, og
kynni það að taka langan tíma.
Litvinoff kvaðst ekki álíta,
að Þjóðabandalagssáttmálinn
hefði reynst ófullkominn, held-
ur hefði íramkvæmd á ákvæð-
um hans verið ábótavant. Það
þyrfti að tryggja það í fram-
tíðinni, að sáttmálinn yrði hald-
inn.
Tituíescu styður
Litvinoff.
Titufeáfcu, utanríkisráðherra
Rúménki, tók í sama streng og
Litvinöffl Hann sagði, að þjóð-
irnar hefðu ekki gengið nógu
langt í því, að framfylgja á-
kvæðum sáttmálans, og hann
taldi, að heppilegast væri að
stofnað yrði samningakerfi,
milli ríkjasambanda í Evrópu,
til þess að tryggja samvinnu á
grundvelli Þjóðabandalagssátt-
málsins.
Hann sagði, að Rú-
menía og Litla-Bandalagsríkin
myndu styðja tillögur í þessa
| átt, ea ekkerí sem veikti Þjóða
bandalágssáttmálann, nje hagg
aði grundvallaratriði hans, sem
væri viðurkenning á jafnrjetti
allra 1 þjóða.
Fund'i Þjóðabandalagsráðsins
var síðan frestað þar til 1. júlí,
en Þjóðabandalagsþingið kem-
ur saman 30. júní.
Endurskoðun
sáttmálans.
Enska blaðið „Times“ skýrir
frá því, að Þjóðabandalags-
fundurinn í Genf muni þegar í
næstu viku taka til umræðu
endurbætur á sáttmála
Þjóðabandalagsins. Er talið að
fundurinn muni kjósa nefnd í
málið, sem skili svo áliti sínu á
septemberfundi Þjóðabanda-
Iagsiúý'!f1 haust. FÚ.
Alþýðutryggingar. Samlcvæmt
löguni núi alþýðutryggingar hefir
baíjarráð ákveðið að greiða ið-
gjöld ■ til Sjúkrasamlags Reykja-
víkur fyrir þá þurfamenn, sem eru
á fullu framfæri bæjarins, og lieim
ila fátækrastjórninni að greiða
auk þess iðgjöld til Sjúkrasam-
lagsins fyrir aðra, sem framfærslu
nefnd telur hagkvæmt að kaupi
sjúkratryggingu þar.
\