Morgunblaðið - 28.06.1936, Page 6

Morgunblaðið - 28.06.1936, Page 6
MORGUNBLAÐIÐ Sunnudaginn 28. júní 1936. Framhald af 5. síðu. Aðalfundur í. S. í. kver, ágæt bók fyrir knatt- spyrnumenn, og sýndar tvær í- þróttakvikmyndir víSa umland. Skýrsla forseta og reikningar fjelagsins, sem lagðir vorú fram af gjaldkera Ólafi Þor- steinssyni, voru samþyktir í einu hljóði. Samþyktir fundarins. Ýms mál voru borin upp á fundinum og gerðar um þau samþyktir. M. a. var skipuð 7 manna glímunefnd, „til þess að athuga nýtt fyrirkomulag á keppnisformi ísl. glímunnar, setja því fastar reglur og hrinda því í framkvæmd á næsta vori“. í nefnd þessa voru kosnir: Sigurjón Pjetursson (Ála- fossi), Þorsteinn Einarsson (Vestm.), Hallgrímur Bene- diktsson, Magnús Kjaran, Eyj- ólfur Jóhannsson, Helgi Hjör- var og G. Kr. Guðmundsson Þá var samþykt ályktun þess efnis „að ekki verði hjá því komist, að ráðinn sje fastur kennari í útiíþróttumm, sem leiðbeini og þjálfi íþróttamenn um land alt, og skorað á ríkis- stjórn að auka fjárframlög í þessu skyni, á næstu fjárlög- um“. Samþykt var að stjórn I.S.l veiti K.R.R. styrk að upphæð kr. 1200 til eflingar knatt- spyrnuíþróttinni, af áætluðu fje til íþróttanámskeiða. ,,Þá var samþykt að fela stjórn I. S. í. að koma því til leiðar að sambandið fái á þessu starfsári útvarpskvöld, til auglýsinga og eflingar íþróttastarfseminni í landinu. Samþykt var ennfremur að skora á bæjarstjórn að skipu- leggja hið fyrsta hið fyrirhug- aða íþróttasvæði við NauthólS' vík, og hefja framkvæmdir. Loks var samþykt áskorun til gjáldeyris- og innflutn- ingsnefndar, „að veita um- beðinn gjaldeyri, 20 þús. kr. fyrir hreinsunar og þvottatæki í sundhöllina, svo að hún geti tekið til starfa í haust, um leið og skólar byrja starfsemi sína“. Ben. G. Waage kosinn forseti. Að lokum fór fram stjórnar- kosning. Ben. G. Wage var kosinn for- seti, í einu hljóði og honum þakkað ötult starf, með fjór- földu húrrahrópi. Þetta er í 11. sinn. sem Ben. G. Waage er kjörinn forseti, en hann hefir verið í stjórn Í.S.Í. í 21 ár, fyrst sem gjald- keri og síðan varaforseti. Brjefritari var kosinn Guðm. Halldórsson (endurkosinn). Ritari var kosinn Sigurjón Pjetursson (yngri) í stað Kjartans Þorvarðarsonar. Forseti flutti fundarmönnum kveðju Kjartans, og skýrði frá því, að Kjartan hefði verið sjúkur undanfarið og treystist þessvegna ekki til að taka end- urkosningu í stjórn I.S. I. Þakkaði forseti hið ötula starf, sem Kjartan vann, á meðan hann var heill heilsu, og mintust fundarmenn hans með því að standa upp. I stjórn I.S.I. voruÝyrir: Er- lingur Pálsson, varaforseti og Ólafur Þorsteinsson gjaldkeri. Varastjórn var endurkosin: Konráð Gíslason, Erl. Pjeturs- son og Kristján L. Gestsson. Fundinum var slitið seint í fyrrinótt. Síldveiðarnar. PRAMH. AF ÞRIÐJU SÍÐU. Júní með 1200 mál. Síldin með 900 mál. (Þar af 250—300 af Gríms- eyjarsundinu). Ægir og Muninn með ca. 300 mál. Von var á fleiri skipum að austan í gærkvöldi. Þegar Mbl. átti tal við Siglufjörð í gær- kvöldi, voru aðeins tvö skip inni, Júní og „Síldin“. Hin voru öll farin á veiðar austur og vestur. I Djúpavík lönduðu í fyrra- dag: Tryggvi gamli 1730 mál. Ólafur 1470 mál. og í gær: Surprise 400 mál. (Tekin á Húnaflóa). Húnaflóasíldin er feitari en Langanessíldin. Fitumagnið í Húnaflóasíldinni er 16%, en 12% í Langanessíldinni. Djúpavíkurverksmiðjan hefir nú tekið við 7300 málum. Verksmiðjan hefir brætt á sólarhring 2350 mál. Við löndun er notuð „lyfta“ og gengur löndunin fljótt. 230 málum er landað á klst. Ríkisverksmiðjan á Siglufirði hefir tekið við síld sem hjer segir: S. R. 30 ...... 10.865 mál. S. R. D ....... 9.120 mál. S. R. N ....... 6.898 mál. Athugasemd frá Thor Thors. Um skattana á íslandi og Norðurlöndum. Iblaðinu „Tíminn“ birtist 24. þ. m. grein sem nefn- ist „Skattar á íslandi og í öðrum löndum“. Er þar beinlínis dylgjað um að jeg hafi farið rangt með, er jeg skýrði frá skattaálögum á íslandi á fundi norrænna þingmanna í Kaupmannahöfn. Samtals 25.884 mál. Síldarverksmiðjan á Raufar- höfn er nú loksins byrjuð vinslu. Það verður að teljast „skipulagsbundinn“ slóðaskap- ur stjórna verksmiðjanna að hafa ekki fyrir löngu haft verksmiðjuna til búna til að taka á móti síld. Allar þrær verksmiðjunnar eru fullar. Uppboð. Opinbert uppboð verður haldið við Arnarhvál 30. þ. m., kl. 2 síðdegis, og verður þar seld bifreiðin RE 199. Greiðsla fari fram við hamarshögg. lögmaðurinis i Reykfavík. Þessum dylgjum vil jeg algjörlega vísa á bug. Jeg reyndi svo sem mjer var frekast unt að skýr.a þörf ríkis og bæjarfjelaga fyrir núgildandi skattaálögum, m. a. vegna auk- inna opinberra framkvæmda. En vitanlega kom mjer eigi annað til hugar en að fara rjett með allar tölur. Jeg skýrði því frá tekjum ríkisins árið 1935 og rakti bvern lið þeirra. En þær voru síðastliðið ár, samkvæmt frásögn fjármálaráð- herrans á Alþingi, um 15 milj. og 770 þús krónur, en ekki 11 milj. 275 þús. krónur, eins og Tíminn gefur í skyn. Jeg skýrði frá núgildandi tekju- skattsstiga og ennfremur frá út- svarsstiganum í Reykjavík. Þá kemur það óumflýjanlega í 1 jós, að af 28,000 króna skattskyldum tekjum, þarf að greiða um 30% skatt til ríkis og 40% skatt til bæjarins, eða alls um 70%.. Sjer- hver tekjuhækkun fram yfir þetta veldur gífurlegri skattahækkun. T. d. greiðist af því, sem er um- fram 28 þús. kr. tekjur. 44% til ríkis og um 54% til bæjar, eða samtals um 98%. Þar við bætist svo eignaskattur og eignaútsvar, og sjá þá allir, að lítill verður hlut ur þess, sem teknanna hefir aflað. En til samanburðar má geta þess, að í Svíþjóð ber að gjalda, bæði til ríkis og bæjarfjelags, af 1 milj- ón króna skattskyldum tekj- um samtals 41,3%. Þegar Tím- inn talar um skattaálögur, virðist hann algjörlega gleyma útsvörun- um — og á því byggist m. a. hin ranga ályktun blaðsins. Það ber fyrir sig lamerískt tíma- rit, en það kemur í ljós að þetta tímarit hefir ekki yngri heimildir en frá árinu 1934, eða áður en hin- ar nýju skattaálögur núverandi ríkisstjórnar komu til framkvæmda. Það fer vel á því, að Tíminn sæki vöru sína til Ameríku og vitni til þess sem gilti áður en skattaæði ríkisstjórnarinnar braust út. En slík skrif eru vita þýðing- arlaus. Þjóðin veit sjálf við hvað hún á að búa ,og þarf ekki að spyrja Ameríkumenn um það. Þjóðin veit líka og finnur dag- lega hver kjör núverandi valda- menn hafa búið henni í þessum efnum, sem öðrum. Allar ræðurnar á norræna þing- mannamótinu verða nú prentaðar og bráðlega sendar hingað heim. Þá mun j,eg skýra þetta mál nán- ar í heild sinni Og birta rjettan samanburð. Þangað til vil jeg ráð- leggja Tímamönnum að hafa hljótt um hina vægilegu skýrslu mína um skattamálin hjer og yfirleitt að minnast sem sjaldnast og minst á þær gjafir, sem stjórnarflokkarn- ir hafa rjett þjóðinni í formi stór- hækkaðra skatta og tolla. En vegna þess, að Tíminn gefur í skyn, að slíkt sje „rjettlæti“ núverandi rík- isstjórnar að hún afli teknanna aðallega með beinum sköttum og beiti lítt tollum, vil jeg benda á, að síðastliðið ár námu beinir skattar um 15% af ríkistekjunum, en ó- beinír skattar, sem að langmestu leyti eru innflutningstollar, námu hinsvegar um 58% ríkisteknanna. Þetta. sýnir að hjer er engum hlíft. Thor Thors. Tennismótið. FRAMH. AF ÞRIÐJU SfÐU. fara venjulega fram að haustinu, í ’septembermánuði. En í fyrrahaust var ekki hægt iað Ijúka kepni í einmenningskepni karla og áttu fjórir menn eftir að keppa. Aðeins þrír af þessum fjórum frá í fyrra keppa nú, þar sem einn liefir ekki æft sig í sumar. Þeir, sem nú keppa um meist- aratignina, eru: Friðrik Sigur- björnsson, Bergþór Þorvaldsson og Kjartan Hjaltested. Allir hafa þeir æft af kappi í vor og má því búast við skemti- legum leikjum. Fyrst keppa Friðrik og Berg- þór, og sá þeirra, sem vinnur, keppir síðan við Kjartan til úr- slita. Húsbruni í Stykkishólmi. Kviknaði frá olíuvjel. p LDUR kom upp í húsi í ^ Stykkishólmi í gær- morgun kl. tæpl. 9, og brann húsið á rúmum hálftíma. Stúlka ein í húsinu bjarg- aðist nauðulega á nærklæð- um einum úr eldsvoðanum. Húsið var eign Sigurðar Jónas- sonar verslunarmanns í Stykkis- hólmi. Þáð var tvær hæðir og bjó Sigurður sjálfur uppi, en niðri bjó Bergsveinn Jónsson skipstjóri. Stúlka á efri hæðinni var í eld- húsi með logandi gasolíuvjel, valt vjelin um og stóð eldhúsið sam- stundis í björtu báb. Hljóp stúlkan þá niður njeð barn, sem hjá henni var, en hús- freyjan, sem var í kjallaranum að þvo þvott, hljóp upp og vakti stúlku, sem svaf á lofti í litlu her- bergi. Komst stúlkan út á nærklæðum einum. Húsið brann til kaldra kola )á röskum hálftíma. En næstu hús- urðu varin að mestu. Húsið var vátrygt og húsmun- ir Bergsveins skipst.jóra, en hjá eiganda hússins, Sigurði Jónas- syni, var alt óvátrygt og brunnu allir húsmunir bans. Húsmunum af neðri hæð var bjargað að mestu. (FÚ.) Reynið pakka af 4raba fjallagrasa-kaffibæti fæst alstaðar. Nýr lax Nýtt bögglasmjör. Kjötbúðin Herðubreið. Uafnarstræti 18. Sími 1575. Qþvegna vornll kaupir hæsta verði Heildverslun Garðars Gfslasonar Rúðngler. Höfum venjulega fyrirliggjandi rúðugler einfalt og tvöfalt, einnig 4,5 og 6 mm. Eggert Knstjánsson S Cn. mm Maðurinn minn, Guðni Hjörleifsson, læknir, verður jarðsunginn í Vík í Mýrdal laugardaginn 4. júlí n. k. Kveðjuathöfn fer fram frá Mímísvegi 2 í dag kl. &y2 f. h. Margrjet Þórðardóttir og börn.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.