Morgunblaðið - 26.07.1936, Síða 2

Morgunblaðið - 26.07.1936, Síða 2
MORGUNBLAÐIÐ Sunnudaginn 26. júlí 1936. H.f. JLrrakar, RoykJnTfk. Blfartjirtr: Jta KJtrtuwoi og Va-ltýr StefánMOH — 4brrg*arma«ur. Rltstjórn or afgreibala: ▲usturstrntl 2. — Sini 1(09. ▲uglýslngastJðri: R. Hafborg. Auglýsingaskrlf sto 'a: Austurstrntl 17. — Sfmi 1700. Hálmasimar: J6n KJartauason, >r. (742 Valtfr Stefknsson, nr. 4320. Árnl Óla, nr. 2046. B. Hafberg, nr. 2779. Áskriftagjald: kr. 2.00 á mánuBl. 1 lauaasölu: 10 aura aintaklB. 20 aura moB Lesbök. „Sáuð þið hana systur mína4 Stauning, forsætisráðherra Dana, skrifaði í vetur grein í amerískt tímarit. — Fjallaði greinin aðallega um málefni Danmerkur, en auk þess mint- ist haíin þar ofurlítið á Island. Danmörk lítur á ísland, „som en kær lille Söster“, sagði Stauning. Og hann bætti því við að hann væri hræddur um að „lille Söster“ ætti ósköp bágt með að standa á eigin fótum ef Danmörk slepti af henni hendinni. Nú hefir Stauning verið í heimsókn hjá „lille Söster“ og hún hefir beðið hann að leiða sig. Svona rætast orð spámanna. Stjórnin hefir ekki fengist til að segja eitt aukatekið orð um árangur þeirra viðræðna, sem fram fóru meðan Stauning stóð hjer við. En Stauning sjálf- ur er þá ekki alveg eins myrk- ur í máli. Hann getur slegið á sitt breiða brjóst og sagt: jeg kom, jeg sá, jeg sigraði! Stauning er góður Dani og fullur metnaðar fyrir sína þjóð. „Et större Danmark“, hefir löngum verið áhugamál hans. Og vitanlega setur hann það ekkert sjerstaklega fyrir sig — þrátt fyrir ástina á Haraldi — að „stærri Danmörk“ tákni „minna ísland“. Stauning var hjer fáa daga í miklum mannfagnaði og síð- an hann kom heim hefir hann verið að raula: „Sáuð þið hana systur mína“ — „hún hefir gef- ið mjer hörpudisk“. ,Já lítil var „lille Söster“ um áramótin í vetur, en minni er hún orðin. Það, sem unnist hefir í sjálfstæðisbaráttunni á 18 ár- um í meðferð utanríkismálanna og vörslu landhelginnar, er nú lagt í lófa „stóra bróður“. Og „lille Söster“ segir að það sje svo „óskynsamlegt“ að reyna að standa á eigin fótum, það sje miklu betra að „bói“ leiði. Þar fór hörpudiskurinn! Stauning hefir þjónað sinni þjóð. Hann hrósar sigri og tal- ar djarfmannlega. En ráðherr- arnir okkar? Þeir eru hljóðir og hógværir, aldrei þessu vant. En þögnin getur líka talað sínu máli — „Fyrrum átt’ jeg falleg gull pú er jeg búinn að brjóta og týna“. —---------------— FRAKKAR STYÐJA SPQNSKU STJÓRNINA Uppreisnarmenn 2 km. undan Madrid, Sendimaður frá uppreisnarmönnum til Hitlers og Mussolini. Stórorustur í gær og í fyrradag. FRÁ FRJETTARITARA VORUM, KHÖFN í gær. SEYTJÁN franskar flugvjelar eru um það bil að leggja af stað frá París til þess að flytja spönsku stjörninni skotfæri. Þessi vopna- sending er varin með því, að franska stjórnin sje hrædd um að stofnað kunni að verða einræði á Spáni, sem verði vinveitt Þjóðverjum. Franska blaðið Echo de Paris segir að afskifti frönsku stjórnarinnar af uppreisninni sje glæpur, sem kunni að hafa í för með sjer alvarlegar af- leiðingar á sviði utanríkismálanna. En sagt er, aS franska stjómin hafi haft fyrir augum endurminningar frá því árið 1870, er Bismarck reyndi að koma þýskum prins til valda á Spáni; þetta gerði Bis- mark til þess að auka áhrifavald Þjóðverja í utanríkis- málum. Enska blaðið „Daily Mail“ skýrir frá því, að sendimaður frá uppreisnarmönnum sje nú staddur í London og sje á leiðinni til Þýskalands og muni ætla að biðja Þjóðverja og ítali um að- stoð til þess að berja niður kommúnismann. 4? 1 Oslofregn (FÚ) segir, að samkv. skeytum frá alþjóðleg- um frjettastofum muni ítalskar og þýskar vopnaverksmiðjur hafa selt uppreisnarmönnum vopn og hergögn síðustu daga, og ekki hikað við @.ð afhenda þau á þeim stöðum og tímum, sem hinir spönsku uppreisnarmenn hafa tilgreint og talið sjer fært að taka við þeim. Ástandið á Spáni óútkljáð. Ástandið á Spáni er enn óútkljáð. Uppreisnarmenn hafa tilkynt í útvarpið í Sevilla, að her þeirra muni í dag gera til- raun til að vinna Madrid. í dag er St. Jacobsdagur, tyllidagur á Spáni. ___ í skeyti frá Lissabon (Portúgal) segir, að ákí.fir bardagar sjeu háðir fyrir norðan Madrid í Guadrama-fjöllunum. Hafa bardagar þessir staðið látlaust síðan í gær. Mikill fjöldi af særð- um mönnum og dauðum hefir verið fluttir til Madrid. Lundúnafrjett (FÚ) segir, að stjórnarherinn hreki upp- reisnarmenn norður á bóginn. Segir í frjettinni að ómögulegt sje að dæma um það, hvort satt sje að Mola herforingi sje að álg- ast Madrid. í Lissabon frjett segir (í einkaskeyti til Morgunblaðsins) að framverðir uppreisnarmanha eigi nú ekki nema 2 km. ófarna til Madrid. Segir í frjettinni, að Mola sje nú að láta flytja stórskotalið sitt nær borginni, til þess að sam- eina það framvörðunum. Franska blaðið „Le Jour“ skýrir frá því, að uppreisnar- menn hafi á valdi sínu tvær aðalleiðir til Madrid, þ. e. Somo Sierra og Puerto de Leone. I Lundúna-frjett (FÚ) segir þó, að ómögulegt sje að dæma um, hvort rjett sje, að Mola herforingi Helgi P. Ðriem yerslunarerindreki, flúftnn frá Spáni. í gær barst Eggert P. Briem skeyti frá bróður sínum Helga, sem þá var staddur í franska bænum Narbonne skamt fyrir norðan landamæri Spánar. Segir hann í skeyti sínu, að hann hafi komið frá Barcelona, þangað norður eftir á föstudaginn, ásamt fjölskyldu sinni. Hann kvaðst hafa komist úr landi með vegabrjefi frá kommúnistum, en vopnaðir anarkistar fylgdu honum til braut- argengis. Á leiðinni frá Barcelona til landamæranna kvaðst hann hafa farið fram hjá 78 skotgirðingum. Uppreisnarmenn brytjaðir niður í San Sebastian Hætta á drepsótt í Gíbraltar. FRAMH. AF FYRRA DÁLKI. 1 sje að nálgast Madrid, en að uppreisnarmenn haldi því fram, að þeir hafi á valdi sínu allar aðflutningaleiðir til Madrid og vatnsleiðslurnar til borgarinnar. Franskir blaðamenn, sem dvelja í herbúðum uppreisnar- manna spá því, að uppreisnarmenn sigri. Segja þeir, að uppreisnarmenn sæki fram varlega til þess, að tryggja að- stöðu sína á þeim stöðvum, sem þeir hafa lagt undir sig. Segja þeir, að stjórninni í Madrid vanti bæði skotfæri og bensín. í Madrid ríkir ólýsanlegur glundroði, segir franska blaðið Figaro. Blaðið segir, að til sjeu matvæli aðeins til dagsins í dag, þrátt íyrir harðhenta skömtun. I Lundúnafregn (FÚ) segir aftur á móti að síðdegis í dag hafi borgarstjórinn í Madrid tilkynt, að 50 vagnar hlaðnir matvælum og eldsneyti, væru lagðir af stað frá Valencia. — Segir að stjórnin geri alt sem í hennar valdi stendur til að ná matvælum til borgarinnar. Ennfremur að verslanir, sjeu opnar og kaffihús borgarinnar. Þá er einnig sagt, að stjórn- arflugvjelar og her stjórnar- innar haldi uppi látlausri sókn á hendur uppreisnarmönnum í Sevilla. I Barcelona hefir ástandið batnað frá í gær. í dag voru bankar opnaðir á ný, og póstur borgarinrar borinn um göturnar í fyrsta skifti í marga daga. Uppreisnarmenn hafa á valdi sínu alt hjeraðið í kringum Gi- ! braltar, og sækja þeir þaðan | hægt í áttina til Madrid, en j stjórnarsinnar úr hjeruðunum j austan Andalusíu veita þeim i viðnám. I dag hafa ekki borist | neinar frjettir um stóra bar- i daga, og skeyti frá f jölda Ismærri borga á Spáni segja á- ’standið í þessum borgum með Ivenjulegum hætti. í San Sebastian hafa upp- jreisnarmenn verið hraktir úr ' öllum stöðvum sínum, nema i einni byggingu, og er borgin því á valdi stjórnarinnar sem ! stendur. Fregnir herma að stjórn- arliðið hafi brytjað nið- ur uppreisnarmenn í borg- inni, þegar þeir náðu henni á sitt vald (segir í einka- skeyti í Mbl.). Uppreisnarmenn fara með lið að borginni. Franskir flóttamenn frá San Sebastian áætla, að um 300 manns hafi PRAMH. Á SJÖTTU SÍÐU.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.